Morgunblaðið - 16.02.1983, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.02.1983, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR1983 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna I. og II. stýrimaður vantar á 300 tonna netabát frá Reykjavík. Upplýsingar í síma 21623 og 13903. Starfskraftur á miðjum aldri óskast til vörumóttöku og verzlunarstarfa, hálfan eða allan daginn. Þarf að kunna á reiknivél og nokkur málakunnátta er æskileg. Tilboö merkt: „Ábyggileg — Austurstræti — 3630“, sendist Mbl. fyrir 25. febrúar. Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir aö ráða sérfræðing í augnlækn- ingum (31/3 eyktir) viö augnlækningadeild sjúkrahússins. Upplýsingar um stöðuna veitir Loftur Magn- ússon, sérfræðingur á augnlækningadeild, sími 96-22100. Umsóknir sendist framkvæmdastjóra eigi síðar en 30.04.1983. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Yfirlögregluþjónn Staða yfirlögregluþjóns á Sauöárkróki og í Skagafjarðarsýslu er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk. Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu, Bæjarfógetinn á Sauöárkróki. Varahlutaverslun Stórt bifreiöaumboð óskar eftir aö ráða nú þegar afgreiðslumann í varahlutaverslun. Starfsreynsla æskileg. Umsóknir merktar: „Varahlutaverslun — 477“ sendist augl.deild Mbl. fyrir 19. febrúar nk. Starf hluta dags Traust iðnfyrirtæki óskar að ráða starfskraft til stjórnunar á innheimtu. Bókhaldskunnátta og reynsla í almennum skrifstofustörfum áskilin. Vinnutími: 4 stundir fyrri hluta dags, þó allan daginn 2 daga í mánuöi. Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri störf sendist augl.deild Mbl. merkt: „Ábyggi- leg — 305“ fyrir 19. febrúar nk. Óskum að ráða starfsfólk á saumastofu. Verksmiðjan Hlín hf., Ármúla 5, sími 86999. Tækniteiknari Verkfræöistofan Hnit hf. óskar eftir aö ráöa tækniteiknara til starfa nú þegar. Umsækjendur komi skriflegum upþl. um menntun, starfsreynslu og fyrri störf til Guð- mundar Björnssonar, Verkfræðistofunni Hnit hf., Síðumúla 31, R. Starf veitustjóra Starf veitustjóra Selfossbæjar er laust til um- sóknar. Umsóknarfrestur er til 7. mars nk. í starfinu felst framkvæmdastjórn, rafveitu, hitaveitu og vatnsveitu Selfossbæjar. Æski- legt er að umsækjendur hafi tækni- eöa verkfræðikunnáttu. Umsóknum sé skilað til undirritaðs, sem jafn- framt veitir nánari uppl. Bæjarstjórinn á Selfossi, 14. febrúar 1983. Kyimingar- og merkjasöludagur Rauða krossins er í dag, öskudag Fréttatilkynning frá Reykjavík- urdeild Rauða kross Islands. Um langt árabil hefur öskudagur- inn verið kynningar- og merkjasölu- dagur Rauða krossins um land allt. Við þetta tækifæri hefur Reykja- víkurdeildin notið margra ágætra sjálfboðaliða, þar sem stærstu hóp- arnir hafa verið nemendur grunn- skóla í Reykjavík, en þeir hafa alla tíð verið boðnir og búnir að annast merkjasölu með miklum dugnaði og þannig styrkt starf Rauða krossins og tekið þátt í að efla mannúðar- og hjálparstarf stofnunarinnar. Á þessum degi kynnist fjöldi skólabarna Rauða krossinum í fyrsta sinn. Sú þekking og fræðsla um starf Rauða krossins hefur fest rætur í traustu minni hinna ungu borgara. Stór hluti fulltíða Reykvíkinga hefur á unga aldri tekið þátt í merkjasölu Rauða krossins á öskudegi. Þetta hefur orðið grundvöllur vinsælda og virðingar Rauða krossins og skap- að traust tengsl stofnunarinnar við þjóðfélagið. Starf Rauða kross- ins beinist að því að efla mannúð og samhjálp, og auka virðingu fyrir því jákvæða í heiminum. Rauði kross fslands vinnur að þessum málum bæði hér heima og erlendis í samvinnu alþjóða Rauða krossins, en hver deild vinnur fyrst og fremst að verkefnum á sínu félagssvæði. Sjúkraflutningar hafa allt frá stofnun deildarinnar verið meðal BÚNAÐARÞING verður sett á Hótel Sögu mánudaginn 24. febrú- ar. Tuttugu og fimm fulltrúar eru kjörnir til þess að sitja búnaðar- þing og var kosið til þess á síðast- liðnu ári. Fjórir nýir menn taka meginverkefna hennar og farið vaxandi með ári hverju. Deildin á nú 6 sjúkrabíla og starfrækir þá í samvinnu við Slökkvilið Reykja- víkurborgar, sjúkraflutninga- nefnd Reykjavíkurborgar og Borg- arspítalann. Einn bílanna er gerð- ur fyrir erfiðan akstur í torfærum og ófærð. Á síðasta ári fékk Reykjavíkurdeild til landsins sjúkrabíl, búinn nútíma lækninga- tækjum, ásamt starfsaðstöðu fyrir lækni, til þess að veita hjálp í bráðustu tilfellum. Áratugir eru síðan slíkir bílar voru teknir í notkun erlendis, með aðstöðu í tengslum við gjörgæslu og slysa- deildir. Slíkur búnaður og fyrir- komulag sjúkraflutninga hefur sannað gildi sitt við björgun mannslífa. Bifreiðin er af Ford-gerð, en yf- irbyggingin smíðuð í sérstakri sjúkrabílaverksmiðju í Bandaríkj- unum. Þetta er í rauninni fyrsti neyðarbíllinn, sem starfræktur er hér á landi. Frá 28. september hef- ur hann verið í tengslum við slysa- deild Borgarspítalans og starf- rækslan byggð á samvinnu lækna slysadeildar Borgarspítalans og slökkviliðsmanna. Aðal verkefni Reykjavíkurdeild- ar RKÍ á síðasta ári voru rekstur sjúkrabíla og stofnun þjónustu- miðstöðvar aldraðra, Múlabær, Ármúla 34. En auk þess má nefna margþætt starf kvennadeildar (sjálfboðadeildar), en þar starfa nú þátt í störfum búnaðarþings, sem kjörnir fulltrúar. Þá verða einnig tveir nýir, sem hafa setið sem varafulltrúar áður. Formaður stjórnar Búnaðarfélags íslands mun setja þingið. um 300 sjálfboðaliðar og annast rekstur sjúkrabókasafna á sjúkra- húsum, heimsóknarþjónustu, heimsendinga máltíða til aldr- aðra, hljóðbókaþjónustu og fjár- öflun til heilbrigðis- og mann- úðarmála. Af öðrum starfsþáttum deildarinnar má nefna námskeið í skyndihjálp og aðhlynningu sjúkra í heimahúsum, þátttaka í almannavarnarstarfi og fl. Á ári aldraðra vann deildin að stofnun Múlabæjar, húsið var til- búið 15. desemþer. Rekstrarleyfi var veitt 29. desember 1982 fyrir 24 dvalargesti, ætlunin er að fjölga þeim í 48 á þessu ári. Sé heimilið nýtt til þess ítrasta getur það tekið 64 dvalargesti samtímis. Á heimilinu er veitt ýmiss konar þjónusta, en auk þess föndur og nokkur vísir að verk- stæði og bókbandi. Gert er ráð fyrir að þar verði verzlun með brýnustu þarfir fyrir dvalargesti og starfsfólk. Aðstaða verður fyrir lækni, prest og félagsráðgjafa. Þar er setustofa, borðsalur, eldhús, fjögur hvíldarherbergi. Einnig verður fullkomin aðstaða fyrir bað, fyrir sjúkraleikfimi, fótsnyrt- ing, hársnyrting o.fl. Reykjavíkurdeild hefur kostað allar innréttingar og breytingar á húsnæðinu, sömuleiðis húsgögn öll, borðbúnað og flest þjónustu- tæki. Heildarkostnaður var alls 2,8 milljónir króna, þar af hefur Kvennadeild Reykjavíkurdeildar lagt til húsbúnað í borðstofu og setustofu, borðbúnað og sjúkra- baðker af fullkomnustu gerð, að verðmætum alls kr. 550.000.00. Reykjavíkurdeild RKÍ hefur notið styrks úr sérverkefnasjóði Rauða kross íslands til þessara fram- kvæmda alls 980.000.00 krónur. Einnig hafa ýmis félagasamtök og einstaklingar gefið heimilinu rausnarlegar gjafir. Forstöðumað- ur heimilisins er Guðjón Brjáns- son, félagsráðgjafi. Símar stöðv- arinnar eru 32550 og 32167. Enn vantar nokkuð af búnaði fyrir heimili þetta. Lovisa Christiansen arkitekt var ráðin til að gera til- lögur og teikningar varðandi breytingar og innréttingar á hús- inu. Annaðist hún það verkefni af mikilli kostgæfni og smekkvísi, og hefur tekist að breyta þessu verk- smiðjuhúsi í vistlegt heimili. Allar teikningar voru gerðar á Litlu teiknistofunni Hafnarfirði. Ágóða af merkjasölu á öskudag mun Reykjavíkurdeildin láta renna til þjónustumiðstöðvar Múl- abæjar. V aka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta: Réttur Reykjavíkur að ráða rekstri þjónustufyrirtækja VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta hefur sent frá sér ályktun, vegna álykt- unar sem samþykkt var í Stúdentaráði um fargjaldahækkun SVR. í ályktun Vöku segir m.a. að það se siðferðile þjónustufyrirtækja sinna. Ályktunin er Á fundi Stúdentaráðs þann 26. janúar sl., var samþykkt ályktun þar sem farmiðahækkun SVR var fordæmd. Vökumenn í Stúdentaráði greiddu atkvæði gegn þessari tillögu á þeim forsendum að ríkisvaldið eigi ekki að hlutast til um málefni sveit- arfélaga með þeim hætti sem hér var gert. Vökumenn telja að það sé siðferðislegur réttur Reykvíkinga, sem og annarra sveitarfélaga, að ráða rekstri þjónustufyrirtækja sinna og því hafi hér verið brotið harkalega á rétti Reykjavíkurborg- ar eða hvaða þýðingu hefur það að kjósa borgarstjórn sem skal í svo veigamiklum málum hlýða fyrir- mælum ríkisins. Ef umrædd far- •gur rettur Reykjavíkur að ráða rekstri svohljóðandi: miðahækkun hefði náð fram að ganga þá hefði verið búið í haginn fyrir þá sem kröppust hafa kjörin því á þessu ári átti aðeins að hækka fargjald SVR um 50% en fyrrver- andi meirihluti hafði það að venju að hækka fargjöldin um 100% milli ára. Með samþykkt þessarar tillögu hafa umbótasinnar lagt lið sitt við hallastefnu vinstri manna eða hefðu umbótasinnar unað því fyrir 2 árum að ríkisvaldið hefði bannað okkur að gera þær breytingar á rekstri Fé- lagsstofnunar stúdenta sem nauð- synlegar voru til að koma F.S. á réttan kjöl eftir 10 ára óstjórn vinstri manna. Búnaðarþing sett á mánudaginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.