Morgunblaðið - 06.02.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.02.1983, Qupperneq 21
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983 61 Tilraunir á dýrum héldu vöku fyrir sjúklingum. Frá Þriöja sjúkrahúsinu í Peking. Kristján Guðlaugsson, frétta- ritari Morgunblaðsins í Peking, var fyrir nokkru skorinn upp á Þriðja sjúkrahúsinu þar í borg vegna sprungins maga. í greininni segir hann frá reynslu sinni af sjúkra- húsdvölinni. í bréfi til ritstjórans tekur hann fram að þótt lýsingarn- ar séu svolítið krassandi þá hafi hann fremur dregið úr þeim en auk- ið við. Að því er Morgunblaðinu er bezt kunnugt hefur Kristján náð heilsu á ný þrátt fyrir þá lífs- reynslu sem hann varð fyrir. Kínverskar hjúkrunarkonur á vaktinni. Klukkan rúmlega 6 að morgni, þegar ég hrekk upp við að ein- hver ræskir sig og hrækir af lífs og sálar kröftum úti á ganginum. Það er engu líkara en tannburstinn hafi hrokkið ofan í lungun á aumingja manninum. Norðangarrinn næðir innum gisna gluggana, svo ljósblá- ar plastgardínurnar lyftast frá kölkuðum steinveggnum. Glugg- arnir eru tvöfaldir, en einhvern tímann hafa báðir ytri gluggarnir brotnað í stormi. Annar hangir á einum hjörum en hinn er bundinn aftur með sárabindi. Næturhjúkr- unarkonan kemur inn og réttir mér hitamælinn, sem ég sting möglunarlaust undir armkrikann og hjúfra mig aftur undir sæng- ina. Svo setur hún frá sér stóran hitabrúsa fullan af sjóðheitu vatni og brosir vingjarnlega til mín. Nýr starfsdagur er að hefjast á Bei Yi San Yuan — þriðja sjúkrahúsinu í Peking. Mér verður ósjálfrátt hugsað til frásagna af elstu ís- lensku sjúkrahúsunum, þegar ég staulast á fætur og tek að þrífa mig. Allt byrjaði þetta þegar tíðinda- maður Morgunblaðsins hneig fár- sjúkur niður með sprunginn maga um hábjartan dag á heimavistinni austur í Peking. Nærstaddir hringdu umsvifalaust á lækni skólans, sem harðneitaði að koma á vettvang, uns haft hafði verið í hótunum við hann. Hann hafði þó engin ráð tiltæk önnur, en að slæva sársaukann með hláturgasi, sem hann dældi upp í mig með gúmmíslöngu úr koddalöguðum físibelg. Og ekki var hægt að flytja mig á spítala, fyrr en ábyrg- ur kennari hafði komið til skjal- anna og fullvissað sig um að ég hefði öll skjöl á reiðum höndum til þess að fá inngöngu á sjúkrahúsið. Engir sjúkrabílar í Peking „Það eru engir sjúkrabílar í Pek- ing,“ upplýsti hún og sletti svartri fléttunni aftur á bak, orðum sín- um til áréttingar. Það var því ekki um annað að ræða en drösla mér inn í aftursætið á Shanghai- drossíu skólans og keyra mig með tilheyrandi flauti niður á Bei Yi San Yuan-sjúkrahúsið. Raunar hef ég séð marga sjúkrabíla hér í Peking, en þar sem skólinn kostar sjúkraflutninga og heilsugæslu nemenda, er ekki kallað á sjúkra- bíl, nema mikið liggi við. Á Bei Yi San Yuan upphófst mikil reki- stefna út af mér. Ungur og tauga- veiklaður læknanemi tók að þrýsta og pota víðs vegar i mag- ann á mér, meðan hópur af for- vitnum borgarbúum safnaðist saman um okkur og fylgdist með af áhuga. Læknaneminn var sannfærður um að þetta væri botnlangabólga og það þýddi ekk- ert að benda honum á 20 ára gam- alt ör á kviðnum á mér. Slíkt til- heyrði auðsæilega ekki vísinda- legri rannsókn og var ósamboðið lærðum iækni. Hann ýtti höndinni vinsamlega burt og hélt áfram að pota og kreista þar til ég hélt að hann myndi drepa mig. Og sífrinu um kvalastillandi lyf var svarað með umburðarlyndu brosi og upp- lýsingum um að botnlangasjúkl- ingar þyrftu ekki slík lyf. Nær- staddir ræddu málin af miklum hita og sífellt bættust fleiri í hóp- inn sem stungu höfðunum inn um dyrnar á herberginu. Dílabrcnnsla og nálarstungur f nærliggjandi herbergi var mikið fjaðrafok út af óvæntri og óboðaðri heimsókn minni á sjúkrahúsið. Skrifstofufólkið gat ekki skipt peningum og neitaði að taka við hærri upphæð en fram átti að leggja. Áuk þess hafði sjúklingurinn ekkert sendiráð og hver átti þá að skrifa undir papp- írana, ef til skurðaðgerðar kæmi? Norskur skólafélagi minn hringdi þá í norska sendiráðið og þar vissu menn að danska sendiráðið hefði verið fslendingum innan handar hér í Peking. Og um síðir hringdi danska sendiráðið og gekkst í ábyrgð, fyrir hugsanlegum fram- kvæmdum. Þar með var allt klappað og klárt frá sjónarhóli skriffinnanna, enda búið að leita í vösum sjúklingsins og finna rétta mynt til að borga innganginn. Læknaneminn sat enn og þukl- aði mig og varð æ vissari um sjúk- dómsgreiningu sína. Og þegar yf-- irlæknirinn var búinn að fyrir- skipa uppskurð með hraði og heimta morfíngjöf og röntgen- myndatöku, sat hann enn og blað- aði í handbók læknanema, til að kynna sér einkenni botnlanga- bólgu. Skurðstofan var stórt og kulda- legt herbergi með hvítkölkuðum og flögnuðum veggjum. Eitt skurðborð stóð á miðju gólfi og yfir því hékk risavaxinn lampi. Inni í honum var heilmikið dýra- líf, bæði flugur og kóngulær, sem ég stytti mér stundir við að horfa á meðan ég beið þess að skurðað- gerðin hæfist. Þrjár stundir voru nú liðnar frá því ég hneig niður. Sjúkrahúsið er korters aksturs frá skólanum. Kínverjar eiga langa og merki- lega sögu í lækningum og þar kennir margra grasa. Líklega státar engin þjóð af slíkri auðlegð sem forn læknisdómur er í Kína. Mér var tilkynnt, að ég yrði mænustunginn og deyfður með nálarstungum og dílabrennslu. Dílabrennsla fer þannig fram, að litlum hnoðra af jurt sem Moxa heitir er hnoðað á hárfína nál, sem síðan er stungið í kropp sjúkl- ingsins. Á eftir er kveikt í jurtinni og hitinn frá brunanum veldur svipuðum áhrifum og nálarstunga. Meðan ég seig inn í þungt mók, var tréramma með óhreinum og blóðugum dúk komið fyrir yfir höfði mér, svo ég sæi ekki til skurðlæknanna, sem teknir voru að brýna busana. Ég mókti meðan á aðgerðinni stóð, en minnist þess þó að hafa talað við skurðhjúkrun- arkonuna sem stóð við höfðalagið tvívegis. Aðbúnaður og eftirköst Þegar ég vaknaði sat skólafélagi minn yfir mér. Hún upplýsti mig um það, að skólafélagar mínir hefðu skipst á að vaka yfir mér um nóttina, því næturhjúkrunar- konan svaf. Heljarmikil hand- pumpa var tengd við slöngu sem þrædd var um nös mér ofan í mag- ann, eða það af honum sem enn var innanborðs. Alls konar pípur og slöngur héngu í flækjum utan á mér og öllu þessu stýrðu skólafé- lagar mínir. Enginn þeirra hefur reynslu eða menntun í hjúkrun. Starfsfólk spítalans var afskap- lega vinsamlegt, en sá hængur var þó á, að það sinnti ekki störfum sínum að sama marki og ég vænti af því, út frá reynslu af íslenskum sjúkrahúsum. Þannig varð ég að þrífa mig sjálfur og öðru hvoru gleymdist að gauka að mér mjólk- urglasinu, sem ég þó hafði leyfi til að sötra í mig. Hreinlætið á Bei Yi San Yuan var ekki beinlínis til fyrirmyndar. Fyrir kom að magaslangan stífl- aðist og þá þurfti að soga stífluna úr með sprautu og hjúkrunarkon- urnar spýttu miður geðslegu inni- haldi hennar ævinlega eftirá í hornið hægra megin við höfða- gaflinn minn. Raunar var gólfið sópað með blautum kústi einu sinni á dag, en þvottalög sá ég ekki meðan ég dvaldist á sjúkrahúsinu. Salernin voru með ólíkindum óhrein og líktust helst flór í niður- niddu fjósi. Áhöld og verkfæri lágu í einhverskonar hreinsilög, en voru þó ekki hreinni en það, að tíðindamaður Morgunblaðsins í Peking fékk alls kyns bólgur og sýkingar fyrir vikið. Lyfjagjöf var fremur fábrotin, 8 töflur af C-vítamíni og annað eins af B-vítamíni á degi hverjum. Þá var mér tilkynnt, að of mikil verkjalyf yrðu bara til að gera mig að eiturlyfjasjúklingi og þess vegna voru þau tekin af mér á öðrum degi sjúkrahússdvalarinnar. En Kína er fátækt land og lyf eru dýr. „Það eru bara hundarnir“ Fyrstu dagana lá ég í bælinu og gat mig ekki hreyft. En þegar ég fór að hressast, ranglaði ég um gangana og skoðaði sjúkrahúsið. Kínversku sjúklingarnir voru kappklæddir og höfðu náttfötin yst klæða. Mikið af ættingjum og vandamönnum sat yfir sinum nánustu og aðstoðaði við hjúkrun- ina. Margir komu með mat handa sjúklingunum, enda matur dýr á sjúkrahúsinu. Kínverjar eru árris- ulir og iðnir. Þess vegna var eng- inn vakandi á Bei Yi San Yuan eftir ellefu á kvöldin nema ég og það af starfsliðinu, sem ekki svaf. Fyrsta kvöldið sem ég hafði fulla rænu hrökk ég í kút við einhver skelfilegustu óhljóð sem ég hef heyrt. Nístandi ýlfur barst neðan úr kjallara og bergmálaði í stein- veggjunum og ég var sannfærður um að þau kæmu frá skurðstof- unni. Deyfilyfin eru svo dýr. Þegar ég spurði lækninn um þessi hljóð, svaraði hann afsakandi, „það eru bara hundarnir“. Niðri í kjallara fór nefnilega fram vísindaleg rannsókn á lifandi dýrum í þágu mannkynsins. Þótt ég sé ekki and- vígur framvindu þjóðfélagsins, átti ég bágt með að sofna meðan ég var að venjast þessum óhljóð- um. Þegar ég útskrifaðist frá Bei Yi San Yuan, fjórtán dögum eftir innlögn, kvaddi læknirinn mig með þessari hughreystingu: „Mundu svo, að ef þú borðar eitthvað sem þér verður illt af, skaltu ekki borða það aftur.“ TIL SÖLU Báturinn er 11 tonn og honum fylgja 6 rafmagns- handfæravindur, netabúnaður og net. Upplýsingar í síma 35494 eftir kl. 20.00. TÖLVUFRÆÐSLA Tölvuval — undirbún ingur og framkvæmd Tilgangur námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að taka ákvarðanir varðandi undirbúning og framkvæmd tölvuvæðingar og val tölvubúnaöar fyrir eigin fyrirtæki. Leiðbeinandi: Þarfnast fyrirtækið tölvu? — Hvað á að tölvuvæða? — Hvenær er rétti tíminn til að tölvu- væðast? — Með hvaða búnaði á að tölvuvæða? Efni: Fjallað verður um alla verkþætti tölvuvæðingar frá undirbúningi til vals tölvubúnaðar. Auk þess verður fjallað sérstaklega um áhrif tölvuvæðingar á stjórnskipulag og starfsfólk fyrirtækis- ins. Páll Pálsson hagverkfræðingur. Námskeiðið er ætlað framkvæmdastjórum og öðrum þeim stjórnendum sem taka þátt í ákvörðunum um tölvuvæðingu og val tölvubúnaðar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur þekki helstu hugtök á sviði tölvutækni og kerfisfræöi. Staður: Síöumúli 23, 3. hæð. Tími: 16,—18. febrúar kl. 13—18. RITVINNSLA I Notkun ritvinnslukerfa viö vélritun hefur nú rutt sér til rúms her a landi. Tilgangur þessa námskeiðs er að kynna rit- vinnslutæknina og kenna á ritvinnslukerfiö ETC sem er tengt tölvu Skýrsluvéla ríkisins , og Reykjavíkurborgar. Leióbemendur: Efni: — Hvað er tölva? — Áhrif tölvuvæðingar á skrifstofu- störf. — Þjálfun á ritvinnslukerfið ETC. Námskeiðið er ætlað riturum sem vinna við vélritun bréfa, skýrslna, reikninga o.fl. og nota eða munu nota ritvinnslu- kerfi tengd stórum tölvusamstæðum á vinnustað. Leiðbeinendur á þessum námskeiöum eru Kolbrún Þórhallsdóttir og Ragna Siguröardóttir Guðjohnsen, sem báöar eru sérhæfðar í kennslu á ritvinnslu- kerfi. Ragna Sigurðardóttir Guöiohnsen Staður: Ármúli 36, 3. hæö, (gengið inn frá Selmúla). Tími: 21.—25. febrúar kl. 09.00— 13.00. 1 Kolbrun Þórhallsdóttir u-,,. . . wumaiisaoinr Þatttaka tilkynmst til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. SUÚRNUNABFÉLA£ ÍSLANDS^H SÍÐUMULA 23 SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.