Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
5
íslenzk karnival-
drottning til Ríó
Útsýn efnir til karnival-hátíöar og ferða-
kynningar á Broadway á konudaginn
MORCUNBLAÐINU barst í gær eftir-
farandi fréttatilkynning frá Ferða-
skrifstofunni Útsýn.
„Bolludagur, sprengidagur og
öskudagur er eini vísir þeirra há-
tíðahalda á íslandi, sem víða fara
fram með miklum glæsibrag erlend-
is dagana fyrir föstuinngang og
nefnast karnival eða kjötkveðjuhá-
tíð. Vegleg hátíðahöld með dansi og
dunandi tónlist, skrúðgöngum,
skemmtunum, þar sem fólk klæðir
sig í alls konar gervi, og hvers kyns
uppákomur setja svip sinn á allan
borgarbrag víða um heim á þessum
tíma árs, og er hápunktur hátiða-
haldanna á miðvikudag fyrir föstu-
inngang, sem við köllum öskudag.
Karnival-hátíðir í Köln og Nice er
með þeim frægustu í Evrópu, en
Karnival í Ríó slær þó allt út í þess-
um efnum, þar sem göturnar fyllast
af dansandi og syngjandi fólki svo
dögum skiptir.
Ferðakynning Útsýnar í Broad-
way nk. sunnudagskvöld verður með
nýstárlegu sniði, þar sem fólki gefst
kostur á að taka þátt f karnival-
hátið að erlendri fyrirmynd með
hvers konar skemmtun og uppátækj-
um. Fólk er hvatt til að klæðast
grímubúningi eða öðrum óvenju-
legum klæðnaði, til þess að undir-
strika karnivalstemmninguna, en
grímubúningur er ekki skilyrði, og
geta gestir þannig klæðst venju-
legum fatnaði eftir vild. Stórverð-
laun verða veitt fyrir frumlegustu og
skemmtilegustu búningana, m.a.
ókeypis flugfar til Ríó de Janeiró í
boði Útsýnar og brasilíska flugfé-
lagsins VARIG. Kjötkveðjuhátíðin
hefst kl. 19.00 með fordrykk og leik
lúðrasveitar, en veislan verður til-
reidd á hinu stóra sviði Broadway,
þar sem blandaðir kjötréttir verða
glóðarsteiktir fyrir augum gesta.
Heiðar Ástvaldsson og Áuður Har-
aldsdóttir, ein fyrrv. ungfrú Útsýn,
sýna suður-ameríska dansa. Valin
verður karnival-drottning Útsýnar
úr hópi gesta. Efnt verður til óvenju-
legrar tízkusýningar og spilað bingó
um 3 veglegar Útsýnarferðir til sól-
arlanda. Hljómsveit Björgvins Hall-
dórssonar heldur uppi fjöri í dansin-
um meðan kvöldið endist. Brasilískir
gestir koma fram f.h. flugfélagsins
Varig og margt fleira verður til
gamans gert eins og jafnan á Út-
sýnarkvöldum. Hin nýja sumaráætl-
un Útsýnar verður kynnt og mynd-
bandasýning og ferðaþjónusta í
gangi í neðri sal.“
*
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Níundu áskriftartón-
leikarnir á
Næstkomandi fimmtudag, 17. febrú-
ar, mun Sinfóníuhljómsvet íslands
halda níundu áskriftartónleika sína á
þessu starfsári og eru það fyrstu tón-
lcikar síðara misseris, kl. 20.30 í Há-
skólabíó. Verkefni: Saint-Saens: La
Muse et le Poéte op. 132, Mozart: Sin-
fónía nr. 25, og Brahms: Konsert fyrir
fiðlu, selló og hljómsveit. Stjórnandi
tónleikanna er aðalhljómsveitarstjóri
hljómsveitarinnar, Frakkinn Jean-
Pierre Jacquillat.
Einleikarar eru Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeistari og
Nina G. Flyer frá Bandaríkjunum,
sem undanfarin ár hefur verið fyrsti
sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Jer-
úsalemborgar. Guðný og Nína hafa
leikið saman kammertónlist síðan
fimmtudag
þær voru við nám í Bandaríkjunum
eða í hartnær fimmtán ár. Skömmu
eftir að Guðný varð konsertmeistari
við Sinfóníuhljómsveit Islands, 1975,
réðst Nína til hljómsveitarinnar sem
fyrsti sellóleikari og starfaði þar í
eitt og hálft ár. Um sama leyti hljóp
hún einnig um hálfs árs skeið í
skarðið fyrir fyrsta sellóleikara í
Harmonien í Bergen. Þær Guðný
stofnuðu ásamt öðrum kammer-
sveitina Reykjavík Ensemble, sem
kom fram bæði hér heima og erlend-
is og flutti fyrir utan klassísk tón-
verk af ýmsu tagi talsvert af nýjum
íslenskum og erlendum verkum við
góðan orðstír.
Þetta er í fyrsta sinn sem þær
koma fram saman í tvíleik með
hljómsveit.
Borgarstjórn ákvað nýverið að kaupa
nýja stólalyftu af Doppclmeyer-gerð
sem sett verður upp í Bláfjöllum
næsta sumar. Tilboð bárust frá 12
framleiðendum í ýmsum löndum, en
Bláfjallanefnd mælti með kaupunum
á Doppelmeyer-Iyftunni. Ýms önnur
tilboð voru lægri, m.a. frá frönsku
fyrirtæki, og meðal þcirra sem fund-
ið hafa að meðferð tilboðanna er Ph.
Moreau viðskiptafulltrúi í franska
sendiráðinu. Morgunblaðið bað
Moreau að segja álit sitt á stólalyftu-
kaupunum. Hann sagði:
„Það er ýmislegt við útboðið ög
meðferð tilboðanna að athuga. Tvö
af frönsku tilboðunum voru á sér-
staklega góðu verði, frá Poma-
galski og Montaz, en hið síðar-
nefnda hefur m.a. reist lyftur í
löndum með svipað veðurfar og á
Islandi, það er í Kanada, Noregi og
Nýja Sjálandi.
Lyftuhús í Montaz-lyftu franska. Lyftuhús af þessari gerð er hægt að setja
hvort heldur er fyrir ofan eða neðan lyftuna. I þessu tilfelli er húsið við neðri
enda lyftunnar.
„Hætta á að hér myndist einok-
un fárra erlendra fyrirtækja“
- segir franski viðskiptafulltrúinn vegna lyftukaupa í Bláfjöllin
Það var auðvitað þægilegast
fyrir íslenzku verkfræðingana að
velja þá lyftu sem þeir þekktu og
til er hér á landi. En það er leitt til
þess að vita að þeir skyldu ekki
notfæra sér alla möguleikana sem
í tilboðunum fólust. Þeir tóku til
dæmis ekki boði margra keppi-
nautanna um að koma og skoða
tækin í gangi, og það sem meira er,
þeir þáðu ekki boð útlendu fyrir-
tækjanna um að hingað yrði send-
ur fulltrúi til umræðna um tilboð-
in. Þetta var innifalið í tilboðunum
og hefði ekki kostað íslendinga
neitt. Þvert á móti má ætla að
koma þessara manna hefði aukið á
gjaldeyristekjur íslendinga og
fært Flugleiðum, hótelum og veit-
ingahúsum nokkra viðskiptavini,
nú þegar ferðamannastraumur er í
lágmarki.
Ég óttast að þessi afstaða ís-
lendinga eigi eftir að hafa áhrif á
viðskipti Islendinga við útlönd.
Þessi viðskiptaaðferð virðist alltof
ríkjandi hér á landi, og hættan er
auðvitað sú að hér myndist nokk-
urs konar einokun fárra erlendra
fyrirtækja sem geta haldið hér
uppi sínum lögum og sínu verði.
Það kæmi í veg fyrir tæknilegan og
viðskiptalegan samanburð, sem
önnur tilboð kæmu til með að
bjóða upp á.
Ég sé ekki að Pomagalski geti
leyft sér að gera lélegt tilboð vegna
stöðu sinnar á alþjóðamarkaði. I
þessu sambandi rifjast það upp, að
stuttu eftir að ég kom hingað til
lands, hitti ég af tilviljun einn af
fyrirmönnum skíðaíþróttarinnar
.. á hestamannamóti. Hann var
ákaflega hreykinn vegna þess að
Pomagalski hafði loksins heimsótt
landið. Fyrir honum var Frakk-
land „Poma“ og „Poma" tákn
vetraríþróttanna.
I millitíðinni vakti ég athygli
annars fyrirtækis, Montaz, á því
sem var að gerast í skíðalyftumál-
um hér á landi. Montaz hefur mjög
gott orð á sér vegna reynslu sem
fengizt hefur af lyftum fyrirtækis-
ins í löndum, þar sem veðurfar er
svipað og hér á landi.
Áhugaleysi Islendinga á sérunn-
um tilboðum þessara fyrirtækja,
Pomagalski og Montaz, gæti orðið
til þess að þau missi áhuga á að
vinna nánar fyrir ísland. Og ís-
lenzkir skíðamenn fá ekki tækifæri
til þess að bera saman hinar ýmsu
lausnir tækninnar, en nokkrar
þeirra bjóða upp á verulega sparn-
aðarmöguleika."
Verðfall á
sængum og koddum
J6x***K? 595.- 140x200 JCft-870^ 195.- 50x70
Nú er tœkifœrið að
endurnýja rúmfatnaðinn
Austurstræti
27211