Morgunblaðið - 16.03.1983, Page 33

Morgunblaðið - 16.03.1983, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 33 mannahópum gert skylt að haia þarlenda leiðsögumenn eða að leiðsögumenn þeirra hafi atvinnu- leyfi í landinu. íslenskir farar- stjórar sem fara með íslendinga um Evrópulönd taka þarlenda leiðsögumenn þegar farið er í skoðunarferðir. Ef ferðamenn fara um ákveðin vernduð svæði, t.d. í Bandaríkjunum þar sem er sérstæð náttúra, verða þeir að fara í fylgd sérstakra gæslumanna á svæðinu. I 35. gr. ferðamálalaganna segir að (samgöngu-)ráðherra sé heim- ilt að ákveða að þeir aðilar sem skipuleggja hópferðir um ísland kaupi tryggingu vegna kostnaðar sem hljótast kann af leit að far- þegum þeirra. Einnig er ráðherra heimilt að ákveða að sömu aðilar hafi í nánar tilteknum ferðum leiðsögumenn sem hlotið hafa sér- staka þjálfun. SP.: Sér ráðherra ekki ástæðu til að notfæra sér þessa heimild, t.d. þegar vitað er að hópar ætla um viðkvæm óbyggðasvæöi? Ýmsar fleiri spurningar brenna á vörum áhugafólks um ferðamál, sérstaklega þegar fyrirsjáanlegt er að erlendum ferðamönnum sem ferðast um landið á eigin vegum mun fara fjölgandi. Hafa um- boðsmenn Farskips t.d. fengið upp- lýsingabæklinga þá sem til eru fyrir ferðamenn um umgengni og náttúru- vernd til að afhenda væntanlegum íslandsförum um leið og þeir kaupa farmiðann? Yfirmenn færeysku ferjunnar Smyrils sáu sér ekki fært að dreifa slíkum bæklingum til farþega sinna. Er Farskip reiðu- búið að miðla nauðsynlegum upplýs- ingum um umgengni til farþega sinna? Hefur Keykjavíkurborg gert ráðstafanir til að geta tekið á móti auknum fjölda tjaldferðamanna og ferðamannabíla á tjaldsvæðinu í Laugardal? Erum við yfirleitt tilbúin til að taka við þeim ferðamönnum sem hingað koma? Er ekki tími til kominn að ráða eftirlitsmann eða menn til að fylgjast með umgengni ferðamanna? Mér skilst að búið sé að ráða eftirlitsmann í Reykjanes- fólkvangi og er þar þó lítil umferð ferðamanna. Hvers vegna ekki víð- ar? Ég sagði hér fyrr að ýmislegt mætti færa til betri vegar í ferða- þjónustunni með því að setja ferðamönnum skýrari reglur, veita þeim betri leiðbeiningar og auka eftirlit. Til þess að það verði gert þarf skilning og vilja þeirra yfirvalda sem valdið hafa. Ég vona að hvort tveggja sé til staðar og að þeir sjái sér fært að svara þessum spurningum. Með fyrir- fram þakklæti. Reykjavík, 3. mars 1983. Amnesty Intemational: Samviskufangar febrúarmánaðar Donat Murego frá Rwanda er 46 ára fyrrverandi hæstaréttardóm- ari og var dæmdur í nóvember 1981 í 10 ára fangelsi. Donat Murego var einn 50 manna sem handteknir vor í höf- uðborginni Kigali í apríl 1980 og ákærðir um samsæri gegn ríkis- stjórninni. Við rannsókn málsins kom í ljos að hann hafði ekki verið viðriðinn nokkurt samsæri. í staðinn var hann ákærður fyrir að dreifa bæklingi sem hvatti til samsæris. Þessi bæklingur boðaði ekkert samsæri gegn ríkisstjórninni. Hann ásamt 50 manns voru færðir fyrir rétt í nóvember 1981, en áður hafði honum verið neitað um lögfræðiaðstoð. Hann var einn af 26 manns sem dæmdir voru í 10 ára fangelsi ásamt fjársektum. Hann áfrýjaði dómnum, sem var hafnað á þeim forsendum að það væri of seint, þó að aðeins vika væri liðin frá því að dómur- inn var kveðinn upp. Meðan á réttarhöldunum stóð var honum haldið í einangrun í algjöru myrkri í sérstökum klefa í Ruhengeri-fangelsinu. Hann var alvarlega veikur þarna, en var neitað um nægilega læknishjálp. Honum er enn þá haldið í Ru- hengeri-fangelsinu í sérstakri deild ætlaðri pólitískum föngum, eiginkona hans og börn hans sem eru 7 talsins hafa ekki fengið leyfi til að heimsækja hann. Vinsamlegast skrifið kurteislegt bréf, helzt á frönsku, og biðjið um að Donat Murego verði látinn laus: Son Excellence le Général J. Ilabyarimana Président de la Képublique B.P. 15. Kigali Rwanda. Samlith Ratsaphong frá Laos var á árunum 1973—’75 ráðuneyt- isstjóri í menntamálaráðuneytinu. Hann hefur verið dæmdur til 7 ára dvalar í endurhæfingarbúðum, án þess að hafa farið fyrir rétt. Samlith Ratsaphong var einn af mörgum yfirmönnum fyrrverandi ríkisstjórnar sem sendir voru í endurhæfingarbúðir á tímabilinu frá maí og til desember 1975, eftir að Pathet Lao hafði náð stjórnar- taumum í Laos. Ein góð og heiðarleg undantekn- ing er þó á þessari bárbornu stjórnarandstöðu og það er Albert Guðmundsson, hann einn og ég endurtek vegna Eggerts Hauk- dals, hann einn tók réttmæta og ábyrga afstöðu til þessara manna og núverandi ríkisstjórnar. „Hann ætlaði að styðja hana til allra góðra verka" og hafðu heill og þökk fyrir, Albert Guðmundsson. Fyrir þessa sjálfstæðu, heiðarlegu og ábyrgu afstöðu hefur hann nú hlotið það traust hins almenna kjósanda Sjálfstæðisflokksins sem forustulið hans hefur vantað á undanförnum árum og mér fynd- ist ráð að það reyndi að endur- heimta. Á Vestfjörðum hafa fulltrúar flokksforustunnar komið í veg fyrir prófkjör sem var óskynsam- legt mjög og ekki til sátta eins og komið hefur á daginn, því betra er Sjálfstæðisflokknum að forustan tapi prófkjöri en Sjálfstæðisflokk- urinn almennum kosningum. Á Norðurlandi vestra hefur Kári Jónsson á Sauðárkróki skorið upp herör fyrir forustuna, á hinn al- menna kjósanda Sjálfstæðis- flokksins og umboðsmann hans á alþingi Pálma Jónsson landbúnað- arráðherra, í grein sem birtist I Mbl. 18. janúar sl. Ég harma þessi skrif Kára Jónssonar vegna þess að ég þekki manninn og veit að hann er sjálfstæðismaður sem vill veg Sjálfstæðisflokksins sem mestan. Sem sjálfstæðismaður virði ég skoðanir Kára Jónssonar á Pálma Jónssyni, sem hann lýsir í grein sinni, en ég ætlast líka til þess af Kára sem sjálfstæð- ismanni, að hann virði svipaða skoðun mína á Geir Hallgrímssyni sem ég hef haft síðan hann tók við forsætisráðherraembættinu úr óheilindahendi Framsóknar- flokksins árið 1974. En það er alls ekki til sátta innan Sjálfstæðis- flokksins að við Kári, samherjarn- ir, förum að deila um forustumenn okkar og enn síður er það viðeig- andi að Mbl., helsta málgagn sjálfstæðisstefnunnar í landinu, láni okkur miðopnu sína til slíkra óþurftaskrifa. Það sem við Kári Jónsson og allir aðrir ósáttir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins, háir sem lágir, þurfum að gera, er að taka höndum saman og ræða ósættismál okkar persónu- lega af hreinskilni og vilja til að eyða þeim eins og sjálfstæðis- mönnum sæmir, svo að með sjálfstæðri reisn getum við öll fylgt liði, „stétt með stétt" undir merki óklofins Sjálfstæðisflokks í næstu alþingiskosningum. Sjálf- stæði, frelsi og framtak hefur ver- ið leiðarljós Sjálfstæðisflokksins frá stofnun hans og svo þarf áfram að vera. Ritað í febrúar 1983. Saurbæ í Fljótum, Flestir voru sendir á stutt endurhæfingarnámskeið áður en þeir voru sendir í endurhæf- ingarbúðirnar. Samlith Ratsa- phong var skipað að mæta á eitt námskeið í júií 1975 og annað 1. ágúst, síðan var hann sendur í búðir í Houa Phan-héraði í norð- austurhluta Laos nálægt landa- mærum Víetnam. (Það er haldið að hann sé i búðum nr. 5). Flestir háttsettir yfirmenn voru sendir í búðir í sama héraði. Mjög fáir hafa verið látnir laus- ir úr þessum endurhæfingarbúð- um en á tímabilinu frá nóvember 1980 fram á mitt árið 1981 hafa um 300 manns verið látnir lausir. Samt sem áður er fjöldi manns ennþá í haldi. Þar sem Samlith Ratsaphong hefur ekki komið fyrir rétt er ekki vitað hvenær hann verður látinn laus. Yfirvöld hafa ekki gefið upp neina ástæðu af hverju hann er enn hafður í haldi, en ÁI heldur að það sé vegna stöðu hans í fyrrver- andi stjórn landsins. Vinsamlegast skrifið helzt á frönsku kurteislegt bréf og biðjið um að Samlith Ratsaphong verði látinn laus til: Son Excellence Kaysone I’homvihane Premier Ministre Vietiane République démocratique populaire du Laos. Demir Kucukaydin frá Tyrk- landi. Hann var blaðaútgefandi og hefur verið í fangelsi síðan 1974, vegna pólitískra greina sem birt- ust í blaði hans. Engar þeirra hvöttu til ofbeldisaðgerða. Demir Kucukaydin var dæmdur í 18 ára fangelsi. Hann gaf út vikublað, sem hét Kivilcim (The Spark). Það kom fyrst út í febrúar 1974 og stefndi að því að stofna verkamannaflokk í Tyrklandi. Eftir að blaðið hafði aðeins komið út 6 sinnum voru útgefandinn, rit- stjórinn, dreifingarstjórinn og gjaldkerinn teknir fastir. Þeir voru ákærðir fyrir greinar sem birtust í blaðinu samkvæmt sérstökum refsilögum númer 141 og 142 sem banna að mynduð séu samtök sem hugsanlega gætu orð- ið sterkari en þau sem fyrir eru. (Demir Kucukaydin var fyrst dæmdur í 40 ára fangelsi en eftir áfrýjun var dómurinn styttur í 17 ár og 9 mánuði). AI útnefndi alla fjóra fangana sem samviskufanga. Aðeins Dem- ir Kucukaydin er enn í fangelsi og AI veit ekki til þess að nokkur annar fangi hafi setið svona lengi inni fyrir svipaðar ákærur. Hann hefur verið ákærður í fangelsinu fyrir flóttatilraun og að móðga dómarann. Nýjar skýrslur segja að honum hafi verið haldið í einangrun í nokkra mánuði og að hann hafi orðið að þola miklar barsmíðar. bakið á honum er víst mjög illa farið. Herlög voru sett í Tyrklandi eft- ir að herinn gerði samsæri í sept- ember 1980. AI hefur síðan stöð- ugt beðið yfirvöld um að sleppa samviskuföngum og hætta aftök- um, einnig að rannsaka pyntingar í fangelsum. Demir Kucukaydin var handtekinn þegar borgarleg stjórn ríkti í landinu og honum er haldið í almennu fangelsi í Mal- atya. Vinsamlegast sendið kurteislegt bréf og biðjið um að hann verði látinn laus tiL President Kenan Evren Devlet Baskanligi Ankara Turkey og til: Prime Minister Bulend Illusu Basbakanlik Ankara Turkey. V^terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! Undirbúningsnefnd Holland/íslands vinafélagsins Undirbúningsnefnd býöur þig velkominn til skemmtifundar, sem veröur haldinn fimmtudaginn 17.03. 1983 kl. 20.15 á Hótel Esju. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til þátttöku og aö taka meö sér gesti. Öllum er heimill aögangur. Vörubílar frá DAF BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23 simi 812 99 Feröaskrifstofan (K Köhuvol LAUGARASVEGl 32060 BLOMABUÐINIRIS KAUPGARÐI KÓPAVOGI SÍMI46086._ Rósin MElTlIiyS’ VOLVO Endingin og •ndursöluvardiS unm gadin. VELTIR HF Suðurlandlbraut 16. nmi 35200 Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SIMAR 27077 A 28899 SAMOFA MHI Nonni hf. SSiy n | IPHIUPS ■ ... » '_* i » r » _| • Topp feröir meö topp afslætti kann tökin á tækninni heimilistæki hf BREIÐHOLTSBLÓM rutmAi WfC 8l< "^ARXARFLLG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.