Morgunblaðið - 06.02.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.02.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983 69 Jakob Magnússon hér, en ekki Anna Björns. Hver veit nema hún geri grín aö honum líka. Anna Björns gerir grín aö rokkurum nútímans Anna Björns, scm við íslend- ingar getum augum barið í kvik- myndinni „Með allt á hreinu" þessa dagana, hefur að undan- förnu staðið í ströngu við leik í einu stærstu hlutverkanna í stórmynd, sem framleidd er í Hollywood. „Get crazy“ heitir þessi mynd og í henni er ákaft grín gert að rokkinu og þá sér í lagi rokki nútímans og stórstjörn- um þess. Aðalhlutverkið í þessari mynd er í höndum hins heimskunna leikara, Malcolm McDowell, sem menn ættu að þekkja úr eftir- minnilegum hlutverkum hans í „Clockwork Orange" og „Cali- gula“. í „Get crazy“ leikur McDowell enska rokkstjörnu, sem kölluð er Reggie. Lýsir McDowell Reggie þessum sem eigingjörnum náunga, sem hef- ur einangrað sig frá raunveru- leikanum. I nýjasta hefti breska tíma- ritsins „Movies & Video", er fjallað um myndina og skýrt frá því, að McDowell viðurkenni að hafa stolið einu og öðru frá þeim Rod Stewart og Mick Jagger í leik sínum. Leiðir blaðið getum að því, að þeir kump.ánar verði litlir vinir McDowels eftir að þeir hafi barið myndina augum. Anna Björns, eða Anna Björn eins og blaöið nefnir hana, leik- ur sætu skvísuna, sem hangir utan í rokkstjörnunni. Ber hún nafnið Countess Chantamina, (var einhver að tala um Mari- anne Faithfull?). Skemmtun SATT, „Konur í framlínu“, í Broadway í kvöld: Konur í popp- og jasstónlist verða í framvarðasveitinni SATT bætir enn einni skrautfjöðr- inni í hatt sinn í kvöld þegar skemmtun undir yfirskriftinni „Konur í framlínu" fer fram í veit- ingahúsinu Broadway. A skemmtun þessari verða konur í fyrirrúmi eins og yfirskriftin bendir til og það ekki neinar af lakara taginu (ekki svo að skilja að konur séu yfirleitt eitthvað annað en fyrsta flokks). Ef farið er yfir nöfn skemmti- kraftanna í kvöld kemur strax í ljós, að af nógu er að taka. Við förum ekkert í manngreinarálit hér á Járnsíðunni og nefnum fyrst Tappa tíkarrass með Björk Guð- mundsdóttur í broddi fylkingar. Auk þeirra koma Grýlurnar, með Ragnhildi Gísladóttur sem drif- fjöður, fram, svo og ný hljómsveit, sem nefnir sig Bakkabræður. Hljómsveitin Bakkabræður er skipuð þeim Bergþóru Árnadóttur, Grímu Guðjónsdóttur og Önnu Maríu hvers föðurnafn var ekki vitað. Þeim til trausts og halds verður Gísli Helgason. Stúlkurnar vilja taka það fram, að nafnið Bakkabræður sé í þessu tilviki notað í kvenkyni. Beygingin því Bakkabræður, um Bakkabræður, frá Bakkabræðum og til Bakka- bræða. Hljómsveitin kemur fram fyrsta sinni í kvöld. Jazzunnendur fá heilmikið fyrir sinn snúð, rétt eins og poppaðdá- endur. Oktavía Stefánsdóttir jazzsöngkona sem lítt eða ekkert hefur heyrst til hérlendis en hefur sungið við góðan orðstír í Dan- mörku um margra ára skeið, treð- ur upp í kvöld ásamt jazzkvartett Jazzvakningar. Kvartettinn er skipaður þeim Kristjáni Magnús- syni/píanó, Árna Scheving/bassa, Guðmundi Steingrímssyni/- trommur, og Birni Thoroddsen/- gítar. Auk þessara gesta, sem hverjir eru öðrum betri, kemur sænska jazzhljómsveitin Salamöndrurnar fram, en hún er einvörðungu skip- uð kvenfólki. Er ekki að efa, að hún á eftir að vekja verðskuldaða athygli Það má hins vegar segja nú eins og svo oft áður, að sjón er sögu rfkari. Kynnir í kvöld verður hin góð- kunna Edda Andrésdóttir og Egill Ólafsson verður sérstakur gestur og treður væntanlega upp með Grýlunum í nokkrum vel völdum lögum. Þorravakan hjá |\ MS að hef jast — popptónleikar og margt annað áhugavert Tvær góðar gefast upp Tvær af þekktustu poppsveitum íra hafa nú gefið upp öndina. Þetta eru flokkarnir Thin Lizzy og Stiff Little Fingers. Meðlimir Thin Lizzy segjast vera orðnir þreyttir á „ströggl- inu“, sem fylgir hljómsveitabrans- anum, en hafa engu að síður ákveðið að halda í kveðjutónleika- ferð. Ástæðurnar fyrir uppgjög SLF munu vera svipaðar. Meðlimirnir telja sig m.a. ekki hafa notið verðskuldaðra vinsælda. Safn- plata með SLF er væntanleg. Menntaskólinn við Sund gengst fyrir sinni árlegu þorravöku dagana 9.—15. febrúar nk. Þorravaka þessi felst fyrst og fremst í því, að nem- endur jafnt sem kennarar lyfta sér upp frá hinu hefðbundna náms- amstri. Vinna þeir þess í stað í hóp- um að hugðarefnum sínum. Að þessu sinni eru hóparnir um 35 tals- ins. Má þar t.d. nefna hópa um dulspeki, pönk, hesta, bardaga- og leiklist. Auk þess verða á þessari þorra- vöku ýmsar uppákomur, s.s. hljómleikar og kvikmyndasýn- ingar. Fimmtudaginn 10. febrúar verða aðalhljómleikarnir, en þeg- ar þetta er ritað hefur ekki verið ákveðið hvaða hljómsveitir leika, en Grýlurnar hafa þó verið nefnd- ar. Daginn eftir, á föstudag, verður síðan efnt til hljómsveitakynn- ingar og hafa einar sjö sveitir boð- að komu sína. Þetta eru Svart/- hvítur draumur, Haugur, Véband- ið, Hin konunglega flugeldarokk- sveit, Trúðurinn, Englabossar og Vonbrigði. Hljómleikarnir verða í leikfimisal skólans og hefjast um kl. 20.30. Öllum er heimill aðgang- ur. Nemendur skólans munu einnig starfrækja útvarpsstöð dagana sem þorravakan stendur yfir. Verður útvarpað á FM-bylgju og ættu útsendingar að nást í ná- grenni skólans. Efnið byggist einkum upp á popptónlist, auk þess, sem fréttum frá skólanum verður skotið inn í. Þá verður nemendum skólans gefinn kostur á að koma með eigið efni til flutn- ings. Reyndar er hverjum sem er boðið að koma með efni, þannig að telji menn sig hafa eitthvað skemmtilegt fram að færa er um að gera að taka það upp á segul- band og koma því til útvarpsráðs skólans. Fyrir þá, sem hafa áhuga, verð- ur útvarpað á þessum tímum alla dagana. Frá kl. 08.30 til 09.15, 12.00 til 13.50, 15.30 til 17.30, 19.30 til 20.30 og frá kl. 23.00 til mið- nættis stangist það ekki á við uppákomur. — DP/— SSv. Ragga Gísla í Grýlunum skartar sínu fegursta í kvöld. Mezzoforte færir sig upp á skaftið hjá Bretum: Þvílíkt og annað eins! Þaó fór eins og við spáðum, þegar við vorum hér að segja frá góðum dómum Mezzoforte í Record Mirror fyrir skemmstu, að e.t.v. liði ekki á löngu þar til nafn hljómsveitarinnar færi að sjást á vinsældalistum í Bretaveldi. Við hétum lesendum vor- um því að hafa augu og eyru opin og vangaveltur okkar um hugsanlega frægð og frama Mezzoforte gætu verið að rætast að einhverju leyti. í síðasta hefti Record Mirror, dagsettu þann 29. janúar, getur að líta nafn sveitarinnar á lista plötuverslanakeðjunnar Our Price, sem auglýsir mjög mikið í breskum poppritum og hefur mik- ið umfangs. Þar er plata Mezzo- forte „Surprise, Surprise" í 44. sæti af 60 plötum, sem á listanum eru. Þótt listi þessi segi e.t.v. ekki mikið um sölu plötunna'r' gefur hann þó ákveðna vísbendingu um, að heilmikið sé um hana spurt og hún keypt. Það, sem meiru máli kann þó að skipta fyrir vinsældir Mezzoforte í Englandi er, að hljómsveitin kemst inn á diskó-listann hjá Rec- ord Mirror í fyrsta skipti með 12 tommu plötuna með lögunum Garden Party og Funk Suite No. 1. Situr platan í 67. sæti listans, en alls eru 85 plötur á honum. Listi þessi er gerður af verslunum, sem sérhæfa sig í sölu á diskóplötum fyrir þá dansóðu. Þótt þetta séu vissulega gleði- legar fréttir er engin ástæða til að taka bakföll af gleði. „Instru- mental“-tónlist á mjög erfitt upp- dráttar í Englandi alla jafna. Ekki bætir úr skák ef menn eru hvorki breskir eða bandarískir. Listi Our Price yfir 60 mest seldu plöturnar hefur aðeins að geyma fimm plötur með „instru- mental“-tónlist. óhætt er að segja, að strákarnir í Mezzoforte séu þar í góðum félagsskap, því þeir fjórir aðrir, sem á listann komast með umrædda tegund tón- listar eru engir aðrir en Incanta- tion, Sky, Richard Clayderman og John Williams. Á listanum eru líka bara fjórir „útlendingar": Men At Work, ABBA, Riehard Clayderman og Mezzoforte. „Því- líkt og annað eins.“ Sabbath hugsar sér til hreyfings Töluvert er nú um liðið frá því eillhvað heyrðist í Black Sabbath. Hljómleikaplata þeirra er reyndar nýverið komin út, beinlínis sett til höfuðs hljómleikaplötu Ozzy Oz- bourne. Höfuðpauramir, Tony Iommi og Geezer Butler, eru nú að hugsa sér til hreyfings á ný og eru á höttunum cftir efnilegum mönnum. Ronnie James Dio sagði skilið við sveitina, en í mesta bróðerni. Var það helst ágreiningur um „sánd“, sem olli skilnaðinum. „Ronnie vildi hafa „sándið" hjá okkur eins og hjá Tom Joncs, en við vildum hafa það heldur grófara," sagði Geezer. Ekki náðist samkomu- lag og þar ineð skildi leiðir. Geezer Butler hefur sagt, að að- dáendur Sabbath (ef þeir eru þá til ennþá) muni ekki verða fyrir von- brigðum með væntanlega liðsskipan flokksins því aðeins verði valdir úr- valsmenn. -EO ZEPPCLIN v'OOA IMAGINATION N THl m, A* v.'f -Hl N ,H' ORlGINAL SOUNOTRACK I T BLANCMANGE .-.APPv f AMU t S MELBA moore WpTRACK 46 38 47 45 48 46 FLOCKOf SEAGULLS L.lVk.'E *l : JONI MITCMELL 61 71 62 58 FIRE SHE'S GOT TO BE IA DANCERI/I M DOWN FOR THAT, Jerry Kmght. US A&M LP THÉ PREACHER'ASPHALT GARDENS. George Howard, US Palo Alto .l,S-E I P FEELIN HOT (INSTRUMENTAL}, Futura, US Reelin & Rockin 12in FALL IN LOVE WITH ME, Earth Wind & Ftre, CBS 1 2m STEP IN THE LIGHT/YOUNG FREE AND SINGLE, Sunfire, US Warner Bros L.P I I 1 iTF AROLiNn Outi.iil Smniiju All.-rnn,- 1 t 46 GAILDLN PAHTY.Í UNK SLIÍTF NO 1 M,Stmn'.'.r 1 ?„f TOO TOUGH/AIN T NOTHING LIKE THE REAL THING/IS THIS A DREAM/LOVE YOU TOO MUCH. Angel Bofill. US Ansta LP 69 42 HUEVO DANCING/CHIMENTAL MIX, Fresh Face. US Catawba 1 2m 70 72 I LL BE IHERE/YOU CAN T TAKE MY LOVE/PARADISE/I KNEW IT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.