Morgunblaðið - 16.02.1983, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir BJÖRN BJARNASON
Francois Millerrand, Frakklandsforseti, og Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, eru samstiga í eldflauga-
málum í óþökk vestur-þýskra jafnaóarmanna.
Evrópskir jafnaðar-
menn í eldflaugavanda
N°
1 vlll
Sósíaldemókrötum eða jafnaóarmönnum í Evrópu er mikill vandi á hönd-
um vegna þess klofnings sem orðió hefur í þeirra röðum undanfarin
misseri og má að verulegu leyti rekja til ágreinings í öryggismálum.
Einkum á þetta við um þá flokka sem eru utan ríkisstjórna. Þegar
jafnaðarmenn hafa náð völdum verður annað uppi á teningnum en meðan
barist er fyrir því að komast í valdastólana. Til marks um þetta má nefna
einarða afstöðu Francóis Mitterrands, Frakklandsforseta, og Felipe
Gonzales, forsjetisráðherra Spánar. Báðir fylgja þeir þeim sjónarmiðum
sem Atlantshafsbandalagið hefur mótað varðandi nýjar kjarnorkueld-
flaugar á vegum NATO í Evrópu takist ekki samkomulag um „núll
lausnina" í viðræðum Bandaríkjamanna og Sovétmanna í Genf.
forski Verkamannaflokkur- Healy, varaformaður hans, eru
andvígir þessari stefnu flokks-
ins.
Athyglin beinist mjög að jafn-
aðarmönnum í Vestur-Þýska-
landi nú um stundir vegna kosn-
inganna sem þar fara fram 6.
mars næstkomandi. Helmut
Schmidt, fyrrum leiðtogi þeirra
og kanslari, vakti fyrstur evr-
ópskra stjórnmálamanna (í
október 1977) máls á því að snú-
ast yrði gegn hættunni af SS-20
eldflaugum Sovétríkjanna með
endurnýjun á kjarnorkuherafla
NATO í Vestur-Evrópu. Ákvörð-
unin um Evrópueldflaugarnar í
desember 1979 var tekin í beinu
samhengi við þessa hvatningu
Schmidts og að hans ráði var
einnig ákveðið, að ákvörðunin
yrði tvíþætt: um Pershing II og
stýriflaugarnar og afvopnunar-
viðræður við Sovétmenn. Markið
í afvopnunarviðræðunum yrði að
NATO-ríkin myndu hætta við að
koma nýju bandarísku eldflaug-
unum fyrir ef Sovétmenn hættu
að ógna þeim með SS-20' eld-
flauginni (,,núll-lausnin“).
Á flokksþingi sem vestur-
þýskir jafnaðarmenn héldu í
Dortmund upp úr miðjum janú-
ar s.l. kom fram að sögn frétta-
manns The New York Times á
staðnum, að ræðumönnum þótti
ekki ástæða til að gæta þýskra
hagsmuna gagnvart Sovétríkj-
unum heldur gegn Ronald Reag-
an og stjórn hans í Washington.
Mestu skipti fyrir flokkinn sögðu
menn að Hans-Jochen Vogel sá
sem tók við forystu í flokknum
þegar Helmut Schmidt sagði af
sér við stjórnarskiptin í haust
stæði fastur fyrir gegn Banda-
ríkjamönnum en ekki væri unnt
að segja það um Helmut Kohl,
kristilega demókratann sem tók
við kanslaraembættinu af
Schmidt. Vestur-þýskir jafnað-
armenn hafa ekki formlega fall-
ið frá stuðningi sínum við Evr-
ópueldflaugarnar en andúð
þeirra á þeim fer ekki á milli
mála.
inn gengur nú í gegnum tölu-
verðar raunir vegna afstöðunnar
til Evrópueldflauganna. Flokk-
urinn var við völd þegar ákvörð-
un um stefnu Atlantshafsbanda-
lagsins í þessu máli var mótuð í
desember 1979 og samþykkti
hana þá. Jafnframt lá þá fyrir,
að þau ríki sem eiga aðild að
sameiginlegum framkvæmda-
sjóði NATO, en ísland er ekki í
þeim hópi, myndu leggja fram fé
til að smíða skotpalla undir
þessar eldflaugar. Vorið 1982 var
frá því skýrt í Noregi að á fjár-
lögum 1983 yrði varið ákveðinni
upphæð í þessu skyni. Og þegar
fjárlögin komu til afgreiðslu í
nóvember 1982 flutti sjálfur
Knut Frydenlund, sem var utan-
ríkisráðherra Noregs í desember
1979 breytingartillögu við þau
sem miðaði að því að fella niður
fjárveitingu til skotpallanna.
Var tillaga hans felld með aðeins
eins atkvæðis mun, 77 gegn 76.
Þessi kúvending Verkamanna-
flokksins hefur valdið deilum
innan flokksins, sem gerðar
verða upp á landsfundi hans í
apríl næstkomandi.
í Bretlandi er Verkamanna-
flokkurinn klofinn. Eftir að Roy
Jenkins, David Owen, Shirley
Williams og fleiri kvöddu hann
og stofnuð flokk sósíaldemó-
krata hafa átökin milli öfga-
manna til vinstri og hinna sem
kjósa að fara hægar tekið á sig
ýmsar myndir. f öryggismálum
var til dæmis mótuð næsta
þverstæðukennd stefna í varn-
armálum á síðasta flokksþingi
Verkamannaflokksins. Þar var
ákveðið að vera áfram í NATO
en þurrka út kjarnorkuvopn og
vera á móti áætluninni um Evr-
ópueldflaugarnar. Þessi afstaða
minnir nokkuð á þá stefnu sem
framsóknarmenn héldu á loft
hér á landi, að unnt væri að vera
áfram í NATO en rifta varnar-
samningnum við Bandaríkin.
Áhrifamiklir menn í Verka-
mannaflokknum eins og Denis
Um svipað leyti og flokksþing-
ið var haldið í Dortmund fór
jafnaðarmaðurinn Francois
Mitterrand, forseti Frakklands,
til Vestur-Þýskalands til að
minnast 20 ára afmælis vináttu-
og samstarfssamnings landanna.
í ræðu í sambandsþinginu í
Bonn var Mitterrand ómyrkur í
máli um nauðsyn þess að standa
fast að ákvörðun NATO um Evr-
ópueldflaugarnar. í tilefni af
ræðu Mitterrands rifjaði The
Times upp í leiðara, að Helmut
Schmidt hefði ekki viljað ljá
máls á stuðningi við Mitterrand
þegar hann barðist gegn hægri
manninum Valery Giscard
d’Estaing um forsætaembættið.
Og mátti skilja blaðið að nú væri
Mitterrand að launa þýskum
jafnaðarmönnum lambið gráa
með því að styðja sjónarmið
kristilegra demókrata í eld-
flaugamálinu.
En meira er í húfi að mati
Mitterrands og Frakka. Þeir líta
Vestur-Þjóðverja öðrum augum
en áður. Le Monde spurði hvort
Vestur-Þýskaland tæki nú þá
stefnu, að það yrði ekki áfram
eins og virkisveggur við austur
landamæri Frakklands heldur
ætluðu ráðamenn í Bonn að lúta
einskonar neitunarvaldi Kreml-
verja um varnir lands síns. Að
mati ýmissa háttsettra embætt-
ismanna í Frakklandi hefur
þeim vaxið fiskur um hrygg
meðal vestur-þýskra ráðamanna
sem láta stjórnast af þránni eft-
ir sameiningu Þýskalands í eitt
ríki og vilja þess vegna friðmæl-
ast við Sovétríkin. Hlutlaust
sameinað Þýskaland hefur löng-
um verið markmið og draumur
Kremlverja en eitur í beinum
þeirra Frakka sem annt er um
sjálfstæði þjóðar sinnar og
Vestur-Evrópu.
Felipe Gonzales hinn sigur-
sæli leiðtogi spánskra sósíalista
og forsætisráðherra lofaði að
efna til þjóðaratkvæðis um aðild
Spánar að NATO. Hvorki honum
né utanríkisráðherranum þykir
þörf á að hraða þessari atkvæða-
greiðslu hins vegar er varafor-
sætisráðherrann fulltrúi þeirra
innan flokksins sem vilja ekkert
með NATO hafa að gera. Kann
því fyrr en síðar einnig að verða
rimma meðal sósíaldemrókrata
á Spáni um þessi mál, þó varla
meðan allt gengur bærilega við
stjórn landsins.
Tónleikar á Höfn
FÖSTTUDAGINN 18. febrúar kl. 20.30 verða haldnir tónleikar í Hafnar-
kirkju á Höfn í Hornafirði. Þar koma fram þau Ingveldur Hjaltcstcd
sópransöngkona, Hrönn Geirlaugsdóttir fiðluleikari og Guðni Þ. Guð-
mundsson organisti. Á efnisskrá verða m.a. verk eftir Albinoni, Bach,
Dvorak, Elgar og Hándel.
Laun dómara eru á
bilinu 20.640—
27.663 krónur
- Hæstaréttardómarar fá hins vegar 43.164
krónur samkvæmt ákvörðun kjaradóms
LAUN borgardómara og héraðsdómara eru samkvæmt upplýsingum Indriða
Þorkclssonar, forstöðumanns launadeildar fjármálaráðuneytisins, greidd
samkvæmt launaflokkum 119 og 120 í kjarasamningi Lögfræðingafélags
Islands og Bandalags háskóiamanna.
Sömu sögu er að segja af kjör-
um dómara í ávana- og fíkniefna-
málum og síðan sakadómara.
Dómurum er síðan greidd yfir-
vinna eftir ákveðnu mati, en yfir-
vinnan fer hins vegar ekki yfir 30
tíma á mánuði, sem er frekar lítið
miðað við það sem gengur og ger-
ist meðal starfsmanna ríkisins.
Yfirvinna dómara er eins og ann-
arra ríkisstarfsmanna 1% af
launum.
Laun samkvæmt launaflokki
119,5. þrepi, eru í dag 20.640 krón-
ur, sem þýðir að yfirvinnutíminn
er 206,40 krónur. Launin sam-
kvæmt launaflokki 120 eru í dag
21.279 krónur, sem aftur þýðir, að
eftirvinnutíminn er 212,79 krónur.
Ef gert er ráð fyrir, að dómar-
arnir fái greidda 30 yfirvinnu-
tíma, þá gerir það á bilinu
6.192—6.384 krónur, sem aftur
þýðir, að heildarlaun dómara eru
þá á bilinu 26.832—27.663 krónur.
Laun hæstaréttardómara eru
ákvörðuð af kjaradómi með
ákveðnu millibili og fylgja síðan
almennum launabreytingum í
landinu. í dag eru laun hæstarétt-
ardómara 43.164 krónur á mánuði.
Ingvi Ingvarsson ráðuneytisstjóri:
Fer í heimsókn til Dan-
merkur og A-Þýskalands
INGVI Ingvarsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu mun fara í
heimsókn til Ilanmerkur og Austur-Þýskalands síðar í þcssum mánuði,
þar sem hann hittir og ræðir við starfsbræður sína, sem verða gestgjafar
hans í förinni. í Danmörku mun Ingvi verða dagana 24. og 25. febrúar,
og síðan í Austur-Þýskalandi 28. febrúar og 1. mars.
Ingvi Ingvarsson sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gær, að hann færi einn íslenskra
embættismanna í umræddar heim-
sóknir. Rangt væri, er fram kom hjá
Magnúsi Torfa Ólafssyni blaða-
fulltrúa ríkisstjórnarinnar fyrir
skömmu, að Ólafur Jóhannesson
utanríkisráðherra væri á förum í
opinbera heimsókn til fyrrgreindra
landa.
Þyrla sótti sjúkan skipverja
í FYRRINÓTT var haft samhand við
Slysavarðstofuna í Reykjavík vegna
Trillukarlar
- leiðrétting
í frétt Mbl. af trillukörlum á
Akureyri var ranglega sagt að
gerðir væru út fimm bátar á línu
og net. Hið rétta er að þeir eru
aðeins gerðir út á línu og handfæri.
Biðst Mbl. velvirðingar á mistök-
unum.
skipverja á Helgu RE, sem hafði veikst
hastarlega er skipið var á veiðum um
60 mílur útaf Jökli.
Læknum á slysadeildinni þótti
ráðlegast að senda þyrlu eftir skip-
verjanum.
Veður var óhagstætt og
var ákveðið að báturinn sigldi inn til
Rifs með sjúklinginn. Þegar þangað
kom var þyrla frá varnarliðinu kom-
in og flutti hún skipverjann á Borg-
arspítalann. Var komið með hann
þangað um hádegið. Líðan mannsins
var eftir atvikum góð í gær.