Morgunblaðið - 06.02.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
53
„Bracque og Ficasso voru alveg frá sér numdir yfir óendanlegum möguleik-
um nýrrar aldar, sem byggðist á hraðri, fleygri umsköpun og tilfinningu fyrir
afstæðum heimi. Hér er ein af frægustu myndum Picassos „llngfrúrnar í
Avignon".
ar þess skreppa ótrúlega hratt sam-
an. Ef til vill fer best á því að það
umvefji sína eigin skreytilist, en það
er langt frá þeirri framtíðarsýn sem
Kandinsky, Malevich og Mondrian
höfðu fyrir þess hönd,“ segir Hugh-
es. Hér er ein af myndum Mondri-
ans frá því í lok heimsstyrjaldarinn-
ar.
löngunina til að búa til helgimynd-
ir úr ódýrum, fjöldaframleiddum
heimi — og nær í gegn um feril
listamanna á borð við Stuart Dav-
is, Rauchenberg, Johns, Rosen-
quist, Oldenburg og Warhol. Popp-
ið er alveg búið að missa sinn drif-
kraft, en það er þess virði að líta á
það vegna þess að það var tilraun
til að ná fjöldamenningunni og há-
leitum listastíl saman í einhvers
konar djöfulótt form. Áttundi og
síðasti sjónvarpsþátturinn er svo
nokkurs konar uppgjör, fremur
svartsýnar horfur um framtíðina."
Hvers vegna svartsýnar, spyrj-
um við.
„Vegna þess að listin er ekki
lengur beður hugsjónanna, eins og
hún var í upphafi aldarinnar",
svaraði Hughes. „Við lifum í ákaf-
lega svartsýnu samfélagi, sém hef-
ur mikið til misst trúna á hæfileika
listarinnar til að holdi klæða trú-
arlegar eða huglægar, heimspeki-
legar þenkingar. Og ég sé ekkert
fyrir endann á þeirri stefnu að
hversdagsgera listina fyrir mark-
aðinn. Ég sé heldur ekki fyrir end-
ann á goðadýrkun „meistaraverka"
í söfnum fyrir aukna aðsókn fjöld-
ans. Listaverk eru nú á dögum
dæmd „góð“ eftir frægðarorðinu
sem af þeim fer. En frægð á torg-
um er ekki umbun fyrir sýnd afrek,
heldur frægð fyrir að vera þekktur.
Það sem kveikir logann og blæs í
glæðurnar eru peningar. Sú al-
menna niðurstaða samfélagsins að
list sé gull, dregur allan mátt úr
þjóðfélagslegri gerjun hennar,
hindrar með öðrum orðum hæfi-
leika listarinnar til að geta tengst
öðrum sameindum, sem berast að
henni úr þjóðfélaginu og flytur list-
ina upp á pall óumbreytanlegra og
gagnslausra hugaróra. Þetta fagn-
ar engu eða frægir. Tvær hug-
myndir liggja til grundvallar þess-
ari heilu öld sem við kennum við
nútímalist. Önnur er skörp tilfinn-
ing fyrir myndmáli verksins, fyrir
formeiginleikum þeirrar listar sem
maður er að stunda — þannig að
formeiginleikarnir verða að vissu
marki viðfangsefni verksins. Hin
er ákaflega sterk von nútímans um
að listin geti bjargað heiminum,
fært okkur réttlæti, samræmi og
orðið undirstaða þjóðfélagslegra
umbreytinga. Það var á hinu fyrr-
nefnda sem nútímalistin náði sér
raunverulega á strik, en á hinu síð-
ara sem hún brást, eftir að hafa
framleitt sín bestu verk. Vegna
þess að hún færði okkur ekki neitt
betri heim. Hún gaf okkur ekki
annað en örlítið frábrugðinn
heim.“
(E.Pá. þýddi).
Þingkosn-
ingar í Astral-
íu 5. marz
Sjdncy, 3. fobrúar. Al*.
MALCOLM Fraser, forsætisráð-
herra Ástralíu, hoðaði í dag til al-
mennra þingkosninga í landinu og
ciga þær að fara fram 5. marz nk.
Ástæðan fyrir þingrofi nú er and-
staða verkalýðsfélaganna við launa-
bindingu og hótanir þeirra um verk-
foll.
Fraser lýsti því yfir í ræðu, sem
hann flutti í dag, að tilraunir
verkalýðsfélaganna til þess að
brjóta launabindinguna á bak aft-
ur sýndu „eigingirni þeirra og
græðgi" og að ekki væri unnt að
þola þær. Sagði Frazer, að hann
myndi hætta við fyrirhugaðan
fund með Reagan Bandaríkjafor-
seta vegna kosninganna.
Tilkynning Frazers um kosn-
ingarnar kemúr í kjölfar afsagnar
Bill Haydens, sem leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar á þingi, en Hayd-
en er leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins.
FLEKA
MOTAKERFI
tré eöa stál
— Tréflekarnir eru framleiddir af
Malthus as. i Noregi. Mest notuð
kerfismót þar í landi.
— Stálflekarnir eru framleiddir at
VMC Stálcentrum as. í Dan-
mörku. Fjöldi byggingameistara
nota þessi mót hér á landi.
— Notið kerfismót, það borgar sig.
— Ath. algreíðslutími ca. 1—2 mán.
— Stórt og
smátt í mótauppslátt.
BREIÐFJORÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitió nánari uppiýsinga
aó Sigtúni 7 Simii29022
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Þarftu
AÐSTOÐ?
• Rádgjöf eða hönnun
• Jarðvinnsluverktaka
• Byggingarverktaka
• Pípulagningarverktaka
• Rafverktaka
• Múraraverktaka
f Málaraverktaka
• Innréttingaverktaka
• Hurðasmiðjur
• Gluggasmiðjur
• Dúklagningameistara
• Stálsmiðjuverktaka
• Hreingerningarverktaka
• Flutningsverktaka
• o.fl. o.fl.
Þetta er fyrirtæki sem leitast við
að veita góða þjónustu þar sem
ábyrgð, ráðvendni og þekking
eru höfð í fyrirrúmi.
Fyrirtækið er eingöngu í sam-
vinnu við fullgilda fagmenn.
O
VERKTAKAIÐNAÐUR HF
Skipholti 19, 105 Reykjavík.
Sími 29740.
Tilboð — verksamningar —
greiösluskilmálar.
Fyrirtækið starfar almennt á sviði
framkvæmda og breytinga, jafnt
í gömlum sem nýjum húsum.
THOMSON
Þvottavélar
Framhlaðnar
/
Verö: 16.995.-
Utborgun: frá 6.000
Eftirstöövar: Allt aö 6 mán.
Fáðu þér Thomson tryllitæki.
Sendum hvert á land sem er.
Topphlaðnar
Hagkvæmni + afköst
Hverjir eru kostirnir við
topphlaðnar þvottavélar:
• FYRIRFERÐARLITLAR:
Vélin er aðeins 45 cm breið og kemst vel fyrir í
eldhúsi eða á baði.
• GÓÐ VINNUAÐSTAÐA
Ekki er nauðsynlegt að beygja sig þegar verið
er að hlaða eða athlaða vélina. Það er hægt aö
opna vélina, þó hún sé full af vatni. (Það er
gagnlegt þegar ýmis gerviefni eru þvegin.)
• MEIRI ENDING:
Þvottabelgurinn er á legum báöum megin, sem
stóreykur endinguna og minnkar titring.
THOMSON er stærsti framleiöandi
þvottavéla í Evrópu.
THOMSON þvottavélarnar fara nú sig-
urför um Island og hljóta bestu meö-
mæli.
Við bjóðum:
5 kg topphlaðna vél meö mjög fullkomnu
þvottakerfi og auk þess þurrkara sem not-
ar nýjustu tækni og þarf ekkert útblásturs-
rör, þar sem vélin breytir gufunni í vatn,
sem er síðan dælt út á sama hátt og ööru
vatni. Þessi nýja tækni er margfalt öruggari,
þar sem þessi tækni kretst ekki flókins
blástursbúnaðar.