Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
39
Samtímis þessu hafa Sovétríkin
unnið að eigin gervihnattakerfi,
sem nefnist COSPAS. Samstarf
hefur tekist um þetta verkefni,
þannig að þessir sovésku gervi-
hnettir nota sama tækjabúnað og
þeir bandarísku, og því geta sömu
móttökustöðvar á jörðu niðri tekið
við skilaboðum frá öllum þessum
gervihnöttum.
Áður en hægt er að telja SARS-
AT gervihnatta-fjarskiptakerfið
virkt, verður að koma upp 25—30
landstöðvum, sem verða að vera á
ýmsum stöðum dreift um svæðið.
Þessar landstöðvar taka á móti
sendingunum frá gervihnöttunum
og vinna úr þeim, þannig að hægt
sé að reikna út staðsetningu neyð-
arsendis á hafinu.
Nú er verið að setja upp
SARSAT-móttökustöð í Tromsö í
Norður-Noregi. Gert er ráð fyrir,
að þessi stöð verði orðin virk í maí
mánuði 1983, og þá er ætlunin að
hefja fjölþjóða prófanir á þessu
kerfi. Gervihnettirnir fara í lítilli
hæð yfir norður-pólssvæðið.
Gervihnettirnir endursenda
merki, sem þeir taka á móti frá
neyðarsendum á jörðu niðri, á sjó
eða landi. Móttökustöðvar á landi
taka á móti þessum merkjasend-
ingum. Þar eru merkin skráð, og
síðan er staðsetning neyðarsendis-
ins reiknuð út. Við þessar fyrstu
tilraunir er gert ráð fyrir, að
neyðarsendarnir sendi á 121,5 og
243 MHz, en þessar tíðnir eru báð-
ar á þeim neyðarsendum (neyð-
arbaujum), sem nú hafa verið
settar í gúmmíbjörgunarbáta ís-
lenskra skipa samkvæmt gildandi
íslenskum reglum.
En auk þessara tíðna, taka þess-
ir gervihnettir á móti neyðarsend-
ingum á 406 MHz, sem er sú tfðni,
sem tilraunirnar aðallega byggj-
ast á.
Það svæði, sem jarðstöðin í
Tromsö í Noregi nær yfir, er frá
norðurpólnum og að suðurströnd
Eystrasalts, norður-suðurátt, en í
vesturátt nær svæðið til íslands,
sem þó er á mörkum svæðisins.
Talið er, að það muni taka 1 klst.
að finna nákvæmlega sendistað
neyðarsendis, sem er nokkru aust-
an við ísland, en á svæðinu þaðan
og vestur að Reykjanesi, muni það
taka um 2 klst. að reikna út stað-
setningu neyðarsendis.
Nú hefur Tækni- og náttúruvís-
indarannsóknarráð Noregs farið
þess á leit, að Siglingamálastofn-
un ríkisins beiti sér fyrir og sjái
um þátttöku íslands í þessum til-
raunum, og mun Siglingamála-
stofnunin, að sjálfsögðu fúslega,
verða við þeim tilmælum. Hér er
um mikið öryggismál að ræða
fyrir íslenska sjófarendur, og
nauðsynlegt að fylgjast vel með
þessari stórmerku þróun til að
auka öryggi við staðarákvörðun
sjóslysa, og síðan björgun. Með því
að stytta tímann frá því að sjóslys
verður og þar til hjálp berst,
aukast að sjálfsögðu verulega lík-
urnar á giftusamlegri björgun eða
aðstoð.
INMARSAT-kerfið
Samtímis kröfum á þessu
SARSAT-kerfi, er svo unnið að al-
þjóðakerfinu INMARSAT. Þar er
gert ráð fyrir tíðninni 1,6 GHz, en
tilraunir verða líka þar gerðar á
406 MHz.
Tilraunirnar hafa þegar sýnt
mjög jákvæðan árangur með notk-
un 1,6 GHz, og mun sú tíðni að
öllum líkindum verða alþjóðleg,
sem neyðartíðni fyrir þessar rad-
íó-baujur fyrir skip.
Þó lítur nú út fyrir, að skip
verði búin baujum bæði fyrir 1,6
GHz og 406 MHz. Verði svo, þá er
talið líklegt, að verð þessara neyð-
arbauja fyrir hvert skip verði ná-
lægt 300.000 krónur á verðlagi
dagsins í dag.
Oneitanlega verður fróðlegt að
fylgjast með áframhaldi þessarar
þróunar gervihnatta-fjarskipta
milli skipa og lands, sem nú nálg-
ast óðfluga framkvæmdastigið.
Reykjavík, 28. febrúar.
Hjálmar R. Bárðarson.
Er breytinga þörf á
samræmdum prófum?
— eftirGísla
Baldvinsson, kennara
Nú um þessar mundir eru liðin
sex ár frá því að teknar voru upp
breytingar á fyrirkomulagi prófa í
efsta bekk grunnskólans. Nokkur
blaðaskrif og deilur urðu þá um
þær breytingar og þótti sumum,
m.a. undirrituðum breytingin spor
aftur á bak. Ekki er ætlunin að
vekja upp á ný deilur um hver
hafði rétt fyrir sér en ég ráðlegg
öllum að lesa þær greinar sem
birtust í blöðunum í marsmánuði
1977.
Það sem fyrir mér vakir er að
velta því upp hvort ekki sé tíma-
bært að endurskoða framkvæmd
samræmdu prófanna enda þau
börn sem nú stíga sín fyrstu spor
á menntabrautinni fædd á því ári
er síðasta breyting var gerð.
Dreifibréf Mennta-
málaráðuneytisins
Menntamálaráðuneytið sendi út
dreifibréf nr. 7/1982 dagsett 27.
maí sl. Það fjallar um þær breyt-
ingar sem settar hafa verið fram,
og ráðuneytið hefur hlerað á
framkvæmd samræmdu prófanna.
Tekið er fram að ráðuneytið hafi
ekki tekið afstöðu til tillagnanna.
Ráðuneytið áréttar svo skiljanlega
innheimtu á svörum 6. október sl.,
sem það bað um frá kennurum.
Frestur var gefinn til 1. nóvember
sl. Ekki veit ég hve margir skólar
tóku þá við sér en við lauslega
könnun virtust það ekki vera
margir, enda hæpið að senda
dreifibréf um jafn þýðingarmikið
málefni á síðasta degi skólans.
Þetta minnti mig óneitanlega á
það sambandsleysi sem ég og fleiri
kvörtuðum fyrir sex árum. Þó skal
það tekið fram að samband kenn-
ara við skólarannsóknardeild
Menntamálaráðuneytisins (betra
heiti óskast) hefur verið gott á
þessum sex árum. Frá handsnúnu
yfir í sjálfvirkt svo samlíking sé
tekin.
Hugmyndir um breytingu
í þeim hugmyndum sem ráðu-
neytið sendi er viðruð sú hugmynd
að stefnt skuli að því að nemendur
útskrifist úr grunnskóla á ábyrgð
skólans. Jafnframt verði í auknum
mæli notuð könnunarpróf til að
fylgjast með markmiðum náms-
ins. Slíkum könnunarprófum verði
beitt á fleiri aldurshópa innan
grunnskólans. Þá er birt í dreifi-
bréfinu drög að áætlun hvernig
megi smátt og smátt fella sam-
ræmdu prófin niður. Þeirri niður-
talningu verði lokið á skólaárinu
1985-6.
Hugmyndir kennara í
Hólabrekkuskóla
Undirritaður tók þátt í hóp-
starfi kennara í Hólabrekkuskóla í
Reykjavík um tillögur að breyt-
ingum á tillhögun samræmdra
prófa. Við settum fram hugmynd-
ir okkar í ítarlegu bréfi til
Menntamálaráðuneytisins sem fer
hér á eftir í heild:
Keykjavík, 4. nóvember 1982.
Skólarannsóknadeild
Hörður Lárusson.
Um samræmd próf.
Meö hliðsjón af dreifibréfi daRsettu 27. maí
1982 frá skólarannsóknadeild, þar sem er
óskað eftir því að kennarar og skólastjórar í
grunnskólum tjái sig um þær hugmyndir sem
þar koma fram um breytingar á tilhögun og
framkvæmd prófanna í næstu framtíð, viljum
við undirritaðir kennarar taka fram okkar
(óskir) skoðanir.
1. Samræmd próf fari fram í 9. bekk í ís-
lensku, stærðfræöi og ensku. í fram-
haldsskólum okkar eru þessar greinar
mikilvægar kjarnagreinar og segja má að
þær séu rauði þráðurinn í gegnum skóla-
kerfið. Námsbækur á enska tungu eru áð
öllu jöfnu mun meira notaðar í skólakerfi
okkar en aörar.
2. Próf í þessum greinum fari fram að vori,
„Þá vildi ég fyrst
leggja áherslu á að eftir
reynslu á prófatímanum
í febrúar þá verði ein-
hvers konar spennufall
hjá nemendum og þau
haldi að erfiðinu sé lok-
ið. Enda viðurkennt af
ráðuneyti að fram-
haldsskólar fari of mik-
ið eftir samræmdu
prófseinkunnunum en
leiði skóla prófseink-
unnarinnar hjá sér.“
því reynslan sýnir að það er hagkvæmara
bæði fyrir nemendur og kennara.
3. Kennurum og prófdómara sé treyst til aö
fara yfir prófin og útskrifa nemendur úr
grunnskóla. Það þarf ekki nefnd í Reykja-
vík til þess. Hins vegar séu prófniðurstöð-
ur yfirfamar og leiðréttar skekkjur ef
finnast.
4. Normalkúrfur rúði því engu um úrslit
prófa heldur verði geta einstaklings mið-
uð við frammistöðu hans sjálfs í prófinu
en ekki frammistöðu annarra.
5. Vitnisburður gefinn í heilum tölum. Lág-
markseinkunn 4.
6. Prófanefnd semji þessi þrjú bréf en
nefndarmenn sitji ekki lendur en 3 ár.
Fulltrúar landsbyggðarinnar hafi líka
sæti í nefndinni.
Um könnunarpróf
Þá vilja undirritaðir kennarar lýsa yfir
ánægju sinni með þær hugmyndir sem uppi
eru um notkun könnunarprófa á neðri stigum
grunnskólans samkvæmt umræddu bréfi.
Hins vegar er það skoðun okkar að hver ein-
staklingur eigi rétt á því að fá að vita um
frammistöðu sína á slíkum prófum. Þó
grunnskólalög kveði á um að ekki megi flokka
nemendur þá er staðreyndin sú að þetta
markmið laganna er löngu úr gildi fallið. Það
skiptir meira máli fyrir einstaklinginn að vita
um árangur sinn en árangur alls hópsins.
(Hvernig stend ég?).
Með slíkum könnunarprófum er verið að
gera markmiðin miklu nærtækari fyrir nem-
endurna. Það að standa sig í prófi í viðri
merkingu orðanna er markmiö sem hefur
wtýnst“ í grunnskólanum en hrópar á alla í
þjóðfélagi nútímans. Það er nauðsynlegt að
leggja meiri áherslu á þetta atriöi í öllum
grunnskólanum. Við viljum eindregið vara við
því að farið verði að nota niðurstöðu þessara
könnunarprófa til að bera saman skóla. Slíkur
samanburður getur aldrei byggt á raunhæf-
um forsendum og verður því ekki marktækur.
Ef ég í örstuttu máli geri grein
fyrir þessum hugmyndum þá vildi
ég fyrst leggja áherslu á að eftir
reynslu á prófatímanum í febrúar
þá verði einhvers konar spennu-
fall hjá nemendum og þau haldi að
erfiðinu sé lokið. Enda viðurkennt
af ráðuneyti að framhaldsskólar
fari of mikið eftir samræmdu
prófseinkunnunum en leiði skóla
prófseinkunnarinar hjá sér. Ég
hef oft notað þá samlíkingu að ef
tannlækni sé treyst að gera við
tennur í fólki þá hljóti það að vera
hægt að treysta kennurum að út-
skrifa nemendur úr grunnskóla.
í viðtölum við foreldra og
marga skólamenn kemur það fram
að mörgum finnst normalkúrfu-
kerfið þar sem nemendum er
fyrirfram raðað í hlutfalli frá A
til E, óréttlátt og úrelt. Það hljóti
að vera aðrir þættir sem mætti
mæla og taka tillit til við náms-
mat.
Þá er nauðsynlegt að skipt sé
um nefndarmenn öðru hverju,
Gísli Baldvinsson
ekki vegna þess að við vantreyst-
um núverandi nefndarmönnum
heldur þurfa ferskir vindar sífellt
að blása þar um sali.
1 samstarfshópunum kom fram
ótti um að framhaldsskólarnir
kynnu að taka upp inntökupróf
vegna breytts námsmats.
Vissulega þarf að gera slíkar
breytingar í samráði við fram-
haldsskólana. Hvað gerðist ef Há-
skólinn tæki upp almenn inntök-
upróf án samráðs við fram-
haldsskólana?
Endurskoðun skólakerfis-
ins
Þessar breytingar tengjast auð-
vitað þeim breytingum sem fyrir
löngu eru tímabærar á skólakerf-
inu. Nú þegar þyrfti að endur-
skoða margt í grunnskólalögunum
frá 1974. Og vonandi fáum við
brátt lög um samræmdan fram-
haldsskóla svo ég endi spjall mitt
á sígildan hátt eins og Cato forð-
um.
LÆKKIÐ BYGGINGA- og VIÐHALDSKOSTNAÐ
meö
DC 781 SILICONE KITTI
BERIÐ SAMAN VERDIÐ AÐUR EN ÞIÐ KAUPIÐ EN ÞAÐ
SEM EKKI ER HÆGT AÐ BERA SAMAN ERU ...
GÆÐIN
1. DC 781 Silicone Kitti var fyrst á heimsmarkaðnum.
2. DC 781 Yfir 20 ára vandræðalaus notkun.
3. DC 781 er eina Silicone Kitti sem stenzt kröfur.
SNFJ, Frakklandi,
DIN, Þýzkalandi,
BSI, Englandi,
Fed. Spec., Bandaríkjunum.
4. DC 781 er mest selda Silicone Kitti í heimi og á íslandi.
5. DC 781 inniheldur ekki fylliefni og er 100% Silicone.
Biðjið um ókeypis myndalista um DC 781 Silicone Kitti
DOW CORNING
KISÍLLHF
Fyrstir með Siiicone í heimi.
Fyrstir með Silicone á Islandi.
Lækjargata 6B — Pósthólf 527 — 121 Reykjavík.