Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
61
lendum sið, þ.e. með hálsskurði.
Heiftarleg mótmæli almennings
urðu til þess að hætt var við allt
saman, ráðunautnum til sárrar
gremju.
Þetta er allt saman verðugt
íhugunarefni. Ef maðurinn vill
líta svo á að nýta beri sérhverja þá
dýrategund, sem orðið geti honum
til eldis og framfæris, þá er lítt
skiljanlegt hvers vegna ekki má
drepa og éta svani eins og marga
aðra fugla, já, og þess vegna alveg
eins t.d. lóuna og skógarþresti, svo
eitthvað sé nefnt. Sömuleiðis
hunda og ketti eins og gert er í
öðrum löndum. Það er eins og
eitthvað annað en nýtingarsjón-
armiðið eitt komi þarna til greina,
eitthvað skylt siðfræði, fagurfræði
eða mannúð eða hvað á að nefna
það. Og hvers vegna þá ekki alveg
eins hvalinn? Hann hefur þó þá
sérstöðu að eiga sér ennþá lengri
þróunarsögu að baki en maðurinn.
Hann er einskonar hliðstæða
mannsins í sínu umhverfi. Maður-
inn er þróaðasta dýrið á landi, en
hvalurinn í sjónum. Steypireyður
er stærsta dýr veraldar svo eitt-
hvað sé nefnt. Kvendýrið á einn
kálf annað hvert ár. Meðgöngu-
tíminn er 10 mánuði og kálfurinn
er á spena í 7 mán. Búrhvalurinn
getur kafað lóðrétt niður 1100 til
2200 m og svo komið beint upp
aftur; væri ekki amalegt fyrir kaf-
ara að geta þetta. Sumarið 1971
gerðist það að hrefna, sem hafði
flækt hausinn á sér í netadræsu,
losaði sig við hana með því að láta
hana skerast í sundur á kili trillu
sem var við veiðar hér fyrir vest-
an, síðan elti hún trilluna í marga
tíma og sýndi slíkt hátterni, að
bátverjar furðuðu sig stórum
(frásögn í Náttúrufræðingnum
’78). Hvalurinn á sér að baki a.m.k.
25 millj. ára þróunarsögu. Að út-
rýma af yfirborði jarðar einhverri
hvalategundinni er stórglæpur,
sem engin afsökun finnst fyrir. Að
fara illa með og drepa á ómannúð-
legan hátt þetta stórmerkilega dýr
er óverjandi hjá þjóð, sem vill
telja sig siðmenntaða.
Ábyrgð mannsins
Guðsmaðurinn, sem ég vitnaði
til hér í upphafi, talar um að mað-
urinn sé „settur yfir“ jurta- og
dýraríki jarðar og því fylgi mikil
ábyrgð. Það er alveg rétt hjá hon-
um. Það má aldrei gleyma því að
jurtir, dýr og smábörn eru mál-
laus gagnvart manninum, eiga sér
engan málssvara úr eigin röðum,
eru alveg varnarlaus og því ger-
samlega háð því, hvernig mannin-
um þóknast að koma fram gagn-
vart þeim. Ekki einu sinni hin
mikilfenglegustu rándýr, eins og
t.d. ljón eða tígrisdýr, mega sín
neins gagnvart nútímamanninum.
það má því segja að ábyrgðin hafi
vaxið. Sumir virðast gera sér
grein fyrir þessu.
í hinni ágætu áströlsku skýrslu
er margoft vikið að þessu. Þar er
t.d. bent á að: „ ... Það á ekki að
drepa dýr eða láta þau þjást, nema
alls ekki sé um neina aðra leið að
ræða til að fullnægja þýðingar-
miklum þörfum mannsins ...“ og
varðandi hvalina sérstaklega:
„Hvalir eru flökkudýr og því arf-
leifð alls mannkynsins. Við berum
samábyrgð gagnvart varðveizlu
þeirra, bæði þjóðlega og alþjóð-
lega.“
Hvernig er afstaða íslendinga
gagnvart þessu? Er einhver alveg
óhjákvæmileg nauðsyn að veiða
hvalina? Mér er sagt að við höfum
verið að flytja hvalkjöt til Bret-
lands í hundafóður allt til ársins
1975!
Og hvað með flökkueðli hvals-
ins? Verðum við ekki að hafa það í
huga, þegar við segjumst aðeins
veiða í 200 mílna landhelgi okkar?
Hvað eru ekki íslenzk stjórnvöld
einmitt þessa dagana að benda á.
Þau segja að Færeyingar séu að
veiða lax, sem með réttu sé á leið-
inni til okkar! Það er satt að segja
oft erfitt að átta sig á röksemda-
færslum sumra stjórnmálamanna.
Sumir tala t.d. mikið um það, að
alls konar þjóðir, sem ekkert komi
hvalveiðar við, séu búnar að troða
sér inn í Alþjóðahvalveiðiráðið til
þess að geta með atkvæði sínu
stuðlað að hvalveiðibanni. Hugs-
um okkur að til væri alþjóðlegt
ráð til verndar og varðveizlu
villtra dýra, t.d. ljóna, fíla, nas-
hyrninga, svo eitthvað sé nefnt,
ættum við þá orðalaust að horfa
upp á (gæti kannski munað einu
atkvæði) að þessum dýrategund-
um væri útrýmt af jörðunni bara
af því að þau lifa ekki á Islandi?
Það eru til menn, sem eru svo
gersneyddir allri samábyrgðartil-
finningu að þeir myndu ekki hika
við að drepa síðasta fílinn og síð-
asta ljónið. Hugsið ykkur hvað
fengist hátt verð fyrir t.d. síðasta
nashyrningshornið eða síðasta
búrhvalsgöndulinn (ég hef ein-
hvers staðar lesið að gríski skipa-
kóngurinn Onassis hafi klætt allar
stólsetur á snekkju sinni slíkum
skinnum — göndullinn er kynfæri
hvalsins).
En hafi hér verið lítilsháttar
vikið að skeytingarleysi manna
gagnvart dýrum, hvað skal þá
segja um það sem fram fer á ýms-
um „vísinda“-tilraunastofum. Það
má þó alltaf segja að veiðar á
villtum dýrum feli í sér smámögu-
leika dýrsins til að sleppa. Það
gildir ekki um tilraunadýr. Eng-
inn skyldi halda, að allar tilraunir
á dýrum séu aðeins til þess að
finna upp einhver lyf við sjúkdóm-
um, sem hrjá mannkynið. Það er
hugsanlega réttlætanlegt. En það
er fleira sem þar er framkvæmt í
skjóli vísinda. Eitt er víst. Millj-
ónum dýra er fórnað árlega og þau
kvalin til dauða, án þess að þar sé
um lækningatilraunir að ræða.
Ég held það væri vel til fallið,
vilji menn endurskoða og endur-
meta rótgróna afstöðu sína til
dýra, að minnast þrælahaldsins. Á
dögum Rómverja var það réttlætt
með rétti hins sterka, sem enginn
vefengdi. Á seinni tímum var það
réttlætt með rétti hins þróaða, og
þau rök notuðu jafnt illmenni sem
góðmenni af fullri sannfæringu.
Og nú á tímum er hámarksnýt-
ingarréttur mannsins á dýrum
réttlættur með herrarétti.
Sannleikurinn er sá, að ekkert
dýr á jörðunni annað en maður-
inn, ógnar jafnvægi náttúrunnar
og í rauninni tilveru alls lífs, og er
þess vegna, frá jarðlífssjónarmiði
séð, það dýrið, sem minnst gerði
til þótt hyrfi.
Hugarfarsbreyting
Það hljóta að vera staurblindir
menn, sem ekki sjá að þessar
hreyfingar, umhverfisverndar-
menn, hvalfriðunarmenn, selavin-
ir, græningjar sem eru að berjast
gegn útbreiðslu kjarnorkueld-
flauga og gegn því að geislavirku
úrgangsefni sé fleygt í sjóinn eða
skotið út í geiminn o.s.frv. er ekk-
ert annað en andsvar náttúrunnar
gegn rangri þróunarstefnu.
Mér fannst ömurlegt að sjá og
heyra þetta ágætisfólk, sem nú
starfar á Alþingi, sýna svo tak-
markað ímyndunarafl við af-
greiðslu þessa sérstaka máls, sem
raun bar vitni. Það var ekki af
framsýni eða af því að þeir hefðu
hönd á jarðlífspúlsinum, sem
þessir 29 þingmenn sögðu nei, við
viljum ekki veiða hval, heldur af
því að þeir töldu meiri markaðs-
málum stofnað í hættu, ef þeir
héldu þessum veiðum áfram, en
ella. Þeir sáu ekkert annað í þessu
máli. Þeir skildu það ekki að hinn
almenni þögli jarðarborgari, sem
hefir haft tækifæri til að fylgjast
með gangi mála undanfarna ára-
tugi, er búinn að fá nóg af vitleys-
unni. Þeir skildu það ekki að það
verður ekkert Alþingi eftir neins
staðar, þegar búið er að taka í
kj arnorkugikkinn.
Ég hafði gert mér vonir um að
þessir menn og konur, sem við
höfum falið á hendur að stjórna
þessu landi og móta andlit þess út
á við, gerðu sér grein fyrir að
þessar lífverndar-hreyfingar, sem
nú eru að skjóta upp kollinum og
eflast óðum, bera með sér vísbend-
ingu um hugarfarsbreytingu,
sem er forsenda þess að unnt sé að
hverfa frá þeirri helstefnu, sem
núverandi stjórnendur þessarar
plánetu hafa upp á að bjóða.
En kannski er þetta allt saman
misskilningur, kannski erum við,
þessir græningjar allra landa,
ekki annað en — teboðsfrúr og
prumphænsni — sem látum til-
finningasemina hlaupa með okkur
í gönur og sjáum þess vegna ekki
að hinir sönnu foringjar, þeir sem
við eigum að leggja allt okkar
traust á, eru Svarthöfðar allra
landa, raunsæir menn, sem standa
báðum fótum á jörðunni — meðan
hún enn er þar.
Smíðað af kappi.
Bolungarvík:
Fullorðinsfræðsla
í kvöldnámskeiðum
Bolungarvík, lð. mars.
í VETIJR hefur skólanefnd Bolung-
arvíkurkaupstaöar gengist fyrir full-
orðinsfræðslu í formi kvöldnám-
skeiða. Að sögn Kristínar Magnús-
dóttur, sem fyrir hönd skólanefndar
hefur umsjón með þessum námskeið-
um, voru 5 námsefni í gangi á haust-
önn, það voru enska I og enska II,
leiðbeinendur Tryggvi Thorstensen
kennari og Gunnar Ragnarsson
skólastjóri, vélritun leiðb. Elínbet
Rögnvaldsdóttir, saumanámskeið
leiðb. Soffía Þ. Einarsdóttir og búta-
saumur leiðb. Magödalena S. Þóris-
dóttir.
Þessi námskeið sóttu 60 til 70
þátttakendur.
Hvert námskeið var 24 kennslu-
stundir og kennt var einu sinni í
viku.
Eftir áramótin eru hinsvegar 3
námskeið í gangi, þ.e. enska II,
leiðb. séra Jón Ragnarsson, sauma-
námskeið í tveimur hópum leiðb.
Magðalena Þórisdóttir og smíðar,
leiðb. Bragi Björgmundsson. Þátt-
takendur í þessum námskeiðum
eru 40.
Fréttaritari leit inn á smíða-
námskeiðið hjá Braga á dögunum.
Það vakti athygli að meðal 10
þátttakenda voru 8 konur. Það var
létt yfir hópnum og allir kepptust
við að saga, hefla, pússa og raspa
og ekki var að sjá að kvenfólkið
væru neinir eftirbátar karlmann-
anna.
Þarna var verið að smíða brauð-
bretti, hillur, borð, o.fl.
Ein konan í hópnum sagði undir-
rituðum, að hún hefði haldið þetta
auðveldara, hún væri t.d. að smíða
sér brauðbretti og hefði verið búin
að finna sér þessa líka fínu fjöl og
ætlaði bara að pússa hana vel þá
hefði Bragi tekið fjölina og rist
hana niður í ræmur og sagt sér að
líma ræmurnar saman, þetta þótti
henni líkt því að sækja vatnið yfir
lækinn, það er þó líklegt að Bragi
hafi getað útskýrt tilganginn með
þessari aðferð.
Konurnar sögðust vera að nema
smíðar til þess að þeirra eigin-
menn, gætu ekki sagt að þær hefðu
ekkert vit á smíðum þegar þær
væru að segja þeim til.
Gunnar.
Það er ýmislegt sem þarf að athuga, þegar eitt brauðbretti er smíðað. Bragi
Björgmundsson leiðbeinandi á sraíðanámskeiðinu er lengst til hægri.
Morgunblaóid/Gunnar.
Fulltverðkr. 462.380.-
Sórstakur afsláttur af árg. 1982 88.210.-
gengi 01.03. '83 374.170,-
JÖFUR HF LJ
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 A
Litir: silfurgrár - dökkgrænn sanseraður - drapplitur - dökkblár
Framdrif - Vél 2200cc - Sjálfskipting - Aflstýri - Aflhemlar - Hituð afturrúða - Electronisk kveikja
Deluxe innrétting-Digital klukka -Fjarstýrður hliðarspegill - Litað gler
—
Amerískur
og um þad þarf ekki fleiri orö.
6 manna lúxus bíll