Morgunblaðið - 16.02.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
17
Framsókn á Vestfjörðum:
Atkvæða-
seðlar fóru
til Reykja-
víkur í stað
ísafjarðar
Atkvæði í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Vostfjarðakjördæmi verða
talin í dag i ísafirði, svo fremi sem
takist að koma atkvæðaseðlum fri
Patreksnrði þangað. Að sögn Kristins
Jónssonar i ísafirði, formanns kjör-
nefndar, itti að flytja seðlana fri Pat-
reksfirði til ísafjarðar í fyrradag, flug-
lciðina. I*í tókst hins vegar ekki betur
til en svo, að kjörkassarnir fóru suður
til Reykjavíkur, og í gær var ekki flog-
ið til Vestfjarða.
Erfiðlegi hefur gengið að ljúka
kosningu og safna saman atkvæða-
seðlum í þessu prófkjöri Framsókn-
arflokksins. Upphaflega var próf-
kjörið haldið dagana 29. og 30. janú-
ar, en síðan var kosning á Patreks-
firði framlengd til 6. febrúar. Síðan
hefur verið reynt að ná saman kjör-
gögnunum með fyrrgreindum ár-
angri, en tíðarfar og samgöngur
sagði Kristinn Jónsson hafa verið
með alversta móti á Vestfjörðum að
undanförnu.
Framsóknarmenn á
Vesturlandi:
Hér ganga hjónin Steinunn Sæmundsdóttir og Birgir Viðar Halldórsson
frá hafurtaski Birgis i Englandsforinni. M.a. má sjá hluta af þeim lopa-
peysum, sem Birgir mun gefa ýmsum framámönnum tengdum rallakstri
ytra. (Ljósm. Mbl. Gunnl. R.)
Hafsteinn og Birgir
héldu utan í gær
RALLKAPPARNIR Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson
héldu til Englands í gærmorgun, en eins og kunnugt er keppa þeir í
svokölluðu Mintcx-ralli dagana 24. og 25. febrúar. Morgunblaðið ræddi
stuttlega við Birgi fyrir brottförina, en þá var hann ásamt konu sinni að
Ijúka við að setja farangurinn í töskurnar.
Meðal þess sem Birgir og Haf-
steinn taka með sér út eru land-
kynningarbæklingar og mynd-
bönd um íslensk röll. Einnig
hyggjast þeir afhenda ýmsum
forráðamönnum rallsins o.fl. ís-
lenskar lopapeysur frá Álafossi.
Mikill áhugi hefur vaknað meðal
fjölrniðla úti á röllurunum
tveimur og íslandi. Hefur í
mörgum tilvikum verið skrifað
jafn mikið um þá Hafstein og
Birgi og þekktustu ökumenn
rallsins. En við spurðum Birgi
hvemig undirbúningur hefði
gengið undanfarna daga.
„Bjarmi Sigurgarðarsson sem er
úti að vinna í bílnum hefur feng-
ið frábærar móttökur á verk-
stæði Malcolm Wilson. Allt hef-
ur gengið að óskum. Vélin sem
við ætluðum að nota verður ekki
tilbúin fyrir rallið, en Wilson
ætlar að lána okkur svipaða vél.
Þannig að í staðinn fyrir að vera
með 240 hestafla vél, þá verðum
við með 260 hestöfl. Vélin sem
við fáum er búin beinni innspýt-
ingu, en er að öðru leyti sams-
konar og okkar vél. Þessa dag-
ana er verið að koma vélinni
fyrir í bílnum," sagði Birgir.
— Hafsteinn varð fyrir því
óhappi fyrir nokkrum dögum að
togna í baki, kemur það til með
að há honum eitthvað í rallinu?
„Nei, ég nudda hann bara þang-
að til hann verður góður! Ég er
ekki hræddur um að tognunin
hái honum, það er enn hálfur
mánuður til keppninnar og
hann er óðum að skána," svaraði
Birgir. Að lokum kvað Birgir þá
félaga ætla að æfa sig í akstri
næstu daga, en kvað tímann
heldur knappan, sérstaklega þar
sem Hafsteinn þyrfti að takast á
við 100 hestöflum kraftmeiri vél
en áður.
G.R.
Ákveða fram-
boðslistann
á sunnudaginn
FRAMSÓKNARMENN í Vestur
landskjördæmi hafa boðað til kjör-
dæmisþings framsóknarfélaganna f
Borgarnesi á sunnudaginn, hinn 20.
febrúar. Að sögn Davíðs Aðalsteins-
sonar alþingismanns, sem blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við f gær, er
ætlunin að ganga þar frá framboðslista
flokksins við næstu alþingiskosningar.
Kjördæmisþingið átti að halda um
síðustu helgi, en var þá frestað
vegna miðstjórnarfundar Fram-
sóknarflokksins.
Fyrirlestur
um svefn
GEDHJÁLP, félag gcðsjúkra, aðstand-
enda þeirra og velunnara gengst í vet-
ur fyrir fyrirlestrum um geðheilbrigð-
Lsmál og skyld cfni. Fyrirlestrarnir
vcrða haldnir á geðdeild Landspítal-
ans, í kcnnslustofu á 3. hæð. Þeir
verða allir á fimmtudögum og hefjast
kl.20. Fyrirlestrarnir eru bæði fyrir fé-
lagsmenn svo og alla aðra, sem áhuga
kynnu að hafa. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirspurnir og umræður verða eftir
fyrirlestrana.
Þann 17. febrúar 1983 heldur Ing-
ólfur Sveinsson geðlæknir, fyrirlest-
ur um svefn og þýðingu hans fyrir
heilbrigði okkar.
Leidrétting —
Þingeyrakirkja
IIÉR með er þeirri leiðréttingu komið
á framfæri, vegna fréttar í Mbl. 15.
febrúar þar sem sagt var frá tré-
skurðarmyndum af postulunum sem
fara ciga í Þingeyrakirkju, að ekki var
um formlcga afhendingu að ræða,
heldur var verið að sýna þá vclunnur-
um kirkjunnar, og þeim er lagt hafa
málinu lið. Þá var og mishermt að
sóknarnefndin hefði verið viðstödd.
Hin formlega afhending mun hins
vegar fara fram í kirkjunni sjálfri
síðar á árinu. Er beðist velvirðingar
á þessum mistökum.
20—5«
atstóttur
Keramik
púðar
glervara
fatnaður
lampar
Ath: Ymsar tegundir hætta,
f/% KRISTJPíl
SIGGEIRSSOÍl HE
m
LAUGAVEGI 13, REYKJAVIK, SIMI 2S87D