Morgunblaðið - 16.03.1983, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
Undralyf gagna
ekki í vaxtarrækt
Morgunblaðið spjallar við vaxtar-
ræktarmanninn Angelito Lesta
Einn þeirra sem kom fram á Ísiandsmeistaramóti vaxt-
arræktarmanna var Englendingurinn Angelito Lesta sem
kom hingað sem gestur. Hann er þekktur vaxtarræktar-
maður erlendis, varð m.a. fimmti í keppninni um heims-
meistaratitilinn á sl. ári. Lesta hefur sigrað Herra Eng-
lands-keppnina tvívegis og verið í fremstu röð í bæði
Evrópukeppni unglinga og síðan í karlaflokki í vaxtarrækt
gegnum árin. Morgunblaðið náði tali af Angelito Lesta
eftir keppnina hérlendis og spjallaði stuttlega við hann.
„Þetta hófst allt saman á því
að ég var að stunda léttar lyft-
ingar með félögum mínum, vor-
um við að bera saman hver gæti
lyft mestu þyngdinni og allt í
gamni. Siðan þróaðist þetta ein-
hvern veginn af sjálfu sér,“ sagði
Lesta um upphafið að ferli sín-
um. „Ég er búinn að æfa í 4 ár og
tvö þau fyrstu voru virkilega erf-
ið og ég lagði mikið á mig. Það
þýðir heldur ekkert að fara á æf-
ingar og sitja svo og hugsa, þú
verður að gefa þig allan í æf-
ingarnar. Eftir að ég fór að
stunda vaxtarrækt verð ég að
segja að ég er mun sjálfsörugg-
ari og líður að öllu leyti betur.
Það er þó eitt vandamál, það er
erfitt að fá föt sem passa," sagði
læsta hlæjandi, „ef ég ætla að fá
mér jakkaföt þarf að sérsauma
þau og einnig er erfitt að fá bux-
ur sem passa á mig. Ef menn
leggja stund á vaxtarrækt er
mikilvægasti hlekkurinn fæðan.
Grundvallaratriði er að halda
fæðunni fitusnauðri, þá nærðu
fitulagi líkamans niður, en vöðv-
ar halda sér í horfinu. Þetta er
náttúrulega ekkert auðvelt, en
vaxtarrækt er meira en bara
koma fram á sviði, þetta kostar
mikla vinnu og ýmiss konar
fórnir. Ég get sagt frá einum
vini mínum sem fór í mjög
strangan megrunarkúr fyrir
keppni. Kvöld eitt kom hann
heim að keppni lokinni og mætti
þar hundinum, sem hann var
nýbúinn að fá sér. Hann hafði
keypt hundakex með súkkulaði-
bragði handa hundinum. Seint
um kvöldið fékk hann þessa
geysilegu þörf fyrir súkkulaði,
en allar búðir voru lokaðar. Fór
svo að hann laumaðist í kex-
pakka hundsins og hætti ekki át-
inu fyrr en 20 hundakex voru
komin í magann," sagði Lesta og
veltist um af hlátri. „Þegar hann
gekk til náða fékk hann óþægi-
lega tilfinningu í magann, stóð
upp úr rúminu og ætlaði fram á
klósett, en náði ekki. Kom
hundakexið aftur úr honum yfir
rúmið, gólfið og allt saman.
Þetta dæmi sýnir vel að menn
ráða ekki alltaf við að halda
matarkúrana. Annar sem ég
þekki fékk mikla þörf fyrir syk-
ur eftir erfiða æfingu, hann fékk
sér eitt súkkulaði, þó hann væri í
ströngum matarkúr. Hann hætti
ekki að borða fyrr en 17 súkku-
laði voru að baki og það ekki lít-
il! Svona atvik gefa þessu húmor,
en það er staðreynd að margir
vaxtarræktar-menn geta varla
hætt að borða ef þeim finnst
eitthvað virkilega gott.“ Blaða-
maður Mbl. spurði næst hvernig
honum hefði fundist íslensku
keppendurnir á vaxtar-
ræktarmótinu í Gamla Bíói.
„Fyrst og fremst vantar þá betri
sviðsframkomu og öryggi. Það
vantaði meira bros frá keppend-
um, frá hjartanu, en ekki falskt
bros. Hinsvegar finnst mér
kapparnir íslensku vera komnir
langt miðað við hve ung þessi
íþrótt er hérlendis. Þetta lærist
allt með tímanum. Stúlkurnar
fannst mér mjög góðar. Dómar-
arnir voru hinsvegar ekki vanir
að dæma. T.d. má taka að Júlíus
í unglingaflokknum lenti í þriðja
sæti, en hefði hiklaust átt að
sigra og það auðveldlega. Ég
dæmdi sjálfur keppendur, en
stig mín giltu ekki, þetta var
bara til að gefa sýnishorn. Ég
gaf Júlíusi efsta sætið í öllum
þrem æfingunum. En með tíð og
tíma lærist dómurunum réttu
handtökin og hverju á að leita
eftir. Júlíus hlýtur hinsvegar að
Angelito Lesta
vera niðurdreginn. Það myndi ég
a.m.k. vera. Eg persónulega vil
vera dæmdur af mönnum, sem
ég veit að hafa þekkingu á þess-
ari íþrótt. Mér er samt ekki mik-
ið í mun að sigra í keppni, ef
áhorfendur eru með mér, þá er
mér sama þó ég verði síöastur.
Hins vegar áttu alltaf að fara í
keppni með því hugarfari að
sigra, annar hugsunarháttur
minnkar sigurmöguleika þína.
Þó keppnin sé grimm þá er mór-
allinn mjög góður og betri en í
flestum íþróttum. Það má segja
að það sé með vaxtarræktar-
menn eins og sumt vín, því eldra
því betra. Þess vegna eru menn á
þrítugsaldri yfirleitt bestir í
vaxtarrækt," sagði Lesta. „Það
eru fjölmargir sem halda að
vaxtarræktarmenn lifi á því að
éta ýmiss konar pillur og lyf til
þess að stækka vöðva sína. Þetta
er misskilningur, miklar og erf-
iðar æfingar og gott fæði eru það
sem byggir menn upp, ekkert
annað. Eg hef séð fjölda fólks
éta allskyns undralyf, sem
reyndar virka ekki neitt og eru
hrein sóun. Einu lyfin, sem sum-
ir vaxtarræktarmenn taka, eru
hvatar sem halda vöðvum við.
Það er gert stuttu fyrir keppni,
þegar keppendur eru á ströngum
matarkúrum, svo líkaminn
brenni ekki vöðvunum. Aðalat-
riðið í vaxtarrækt er að borða
góðan mat og lifa heilbrigðu
lífi.“ Að lokum kvaðst hinn
hugprúði Angelito Lesta stefna á
það að sigra Mister Olympia-
keppnina fyrir þrítugsaldurinn,
en hann er á 23. ári. Kvað hann
það stærstu og virtustu keppn-
ina meðal vaxtarræktarmanna
og miklir peningar væru í veði.
Það væri hins vegar ekki málið
heldur eins og Lesta orðaði það:
„Ef þú vinnur þá ertu bestur!"
Kasparov náði
sér á strik
Skák
Margeir Pétursson
Garry Kasparov endurheimti
forystuna í einvígi sínu við Alex-
ander Beljavsky með því að vinna
fimmtu skákina mjög örugglega.
Beljavsky, sem hafði svart, tefldi
byrjunina ónákvæmt og það gaf
Kasparov færi á að ná óstöðvandi
sókn með glæsilegri mannsfóm í
21. leik. Staðan í einvíginu er því
þannig að Kasparov, sem er aðeins
nítján ára, hefur hlotið þrjá vinn-
inga, en hinn 29 ára gamli Bel-
javsky hefur tvo. Fimm skákum er
nú ólokið í einvíginu sem fram fer
í Moskvu.
Fyrir einvígið var Kasparov
álitinn mun sigurstranglegri, en
eftir að Beljavsky vann fjórðu
skákina og jafnaði metin töldu
margir hann eiga góða mögu-
leika, því í fyrstu skákunum
virtist svo sem Kasparov fyndi
sig ekki fyllilega, a.m.k. brá þá
ekki fyrir því geysilega hug-
myndaflugi og árásarstíl sem
hann er þekktastur fyrir. En í
fimmtu skákinni snerist þetta til
betri vegar fyrir meistarann
unga sem tefldi upp á kóngssókn
allt frá byrjun skákarinnar.
5. einvígisskákin:
Hvítt: Kasparov
Svart: Beljavsky
Drottningarbragð
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
Rf6, 4. cxd5 — exd5, 5. Bg5 —
Be7, 6. e3 — h6, 7. Bh4 — 0-0, 8.
Bd3 — b6, 9. Rf3 — Bb7, 10. OO
— c5, 11. Re5 - Rbd7, 12. Bf5!
Kasparov teflir byrjunina
mjög hvasst að vanda.
12. — Rxe5?
Þessi uppskipti eru líklega
byggð á yfirsjón. Betra var því
12. — He8 og síðan eftir atvikum
13. - Rf8.
13. dxe5 — Re8
Nauðsynlegt, því 13. — Re4
gengur ekki vegna 14. Rxd5.
E.t.v. hefur Beljavsky séð þetta
of seint.
14. Bg3 — Rc7, 15. Dg4
Hvítur hefur fengið góð sókn-
arfæri á kóngsvæng og það er
erfitt að benda á virka áætlun
fyrir svart.
15. — De8, 16. Bd7 - Dd8
Ekki 16. — Bc8?, 17. e6! og
hvítur vinnur.
17. Hadl — h5!?, 18. Dh3 — h4,
19. Bf4 — Bg5
Svartur reynir að létta á stöð-
unni með uppskiptum, því að 19.
— g5?, 20. Dg4 þjónaði auðvitað
engum tilgangi.
20. Bf5 — g6?
Nauðsynlegt var 20. — De7.
21. Re4!! — Bxf4, 22. gxf4 — gxf5,
23. Dxf5!
Nákvæmast, því eftir 23. Rf6+
— Kg7 svarar svartur bæði 24.
Dxh4 og 24. Dxf5 með 24. — Hh8
og nær að verjast.
23. — dxe4
Eina vonin, eftir 23. — Kg7,
24. Dg4+ — Kh8, 25. Rf6 er sam-
stundis úti um svart.
24. Dg4+ - Kh7, 25. Hxd8 -
Hfxd8, 26. Dxh4+ — Kg8, 27. De7
— e3
Góð tilraun. Svartur vonast
eftir 28. Dxc7? - e2, 29. Dxb7 -
Hdl! eða 28. fxe3 - Hd2.
28. Hel — exf2+, 29. Kxf2 —
Hd2+, 30. He2 — Hxe2+, 31.
Kxe2 — Ba6+, 32. Kf2 — Re6, 33.
f5 - Rd4, 34. e6 — Hf8, 35. Dg5+
— Kh7, 36. e7 — He8, 37. f6 —
Re6, 38. Dh5+ — Kg8 og nú loks-
ins gafst Beljavsky upp, vænt-
anlega vegna framhaldsins 39.
Dg4+ — Kh7, 40. Dxe6! — fxe6,
41. n.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Myndlistarnámskeiö
Enn er unnt aö bæta viö nokkr-
um þátttakendum í myndlistar-
námskeiö Björgvins Björgvins-
sonar myndlistarkennara. Upp-
lýsingar i síma 35615.
Björgvin Björgvinsson,
Hlyngeröi 1, Reykjavik.
Nnr.: 1288—6128.
Tökum aö okkur alls
konar viögerðir
Skiptum um glugga. hurðir, setj-
um upp sólbekki, viögeröir á
skólp- og hitalögn, alhliöa viö-
geröir á bööum og flísalögnum,
vanir menn. Uppl. í sima 72273.
Námskeiö
sem eru að hefjast:
Hyrnuprjón, textílsaga, tóvinna,
útskuröur, dúkaprjón, munstur-
gerö. Innritun i Heimilisiönaö-
arskólanum Laufásvegi 2. Uppl. í
síma 17800.
Tvítugur piltur
óskar eftir vinnu á Noröurlandi.
| Hefur lyftarapróf. Uppl. í síma
I 96-71759.
selur heildverslun. Geriö góö
kaup. Opiö frá kl. 1—6 e.h. Síö-
| asta söluvika.
Freyjugata 9, bakhús.
□ HELGAFELL 59833167 IV/V
— 2.
□ Glitnir 598303167 — Frl.
IOOF = 16403168Vi =
Árshátíö
Árshátíö veröur föstudaginn 18.
mars í félagsheimilinu aö Grens-
ásvegi 5. Hófiö veröur meö svlp-
uöu snlöi og í fyrra og hefst kl.
20.00.
Islenski Alpaklúbburlnn.
IOOF 9 = 16403168'/i = III.
□ GIMLI 59833177— 1.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
Systrafélag Fíladelfíu
Systrafundur í kvöld kl. 20.30.
Allar konur hjartanlega vel-
komnar.
FREEPORT
KLÚBBURINN
Fundur á morgun, fimmtudag,
kl. 20.30 í Bústaöakirkju. Gestir:
Fjölskyldan 5 frá Samhjálp. Fé-
lagar fjölmenniö.
ÚTIVISTARFERÐIR
Lækjargötu 6, sími 14606.
Símsvari utan skrifstofutima.
Ferð í Húsafell 18. mars
Gist i húsum, aögangur aö
sundlaug. A laugardag fara sum-
ir á Ok í (sól) og snjó. En aörir i
hressilega gönguferö á Strút.
Utivistarferöir eru fyrir alla.
Velkominn í hópinn. Fararstjórar
Sigurþór Þorgilsson og Helgi
Benediktsson. Sjáumst.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía Keflavík
Almennur bibliulestur í kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur: Guöni Ein-
arsson og Sam Daníel Glad.
ÍSLiNSKI ALPAKLUBBURINN
Fjallaskíöanámskelö veröur
haldiö helgina 26.—27. mars.
Gist veröur í skála. A námskeiö-
inu veröur kennd notkun fjalla-
skíöabúnaöar, leiöaval og hegö-
un meö tilliti til snjóflóðahættu
o.fl. Leiöbeinendur veröa Arnór
Guöbjartsson og Helgi Bene-
diktsson. Skráning fer fram miö-
vikudagskvöldiö 16. mars kl.
20.30 i húsnæöl Isalp, Grensás-
vegi 5. Upplýsingar gefur Helgi,
(Skátabúöinni).
Kristniboösvikan
Samkoma í kvöld aö Amtmanns-
stíg 2B kl. 20.30. Skuggamyndir
frá kristniboösstarfi í Kenya:
Skúli Svavarsson. Ræöa: Mar-
grét Hróbjartsdóttir. Söngur:
Æskulýösskór KFUM og KFUK.
Allir velkomnir.
Trimm
Tilkynning frá Skiðafélagi
Reykjavikur
Bláfjöll — Hveradalír
— Skíöaganga 1983
verður haldin í 4 sinn laugardag-
inn 19. mars nk. Lagt af staö frá
Regnmælirnum fyrir ofan Borg-
arskálann kl. 2 e.h. Skráning í
gönguna frá kl. 11 i Borgarskála.
Þátttökugjald er kr. 150 og
greiöist viö innritun. Gengiö
veröur um 20 km eins og leiö
liggur í Hveradali. Vélsleöamenn
munu vera á leiöinni meö hress-
ingu. Stjórn Skíöafélags Reykja-
víkur sér um framkvæmd þess-
ara skíöagöngu og allar uppl.
veröa veittar í sima 12371 aö
Amtmannsstig 2. Ef útlit er fyrir
óhagstætt veöur kemur tilkynn-
ing í útvarpinu sama dag f.h.
Skiöagöngufólk fjölmennlö.
Skíöafélag Reykjavíkur.