Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
19
Leitin að fórnarlömbum fjöldamorðingjans heldur áfram:
Lundúnum, 15. febrúar. AF.
LÖGREGLAN í Lundúnum telur
sig hugsanlega geta borið kennsl i
sex fórnarlamba fjöldamoróingj-
ans eftir að umtalsverður fjöldi
mannabeina fannst þegar greftri
var haldið áfram í bakgarði húss
við Melro.se Avenue í norðurhluta
Lundúna í morgun.
Talsmaður lögreglumann-
anna, sem vinna að rannsókn
málsins, sagði að beinin hefðu
verið stærst 15 sm. Þá hafa einn-
ig fundist fjöldamargar tætlur
úr fatnaði í garðinum, en ekki
hefur verið sannað hvort þær
kunni að vera hlutar úr klæðum
fórnarlambanna. Um 2.000
manns er saknað í Lundúnum
frá því 1975, þannig að erfitt
kann að reynast að bera kennsl á
líkin með fullri vissu.
Svo virðist, sem líkin hafi ver-
ið brennd, áður en reynt var að
koma þeim endanlega fyrir katt-
arnef. Lögreglan útilokar ekki
Garðurinn að baki hússins við Melrose Avenue númer 195. Nágrannarnir segjast hafa veitt tíðum brennum í
garðinum athygli.
Mikilvægum sönnunargögn-
um kann að hafa verið hent
þann möguleika, að líkamshlut-
um hafi verið komið fyrir í
sorptunnum og morðinginn los-
að sig við þau á þann máta.
Sönnunargögnum hent
Þá skýrir Daily Mail frá því í
dag, að mikilvægum sönnunar-
gögnum kunni að hafa verið hent
þegar byggingarverkamenn, sem
unnu við að breyta umræddu
húsi úr leiguherbergjahúsi í
tveir sjálfstæðar íbúðir, fundu
fataböggul, að sögn blaðsins, en
hentu honum í góðri trú um að
þetta væru larfar, sem enginn
notaði hvort eð er.
Fari svo, að lögreglan finni öll
fórnarlömbin, 17 talsins, er hér
um ræða umfangsmestu fjölda-
morð í sögu Englands. Reyndar
kvaðst tvítugur brennuvargur
fyrir tveimur árum hafa orðið 26
manns að bana í Leeds á árunum
1973—79, en dró framburð sinn
til baka er hann var úrskurðaður
til vistunar á geðveikrahæli.
Frægir fjöldamorðingjar
Ekki eru nema tvö ár frá því
upp komst um frægan fjölda-
morðingja, „The Yorkshire Ripp-
er“ Hann varð 13 konum, aðal-
lega vændiskonum, að bana á
fimm ára tímabili, auk þess sem
hann reyndi að myrða sjö konur
til viðbótar. Hann var dæmdur
til ævilangrar fangelsisvistar
þar sem dauðadómur hefur verið
afnuminn í Bretlandi.
Tveir aðrir frægir fjöldamorð-
ingjar Breta á þessari öld eru
John George Haigh og John
„skrímsli" Christie.
Haigh hafði þann háttinn á að
myrða fórnarlömb sín og eyða
líkunum síðan í sýruupplausn.
Hann viðurkenndi við yfir-
Maðurinn, sem talinn er vera að
baki fjöidamorðunum óhugnan-
legu, Dennis Andrew Nilsen.
heyrslur að hafa drukkið blóð
sumra fórnarlambanna. Er hann
var hengdur 1949 hafði hann ját-
að á sig níu morð af þessu tagi.
Christie var hengdur 1953 eft-
ir að hafa játað að hafa nauðgað
og kyrkt a.m.k. sex konur, þ.m.t.
eiginkonu sína. Hann faldi lík
fórnarlamba sinna í elhússkáp-
um, undir gólffjölum og í garðin-
um við hús sitt. Upp um hann
komst þegar nýr leigjandi flutti
inn í húsið, þar sem hann hafði
búið.
Sá fjöldamorðingi Bretlands,
sem líkast til er þó enn í dag
nafntogaðastur þeirra allra er
Jack The Ripper. Hann framdi
sín ódæðisverk í skjóli nætur-
þokunnar við bakka Thames á
ofanverðri síðustu öld. Hann
skar fimm vændiskonur á háls,
en fannst aldrei.
um NATO á Ítalíu
Káre Willoch
Njósnaði
Róm, 15. fobrúar. AF.
ÍTÖLSK yfirvöld hafa nú til yfir-
heyrslu starfsmann sovéska Áug-
félagsins Aeroflot og ítalskan
kaupsýslumann, sem handteknir
hafa verið fyrir njósnir.
Að því er ítalska blaðið Corri-
ere della Sera segir, reyndi Sov-
étmaðurinn, Victor Pronine að
nafni, 46 ára gamall, að komast
yfir örfilmur með upplýsingum
um stöðvar Atlantshafsbanda-
lagsins á Norðaustur-Ítalíu frá
Azelio Negrino, eiganda ör-
filmufyrirtækis í Genúa. Sagt
var, að skjöl, sem fundust í fór-
um Negrino, hafi sýnt aðsetur
herdeilda og vopnabúnaðar í
héraðinu í kringum Feneyjar.
ítölsk blöð segja, að fylgst
hafi verið með Sovétmanninum
mánuðum saman en hann var
handtekinn ásamt ítalanum í
Róm sl. mánudag þegar þeir
áttu viðskipti með sér. Rómar-
blaðið II Tempo segir, að átta
Sovétmenn hafi verið reknir frá
Ítalíu að undanförnu fyrir
njósnir en ítalska utanríkis-
ráðuneytið vill ekkert um það
segja.
Sovéska sendiráðið kallaði
handtöku Pronines „fordæmis-
lausa vitleysu og ástæðulausa",
sem ekki tæki að hafa nein orð
um.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL:
Jan ............. 21/2
Jan ............. 7/3
Jan ............. 21/3
Jan ............. 4/4
ROTTERDAM:
Jan ............. 22/2
Jan ............. 8/3
Jan ............. 22/3
Jan ............. 5/4
ANTWERPEN:
Jan ............. 23/2
Jan ............. 9/3
Jan ............. 23/3
Jan ............. 6/4
HAMBORG:
Jan ............ 25/2
Jan ............ 11/3
Jan ............ 25/3
Jan ............. 8/4
HELSINKI:
Helgafell ....... 2/3
Helgafell ....... 4/4
LARVIK:
Hvassafell ..... 17/2
Hvassafell ..... 28/2
Hvassafell ..... 14/3
Hvassafell ..... 28/3
GAUTABORG:
Hvassafell ...... 1/3
Hvassafell ..... 15/3
Hvassafell ..... 29/3
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ...... 2/3
Hvassafell ..... 16/3
Hvassafell ..... 30/3
SVENDBORG:
Hvassafell ...... 3/3
Hvassafell ..... 14/3
Hvassafell ..... 17/3
Hvassafell ..... 31/3
AARHUS:
Hvasssafell ..... 3/3
Hvasssafell .... 17/3
Hvassafell ..... 31/3
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ..... 22/2
Skaftafell ..... 23/3
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ..... 24/2
Skaftafell ..... 25/3
^SKIPADEILJD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Willoch heimsæk-
ir Washington
Washington, 15. febrúar. AF.
KÁRE Willoch, forsætisráðherra
Noregs, er væntanlegur til
Washington á morgun til við-
ræðna við Reagan forseta og
aðra bandaríska leiðtoga um
samskipti austurs og vesturs og
alþjóöleg efnahagsmál. Þetta
verður fyrsta heimsókn norska
forsætisráðherrans til Banda-
ríkjanna og fyrsti fundur hans
með Reagan forseta.
Á fimmtudag ræðir Willoch
við Caspar Weinberger, varn-
armálaráðherra Bandaríkj-
anna, og síðdegis sama dag á
hann fund með utanríkismála-
nefnd Bandaríkjaþings. Jafn-
framt mun Willoch ræða við
George Bush varaforseta þá
um kvöldið.
Á föstudag er fyrirhugað, að
Willoch eigi fund með utanrík-
ismálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings og ræða þá
einnig við Donald T. Regan
fjármálaráðherra, en haldi
síðan til Hvíta hússins, þar
sem hann hittir Reagan for-
seta að máli. Síðdegis þennan
sama dag ræðir Willoch síðan
við George P. Schultz utanrík-
isráðherra.
Willoch heldur heim til Nor-
egs á föstudagskvöld.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 26.—27. febrúar 1983.
Stuðningsmenn
Gunnars
G. Schram
hafa opnað skrifstofu að Hamraborg 6, Kópa-
vogi, 2. hæð.
Skrifstofan verður opin kl. 14—22 virka daga
og kl. 13—20 um helgar.
Símar 46944 og 46945.