Morgunblaðið - 22.02.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 43. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983 Prentsmiöja Morgunblaðsins Líbanon: Leyfðu ekki aðstoð við nauðstatt fólk Varze, Líbanon, 21. rebrúar. AP. SÝRLENSKIR hermenn komu í dag í veg fyrir, að hermenn úr alþjóðlega gæsluliðinu í Beirut gætu farið upp í miðhálendi landsins til hjálpar fólki, sem þar er einangrað og bjargarlaust vegna gífurlegrar snjókomu og óveðurs síðustu daga. Að minnsta kosti 39 manns hafa látist. Malta: Hóta að sprengja flugvélina Valletla, Möltu, 21. lebrúar. Al*. ÞRÍR flugræningjar, sem tóku völd- in um borö í líbýskri flugvél og neyddu flugmennina til að lenda á Möltu, hótuðu í dag að sprengja vél- ina í loft upp ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra um eldsneyti á vélina og mat og lyf fyrir 165 manns um borð. Dom Mintoff, forsætisráðherra Möltu, og þrír aðrir ráðherrar taka þátt í samningaviðræðum við flugræningjana en þeim hefur til þessa verið neitað um eldsneyti nema þeir leyfðu farþegunum að fara fyrst frá borði. Seint í dag hótuðu þeir hins vegar að sprengja upp vélina með öllum innanborðs ef þeir fengju ekki sínu framgengt. Ekki er annað vit- að um flugræningjana en að þeir tala arabísku og eru taldir vilja komast til Marokkó. Þegar lest brynvagna, jeppa og vörubíla kom að varðstöðvum Sýrlendinganna neituðu þeir her- mönnunum, Bandaríkjamönnum, Frökkum og ítölum, um að halda áfram upp í fjöllin en óttast er, að þar sé fjöldi manna í lífshættu, bílstjórar og farþegar þeirra, sem enga björg geta sér veitt undir tveggja metra djúpu snjólagi. Bandaríkjamenn fengu þó leyfi til að senda björgunarþyrlur á vett- vang en það hafði ekki tekist vegna veðurofsans. Að sögn lögreglunnar hafa 33 menn fundist frosnir í hel og sex hermenn hafa látið lífið við björg- unartilraunir. Verst hefur veðrið verið í miðhálendi Líbanons og geisar þar enn iðulaus stórhríð. Fréttir hafa borist um enn meira manntjón en fyrr var getið en þær hafa ekki verið staðfestar. Frostið hefur ekki verið mjög mikið, frá þremur upp í átta gráður á selsíus, en fannkoman með ólíkindum mikil og fólk á þessum slóðum ekki vant svona veðraham. Tikhonov í opinberri heimsókn í Grikklandi Aþenu, 21. febrúar. AP. NIKOLAI TIKHONOV, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, kom í dag í fjögurra daga opinbera heimsókn til Grikklands. Andreas Fapandreou, forsætisráðherra Grikkja, tók á móti honum. Þeir létu ekkert eftir sér hafa er fréttamenn reyndu að ná tali af þeim. Oflugar varúðarráðstafanir voru gerðar við komu Tikhonovs, en móttökur grískra kommúnista voru fábrotnar. Ráðherrarnir áttu að hittast á formlegum viðræðu- fundi síðar í dag. Umræðuefnið er m.a. kjarnorkuvopnalaust svæði á Balkanskaga. Þetta er í fyrsta sinn, sem sovéskur forsætisráð- herra heimsækir Grikkland. Ronald Reagan, Bandaríkja- forseti, lét að því liggja í bréfi til Papandreou fyrir skömmu, að Bandaríkjamenn væru reiðubúnir til að auka hernaðaraðstoð sína við Grikki náist samkomulag um bandarískar herstöðvar í landinu. Bréf Reagans var svar við fyrir- spurn Papandreou fyrr í þessum mánuði eftir að Bandaríkjamenn höfðu lýst því yfir, að þeir hygðust auka hernaðaraðstoð við Tyrki. Lýsti Papandreou því yfir í bréfi sínu, að aukin hernaðaraðstoð við Tyrki gæti haft neikvæð áhrif á samskipti Grikklands og Banda- ríkjanna. Frá setningu 31. fundar Norðurlandaráðs í Ósló í gær. Þing Norðurlandaráðs hafið í Ósló Osló 21. febrúar, frá Sigtryggi Sigtryggssyni. ÞING Norðurlandaráðs, hið 31. I röðinni, var sett í stórþinghúsinu í Osló í dag, af fráfarandi forseta, finnska alþingismanninum Elsi Hetemaki-Olander. Þingið sitja 155 fulltrúar, þar af margir þekkt- ustu stjórnmálamenn Norðurland- anna. Forseti þingsins var kjörinn Jo Benkow, Noregi. Aðrir full- trúar í forsætisnefndina voru kjörnir Halldór Ásgrimsson, Anker Jörgensen, Danmörku, Ulf Adelshon, Svíþjóð, og Elsi Hetemaki-Olander, Finnlandi. í dag fóru fram kosningar og al- mennar umræður og voru 25 á mælendaskrá. Almennum um- ræðum verður fram haldið þriðjudag. Þinginu lýkur á föstu- daginn. I almennu umræðunum í dag tóku 4 fslendingar til máls, þeir Halldór Ásgrímsson, Friðjón Þórðarson, Tómas Árnason og Svavar Gestsson. Halldór Ásgrímsson ræddi í upphafi um Norðurlöndin og framtíðina, en ráðgert er að setja upp sýningu, sem gefa á mynd af Norðurlöndunum eins og þau eru talin verða árið 2030. Hann sagði að heillandi væri að horfa til framtíðarinnar eins og þarna ætti að gera. Halldór gerði því næst að um- talsefni aukið efnahagssamstarf Norðurlandanna, þá möguleika sem bjóðast og hindranir sem ryðja þarf úr vegi til þess að þetta megi takast. Hann gagn- rýndi verndaraðgerðir og nefndi að íslenzkur fiskiðnaður ætti í harðnandi samkeppni við ríkis- styrktan fiskiðnað í öðru nor- rænu landi (Noregur). Halldór ræddi um aukið sam- starf á sviði sjónvarps og hvatti til að Nordsat yrði að veruleika sem fyrst. Sjá nánari fréttir á bls. 29 af máli íslensku þingmannanna og annarra. Hyggjast lækka olíuna um allt að sjö dollara Olíuríkin við Persaflóa tilbúin í verðstríð Jidda, Saudi-Arabíu, 21. febrúar. AP. ÁREIÐANLEGT dagblað í Saudi-Arabíu sagði í dag, að olíuríkin við Persa- flóa hefðu ákveðið að svara 5,50 dollara olíuverðlækkun Nígeríumanna með því að lækka sína olíu um allt að sjö dollara á tunnu. Ef af verður er hið opinbera Opec-verð, 34 dollarar fyrir tunnu, endanlega úr sögunni með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir olíumarkaðinn í heiminum. um markaðinn, sem þau kynnu að vinna með langtíma samningum við kaupendur, aukinni fram- leiðslu unninna olíuvara og yfir- töku skyndimarkaðarins en áætl- að er, að á honum séu seldar þrjár milljónir tunna daglega. Japan: Ætlaði hluti hersins að ræna völdunum? Tokýo, 21. februar. AP. EINN þingmanna stjórnarandstöðunnar í Japan hélt því fram f dag, að sögn Kyodo-fréttastofunnar, að sveitir úr japanska hernum hefðu lagt á ráðin um valdarán árið 1980 en hætt við það þegar upp um það komst. Hefði málið síðan verið þaggað niður og aldrei komist í hámæli. Yanosuke Narasaki, þingmað- ur lítils flokks, Shinjiren- flokksins, sagði, að valdaránið hefði átt að fara fram með stuðningi 10.000 hermanna í júní á árinu 1980 og að ætlunin hefði verið að varpa napalm- sprengjum á aðsetur forsætis- ráðherrans og taka síðan þing- húsið, aðalstöðvar Frjálslynda flokksins og útvarpshúsið. Að því er Narasaki sagði, voru ástæðurnar fyrir samsærinu óánægja í hernum með spilling- una í stjórnmálunum og sam- starf stjórnmálamanna við pen- ingavaldið í landinu. Embættismenn stjórnarinnar og hersins hafa neitað þessum fréttum en Masaharu Gotoda, ráðuneytisstjóri, sagði, að þær yrðu kannaðar ofan í kjölinn til að ekkert færi á milli mála. Nar- asaki sagði, að heryfirvöld he£ðu komist á snoðir um samsærið í tíma en þó ekkert gert nema „ávíta á laun“ 112 hermenn, þar af 42 undirforingja í flughern- um. Hann sagði, að upplýsingar sínar væru „staðreyndir“, sem hann hefði aflað sér með viðtöl- um við þá, sem voru viðriðnir samsærið. Þessi frétt birtist í saudi-arab- íska blaðinu Asharq-Al-Awsat, sem einnig er gefið út í London. Sagði þar, að til að halda sam- keppnisstöðu sinni eftir verðlækk- un olíunnar úr Norðursjó og frá Nígeríu myndu olíuríkin við Persaflóa lækka sína olíu um allt að sjö dollara á tunnu. Hefðu olíu- ráðherrar ríkjanna tekið þessa ákvörðun til að „vara bæði Opec- ríkin og ríki utan þeirra við frek- ari verðlækkun, sem ekki yrði í neinna þágu“. Nígeríumenn lækkuðu sína olíu um helgina um 5,50 dollara og er það hálfum öðrum dal meira en verðlækkun Breta og Norðmanna sl. föstudag. Þótt Persaflóaríkin lækki sína olíu um 1,50 dollara meira en Nígeríumenn verður það ekki talið undirboð heldur eðli- legur verðmunur þar sem níger- íska olían er betri. Persaflóaríkin eru talin vera að gefa til kynna að þau séu tilbúin í allsherjarstríð Indira í Assam Nýju-Delhi, 21. rebrúar. Al’. INDIRA Gandhi, forsætisráð- herra Indlands, kom í dag til Assam í Norðaustur-Indlandi þar sem meira en 1000 innflytjendur frá Bangladesh voru myrtir í síð- ustu viku eftir óeirðir í kjölfar kosninga í fylkinu, sem Indira hafði skipað að fram færu. Mikil öryggisgæsla var á flugvellinum í Tezpur í Assam þegar Indira kom þangað en hún hefur í hyggju að fara til þeirra staða þar sem flest morðin voru framin, Gohpur og Nelli. í Nelli myrtu inn- fæddir hindutrúarmenn allt að 1000 innflytjendur frá Bangla- desh en þeir eru múhameðstrú- ar. Sjá nánar á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.