Morgunblaðið - 16.03.1983, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.03.1983, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 41 Frá Áfengisvarnaráði: Er drykkja heilsuvernd? Að gefnu tilefni vill Áfengis- varnaráð benda á eftirfarandi: Öðru hverju birtast fréttir þar sem niðurstöður sérstakra rann- sókna eru sagðar hafa sýnt að vín- eða öldrykkja sé heilsusamleg á einhvern hátt. — Er þá sjaldnast getið þeirra fyrirvara sem heiðar- legir vísindamenn láta gjarnan fylgja slíkum niðurstöðum. Það atriði, sem þar vegur þyngst, er væntanlega að af hverjum tug manna, sem neytir áfengis, verða tveir háðir því, ofneytendur. Þá er og ljóst að lítt stoðar að komast hjá að veikjast af einum sjúkdómi ákveðinn tíma ef maður andast af öðrum sakir drykkju fyrir aldur fram. Nokkur ummæli þekktra vís- indamanna um þetta fara hér á Skákkeppni fram- haldsskóla: Sveit MH vann með fádæma yfirburðum 8KÁKKEPPNI framhaldsskóla fór fram um sl. helgi og lauk henni með yfirburðasigri A-sveitar Menntaskól- ans við Hamrahlíð. Sveitin hlaut 26'/2 vinning af 28 mögulegum og hefur keppnin aldrei áður unnist með svo miklum yfirburðum. Tefldar voru 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. f 2. sæti varð A-sveit MR með 19 vinninga og sveit Flensborgar og B-sveit MH urðu í 3.-4. sæti með 17 vinninga. f A-sveit MH voru Jóhann Hjartarson, Róbert Harðarson, Hrafn Loftsson, Lárus Jóhannesson og Páll Þórhallsson. Sveitin vann sér rétt til að verja Norðurlanda- meistaratitilinn, sem hún vann á síðasta móti. eftir: 1) William P. Castelli, sem stjórn- aði merkri rannsókn á hjarta- sjúkdómum, sagði á fundi í Hjartavernd Bandaríkjanna (The American Heart Associa- tion): „Er kleift að segja fólki að drekka eitt eða tvö glös og hætta síðan? Ég fæ ekki séð að við megum hvetja nokkurn til að byrja. Sá sem færi eftir þeirri hvatningu gæti orðið ofneyslu að bráð og við þannig brotið niður fjölskyldu hans.“ 2) Mary Jane Ashley, prófessor í læknisfræði við háskólann í Toronto, sótti tveggja daga fund með fremstu hjartasér- Kæru vinir Móður Teresu. Innilegar þakkir fyrir allar þær gjafir sem þið hafið sent Móður Teresu, til hjálpar bágstöddu fólki í Indlandi og hvarvetna þar sem hún og systur hennar og bræður, Kærleikstrúboðarnir, ná til að líkna sjúku, svöngu og þjáðu fólki. Fyrir ykkar liðsinni voru þeim send £1.870.- á síðastliðnu ári og á þessu ári hafa þegar verið send £500.-. Allt eru það gjafir frá ykk- ur. Ýmist hef ég tekið á móti þess- um gjöfum eða þær hafa verið lagðar inn á gíróreikning Móður Teresu, nr. 23900-3. Ég hef að und- anförnu birt í Morgunblaðinu upp- lýsingar um þær gjafir, sem mér hafa borist, í dagbók blaðsins (Áheit og gjafir). Sl. haust var stofnað hér til samtaka sem kallast „Samverka- menn Móður Teresu". Þau starfa víða um heim og miða að því að samverkamennirnir temji sér fræðingum Kanada og Banda- ríkjanna þar sem farið var yfir öll gögn, sem tiltæk voru um samband áfengisneyslu og hjartasjúkdóma. í viðtali við The Journal, sem rannsókna- stofnun Ontario í áfengis- og fíkniefnamálum (ARF) gefur út, sagði hún: „Heldur mun ég ráðleggja sjúklingum mínum að fara til tunglins en segja þeim að drekka einn eða tvo áfengisskammta daglega, af því að ég haldi að það sé hollt fyrir hjartað." 3) Blað Hjartaverndar Bandaríkj- anna, Journal of the American Heart Association, birti í ágúst hugarfar Móður Teresu: að líkna náunganum hvar sem hann þarf á að halda, sjúku fólki, gömlu, þjáðu og einmana, að vitja þess og sýna því að öðrum standi ekki á sama um það. Þessi þjónusta byggist á því að Kristur lifi í öllum mönnum og með því að liðsinna hinum bágstöddu, séum við að Iiðsinna honum. í desemberbyrjun kom hingað formaður þessara alþjóða- samtaka, Ann Blaikie. Hún benti okkur m.a. á að við skyldum ekki birta opinberlega lista yfir gjafir til Móður Teresu. Við litum svo á að slíkar upplýsingar hvettu aðra til að leggja góðu málefni lið, en Ann Blaikie sagði að Móðir Teresa vildi enga auglýsingastarfsemi. Hún væri þakklát öllum sem gæfu til starfs hennar en þær gjafir ættu að byggjast á því að menn gæfu af frjálsum vilja, ekki á því að einhver hvetti þá til að gefa, jafnvel þótt það væri gert á óbein- an hátt. Þess vegna getum við ekki lengur birt þessa gjafalista en 1981 langa grein um heilsutjón af áfengisdrykkju. Þar segir m.a.: „A grundvelli þeirrar vitneskju, sem nú er tiltæk, er sérhver hvatning til áfengis- neyslu í því skyni að minnka líkurnar á hjartasjúkdómum vafasöm. Ef áfengi kynni að hafa einhver jákvæð áhrif á þessu sviði falla þau um sjálf sig vegna annars tjóns sem áfengisneysla veldur." Þessi ummæli voru endurprent- uð í fjórðu skýrslu bandaríska heilbrigðisráðherrans til þingsins í Washington. Væri vel ef fjölmiðlafólk hefði þessar aðvaranir í huga. sendum kvittanir öllum þeim sem láta nafn sitt og heimilisfang fylgja gjöfinni. Þeir, sem leggja inn á gíróreikninginn, fá auðvitað sína kvittun. Hins vegar berast mér stundum gjafir án þess að nokkurt nafn fylgi. Það sýnir, Guði sé lof, að mönnum er treyst ennþá. Betur færi ef það væri al- mennt hægt, en þó held ég að við mættum treysta náunganum oftar og betur en við gerum almennt. Ég þakka ykkur ennþá einu sinni fyrir gjafir ykkar, en gleym- ið því samt ekki að allt í kringum okkur er fólk, ungt og gamalt, sem þarf á kærleika okkar og liðsinni að halda, ekki peningum, heldur svolitlu af tíma okkar og vináttu. og hvað það snertir á fjölskylda okkar að ganga fyrir. Fyrir henni hefur Guð trúað okkur sérstak- lega. Kær kvedja frá Torfa Ólafs- syni, landsformanni Samverka- manna Móður Teresu. Sigurður Flosason Tónlistarskólinn: Brottfararpróf í saxófónleik Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur burtfararprófstónleika í Austurbæjarbíói miðvikudag- inn 16. mars kl. 7 síðdegis. Þar leikur Sigurður Flosa- son á saxófón og er það fyrri hluti einleikaraprófs hans. Sigurður er fyrsti nemandi sem lýkur einleikaraprófi á saxófón frá skólanum, og er kennari hans Hafsteinn Guð- mundsson. Á efnisskránni verður m.a. frumflutt nýtt verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson sem hann samdi sérstaklega fyrir þetta tilefni og heitir Að leikslokum og er tileinkað minningu Gunnars Ormslev. Undirleikari Sigurðar er Valgerður Andrésdóttir og auk hennar koma þrír aðrir hljóðfæraleikarar fram á tónleikunum, Reynir Sigurðs- son, Tómas Einarsson og Gunnlaugur Briem. Bréf til vina Módur Teresu ekki við því, að hið sterka afl sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í gegn um árin, sé lamaö í hugsun- arleysi skammsýnna manna. Það er næsta eðlilegt, í svo stórum flokki sem Sjálfstæðisflokkurinn er, að menn geti greint á, en þeir verða jafnframt að hafa lán og gæfu til að stilla í hóf kröfum sín- um og lama ekki flokkinn með ein- strengingslegum gerðum og stífni. Þúsundir sjálfstæðisfólks um land allt hafa harmað mjög þær deilur sem verið hafa innan flokksins, miklu fremur deilur milli manna heldur en um mál- efni. Og aðalmálgagn flokksins, Morgunblaðið, sem það vissulega er, hefur brugðist mörgum vegna hinnar ákveðnu afstöðu sem það hefur tekið með öðrum deiluaðil- anum. En til þess eru vítin að var- ast þau, og við skulum vona að Sjálfstæðisflokkurinn rísi upp úr öskustónni voldugri og sterkari en hann hefur nokkru sinni verið, og látum það sannast í komandi kosningum. Staða flokksins er sterk, svo sterk að hann hefur vissan mögu- leika á því að stórauka fylgi sitt. Það er að verða óhrekjandi stað- reynd, sem sífellt verður ljósari, að vinstri flokkarnir eru alls ófær- ir um að leysa nokkurn vanda í þjóðfélaginu, er.da eru þar á meiði margar stefnur og ólíkar, og sundrungin slík, að þeir sem óánægðir verða, og fá ekki allt fram sem þeir vilja, sem óþekkir götustrákar, rjúka jafnvel til og stofna nýja flokka, eins og dæmin eru um nú á dögum. Það er engin lausn að fjölga flokkunum, lausn- in er fólgin í hinu gagnstæða, að hafa samstöðu um málin og leysa þau farsællega. Það er ein mesta ógæfa þjóðar- innar hin sterka staða kommún- ista hér á landi. Það er með ólík- indum hið mikla fylgi þeirra og áhrif, s.s. í Alþýðusambandinu. Einhverjir vildu nú sjálfsagt álíta að það yrði að gera greinarmun á Alþýðubandalaginu og kommún- istum, það sé sitt hvað. En þá vil ég vitna til eins gamals og góðs verkalýðsforingja í útvarpinu á hátíðardegi verkalýðsins, 1. maí, fyrir einu eða tveimur árum, í um- ræðu við alþýðubandalagsmann, þegar hann sagði: „Þið eruð og verðið kommúnistar, hvað svo sem þið kallið ykkur, — Sameiningar- flokk alþýðu, Sósíalistaflokkinn eða Alþýðubandalag." Það er hin bitra staðreynd, og forkóflum flokksins tekst svo vel blekkingariðjan, að fjöldi fólks kýs þennan flokk sem hinn eina sanna verkalýðsflokk á íslandi, kýs gegn hagsmunum sínum, því það eru ekki hagsmunir verkalýðs- ins sem þeir berjast fyrir, enda þótt þeir séu svo slyngir, að telja fólki trú um það, og aka þannig seglum að fjöldi fólks lætur blekkjast og veitir þeim fylgi. í þessu dæmi nægir að taka til vísi- tölukerfisins, sem Alþýðubanda- lagið heldur dauðahaldi í, og væri búið að breyta fyrir löngu, ef þeir samþykktu þá breytingu sem bráðnauðsynleg er, en það er að greiða verðbætur á laun í krónu- tölu, en ekki sem hundraðshluta á laun. Slíkt er hið hrikalegasta óréttlæti, á meðan laun eru svo mishá eins og raun ber vitni. En hið rangláta vísitölukerfi er hin heilaga kýr Alþýðubandalags- ins sem ekki má hrófla við. Há- tekjumaðurinn á að fá 5—7 sinn- um hærri vísitölubætur heldur en láglaunamaðurinn, að áliti Al- þýðubandalagsins, hversu langt þarf óréttlætið að ná til þess að láglaunamaðurinn láti í sér heyra? Það er fullkomin þörf á því að fólkið í landinu haldi vöku sinni og geri sér grein fyrir því sem raun- verulegt er. Við stöndum á ystu nöf sýndarmennsku og öfga, sem eru vísasti vegurinn til að leiða þjóðina í ógöngur. í umræðu um kosningalögin og kjörgengi er nauðsynlegt að huga vel að því hvort ekki sé hægt að hafa þann háttinn á að fækka flokkum frem- ur en hitt. Það er óefað að athug- uðu máli höfuðnauðsyn, og verður best gert með því að taka upp ein- mennings kjördæmi. Þá er skammt í tveggja flokka kerfi, og það er einmitt það sem við þurf- um. Þingmenn þurfa ekki að vera nema 45 til 50, og allir kosnir I einmenningskjördæmum, einnig í Reykjavík. Borginni mætti skipta í nokkur eimenningskjördæmi. Það er ekki sú nauðsyn, sem marg- ir virðast halda, að allir hafi jafn- an kosningarétt. í umræðu um kosningalögin er eitt atriði sem lítið hefur verið nefnt. Það er þó svo stórt atriði að beinlínis skiptir sköpum. Það er þess eðlis, að það þarf að komast inn í stjórnarskrá, og standa þar svo óhagganlegt, að því verði ekki breytt nema með öllum greiddum atkvæðum. Hér á ég við það stóra og veiga- mikla atriði til allrar þjóðarheild- arinnar; að líta á ekkert eitt landssvæði sem lítið í samanburði við annað byggt land, enda þótt það hafi fólksfjöldann til, geti haft meirihlutavald á Alþingi. Hér hef ég í huga Reykjavíkur- svæðið og Reykjaneskjördæmi. Þetta litla landssvæði, þótt mannmargt sé, má aldrei komast I þá aðstöðu að hafa meirihlutavald I þjóðfélaginu. Þetta segi ég ekki af óvináttu við Reykvíkinga, held- ur af þjóðarnauðsyn. Það væri þjóðarógæfa ef íbúar eins svo lítils landssvæðis hefðu meirihlutavald fyrir alla þjóðina. Þetta veit ég að liggur ljóst fyrir öllum sanngjörn- um mönnum, þegar málið er yfir- vegað í góðu tómi með sanngirni að leiðarljósi. Úti um hinar dreifðu byggðir landsins er unnið ómetanlegt þjóðnytjastarf fyrir þjóðarbúið, raunverulega svo veigamikið, að á því veltur ekki einungis heill og hamingja þjóðarinnar, heldur efnahagurinn sjálfur. Hornsteinar hans standa vítt og breytt um landið, og mun nauðsynlegri held- ur en skrifstofuveldið í Reykjavík, sem raunverulega stendur og fell- ur með hinu fórnfúsa starfi sem unnið er úti á landsbyggðinni við hin margvíslegustu framleiðslu- störf. En þessi sannleikur liggur því miður ekki Ijós fyrir öllum, vegna ókunnugleika, og svo eru líka andvíg öfl í þjóðfélaginu, fjöl- miðlar, sem nota hvert tækifæri til að afvegaleiða fólk, og koma því vísvitandi inn hjá fólki á Reykja- víkursvæðinu, að landsbyggðin og þau störf sem þar fara fram, séu engin sérstök þörf fyrir þjóðar- heildina. Jafnvel' eru sumir sem klifa á því að landbúnaðurinn sé „drag- bítur á hagvöxtinn", og vandamál þjóðfélagsins eigi rætur sínar að rekja til ofþenslu í landbúnaði, og þessu trúir fjöldi fólks. En þetta er þó eitt hið mesta öfugmæli sem hugsast getur, því án blómlegs iandbúnaðar gætum við ekki búið hér á landi því fyrirmyndarbúi sem við þó gerum í ýmsum skiln- ingi. Hvar ætti að afla gjaldeyris fyrir innfluttum landbúnaðarvör- um, s.s. mjólk og kjöti? Og hvar ætti allt það fólk sem að landbún- aði starfar, að leita sér atvinnu, ef svo færi að landbúnaður yrði dreginn saman til muna? Það er hætt við því þá syrfi að einhverj- um. En til þess kemur ekki. Þjóðin lærir að skilja hver nauðsyn er á styrkum landbúnaði og hverskon- ar atvinnustarfsemi, framleiðslu, sem er undirstaða framfara og velmegunar. Raunverulega ættu framleiðendur I iðnaði, landbún- aði og sjávarútvegi að hafa marg- faldan kosningarétt á við þjón- ustuaðalinn í landinu. Þá gæti orðið hér blómleg endurreisn til hagsbóta fyrir allt þjóðfélagið. Það væri mun skynsamlegra held- ur en hugmyndir manna um jafn- an kosningarétt, upp á 100%. Mis- vægið er svo margvíslegt annað, og alltaf hallast á fyrir dreifbýlið, landsbyggðina. PJS. í kvöld, 28. febrúar, þegar ég var að ganga frá þessari grein, heyri ég að útvarpið er að flytja okkur þá fregn, að bráðabirgða- lögin hafi verið samþykkt á Al- þingi í dag. Þessa vil ég geta hér, vegna þess ég segi í greininni að lögin hafi ekki verið afgreidd enn, þann 25. febrúar, þegar greinin var skrifuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.