Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
15
Við svo búið
má ekki standa
eftir Kristjönu
Millu Thorsteinsson
„Markmiðið í framtíð-
inni hlýtur því að vera:
jafn kosningaréttur hvar
sem er á landinu.“
Langt er síðan, að greinilegt
var, að sífellt hefir orðið meiri
skekkja á þeim fjölda atkvæða,
sem stendur á bak við hvern þing-
mann Alþingis. Kjósendur hafa
því mismikinn atkvæðisrétt og
mismikið að segja um þjóðmálin
eftir því, hvar á landinu þeir eiga
lögheimili.
Nú er svo komið, að misvægið á
atkvæðisretti er orðið meira en
fjórfalt. Má því öllum ljóst vera,
að við svo búið má ekki standa.
Krafan hlýtur að vera að jafnrétti
ríki í þessum efnum eins og sjálf-
sagt þykir, að jafnrétti ríki hvort
sem um kyn, litarhátt eða efnahag
er að ræða.
Rök þeirra, sem fylgjandi eru
misvægi í atkvæðisrétti eru helst
þau, að þeir, sem búa í þéttbýlinu
hafi greiðari aðgang að allskyns
opinberri þjónustu og geti næstum
daglega haft samband við fulitrúa
sína á þingi. Þessvegna sé réttlæt-
anlegt, að færri kjósendur séu að
baki hvers þingmanns úr dreifbýl-
inu, svo að þeir hafi meiri tíma
fyrir hvern og einn kjósanda.
Einnig er talið, að dreifbýlið
þurfi öflugri forsvarsmenn, en
þeir, sem á mölinni búa, vegna
verri lífskjara í dreifbýli.
Um fyrri röksemdina er það að
segja, að mikill fjöldi kjósenda
bak við hvern þingmann gerir það
að verkum, að lítill eða enginn
tími gefst fyrir hvern einstakan,
þótt þeir búi á sama stað. Þeirri
skoðun vex einnig fylgi, að
svonefnd fyrirgreiðslupólitík sé
gengin sér til húðar. Það sýnir, að
breyttir tímar eru að halda inn-
reið sína, enda er það í hæsta
máta óeðlilegt, að þingmenn séu
meira uppteknir að sinna smá er-
indum kjósenda sina, en að kryfja
þau mál til mergjar, sem mest
þurfa samvizkusamlega af-
Kristjana Milla Thorsteinsson
greiðslu. Væru þingmenn ekki svo
háðir hverjum og einum kjósanda
í dreifbýlinu, hefði ef til vill margt
farið öðru vísi og sumar fjárfest-
ingar, sem lagt hefir verið í, skoð-
aðar betur, hefði fyrirgreiðslupól-
itíkin ekki verið í öndvegi.
Margir íbúar þéttbýlis hugsa oft
með löngun í huga til þeirra, sem
búa í dreifbýlinu við frjálsræði
náttúrunnar og þurfa ekki að aka
langar leiðir til vinnu sinnar
kvölds og morgna í löngum bíla-
lestum. Oft fara margir klukku-
tímar til einskis á hvérjum degi
aðeins í að komast af einum stað á
annan í þéttbýlinu.
ísland er stjórt land með tiltölu-
lega fáum íbúm. Hver og einn
verður því að leggja fram alla þá
krafta, sem hann megnar til að
bæta upp fólksfæðina. Þetta á við
um alla landsmenn, hvort sem
þeir búa í dreifbýli eða þéttbýli, og
þó svo hafi til æxlast, að þéttbýlið
hafi mestallt safnast saman á suð-
vesturhorn landsins, eiga íbúar
þess ekki að gjalda þess með
skertum mannréttindum.
Markmiðið í framtíðinni hlýtur
því að vera: jafn kosningarréttur
hvar sem er á landinu.
Metsölublad á hverjum degi!
Þvottavélin ALDA
UMBOÐSMENN
REYKJAVÍK: KÓPASKER:
Vörumarkaóurinn hf., Kf. N-Þingeyinga,
AKRANES: ÞÓRSHÖFN:
Þóróur Hjálmsson, Kf. Langnesinga,
BORGARNES: VOPNAFJÖROUR:
Kf. Borgfiróinga, Kf. Vopnfiróinga,
GRUNDARFJORÐUR: EGILSSTAÐIR:
Guóni Hallgrlmsson, Kf. Héróasbúa.
STYKKISHÖLMUR: SEYÐISFJÖRÐUR:
Húsió, Stálbúóin,
PATREKSFJÖRÐUR: REYÐARFJÖRÐUR:
Kf. Héraösbúa,
FLATEYRI: ESKIFJÖROUR:
Greipur Guóbjartsson, Pöntunarfélag Eskfiróinga
iSAFJÖRÐUR: FASKRUOSFJÖRÐUR:
Straumur hf., Verzl. Merkúr,
BOLUNGARVlK: HÖFN:
Jón Fr. Einarsson, K.A.S.K.,
BLÖNDUÓS: VlK:
Kf. Húnvetninga, Kf. Skaftfellinga,
SAUÐARKRÓKUR: ÞYKKVIBÆR:
Radlo og sjónvarpspjónustan Fr. Frióriksson,
SIGLUFJÖROUR: HELLA:
Gestur Fanndal, Mosfell sf.,
ÓLAFSFJÖRÐUR: SELFOSS:
Raftækjavinnustofan, G.Á. Böóvarsson,
AKUREYRI. VESTMANNAEYJAR:
Kjarni sf.,
HÚSAVlK: GRINOAVlK
Verzl. Báran,
KEFLAVlK:
Stapafell hf.,
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
í REYKJANESKJÖRDÆMI 26.-27. FEBRÚAR 1983
Stuðningsmenn
Krístjönu Millu
Thorsteinsson
hafa opnað skrifstofu að Haukanesi 28, Garðabæ.
Skrifstofan verður opin kl. 16.00 til 20.00 virka daga og
kl. 13.00 til 19.00 um helgar. Sími 41530.