Morgunblaðið - 06.02.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
45
Annað atriðið er „20 mínútna
seinkun" Ingibjargar Björnsdóttur
við bráðskemmtilega tónlist Gunn-
ars Reynis Sveinssonar. Ingibjörg
þekkir vel takmörk flokksins og
Meistarinn í
Bíóhöllinni
Bíóhöllin hefur byrjað sýn-
ingar á kvikmyndinni „Meist-
arinn". í umsögn kvikmynda-
hússins segir svo:
„Box- og karate-snillingur-
inn Matt Logan (Chuck Norris)
er fenginn til að komast til
botns í morðmálum, sem, lög-
reglan hefur ekki getað ráðið
framúr.
Einmitt þá er Logan í góðri
þjálfun til að verja tiltil sinn á
móti Jerry Sparks (Bill Wall-
ace). Margt skeður, en það er
ekki fyrr en Logan mætir
Sparks í hringnum, þar sem
þeir berjast um hver verður
næsti box-karate-meistari að
I>ogan uppgötvar að hann er að
berjast um meira en titilinn."
hefur áður gert frábæra hluti með
honum. M.a. samdi hún ballettinn
„Sæmund Klemenzson", sem er með
því allra bezta sem flokkurinn hef-
ur látið frá sér fara. Þessi dans
fjallar um fólk er verður fyrir 20
mínútna seinkun á flugi. Kennir
þar margra grasa allt frá bleyju-
barnaforeldrum til stresstösku far-
þega. Hugmyndin er góð og vel út-
færð. Búningar skemmtilegir og
dans og leikur eins og bezt verður á
kosið. Ásdís er t.d. ógleymanleg I
hlutverki flugfreyjunnar. 14 dans-
arar koma fram í þessu atriði auk 5
barna sem eru nemendur í List-
dansskóla Þjóðleikhússins þau Eva
Hallbeck, Helena Jónsdóttir,
Hrefna Björg Hallgrímsdóttir, Jar-
þrúður Guðnadóttir og Þóra Kristín
Guðjohnsen.
„Hvar?“ var fyrra atriðið eftir
hlé. Höfundar eru dansarar I
verkinu, þau Birgitta Heide, Guð-
rún Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdótt-
ir, Lára Stefánsdóttir, Haukur
Clausen, Jóhannes Pálsson og örn
Guðmundson. Tónlistin er eftir
Þóri Baldursson, rythmisk og fjör-
ug og dansinn í samræmi við það.
Lilja Hallgrímsdóttir
Listdanssýning íslenska dansflokksins
Danshöfundar: Ingibjörg Björnsdótt-
ir, Nanna Olafsdóttir og meðlimir
dansflokksins.
Tónlist: Gunnar Rcynir Sveinsson,
Leifur l>órarinsson og Þórir Baldurs-
son. Kdward Klgar, Aram Katsjatúrj-
an og Jean Sibelius.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Svið og búningar: Guðrún Svava Svav-
arsdóttir.
Ef það er rétt, sem löngum hefur
verið haldið fram — að æfingin
skapi meistarann — þá er ekki
hægt að búast við góðri ballett-
gagnrýni á fslandi. Tæpt ár er nú
síðan síðast var boðið upp á ball-
ettsýningu í Þjóðleikhúsinu. Það er
aldeilis ótrúlegt að sjá hve dansar-
arnir standa sig vel, miðað við þess-
ar aðstæður. Það er ekki áhuginn
sem vantar hvorki hjá dönsurum,
áhorfendum né forráðamönnum
leikhússins. Trúlega skortir fé og
máske eitthvað fleira til þess að
þessum þætti listmenningar okkar
verði þjónað eins og hann á skilið. f
i haust tekur Gísli Alfreðsson við
Þjóðleikhússtjórastarfinu og er
óskandi að hann verði ballettinum
eins vinveittur og fyrirrennari
hans. En einu sinni enn — við svona
búið má ekki lengur una. Reglu-
legar ballettsýningar er raunhæf
krafa okkar áhorfenda jafnt sem
dansaranna. Því við verðum alltaf á
byrjunarstigi ella.
Á sýningu dansflokksins, sem
frumsýnd var 2. febr., voru fjögur
atriði. Fyrsta „Dansbrigði" við tón-
list eftir Elgar, Katsatúrjan og Sib-
elius. Danshöfundar dansanna I
verkinu þau Ásdís Magnúsdóttir,
Guðmunda Jóhannesdóttir, Helena
Jóhannsdóttir, ólafía Bjarnleifs-
dóttir, Jóhannes Pálsson og örn
Guðmundsson. Áberandi var í
þessu atriði hve dansararnir voru
léttari en oft áður. Búningar áttu
vel við fallega kóreógrafíu. Verkið
er í sígildum stíl. Helena og Jó-
hannes sýndu mikla framför frá því
i fyrra.
Búningarnir voru í diskóstíl. Vel út-
fært atriði og reglulega skemmti-
legt.
Þá var komið að síðasta atriðinu,
sem reyndist aldeilis ekki vera það
sísta. „Largo Y Largo“ eftir Nönnu
Ólafsdóttur við tónlist Leifs Þórar-
Danssmiðjan
Listdanssýning
íslenska dansflokksins
inssonar. Ballettinn er tileinkaður
Axel Jónssyni fyrrv. alþingismanni
með þakklæti fyrir stuðning við ís-
lenska dansflokkinn. Ballettinn lýs-
ir ævi manns frá vöggu til grafar.
Höfundur sér æskuna fyrir sér í
fjarlægri móðu og einnig efri árin,
en árin þar á milli sjást í fullu Ijósi.
Það sem var, það sem er og það sem
verður rennur hér saman í eina
listræna heild, sem hvorki hefur
upphaf né endi. Lífsins hringur. Til
aðstoðar Nönnu við uppfærsluna
voru þau Lára og Örn. Ég óska
Nönnu til hamingju með þennan
ballett. Dansarar í ballettinum eru
Ásdís Magnúsdóttir, Ásta Hen-
riksdóttir, Birgitta Heide, Guð-
munda Jóhannesdóttir, Helena Jó-
hannsdóttir, Lára Stefánsdóttir,
Haukur Clausen, Jóhannes Pálsson
og Örn Guðmundsson. Ásamt börn-
unum Jarþrúði Guðnadóttur og
Guðmundi Ingólfssyni, sem þarna
dönsuðu sitt fyrsta „Pas de Deux"
en áreiðanlega ekki það síðasta, þau
voru yndisleg. Einnig Anna Maria
Pitt, Ánna Lísa Rúnarsdóttir, Hild-
ur Hafstein, Hrefna Björg Hall-
grimsdóttir, Ingibjörg Agnes
Jónsdóttir og Marta Rut Guð-
laugsdóttir. Nútímaleg tónlist Leifs
Þórarinssonar, flutt af hljóð-
færaleikurunum, Hólmfríði Sigurð-
ardóttur, píanó, Einari Jóhannes-
syni klarinett og Kolbeini Bjarna-
syni flautu, átti sinn þátt í að gera
verkið spennandi. Einnig hér voru
búningar og tjöld við hæfi. Lýsing í
öllum atriðunum var góð. Þetta er
virkilega vönduð sýning og tóku
frumsýningargestir vel á í lófa-
klappi er dansarar og aðrir að-
standendur sýningarinnar, þ.á m.
þrír íslenskir tónsmiðir, gengu
fram á sviðið í lok sýningarinnar.
Takk fyrir skemmtunina.
Lilja Hallgrímsdóttir
ao pessi nusgogn iengu
gullverðlaun 1982 og
aftur nú 1983, fyrir
frábært handverk stíl og
gæði.
Ármúla 44 -
Símar65153
Listdans