Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 37

Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 37 an mann. Og ég bara spyr, hafa ekki áður hliðstæðir atburðir gerzt án þess að allt hafi snúizt á hvolf út af því? Og auðvitað er fáránlegt að ætlast til þess af okkur að við tökum upp einhvers konar viðræður við PLO — sam- tök sem alla tíð hafa haft á stefnuskrá sinni að útrýma ísra- el.“ Þegar ég benti á að forsvars- menn PLO hefðu dregið töluvert úr yfirlýsingum sínum frá því sú upprunalega samþykkt var gerð æstist Rom enn og sagði: „Arafat og hans kumpánar eru ekki ann- að en hræsnisfullir hryðju- verkamenn, sem hefur tekizt að slá ryki í augu ýmissa velviljaðra manna. Yfirlýsingar Arafats um að hann gæti hugsað sér að eiga einhvers konar viðræður við ísra- ela með milligöngu Husseins Jórdaníukonungs, eru blekkingar og auk þess hvarflar ekki að nein- um heilvita ísraela að þeir eigi neitt undir PLO — reynslan hef- ur sýnt að PLO hefur reynt að setja upp nýtt andlit þegar for- svarsmenn þess áttuðu sig á því að ísraelar létu ekki hótanir Ar- aba á sig fá og höfðu í fullu tré við þá.“ í viðtalinu við forseta Knesset, Menachem Savidor sem áður var vitnað til, kom fram að hann teldi nauðsynlegt að finna lausn á vanda Paiestínumanna, en því væri ekki að leyna að ekki væru allir sammála um, hversu mikil ábyrgð ísraela væri í því efni. „Það kemur í ljós eins og oft áður að menn átta sig ekki á stöðu ísraels. Við erum eins og eyland — rétt eins og ísland. En sá er munurinn að við erum umkringd- ir óvinum á alla vegu og þar sem okkur hefur á lögmætan hátt ver- ið lofað tilverurétti munum við verja þann rétt fram í rauðan dauðann." Savidor kom einnig að því sem ofarlega virðist hjá mörgum ísra- elum — hverjir þessir Palestínu- menn væru? „Það er fróðlegt að íhuga hverjir þessir Palestínu- menn eru. Hver er munur á þeim, sýrlenzkum Aröbum, egypzkum Aröbum og svo framvegis? Það bjuggu Arabar í Palestínu áður og fyrrum og Gyðingar hafa búið í Palestínu um aldir. Svo verður ísrael sjálfstætt ríki og þá spretta allt í einu upp allar þess- ar milljónir af heimilislausum Palestínumönnum. Það er nær- tækt að spyrja af hverju þetta fólk var ekki um kyrrt þegar ísrael varð sjálfstætt ríki, í þeim byggðum þar sem Arabar ílent- ust, eins og til dæmis í Nazaret hefur sambúðin gengið snurðu- laust og það er ekki ástæða til að ætla annað en samskiptin víðar hefðu einnig gengið átakalaust. Sambúðin væri jafnvel enn betri ef við fengjum að leysa þessi mál í friði án þess að utanaðkomandi aðilar með mismunandi litla þekkingu — hvað þá skilning — á okkar málum væru ekki alltaf með puttann í spilinu." í viðræðum við menn í ísrael þessa daga kom fljótlega fram, að þó svo að Begin og stjórn hans njóti stuðnings yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar, eru skoð- anir afar skiptar um þá þróun sem hefur orðið í landinu síðustu mánuði. ísraelum er vel ljóst að þeir geta ekki — þrátt fyrir allt leitt hjá sér almenningsálitið á Vesturlöndum og það er auðfund- ið, að málið er þeim viðkvæmt og sárt og verður ekki afgreitt með frasakenndum yfirlýsingum. llinn almenni borgari hefur tekið mjög skorinorða afstöðu gagn- vart Beirutmálinu og gagnrýnt stjórn Begins. En Begin hefur þá yfirburði sem stjórnmálamaður, að þar kemst ekki nokkur maður að sinni með tærnar þar sem hann hefur hælana. Því munu ísraelar enn um sinn verða að þola sálarkvöl og iðran, en horfa jafnframt til hans sem hins eina stcrka manns sem landið á, en um slíka menn hafa Israelar alla tíð hneig/.t til að fylkja sér. *gg£- ■■ ■ GolJabuxur, ulput f allskonar. ArttrúruU. E00ÍISr kjólor, P* tiskuV eínisbútar- Kvenkapur.w okkar og em %*„.«**»*’■**' 09 Z «9M®011*1 Teppabútar, ^ “ gjatveröi guáíaSleg utlanePF $gSZ&s"”,~ I i I ■ lýjÍ'Ar' ■ \ *VERKSmJUSALA* SAMBANDSVERKSMWJANNA Á AKUREYPI PttriíwMMfriíb MetsöluNad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.