Morgunblaðið - 16.02.1983, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
dCfc/l/Vllfl
■ 1W? UnivtrMl Pf... SynJicil.________________________
„LánsumsÓKrún þin crhér eins cx} bim kom
ervdursend -frtí a.h<2.lba.nkanum."
Hann hættir ekki að hlæja ef þér
þykir þetta eitthvað sniðugt,
matnma!
Þessir hringdu . . .
Vorkenni ekki
fólki á suðvestur-
horninu
Sævar Halldórsson, Vestmanna-
eyjum, hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Nú er mér heldur
betur nóg boðið. Hvað er þetta
fólk, sem býr á suðvesturhorni
landsins að tala um vægi atkvæða,
skert mannréttindi og annað þar
fram eftir götunum? Eg skal segja
því í eitt skipti fyrir öll, að það
fær hvaðeina upp í hendurnar
fyrir lágmarksverð. Það hefur
hreinlega allt það besta sem býðst
í þessu landi, en kvartar samt. Það
yrði langt mál að rekja allt það
sem því býðst en öðrum lands-
mönnum ekki, en ég nefni eitt
mikilvægt atriði, hitaveituna. Er
það ekki misrétti að borga fjórum
til fimm sinnum hærri hitaveitu-
gjöld en tíðkast í Reykjavík eins
og Akureyringar, Vestmannaey-
ingar og fleiri þurfa að gera? Nei,
ég vorkenni ekki fólki á suðvest-
urhorni landsins, þótt það sé að
væla um jafnan atkvæðisrétt. Það
ætti að líta sér nær og rýna í allan
lúxusinn, sem það hefur framyfir
fólk í öðrum landshlutum.
Fyrirspurn til
umferðarráðs og
gatnamálastjóra
Starfsmaður í Sundaborg hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar til að beina þeirri
fyrirspurn til umferðarráðs og
gatnamálastjóra hvort ekki sé
kominn tími til að setja upp
gangbrautarljós á Kleppsvegi hjá
Laugarásbíói. Þar er gangbraut,
sem ég og margir fleiri fara yfir.
Oft er það þó svo, að maður á fót-
um fjör að launa, því að ökumenn
sem þarna eiga leið um keyra
mjög greitt og virða ekki gang-
brautarréttinn. Þó þurfa margir
að fara yfir þessa gangbraut, m.a.
starfsmenn Hrafnistu og Sunda-
borgar, auk þess sem strætis-
vagnabiðstöð er þarna skammt
frá.Jfcar óskast sem fyrst.
HÖGNI HREKKVÍSI
Ásgeir Jakobsson
Vil gjarna fá
meira að heyra
Kristján Benediktsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar til að koma á framfæri í
þessum dálkum sérstöku þakklæti
mínu til Ásgeirs Jakobssonar fyrir
mjög góða þætti í Lesbók Morgun-
b.laðsins um Þórð kakala og fé-
laga. Mér finnst þessir þættir ein-
staklega skemmtilega unnir og vil
gjarna fá meira að heyra hjá Ás-
geiri um svipað efni.
Frelsi í sjón-
varpsmálum
G.A. skrifar:
„Velvakandi.
Það kemur sífellt betur í ljós að
sjónvarpið okkar íslenska er
langt frá því að vera gjaldgengur
fjölmiðill, hvað þá að það megi
flokka undir alhliða afþrey-
ingartæki.
I raun var íslenska sjónvarpið
andvana fætt og meira af stolti
en getu, að það var sett á laggirn-
ar. íslenskt sjónvarp er orðið enn
einn bagginn á okkur skattgreið-
endum.
Keflavíkursjónvarpið sem
sendir út einhverja bestu
skemmti- og afþreyingarþætti
sem þekkjast, er okkur meira en
fullnægjandi nú eins og á þeim
árum, er við fyrst kynntumst
sjónvarpsútsendingum.
Nú hefur komið í ljós, að ráð-
stöfunarfé til lista- og skemmti-
deildar sjónvarps (sér er nú hver
skemmtideildin!) verður 70%
minna en það var í fyrra, og var
þá ekki svo burðug dagskrá held-
ur.
Það er sem sé ekki gert ráð
fyrir neinu fjármagni til inn-
iendrar dagskrárgerðar. Bættur
sé skaðinn að vísu! En hver er þá
orðinn munur á þvf „íslenska"
sjónvarpi og öðrum erlendum
sjónvarpsstöðvum hvað varðar
dagskrá, sem við gætum notið hér
ef vilji væri fyrir hendi?
Aðsókn í vídeóleigur og mynd-
efni þeirra sannar einkar vel
óskir almennings um allt annað
sjónvarpsefni en það sem ís-
lenska sjónvarpið hefur á boð-
stólum. Kostnaður við að afla
þessa efnis er viðbótarútgjöld, og
væri óþarfur ef skynsamlega
væri staðið að málum með frjáls-
um og óheftum útsendingum þess
sjónvarpsefnis, sem er til staðar í
landinu.
Nú er það staðreynd að sovésk-
ur gervihnöttur endurvarpar
sjónvarpsefni m.a. til íslands og
er staðsettur þannig að sovéska
sjónvarpið sést hér svo vel, að
móttökuskilyrði eru jafnvel betri
en frá íslenska sjónvarpinu
sjálfu!
Þetta geta landsmenn sann-
reynt með því að ganga inn í
verslunina Hljómbæ í Reykjavík.
Þangað koma tugir ef ekki hundr-
uð manna dag hvern sem opið er
til að forvitnast um þetta. — Og
þar gefur á að líta bestu hljóm-
listar- og skemmtidagskrár sem
sést hafa frá Evrópu.
Einn daginn, er ég skrapp inn í
verslunina þessara erinda var þar
á dagskrá sönglaga- og dægur-
hljómlist af léttara taginu. Þar
var ekkert til sparað. Dagskráin í
lit að sjálfsögðu og stórhljóm-
sveitir léku. Þar var ekki troðið
upp með einhver „mini“-gítar-
bönd, sem hér er verið að sýna
okkur frá fjármagnsþurfandi
norrænum dreifistofnunum fyrir
íslenska sjónvarpið.
Ekki er ég fylgjandi heims-
valdastefnu risaveldisins í austri,
en frekar vil ég hafa frelsi til að
njóta góðrar sjónvarpsdagskrár
frá Sovétríkjunum en sitja uppi
með það ógnvekjandi ofbeldis- og
klámmyndasafn sem það íslenska
býður upp á.
En nú birtast engir 60-menn-
ingar, sem krefjast lokunar fyrir
útsendingar sovéska sjónvarpsins
og móttöku þess í Hljómbæ! Það
var bara það bandaríska, sem
ógnin stóð af! — Auðvitað eigum
við íslendingar að fá að njóta
hvors tveggja, úr því til þess
næst, sýnishorns þess besta, sem
gerist í heiminum í sjónvarps-
málum — og sem er okkur að
kostnaðarlausu.
Og varðandi það bandaríska,
sem enn er við lýði í landinu, á
Keflavíkurflugvelli, þá eigum við
nú að gera lokatilraun og skora á
ráðamenn að fara fram á opnun
Keflavíkursjónvarpsins fyrir alla
landsmenn, og nota dreifikerfi ís-
lenska sjónvarpsins til þess. Við
getum ekki verið þekktir fyrir
núverandi einangrunarstefnu,
sem stafar af misskildum þjóð-
Kötturinn níu
Kristján Olafsson snikkari,
Reykjavík, skrifar:
„Ágæti Velvakandi.
Viltu vera svo góður að
koma eftirfarandi á framfæri
í dálkum þínum:
Háttvirti herra kennari,
Gísli Jónsson, Akureyri.
í einum hinna ágætu þátta
þinna um íslenskt mál í Morg-
unblaðinu, nánar tiltekið 22.
janúar sl. (þ. 179), birtir þú
hina gömlu góðu vísu um með-
göngu nokkurra kvenkynshús-
dýra, þar sem stendur að með-
göngutími kattarins sé 8 vik-
ur. Ég sem þessar línur set á
blað og er fæddur og uppalinn
vestur við Breiðafjörð, lærði
vísu þessa fyrir síðustu alda-
mót, og á eftirfarandi hátt:
Kötturinn níu, tíkin tíu ...
o.s.frv.
Á langri ævi minni hef ég
heyrt fólk víðs vegar að af
landinu fara með vísu þessa,
og ávallt á sama veg og ég
lærði hana. Sem sé kötturinn
níu...
Og nú bið ég þig, ágæti
málvöndunarmaður, að taka
þetta mál til nýrrar athugun-
ar, því að það er ekki viðeig-
andi að hafa tvenns konar
ósamhljóða útgáfur af þessri
gömlu góðu vísu. En komi það
hins vegar í ljós að þín kenn-
ing sé réttari en mín, hlýt ég
að sætta mig við það, því að
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaöeina,
sem hugur þeirra stcndur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.