Morgunblaðið - 16.02.1983, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
Danmörk:
Hafnarverka-
menn snúa
aftur til vinnu
kaupmannahofn, 15. febrúar. AP.
LANGFLESTIR dan.skra hafnar-
verkamanna samþykktu í dag að
snúa aftur til vinnu en þeir hafa nú
verið í verkfalli í tíu vikur. Hafnar-
verkamenn í Kaupmannahöfn
ákváðu hins vegar að halda það út í
einn dag enn a.m.k.
Verkfallsmenn hafa engu fengið
áorkað með verkfallinu, sem fé-
lagsdómur hafði dæmt ólöglegt, en
þeir efndu til þess í mótmælaskyni
við 20% niðurskurð stjórnarinnar
á atvinnuleysisbótum til þeirra,
sem ekki vinna fulla vinnu. Blóðug
átök urðu nokkrum sinnum milli
verkfallsmanna og lögreglunnar,
tveir menn létust af slysförum og
eldsvoðar urðu nokkrir, sem taldir
eru stafa af íkveikju. Ákvörðunin
um að hætta verkfallinu kemur á
sama tíma og samningaviðræður
milli verkalýðsfélags hafnar-
verkamanna og atvinnurekenda
eru að hefjast.
Poul Schluter, forsætisráð-
herra, sagði snemma í þessum
mánuði, að verkfallið ylli engum
skorti og atvinnurekendur kváðu
langflest skip vera afgreidd af
öðrum en hafnarverkamönnum og
þá oftast nær undir lögregluvernd.
Nýtt heims-
met í mara-
þonkossum
lx>s Angeles, 15. febrúar. AP.
ÞJAKAÐ af bakverkjum og með
skapsmunina á suðupunkti gerði
ungt par í Los Angeles í gærmorg-
un tilkall til heimsmeistaratignar
í maraþonkossum eftir að hafa
kysstst samfleytt í rúmlega 132
klukkustundir. Uppátækið fer
fram í sýningarglugga stórrar
verslunar.
„Varir þeirra eru stokkbólgn-
ar og efri vör hans er nánast
eins og blaðra," sagði sá er að
uppátækinu stóð. „Þau kvarta
bæði undan miklum verkjum í
baki og hafa stöðugan höfuð-
verk,“ sagði hann ennfremur.
Parið náði heimsmetinu
snemma í gærmorgun, en ætl-
aði ekki að gefast upp við svo
búið. Ætluðu þau að halda
áfram og bæta metið almenni-
lega úr því upp á þessu var tekið
á annað borð. Ekki hefur frést
af endanlegum árangri skötu-
hjúanna. Fimm mínútur á
hverri klukkustund eru ætlaðar
til hvíldar og matar.
Frá fundi Moshe Arens, varnarmálaráðherra ísraels (til vinstri) og
Caspar Weinbergers, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna i Washington
á mánudag. Arens, sem var sendiherra ísraels í Bandaríkjunum, hefur
verið skipaður varnarmálaráðherra lands síns í stað Ariels Sharons,
sem varð að segja af sér vegna atburðanna í Beirút í september sl.
Sovétríkin:
Vestur-Þýskaland:
Dregur saman með
stærstu flokkunum
llamborg, 15. febrúar. AP.
SÍÐUSTU skoðanakannanir í Vest-
ur-Þýskalandi benda til, að heldur
dragi saman með kristilegum demó-
krötum og jafnaðarmönnum en
kosningar munu fara fram þann 6.
mars nk.
í könnuninni kemur fram, að
hvorir tveggju, græningjarnir og
frjálsir demókratar, fengju 6% at-
kvæða ef nú væri kosið en það er
einu prósenti meira en þarf til að
fá fulltrúa á sambandsþinginu. Að
undanförnu hefur verið útlit fyrir,
að frjálsir demókratar fengju ekki
tilskilið lágmark en þeir hafa þó
stöðugt verið að bæta stöðu sína.
Könnunin fór fram á vegum blaðs-
ins „Bunte" dagana 13.—24. janú-
ar og voru 2.000 manns spurðir.
Samkvæmt vestur-þýskum
kosningalögum hefur hver kjós-
andi tvöfaldan atkvæðisrétt. í
fyrsta lagi kýs hann einhvern
frambjóðandann í sínu kjördæmi,
sem síðan fer á þing ef hann verð-
ur efstur að atkvæðatölu, og í öðru
lagi kýs hann þann flokk, sem er
honum best að skapi. Flokkurinn
velur svo sína menn og sendir á
þing í samræmi við landsfylgið.
Könnunin leiddi í ljós, að 44%
ætla með síðara atkvæði sínu að
styðja kristilega demókrata og
systurflokk þeirra, Kristilega sósí-
alsambandið, en 41% jafnaðar-
menn. 45% kváðust hafa mesta
trú á Helmut Kohl sem kanslara
en 43% á Hans-Jochen Vogel,
kanslaraefni jafnaðarmanna.
Fjórar milljónir í
nauðungarvinnu
Washington, 15. rcbrúar. AP.
UM FJÓRAR milljónir manna eru í
nauðungarvinnu í Sovétríkjunum og
„oft við mjög erfiðar og niðurlægj-
andi kringumstæður“ að því er
bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í dag. Sagt var, að hér væri um
að ræða brot á alþjóðlegum sam-
þykktum um inannréttindamál og
lögum, sem kvæðu á um afnám
þrælahalds.
í skýrslu utanríkisráðuneytisins
til þingsins segir, að nauðungar-
GRUNSAMLEGT dufl fannst fyrir
helgina í sjónum út af vesturströnd
Noregs. Sérfræðingar norska hers-
ins munu kveða upp úrskurð sinn í
dag hvers eðlis það er. Talið er
næsta víst, að hér sé um að ræða
sovéskt hlustunardufl. Hefur það
líkast til verið fest við hafsbotn af
kafbáti, en losnað og flotið upp á
yfirborðið.
Dufl þetta er þriggja metra
langt og næstum metri á hæð. í
því er að finna háþróaðan hlust-
unarbúnað, sem skráir upplýs-
ingar um allar skipaferðir og
fjöldamargt annað. Lengi hefur
vinnan í Sovétríkjunum sé sú um-
fangsmesta í heimi og að búðirnar
séu samtals um 1.100. Látnar eru í
ljós áhyggjur af þúsundum Víet-
nama, sem nú vinna í Sovétríkjun-
um, og sagt, að þótt margir kunni
að vera þar sjálfviljugir sé samt
sem áður stórum hluta launa
þeirra haldið eftir sem greiðslu
upp í skuld Víetnama við komm-
únistaríkin.
í skýrslu, sem gefin var út í nó-
verið vitað, að Sovétmenn koma
slíkum duflum fyrir við strendur
annarra ríkja. Norsk yfirvöld
staðfestu í dag, að slík dufl hefðu
áður fundist við strönd landsins,
en aldrei jafn sunnarlega og nú.
Alls er vitað um 226 könnunar-
ferðir kafbáta í sjónum við Nor-
egsstrendur á árunum 1969—1982.
A síðasta ári einu var vitað um 15
tilfelli og sannað er að í mörgum
tilvikum var um sovéska kafbáta
að ræða. Norski sjóherinn hefur á
hinn bóginn aldrei komist í færi
við þessa kafbáta og ekki gert til-
raun til að neyða þá upp á yfir-
borðið.
vember sl., var sagt frá því, að
fangar væru látnir vinna erfið og
hættuleg störf við gasleiðsluna
nýju, sem verið er að leggja frá
Síberíu til Vestur-Evrópu. Meðal
þeirra væru menn, sem dæmdir
hefðu verið í fangelsi fyrir póli-
tískar skoðanir sínar eða trú.
Öll fórnarlömb-
in köfnuðu
Tórínó, 15. febrúar. AP.
FJOLDI manns vottaði hinum
látnu virðingu sína fyrir utan
dómkirkjuna í Tórínó er líkkistum
52 fórnarlamba kvikmyndahúss-
brunans í borginni var komiö fyrir
á gólfi kirkjunnar. Útför hinna
látnu verður gerð þaðan á morgun.
Forsætisráðherra Ítalíu, Sandro
Pertini, verður viðstaddur athöfn-
ina. Jarðarfarir hinna tólf verða
gerðar af aðstandendum.
Krufning á líkunum hefur leitt
í ljós, að fórnarlömbin virðast öll
hafa kafnað er þykkur reykur
gaus upp og fyllti sýningarsal
kvikmyndahússins á örskömm-
um tíma. Ekki hefur enn verið
útskýrt hvað olli brunanum, en
íkveikja er talin óhugsandi. Sum-
ir telja skammhlaup hafa valdið
brunanum.
Veður
víða um heim
Akureyri 8 skýjaó
Amsterdam 0 heióskírt
Aþena 16 heiðskírt
BrUssel 0 heióskírt
Chicago 7 skýjaó
Dublin 6 skýjaó
Feneyjar 7 þoka
Frankfurt +1 skýjaó
Faereyjar S skýjað
Genl 3 skýjaó
Helsínki 46 heióskírt
Hong Kong 15 skýjaó
Jerúsalem 13 skýjaó
Jóhannesarborg 22 heiðskirt
Kaupmannahöfn 2 heióskírl
Kairó 25 skýjaó
Las Palmas 20 léttskýjaó
Lissabon 9 skýjað
London 3 skýjaó
Los Angeles 22 heióskírt
Madrid 3 heióskírt
Mallorca 11 léttskýjað
Malaga 8 skýjaó
Mexíkóborg 23 heiðskírt
Miami 22 heiöskírt
Moskva 49 heióskírt
Nýja Delhí 24 skýjaó
New York 4 heiöskírt
Ósló 3 heióskírt
París 4 heiðskírt
Peking 4 heióskírt
Perth 21 rigning
Reykjavik 6 súld
Rio de Janeiro 34 skýjaó
Rómaborg 14 heióskírt
San Francisco 16 skýjaó
Stokkhólmur +7 heióskírt
Sydney 29 skýjaó
Tel Aviv 20 skýjað
Tókýó 14 heióskírt
Vancouver 9 rigning
Vínarborg 43 snjór
Grunsamlegt hlustunar-
dufl finnst við Noreg
Osló, 15. febrúar. Frá Jan Krik l>auré, fréltaritara Morgunblaðsins.
„Gerði aðeins
skyldu mína“
segir Barbie í fréttaviðtali
New Vork, 15. febrúar. Al*.
EFTIR heimsstyrjöldina síðari virtu bandarísk stjórnvöld að vett-
ugi óskir 20 aðila um framsal á stríðsglæpamanninum Klaus
Barbie. Kemur þetta fram í viðtali í síðasta tölublaði bandaríska
vikuritsins Newsweek við Frakkann Serge Klarsfeld, sem lengi
hefur unnið aö því að fletta ofan af stríðsglæpamönnum nazista í
Frakklandi.
í þessu viðtali segir Klarsfeld,
að 20 beiðnir hafi borizt eftir
mismunandi leiðum, þar á meðal
um franska sendiráðið í Bonn,
þar sem lagt var hart að þáver-
andi hernaðaryfirvöldum
Bandaríkjanna í Múnchen að
framselja Barbie frönskum yfir-
völdum.
Þá heldur Newsweek því fram,
að bandarísk yfirvöld hafi látið
koma Barbie fyrir í öruggu húsi
í Augsburg í Vestur-Þýzkalandi
með það í huga að fá frá honum
Klaus Barbie. Mynd þessi var tek-
in í Bólivíu 1973.
vitneskju hans um njósnir land-
anna fyrir austan járntjald.
Hefur blaðið það eftir Erhard
Dabringhaus, sem var I hópi
þeirra Bandaríkjamanna, er yf-
irheyrðu Barbie, að Bandaríkja-
menn hafi látið honum í té
hreint sakavottorð og 1.700 doll-
ara á mánuði.
Þá hefur Newsweek það eftir
Klarsfeld, að nú, þegar búið er
að framselja Barbie frá Bólivíu
til Frakklands, þá sé þessu máli
í rauninni lokið og réttarhöldin
yfir honum eigi ekki eftir að
leiða neitt nýtt í ljós. Áður sé
búið að skrásetja alla starfsemi
Barbies og réttarhöldin nú eigi
því aðeins eftir að hafa „tákn-
rænt gildi", segir Klarsfeld.
Viðtal við Barbie
eftir handtökuna
í viðtali við fréttamenn sjón-
varpsins í Bólivíu, sem fram fór
í flugvél þeirri, er flutti Barbie
frá La Paz í Bólivíu til Lyon,
sagði hann um gerðir sínar sem
yfirmaður Gestapo í Lyon
1942—1944: „Ég gerði skyldu
mína. Ég var yfirmaður þeirra
deilda sem áttu að vinna bug á
andspyrnuhreyfingunni, en þær
voru fleiri en ein og hver með
sitt sérstaka verkefni."
Viðtal þetta fór fram á
spænsku og var birt í sjónvarpi á
sunnudag. Barbie sýndi hvergi
merki um iðrun vegna gerða naz-
ista í stríðinu né það, sem hann
aðhafðist þá sjálfur. „Hingað til
hefur enginn maður úr hópi
bandamanna verið sakaður um
svokallaða stríðsglæpi, því að
þeir ruddu úr vegi öllum slíkum
vandamálum eftir stríð. Það sem
ég vil segja með þessu er: Maður
verður að vinna stríðið."
Barbie, sem var fluttur úr
Fort Monluc-fangelsinu í Lyon
til Saint Joseph-fangelsisins af
öryggisástæðum seint á laugar-
dagskvöld, var spurður: „Trúir
þú því, að Frakkland, Evrópa og
heimurinn eigi að fyrirgefa þér
glæpi þina?"
„Já, algerlega," svaraði
Barbie.