Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
3
Séð yfir vcrksmiðjur Álafoss í gærmorgun, þar sem tæplega 60 slökkviliðsmenn börðust við eldinn. Myndina tók Ragnar Axelsson.
55 slökkviliðsmenn börðust við eldinn:
„Erfítt og hættulegt
slökkviliðsstarf‘
— segir Hrólfur Jónsson varaslökkviliösstjóri
„ÞETTA var bæöi erfitt og hættulegt slökkvistarf, þar sera við tefldum
fram öllum þeim mannafla og vélakosti sem réttlætanlegt var að fara
með á staðinn," sagði Hrólfur Jónsson varaslökkviliðsstjóri er blaðamað-
ur ræddi í gær við hann um brunann á Álafossi. „Fyrsta kall barst til
okkar tvær mínútur yfir sex, og þá þegar sendum við tíu manna lið á
vettvang," sagði Hrólfur. „Annaé kall kom svo nánast alveg um leið,
mjög afgerandi, og þá var þegar ákveöið að kalla út allt tiltækt lið.
Fyrstu mennirnir voru komnir
uppeftir um tíu mínútum eftir
fyrsta kall, og síðan var aðalliðið
komið á vettvang um klukkan
hálfsjö. Þegar mest var vorum
við með 50 til 55 menn á staðn-
um, auk manna frá áhaldahúsi
Mosfellssveitar, sem voru okkur
mjðg hjálplegir. Frá okkur fóru
samtals sjö bílar, auk eins frá
slökkviliðinu á flugvellinum og
manna þaðan.
Það, sem einkum gerði
slökkvistarfið hættulegt, var að
húsið er úr strengjasteypu, og
því var mikil hrunhætta, og svo
fór enda að um níuleytið féllu
um 400 fermetrar af þaki niður.
Þá voru fjórir gaskútar mjög
nálægt eldinum, sem voru farnir
að hitna talsvert, áður en tókst
að bjarga þeim. Slökkviliðsmenn
lögðu sig í mikla hættu við að
bjarga þeim. Gnn má nefna, að
úr brennandi ull myndast blá-
sýrumyndandi reykur, og voru
allir menn sem inn fóru með
reykköfunartæki, og menn utan-
dyra tóku tillit til reyksins við
slökkvistarfið.
Um klukkan níu teljum við að
búið hafi verið að hefta út-
breiðslu eldsins, og um klukku-
stund síðar var verulega tekið að
slá á hann. Það logar þó lengi í
þessu, og það verður vakt á stað-
num þar til á miðvikudagsmorg-
un.“
Hrólfur sagði það meðal ann-
ars hafa gert starfið erfitt, að
mjög erfitt og nær ómögulegt
var að berjast við eldinn inn-
anfrá. Þá reyndist erfitt að rjúfa
þakið, sem var steinsteypt með
einangrun ofan á. Þegar það
tókst, byrjaði hins vegar veru-
lega að muna um baráttuna við
eldinn, að sögn Hrólfs.
Fyrstu bílarnir og mennirnir
frá slökkviliðinu, sem komu á
vettvang, voru frá stöðinni í
Árbæjarhverfi.
■
Ljósm.: Kristján Einarsson.
Skemmdir í ullargeymslunni að loknu slökkvistarfi.
Barist við eldinn í gærmorgun. Eldtungurnar stíga upp úr verksmiðjunni efst til vinstri. Slökkviliðsmenn á þaki spunaverksmiðjunnar og ullargcymslunnar berjast við eldinn í gær
Ljósm: Emilía Bjori; Bjornsdóttir. morgun. Eftir þrjár klukkustundir var búið að hefta frekari útbreiðslu eldsins.