Morgunblaðið - 16.03.1983, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
Heimsókn
forseta
íslands í
Arnessýslu
Forseti fslands við Egilsbúð í Þorlákshöfn. Næstur forsetanum er Þorleifur Björgvinsson, oddviti.
Morgunbladið/ JHS
„Sól ínní og sól í sinni“
Vigdís forseti leggur til atlögu við glssilega rjómatertu í Aratungu, Gísli
Einarsson oddviti horfir búmannsaugum yfir veisluborðið.
Líkan af verslunarhúsum Lefolí-verslunarinnar á Eyrarbakka. Magnús Karel Hannesson oddviti lýsir byggingunni,
næst forsetanum er Guðrún Þ. Björnsdóttir, þá Hjörtur Jónsson hreppstjóri og síðan Andrés Valdimarsson sýslumað-
ur og eiginkona hans, Katrín H. Karlsdóttir. Ljósm. Mbi. Si*. sigm.
I'orlakshofn, 14. marz. Frá Jóni H.
SigurmundsCTni frétUriUra Mbl.
FORSETI íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hóf heimsókn sína í Árnes-
sýslu á því að heimsækja Þorláks-
höfn. Sýslumaður Árnessýslu ásamt
fylgdarliði tók á móti forsetanum á
vegamótum Hellisheiðar og
Þrengslavegar og fylgdi honum til
Þorlákshafnar.
Klukkan 10 tók sveitarstjóri og
hreppsnefnd Ölfushrepps á móti
forsetanum við skrifstofur
hreppsins, en þar var saman kom-
inn mikill mannfjöldi og fagnaði
komu forsetans innilega. Ekið var
um þorpið og var Gunnar Mark-
ússon leiðsögumaður. Endað var á
því að skoða Egilsbúð, sem er
minja- og bókasafn Þorlákshafn-
ar. Minntist forsetinn þess m.a. að
þar hefði faðir hennar unnið að
hafnargerð 1929. Einnig gat hún
þess að Guðmundur frá Miðdal,
sem teiknað hefur upp húsaskipan
gömlu verbúðarinnar, væri frændi
sinn, og móðir hennar hefði ekki
talið eftir sér að fara gangandi úr
Mosfellssveit til að heimsækja
Guðmund frænda sinn í Þorláks-
höfn.
Að lokum bauð hreppsnefndin
til kaffidrykkju í Egilsbúð.
Syóra Lan^holti, 14. marz. Frá Sigurói
Si^mundsHyni frétUriUra Mbl.
FRA Þorlákshöfn héldu forsetinn og
fylgdarlið að Selfossi og var þar fyrst
ekið að safnahúsunum. Þar lék Lúð-
rasveit Selfoss undir stjórn Ásgeirs
Sigurðssonar en fjöldi fólks hafði
safnast saman til að taka á móti for-
setanum. Héraðsbókasafnið var
skoðað undir leiðsögn Steingríms
Jónssonar safnvarðar og síðan
Byggðasafn Árnessýslu, sem Pétur
Sigurðsson safnvörður sýndi.
Snæddur var hádegisverður á
Hótel Selfoss í boði Selfosskaup-
staðar og þar flutti ávarp Óli Þ. Guð-
bjartsson forseti bæjarstjórnar og
samkór Selfoss söng undir stjórn
Björgvins Valdimarssonar.
Um þrjúleytið var ekið niður á
Eyrarbakka að barnaskólanum.
Þar tóku á móti forsetanum
Hjörtur Jónsson, hreppstjóri í
Káragerði, svo og hreppsnefnd
staðarins undir forustu Magnúsar
Karels Hannessonar oddvita.
Óskar Magnússon skólastjóri
sýndi skólann, sem er elsta stofn-
un sinnar tegundar hér á landi en
barnaskólinn er nú orðinn 130 ára.
Mikill fjöldi nemenda var saman
kominn í skóla sínum til að fagna
forsetanum og einnig nokkur hóp-
ur fullorðins fólks.
Hjá elsta kaup-
manni landsins
Frá barnaskólanum var haldið í
verslun Guðlaugs Pálssonar, en
hann mun vera elsti starfandi
kaupmaður landsins, orðinn 87
ára. Guðlaugur Pálsson hóf versl-
unarrekstur á Eyrarbakka árið
1917 en frá 1919 hefur hann versl-
að í sama húsnæðinu. Það var
ánægjuleg stund inni í hinni litlu
en snotru verslun þessa aldna
verslunarmanns og skipst á
spaugsyröum. Forsetinn keypti
sér eitt kíló af kaffi á 5% niður-
settu verði, en sýslumaðurinn