Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 43

Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 43 Eiríkur Kr. Gísla- son — Minningarorð Fæddur 8. ágúst 1895 Dáinn 9. mars 1983 í dag er til moldar borinn vinur minn Eiríkur Kristinn Gíslason, heiðursmaður úr alþýðustétt, sem flestum mun verða minnisstæður, sem nokkur kynni höfðu af. Eirík- ur var sérstæður persónuleiki, sem reyndar er ekki auðvelt að lýsa fyrir þeim, sem ekkert til þekktu. Eiríkur var fæddur að Varmá í Mosfellssveit og fluttist þaðan með foreldrum sínum að einum Partabæjanna í Mosfells- dal. Svo sagði hann mér sjálfur. Efnin voru smá og börnin mörg, svo snemma þurfti hvert þeirra að fara að vinna og sjá sér farboða, eins og gerðist á þeim tíma. Kynni okkar Eiríks hófust fyrir um það bil 35 árum hjá Tryggva Gunnarssyni, glímukappa, sem var fornvinur Eiríks. Þeir voru jafnaldrar og höfðu sem piltar um tvítugt stundað sjóróðra saman á Eskifirði. Það hefur verið í byrjun fyrri heimsstyrjaldarinnar. Hélst svo þeirra vinátta alla tíð, en Tryggvi er látinn fyrir nokkrum árum. Fyrst voru kynni okkar Ei- ríks lausleg, en svo hagaði for- sjónin því til, að ég fluttist með fjölskyldu mína að Leifsgötu 20 og var þá orðinn nágranni Eiríks, sem bjó að Leifsgötu 23. Þarna bjuggum við í nábýli næstu 20 ár- in. Tókst þá með okkur vinátta, sem hefur haldist síðan. Nú er komið að kveðjustundinni, en þannig er lífsins gangur. Eiríkur var 18 árum eldri en ég, en þar sem við kynntumst fullorðnir varð ekki vart neins aldursmunar. Eiríkur var að eðlisfari frekar einrænn, en það rættist fljótt úr, þegar maður hafði kynnst honum. Hann var skemmtilegur höfðingi að umgangast, þótt efnin væru kannski ekki alltaf mikil. Eins og áður segir stundaði Eiríkur fyrst sjómennsku og mun hafa gert það fyrr á árum, þótt mér sé ekki kunnugt um hve lengi. En að ævistarfi var hann símamaður við línulagnir út um allt land og mátti heyra, að hann hefði víða komið og var gagnkunnugur mörgum byggðum landsins. Þó kynni okkar Eiríks væru all náin og ég heimsækti hann viku- lega, og stundum oftar, og hann kæmi oft á heimili mitt, en til þess þurfti ég oftast að sækja hann, þá varð ég þess snemma var, að einkamál hans voru hans, og þau ræddi hann ekki. Þótt vinnuvett- vangur Eiríks væri að mestu verkamannastörf og launin eftir því, þá varð ég þess aldrei var að hann skorti neitt. Hann var í eðli sínu ákaflega hagsýnn í eigin bú- rekstri. Hann bjó vel í snyrtilegri lítilli íbúð, en kunni vel að fara með. Þó var hann einnig rausnar- maður og átti ósjaldan flösku af víni til þess að geta hellt í staup meðan við spiluðum „rússa". Mörg voru þau kvöldin, sem við sátum yfir „rússanum" og spjölluðum þess í milli. Þetta voru mér óblandnar ánægjustundir og ég vona, að þær hafi verið Eiríki það líka. Það, sem einkenndi vin minn Eirík var snyrtimennskan, en hún var honum eðlislæg. Enda þótt hann ynni margs konar vinnu fyrir símann, sást hann aldrei öðruvísi en prúðbúinn, rétt eins og hann væri að fara í veislu. Eiríkur var mikið prúðmenni í allri framkomu, en skapfastur og lét ekki ganga á hlut sinn. Hann var reglusamur starfsmaður og er það trú mín, þótt ég viti ekki, að sjaldan hafi hann látið sig vanta, þar sem hann átti að vera. Skap- gerðin var þannig. Eiríkur mun Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Kristinn Anton Gíslason — Kveðja Fæddur 3. júlí 1977 Dáinn 13. febrúar 1983 „Legg ég nú bæði líf og önd Ijúfi JeHÚ í þína hönd NÍðaNt þegar ég sofna fer Nitji (>uAn englar yfir raér.“ (H.P.) Mig setti hljóða þegar ég fékk þá frétt að morgni 24. janúar að systursonur minn elskulegur hefði orðið fyrir slysi og væri lítil von um að hann lifði það af. Af hverju hann, þessi dásamlegi drengur, spyrjum við, en við því fáum við engin svör, því vegir Guðs eru órannsakanlegir. En við verðum að trúa því að Guð hafi ætlað hon- um æðra og meira starf hjá sér og þess vegna tekið hann svona fljótt frá okkur. Með þessum fáu kveðju- orðum vil ég og fjölskylda mín kveðja elsku litla frænda okkar og þakka honum allar stundirnar sem við fengum að vera með hon- um. En vegna þess að fjarlægðin á milli heimila okkar var mikil, sáumst við of sjaldan. En í þau skipti, sem ég heimsótti systur mína og fjölskyldu hennar norður á Sauðárkrók, mætti okkur gleði, hlýja og lífsþróttur þessa litla frænda okkar, og munum við allt- af geyma bros hans í huga okkar. Elsku Snjólaug systir, Gísli, Stína og Minný! Megi góður Guð styrkja ykkur í þessari þungbæru sorg og gefa ykkur þrótt til að líta björtum augum á lífið á ný. Einnig viljum við senda innilegar samúðarkveðj- ur til ömmu og afa á Fáskrúðs- firði, ömmu og afa í Skagafirði og >til allra ástvina hans. Guð blessi minningu elsku litla Kristins Antons. Guðrún, Helgi og synir. Guðrún Helgadótt ir Minningarorð Fædd 14. september 1922 Iláin 25. febrúar 1983 Föstudaginn 25. febrúar andað- ist skólasystir okkar, Guðrún Helgadóttir, í Landspítalanum eftir stranga og erfiða sjúkdóms- legu. Við skólasystur hennar von- uðumst til að hún fengi enn að vera meðal okkar en sú von brást. Haustið 1940 hittust glaðar stúlkur að Staðarfelli í Dalasýslu, sem þá var húsmæðraskóli. Meðal þeirra var Rúna, eins og við köll- uðum hana. Þessi unga prúða stúlka átti eftir að veita okkur margar ánægjustundir með sinni glettni, gleði og skemmtilegum til- svörum. Margar okkar hafa þekkt hana í gegnum árin, en síðastliðin 20 ár höfum við haft samband mánað- arlega að vetri til, og þótti okkur alltaf jafn gaman að hittast og rifja upp gamlar endurminningar. Síðast gat Rúna verið með okkur 6. desember þó hún gengi ekki heil til skógar. Þegar við horfum til baka finnst okkur þetta stuttur tími en endur- minninguna geymum við um góða skólasystur. Við þökkum henni samfylgdina og kveðjum hana með söknuði um leið og við biðjum góð- an guð að leiða hana á nýjum veg- um. Vottum eiginmanni, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öldruðum föður ásamt öðrum ástvinum okkar innilegustu sam- úð. Skólasystur hafa verið mjög vel að manni sem yngri, en ég hefi það eftir Tryggva glímukappa vini hans, að hann hefði aldrei vitað að Eiríki yrði afls vant. Sjálfur var Tryggvi helj- armenni svo hann gat dæmt um það. Aftur á móti varð ég aldrei var við að Eiríkur beitti afli, öll misklíð var leyst með rólyndi. Ei- ríki var einkar sýnt um að velja úr þá, sem hann vildi umgangast, og hina sem hann kærði sig ekki um að væru að troða sér um tær. Ef dæma á menn eftir því hverja þeir umgangast, þá fengi Eiríkur góða einkunn. Tíðastir gestir hjá honum á Leifsgötu 23 voru skólastjórar, kennarar og margir aðrir langskólagengnir menn. Svo einhverju hefur Eiríkur getað miðlað af vitsmunum, en skólamenntun hafði hann aldrei hlotið. Eiríki tókst ekki að skapa sér varanlegt heimili í sambúð. Hann hóf fyrst búskap með Ingibjörgu Vigfúsdóttur ættaðri úr Árnes- þingi. Með henni átti hann tvö börn, Lilju og Hörð. Þau slitu ' samvistir og giftist Eiríkur þá Þórdísi Guðmundsdóttur og áttu þau tvö börn, Guðmund vélfræð- ing og Hrafnhildi sem búsett er í Bandaríkjunum. Þau slitu sam- vistir. Yngsta barn Eiríks er Nanna (Jensína) og er móðir hennar Hulda Vigfúsdóttir. Öll hafa þessi börn haldið tryggð við föður sinn og sýnt hon- um ræktarsemi. Eiríkur var alla tíð heilsu- hraustur og eltist vel. Hann hélt óspilltum andlegum kröftum fram á dánardægur. Þegar Eiríkur var nær áttræður fékk hann vist á Hrafnistu fyrir tilstilli Guðmund- ar sonar síns. Eiríkur andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu 9. marz eftir nokkurra vikna lasleika. Að leiðarlokum segi ég, fari Ei- ríkur í friði. Ég þakka honum fyrir samveruna. Kristján B.G. Jónsson Eggert Haukdal flytur ræðu sína á fundi Ingólfs. Efsti maður listans og annar, Þorsteinn Pálsson og Árni Johnsen til hægri og til vinstri á myndinni Helgi Þorsteinsson, fundarstjóri, og Sigurður Pálsson fundarritari. Morgunblaðið/ Sigrún Hveragerði: Frambjóðendur á fé- lagsfundi hjá Ingólfi Hveragerði, 7. mars„ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Ingólfur í Hveragerði hélt almennan félags- fund í gær, þ. 6. mars í Félagsheimil- inu Bergþóru og hófst hann kl. 15.00. Á fundinn voru boðnir þrír efstu menn á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í suðurlandskjördæmi, þeir Þorsteinn Pálsson, Árni Johnsen og Eggert Haukdal, Allir fluttu þeir ræður og svör- uðu mörgum fyrirspurnum fund- armanna um hagsmunamál kjör- dæmisins í atvinnu- og samgöngu- málum og fl. Þá hétu menn hver á annan vel að duga í væntanlegum kosningum á komandi vori og tryggja kosningu 3ja þingmanna, eins og verið hefur í áraraðir. Þökkuðu fundarmenn gestunum komuna og óskuðu þeim góðs gengis. Fundurinn var öllum opinn og sóttu hann milli 50—60 manns og stóð hann í 4 klst. Fundarstjóri var Helgi Þorsteinsson, formaður Ingólfs, en fundarritari Sigurður Pálsson. Sigrún. Hluti fundarmanna. Morgunblaðiö/ Sigrún Norræna húsið: Sænskar kvikmyndir MIÐVIKUDAGINN 16. mars kl. 20.30 verða sýndar tvær sænskar kvikmyndir í samkomusalnum. Eru það 28 mínútna litkvikmynd um Drottningarhólmshallarleikhúsið (Dronningholms slottsteater) sem Gunnar Fischer hefur gert, og fram- leidd er í samvinnu við m.a. Stokk- holmsborg og ríkisútvarpið sænska, og hitt er kvikmynd um sænska kvikmyndastjórann Bo Widerberg, 55 mínútna litmynd, gerð af Karsten Wedel. I frétt frá Norræna húsinu seg- ir, að nú sé sýningu Brian Pilking- ton, í anddyri Norræna hússins að ljúka, en myndirnar verða teknar niður miðvikudaginn 16. mars. Nk. laugardag verður opnuð þar ljósmyndasýning, og eru það myndir teknar af Sigríði Gunn- arsdóttur. Ennfremur lýkur sýningu Jó- hönnu Bogadóttur um næstu helgi og er sunnudagurinn 20. mars síð- asti sýningardagur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.