Morgunblaðið - 16.02.1983, Side 14

Morgunblaðið - 16.02.1983, Side 14
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983 Brjóstagjöf og barna- matur Sigrúnar eftir Katrínu Fjeldsted í lok ársins 1982 gaf Almenna bókafélagið út bókina „Brjóstagjöf og barnamatur" eftir Sigrúnu Dav- íðsdóttur. Sigrún er löngu kunn af skrifum sínum um mat og næringu í „Pottarími“ sínu í Morgunblaðinu. Að auki hefur hún sent frá sér tvær matreiðslubækur. Reyndar er Sigrún íslenzku- fræðingur að mennt, og athyglis- vert hvernig hún hefur haslað sér völl meðal sælkera þessa þjóðfé- lags og unnið sér sess í flestum eldhúsum með uppskriftum sín- um. Ég er ein þeirra, sem mikið gagn og gaman hafa haft af skrif- um Sigrúnar, enda ætlast hún til þess að maður skemmti sér í eld- húsinu. Þannig endar hún marga þætti sína á „Góða skemmtun ...“ eins og margir hafa tekið eftir. Með bókinni „Brjóstagjöf og barnamatur" er Sigrún ekki að gera sig að sjálfskipuðum „fræð- ingi“ í meðferð ungbarna. í hóg- værum „aðfaraorðum" lýsir hún því, að reynsla hennar sjálfrar af vel heppnaðri brjóstagjöf hafi hvatt hana til að miðla þeirri reynslu til annarra. Hún hefur víða leitað fanga við samningu bókarinnar. Á bls. 120 má finna lista yfir bækur og bækl- inga, sem hún vísar á til nánari lestrar. Flestar eru þær skrifaðar af konum og fjalla sumar um börn, sem við sérstök vandamál eiga að stríða. Ég saknaði þess að sjá ekki nefndar ýmsar vel þekkt- ar bækur um ungbörn, sem flestar innihalda talsvert um brjóstagjöf, en e.t.v. minna um barnamat, en Sigrún tekur fram, að bókin eigi ekki að vera leiðarvísir um með- ferð ungbarna til að styðjast við umhugsunarlaust. Bókinni fylgir vel unnin efnisskrá, sem auðvelt er að fletta upp í. Fyrri hluti bókarinnar fjallar svo til eingöngu um brjóstagjöf og- ýmislegt henni tengt. Seinni hlut- inn er almennt um barnamat, þar er að finna uppskriftir og einnig nokkurn fróðleik um matarvenjur barna og næringu. Þar sem Sigrún skrifar um brjóstagjöf er hún víða varkár í orðum, stundum hikandi og lítillát, eins og hún sé að feta ótroðnar slóðir. Hún kemur þar fram með ýmis heilræði, ræðir um þau vandamál sem helst koma upp í sambandi við það að hafa barn á brjósti. Ýmislcgt finnst mér hún einfalda og sumar fullyrðingar tel ég vafasamar. Má þar nefna að á bls. 15 stendur, að leikfimiæfingar geti flýtt fyrir því að brjóstin nái aftur fyrra lagi eftir brjóstagjöf. Stinnleiki brjósta er talinn fara eftir hlutfalli milli fituvefs og kirtilvefs en hefur mér vitanlega ekkert með undirliggjandi vöðva að gera. Eg hnaut um það á bls. 30, að „Mjólkandi mæður mega ekki taka inn getnaðarvarnarpillur". Víst er það óæskilegt, en þó stundum nauðsynlegt, og rétt að taka til yf- irvegunar ýmsar aðrar getnaðar- varnir. En heldur eru það stór orð að segja það meðmegi ekki. Ýmis- legt af þessu tagi hnaut ég um, en hvergi er svo, að til skaða megi verða fyrir lesandann. Næstu kaflar eru um hversu oft eigi að gefa, hve mikið í senn og hvort barnið fái nóg. Þessir kaflar eru mjög þarfir, en hefðu mátt vera ítarlegri, því að þarna eru spurningar, sem flestar mæður velta fyrir sér. í kafla, sem ber heitið „Erfiðleikar sem geta hrjáð mjólkandi móður fyrstu vikurn- ar“, nefnir Sigrún margt, sem þarft er að ræða og fer vel í vandamál þau, sem upp geta kom- ið. Þegar fram í síðari hluta bókar- innar kemur, situr hinn þaulvani uppskriftahöfundur við ritvélina. Þar er að finna lystilegar upp- skriftir að ýmsum mat, sem fólk kaupir dýrum dómum í verzlun- um, en útbúa má með lítilli fyrir- höfn heima fyrir, mun betra að gæðum og bragði. Með því að nota gott hráefni, fara vel með það að hætti Sigrúnar, nota góð ílát, vandaða potta og áhöld og hafa hugmyndaflugið í lagi, má veita börnunum þá beztu fæðu sem völ er á. Finnst þér freistandi að kaupa ávaxtamauk í krukkum og blanda því saman við barnamjöl úr pökkum??? Ef svo er skaltu líta í bókina hennar Sigrúnar, því sjá: Sigrún Davíðsdóttir í raun er sáraeinfalt að gera þetta sjálfur. Má þá útbúa margar mál- tíðir í senn ef vill og frysta, t.d. úr ávöxtum og grænmeti. Sigrún ræðir ítarlega um verksmiðju- framleiddan mat, tilbúinn barna- mat í krukkum og pökkum og er af hvorugu hrifin. Hún bendir á, að fáir fullorðnir vilji lifa eingöngu á tilbúnum verksmiðjumat. Börn eru líka fólk, og meira að segja bezta fólk, sem allt gott á skilið, og er að byrja að kynnast lysti- semdum heimsins með matnum. Hví þá ekki að bjóða börnunum upp á mat, eins og hann getur ver- ið beztur? spyr Sigrún og notar Z eins og bezt verður á kosið. Uppskriftir Sigrúnar eru fyrir börn á ýmsum aldri. Fyrir börn allt að sjö mánaða má nefna: Kartöflugraut Hrísgrjónagraut (úr hýðis- hrísgrjónum auðvitað) Bókhveitigraut og fleira. Sjö mánaða börnum býður hún upp á: Harðsoðna eggjarauðu með appelsinusafa Harðsoðna eggjarauðu með sólberjasafa (hreinan safa, ekki lit, sykur eða gervibragðefni) Maisgraut og fleira. Ég get ekki stillt mig um að koma hér á framfæri einni uppá- stungu Sigrúnar, en hún er um musl (musli). Ætlað fyrir 10 mán- aða og eldri, líka fyrir fullorðna: 1-2 hlutar rúsínur (eða aðrir þurrkaðir ávextir) saxað 1 hluti heslihnetur (eða sólblóma- fræ) saxað 1 hluti hveitiklíð 1 hluti hveitikím, 2 hlutar hveiti eða rúgflögur 2 hlutar haframjöl nýsöxuð epli eða aðrir ávextir. Svona blanda er bæði ódýrari og bragðbetri en tilbúnar blöndur, hollari að auki og laga má mikið magn í senn og geyma, ef hentar. Sigrún mælir með því, að þar sem því verði við komið, sé börn- um gefin brjóstamjólk eingöngu, fyrstu 6 mánuði ævinnar. Liðin er sú tíð þegar mælt var með því að gefa kornabörnum kúamjólk, endilega gefa þeim graut, allt til þess að draga úr áliti móðurinnar á því sem hún í hjarta sínu vissi að var barninu bezt: brjósta- mjólkinni. Endurreisn þess álits var orðin löngu þörf og fær hér öflugan stuðning Sigrúnar Dav- íðsdóttur. Ég þakka framtakið og segi eins og Sigrún: Góða skemmt- un. Góður gestur — Harris lávarður af High Cross eftir Hannes H. Gissurarson Kominn er til íslands góður gestur, Harris lávarður af High L'ross, en hann flytur ræðu á við- skiptaþingi Verslunarráðs íslands á morgun. Harris lávarður lauk hag- fræðiprófi frá ('ambridge-háskóla, sem hefur verið höfuðsetur stjórn- lyndra hagfræöinga í Bretlandi frá dögum Keyness lávarðar (þaðan var Nikulás Kaldor, sem flutti fyrirlest- ur í Háskóla Islands sumarið 1981). En hann er sjálfur síður en svo stjórnlyndur, heldur í hópi frjáls- lyndustu hagfræðinga Breta og hef- ur verið yfirmaður einnar öflugustu rannsóknastofnunar þeirra í atvinnumálum, Institute of Econom- ic Affairs í Lundúnum, frá stofnun 1956, og hann gegnir einnig forseta- starfi í Mont Pélerin-samtökunum næstu tvö árin, en þau eru alþjóða- samtök frjálslyndra fræðimanna. Institute of Economic Affairs Enginn vafi er á því, að Insti- tute of Economic Affairs er orðin langáhrifamesta rannsóknastofn- un Breta í atvinnumálum, þótt hún hefði ekki látið mikið yfir sér í byrjun eða fyrir tuttugu og sjö árum. Hún sendir frá sér hvern bæklinginn af öðrum, sem allir eru ódýrir, aðgengilegir og skýr- lega skrifaðir, en í þeim greina kunnir fraeðimenn mál og leggja á ráðin um lausn þeirra. Rauði þráðurinn (eða á ég heldur að segja „blái þráðurinn"?) í þeim er sá, að markaðurinn geti tekið við ýmsum þeim málum, sem ríkið sinnir, og leyst þau á miklu hag- kvæmari hátt. Flestir eru bækl- ingarnir ætlaðir hagfræðinemum í háskólum eða upplýstum leik- mönnum, og vitað er, að frú Mar- grét Thatcher tekur á þeim mikið mark. Þessir bæklingar eru um ýmis mál og ólík. í The Vote Motive (At- kvæðavoninni) 1976 bendir pró- fessor Gordon Tullock á það, að flestir stjórnmálamenn Iáta stjórnast af atkvæðavon eins og atvinnurekendur af arðsvon. í The Economics of the Colour Bar (Hag- fræðilegri greiningu kynþátta- aðskilnaðar) 1964 leiðir prófessor W.H. Hutt rök að því, að markað- urinn hefði, ef hann hefði fengið að starfa eðlilega í Suður-Afríku, komið kynþáttamismununinni niður í fullkomið lágmark. Ríkis- afskiptunum megi kenna um mis- mununina. í The Counter-Revolu- tion in Monetary Theory (Gagn- byltingunni í peningamálum) 1970 lýsir prófessor Milton Friedman þeirri miklu breytingu, sem orðið hefur á hugmyndum hagfræðinga um hagstjórn, verðbólgu og pen- ingamál á síðustu áratugum. Nefna mætti marga aðra hnýsi- lega bæklinga frá Institute of Éco- nomic Affairs, en merkilegastir eru líklega þeir, sem eru um hag- nýt mál: um mjólkurdreifingu, byggðastefnu, lífeyrissjóði, skatta, heilsugæslu, rekstur skóla, bóka- söfn, útvarp, eldsneyti, póst og síma og margt annað. Árið 1981 hóf stofnunin síðan útgáfu tíma- rits, sem þegar hefur aflað sér mikillar virðingar í Bretlandi, The Journal of Economic Affairs, en hagfræðingurinn Arthur Seldon er ritstjóri þess. Hann á ásamt Harris lávarði heiðurinn af því, að tekist hefur að breyta hugmynd- um margra breskra menntamanna um stjórnmál og atvinnulíf. „Ekki vegna góðfýsi ...“ Institute of Economic Affairs hvílir á þeirri meginhugmynd, sem Adam Smith kom orðum að fyrir tvö hundruð árum í Auðlegð þjóðanna: „Vér væntum ekki mat- ar vors vegna góðfýsi slátrarans, bruggarans eða bakarans, heldur vegna umhyggju þeirra um eigin hag. Við áköllum ekki manngæsku þeirra, heldur sérgæslu, og nefn- um ekki nauðsyn vora við þá, held- ur ábata þeirra." Stofnunin hvílir með öðrum orðum á hugmyndinni um ósýnilegu höndina — á því, að menn vinni án þess að ætla sér það að almannahag, þegar þeir séu að vinna að eigin hag, ef þeir búi við samkeppni á markaðnum. Margir kunnustu hagfræðingar heims hafa skrifað fyrir stofnun- ina, svo sem Friedrich Hayek, Milton Friedman og George Stig- ler, sem allir hafa fengið nóbels- verðlaunin í hagfræði, einnig Robbins lávarður og James M. Buchanan, sem hélt fyrirlestur á íslandi haustið 1982. Þess má geta, að Harris lávarður er einn af útlendum ráðgjöfum Stofnunar Jóns Þorlákssonar, sem hóf að starfa í ársbyrjun 1983, en henni er ætlað að auðvelda fræðilegar rannsóknir á íslandi með svipuð- um hætti og Institute of Economic Affairs gerir í Bretlandi. Mont Pélerin-samtökin Harris lávarður var kosinn for- seti Mont Pélerin-samtakanna á fundi þeirra í Vestur-Berlín í sept- ember 1982 og tók við af prófessor Chiaki Nishiyama. Mont Pélerin- samtökin eru kennd við stofnstað- inn, Pílagrímsfjallið í Svisslandi, en á því komu ýmsir frjálslyndir fræðimenn saman árið 1947 og báru saman bækur sínar. Þeir höfðu áhyggjur af því, sem Hayek hafði nefnt „leiðina til ánauðar" og skrifað um sína frægu bók þremur árum áður, og það varð að ráði, að þeir hittust árlega til skrafs og ráðagerða. í þessum hópi voru menn eins og Ludwig von Mises, Frank Knight, Karl Popper, Milton Friedman, George Stigler og Bertrand de Jouvenel að ógleymdum Hayek, sem var fyrsti forseti samtakanna. Nokkrir stjórnmálamenn hafa verið í sam- tökunum, svo sem Ludwig Erhard, kanslari Vestur-Þýskalands, Luigi Einaudi, forseti Ítalíu, Sir Geoff- rey Howe, núverandi fjármála- ráðherra Bretlands, og William E. Simon, fyrrverandi fjármálaráð- herra Bandaríkjanna. Mont Pélerin-samtökin starfa ekki á milli funda, sem eru árlega, svæðisfundur annaðhvort ár, aðal- fundur hitt árið. Þau eru í raun- inni ekki annað en árlegur fund- arstaður frjálslyndra manna, óháð öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum. Ég hef þrisvar sótt fundi þeirra, í Stan- ford í Kaliforníu 1980, en þá var rætt um skattborgarabyltinguna bandarísku, í Stokkhólmi 1981, en þá var rætt um kreppu velferðar- ríkjanna vestrænu, og í Vestur- Berlín 1982, en þá var rætt um muninn á skipulaginu í austri og DAGANA 18.—21. febrúar fer fram í Abo (Turku) í Finnlandi einstakl- ingskeppni í norrænni skólaskák. Keppt verður í 5 flokkum, 17—20 ára, 15—16 ára, 13—14 ára og flokki 10 ára og yngri. Tíu íslendingar keppa á mótinu. Þeir eru Karl Þor- steins og Elvar Guðmundsson í flokki 17—20 ára; Arnór Björnsson vestri. Þessir fundir voru mjög fróðlegir, menn úr öllum heims- hornum, sem hafa lifandi áhuga á einstaklingsfrelsinu, hafa tæki- færi til þess að skiptast á skoðun- um. Þeir, sem eru í Mont Pélerin- samtökunum, aðhyllast frjáls- hyggj u í hinni gömlu og góðu merkingu orðsins. Þeir eru arftak- ar hugsuða eins og John Lockes, Adam Smiths, Alexis de Tocquev- illes og John Stuart Mills. Þeir telja, að einstaklingarnir eigi að njóta fulls frelsis innan marka laga og almenns velsæmis og að valdið sé því hættulegra sem það sé víðtækara. Þeir styðja réttar- ríkið og markaðskerfið. Þeir segja, að séreignarskipulagið sé skilyrði fyrir þeim almennu mannréttind- um, sem Vesturlandabúar telja sjálfsögð, og að í sameignarskipu- lagi verði ekki komist af án kúg- unar. Þeir vara við þeirri þróun, sem orðið hefur í vestrænum lýð- ræðisríkjum, er ríkið hefur vaxið og vaxið. Þeir voru ekki margir árið 1947, sem höfðu þessa skoðun, en reynslan hefur sýnt, að þeir höfðu rétt fyrir sér, og það er ekki síst æskan, sem gengið hefur til Iiðs við þá síðustu árin. Hún tekur undir lokaorðin í Leiðinni til ánauð- ar eftir Hayek: að stefna ein- staklingsfrelsisins sé eina stefnan fram á við. og Halldór G. Einarsson í flokki 15—16 ára; Þröstur Þórhallsson og Davíð Ólafsson í flokki 13—14 ára; Arnaldur Loftsson og Magnús Pálmi Örnólfsson í flokki 11—12 ára; og loks llannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Árnason í flokki 10 ára og yngri. Norræn skólaskák í Finnlandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.