Morgunblaðið - 16.02.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
37
„Aðsókn í vídeóleigur og myndefni þeirra sannar einkar vel óskir almennings um allt annað sjónvarpsefni en það
sem íslenska sjónvarpið hefur á boðstólum."
„Nú er það staðreynd, að sovéskur gervihnöttur endurvarpar sjónvarpsefni
m.a. til Islands og er staðsettur þannig, að sovéska sjónvarpið sést hér svo
vel, að móttökuskilyrði eru jafnvel betri en frá íslenska sjónvarpinu sjálfu!“
ernisrembingi. Hann er lítils
virði, þegar öllu er á botninn
hvolft.
Fyrir nokkrum mánuðum var í
gangi söfnun undirskrifta, vegna
áskorana til stjórnvalda um
opnun Keflavíkursjónvarpsins.
Þar söfnuðust um átta þúsund
undirskriftir. Þær hafa þó ekki
verið lagðar fyrir ráðamenn eða
Alþingi.
Þarna er varla um þrýstihóp að
ræða og ekki er þarna verið að
fara fram á greiðslur úr ríkis-
sjóði, fremur að koma í veg fyrir
aukin útgjöld ríkisins til handa
íslenska sjónvarpinu, og sem
yrðu óþörf, ef um er að ræða aðra
stöð til afnota fyrir landsmenn,
þ.e. Keflavíkursjónvarpið.
Ef ég man rétt lét forsætis-
ráðherra núverandi þau orð falla
á opinberum vettvangi, er hann
var spurður, að hann myndi taka
slíka áskorun til umfjöllunar, ef
hún bærist frá kjósendum.
Nú hafa framtakssamir ein-
staklingar hrundið af stað skoð-
anakönnun um kjördæmamálið
og sett fram áskorun til stjórn-
arskrárnefndar til að tryggja
grundvallarréttindi borgaranna.
Má ekki flokka frelsi lands-
manna í sjónvarpsmálum undir
grundvallarréttindi nú á tímum,
og að þeir fái að horfa á það sem
þeir sjálfir vilja? Við skulum láta
reyna á fylgi við áskorun um
opnun Keflavíkursjónvarpsins og
senda það þingmönnum til um-
fjöllunar og atkvæðagreiðslu.
Eða er kannski meira fylgi við
afnot af því sovéska fyrir lands-
menn? Vonandi láta fleiri frá sér
heyra um þessi mál.“
báðir munum við vilja hafa
það sem sannara reynist.
Ég vona og óska þess að þú
hafir fram sem hingað til að
skjóta af þinni andans og
málvöndunarbyssu á þessa
rassbögubósa, sem misþyrma
okkar ástkæra móðurmáli.
Með vinsemd og virðingu."
Þeir heyra það ekki
Einar Ingvi Magnússon skrif-
ar:
„Heill og sæll Velvakandi og
lesendur allir.
Þökk fyrir síðast og gleði-
legt ár.
Það er ábyggilega tilgangs-
lítið að láta í ljós óánægju sína
með þrjósku kirkjunnar.
Sóley Jónsdóttir á Akureyri
skrifar með fjöðurstaf Drott-
ins og biður sér hljóðs á
prenti, gerir tlraun til að
vekja lögskipaða presta og
biskupa af föstum svefni.
Greinarkorn Sóleyjar fjallaði
um það á skýran hátt og
rökstuddan, að barnaskírnin
væri ekki byggð á orði Guðs,
Biblíunni. Þetta er laukrétt
hjá henni. Barnaskírnin er
ekki af kristinni rót, heldur
tíðkaðist hún á Norðurlöndum
og víðar fyrir kristinn tíma.
Heiðnir menn, þ.e.a.s. ókristn-
ir, jusu vatni á börn sín, þegar
þeim var gefið nafn.
En það er sama hvað þess-
um mönnum er sagt þetta oft,
það er engum orðum um það
komandi við þá. Það er jafnvel
sama þó að Einar J. Gíslason í
Fíladelfíu, sem ég vildi þó
frekar kalla gjallarhorn Guðs,
lesi þessa lexíu fyrir guðfræð-
ingum og prestum, — þeir
heyra það ekki, og er raust
Einars þó skýr.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Þessi mál báru á góma.
Rétt væri: Þessi mál bar á góma.
B Bílastilling Birgis Skeifan 11 — Sími: 37888 viö hliðina á Braut.
NOTUM
1212 STILLITÖLVU
Mótorstilling
Hjólastilling
Ljósastilling
VÖNDUÐ VINNA
Seljum og setjum í bíla Sparkrite, platínulausu, raf-
eindakveikjuna. Seljum einnig kerti, platínu, þétta-
kveikju hamra, kveikjulok, kertaþræði, háspennukefli,
mótstöður, Redex sóthreinsiefni, loftsíur, bensínsíur,
bensínslöngur, ljósaperur, samlokur, ísvara o.fl.
BRDSTU!
MYNDASÖGURNAR
*
Vikuskammtur af skellihlátri
AUGLYSINGAilOA KHISTINAR nr