Morgunblaðið - 23.03.1983, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
POLAROID
TILVALIN FERMINGARGJÖF.
Þú sparar maira an 500 krl
augnabliksmyndir
hrókur alls fagnaðar íj
fermingarveislunni.
TILBOÐ
40% afsláttur
Áöur Nú aö-
ains
Polaroid 1000
myndvél meö flash
Polaroid 5000
myndvél meö autofocus og flash
Polaroid augnabllksmyndlr
eru fallegar, litríkar og skarpar.
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 1 78 REYKJAVIK
SIMI85811
Vetur konungur
kveður kuldalega
New York, 21. mars. AP.
VETUR konungur neitar að gefa sig
í Bandaríkjunum, en samkvæmt
dagatali Bandaríkjanna lauk vetri
um helgina, en vorið tók við. Ekki
mátti þó merkja það á veðurfarinu,
því mikið snjóaði um mestöll Banda-
ríkin og víða fylgdi snjókomunni
mikill kuldi.
í Utah, Colorado, Texas, Okla-
homa og víðar var allt að 25—30
sentimetra jafnfallinn snjór og
sums staðar bættist það magn við
talsverðan snjó sem fyrir var. Enn
meira snjóaði í Michigan, þar sem
hlóð niður 60—70 sentimetrum frá
föstudegi til mánudagsins. Þar
stytti varla upp og víðast hvar
voru miklar samgöngutruflanir.
Varla nokkur afkimi Bandaríkj-
anna fór varhluta af vetrarríkinu.
Ekki var vitað um dauðsföll, en
víða varð eigna- og líkamlegt tjón,
er bifreiðir skullu saman í hálku
og glórulausum byl. Versta óhapp-
ið varð nærri Salt Lake City, en
þar skullu saman 36 bílar og slös-
uðust 15 manns, þar af 4 alvar-
lega. Veðurspáin var ekki upplífg-
andi, spáð kólnandi veðri og sam-
kvæmt því litlar horfur á að snjór-
inn myndi bráðna, a.m.k. ekki
næstu sólarhringana.
Sendiherra borinn til grafar
Síðastliðinn þriðjudag var til grafar borinn í Ankara tyrkneski sendiherrann
Galip Balkar, en hann lést í sjúkrahúsi í Belgrad eftir að armenskir hryðju-
verkamenn höfðu sært hann til ólífis. Frá árinu 1974 hafa fjórir tyrkneskir
sendiherrar og 21 sendiráðsmaður fallið fyrir hendi armenskra öfgamanna,
sem segjast vera að hefna fjöldamorðanna á Armenum árið 1915. AP
Morðingja grísks
útgefanda leitað
Aþenu, 22. mars. AP.
LÍjGREGLAN í Aþenu leitaði í gær
ákaft að morðingja blaðaútgefanda
þar í borg, en hann var skotinn til
bana á skrifstofu sinni á laugar-
dagskvöld. Strangt eftirlit var haft
með flugvellinum í borginni og á öll-
um vegum sem til hennar liggja.
George Athanassiadis, rúmlega
sjötugur útgefandi hægrisinnaða
síðdegisblaðsins Vrathyni, var
skotinn í höfuðið skömmu eftir að
hann hafði hleypt manni nokkrum
inn til sín, sem þóttist eiga erindi
við hann. Á skrifstofunni var
einnig staddur Athanassiadis,
Kourlimbinis að nafni, og varð
hann einnig fyrir skoti, en er þó
ekki í lífshættu. Hann gat gefið
lögreglunni greinargóða lýsingu á
morðingjanum.
Að sumra hyggju, einkum
hægrisinnaðra andstæðinga
stjórnarinnar, er hér um pólitísk-
an glæp að ræða, en ekki hafa nein
samtök orðið til þess enn að lýsa
sök á hendur sér. Vrathyni er
mjög andsnúið sósíalistastjórn
Andresar Papandreous og nú fyrir
skemmstu áfrýjuðu Athanassiadis
og tveir samstarfsmenn hans
fangelsisdómi, sem hafði verið
kveðinn upp yfir þeim fyrir að
valda „almenningi áhyggjum og
kvíða“ með tilhæfulausri frétt um
lélega heilsu Papandreous.
Vrathyni var í mikilli andstöðu
við herforingjastjórnina á sínum
tíma og var því bannað meðan
þeir ríktu í Grikklandi.
Olíubrák í Persa-
flóa veldur áhyggjum
Kuwait, 22. mars. AP.
GÍFURLEG olíubrák sem siglir í reiði-
leysi um Persaflóa hefur vakið miklar
áhyggjur þeirra landa sem kunna að fá
ófognuðinn í heimsókn að ströndum
sínum. Brákin er upprunin í fran í
kjölfarið á sprengjuárásum íraka á
olíuvinnslustöðvar Irana. Lekinn hófst
um miðjan febrúar, en snemma í mars
tilkynntu talsmenn Bahrain og hinna
Sameinuðu arabísku furstadæma, að
olíumagnið næmi 10 milljónum tonna.
Fyrir tveimur vikum réðust írakar síð-
an aftur á olíuvinnslustöðvar frana og
ollu miklu tjóni. Jafnframt hótuðu ír-
akar að koma í veg fyrir allar tilraunir
írana til að stöðva hina nýju olíuleka.
Kuwait, Rahrain og furstadæmin
fylgjast vel með olíuteppinu og hafa
lýst yfir sameiginlegu neyðar-
ástandi vegna þessa. „Það er ekki
aðeins að olían eyddi öllu lífi þar
sem hún legðit að, heldur hefði hún
í för með sér ómetanlegt eignatjón á
mannvirkjum. Við fylgjumst vel
með hvaða stefnu olían tekur og er-
um að velta fyrir okkur með hvaða
hætti best myndi að glíma við vá-
gestinn," sagði Abdel Latif Al-Zaid-
an, fulltrúi Kuwait hjá náttúru-
verndarsamtökum landanna við
Persaflóa. Reynt hefur verið að
koma á fulltrúa'undi þeirra sam-
taka, en ekki tekist til þessa. fran og
frak eru bæði aðilar að samtökun-
um.
Al-Zaidan sagði, að Kuwait-búar
teldu 30 prósent líkur á því að olían
legðist upp að ströndum landsins.
Sameinuðu arabísku furstadæmin
þykja ekki öfundsverð þessa stund-
ina, því líkurnar eru yfirgnæfandi
að þau fái vandamálið í hendurnar.
„En það fer eftir veðri og vindum,
staðan gæti breyst á augabragði,"
sagði Al-Zaidan.
Þögul mótmæli
Um miðjan mánuðinn safnaðist nokkur hópur manna saman til þögulla
mótmæla við minnismerkið í Gdansk um pólska verkamenn, sem fallið hafa
í átökum við her og lögreglu. Að þessu sinni skarst ekki í odda með fólkinu
og lögreglunni, sem hafði góðar gætur á því sem fram fór og hvatti fólk til að
koma sér á burt.
Þýska þjóðin hefur alið af sér margan merkismanninn og þar á meðal einn að nafni Karl Marx. 14. mars sl. var ein
öld liðin frá láti hans og af því tilefni var fæðingarstaður hans, hús í Trier-borg, enduropnaður eftir gagngert viðhald.
Til hliðar við Marx á myndinni er forseti fylkisstjórnarinnar í Rheinland-Pfalz, Bernhard Vogel, ásamt starfsbróður
sínum frá Hessen, Holger Börner. AP
TIL MINNINGAR UM MARX
Sprauta ólöglegum
hormónum í nautin
Antwerpen, 21. mars. AP.
LÖGREGLAN í Belgíu stóð fyrir
herferð á hendur nautgripabændum
í norðurhluta landsins um helgina.
160 laganna verðir tóku þátt í að-
gerðunum, sem beindust að þeim
orðrómi að bændur notuðu krabba-
meinsvaldandi hormónalyf til að
auka og flýta vexti nautgripa sinna.
Lögreglan kom við á fjölda
sveitabæja í 35 héruðum og fann
mjög víða sönnunargögn sem
benda eindregið til þess að slíkt
hafi verið stundað. Einn maður
var handtekinn, 1000 nautgripir
voru gripnir sem sönnunargögn,
auk fjölmargra grunsamlegra
pillu- og efnaíláta.
Notkun umræddra lyfja er
ólögleg í Belgíu og víðar. Þau
auka skrokkstærð nautgripa um
20—30 prósent, auk þess sem
gripirnir stækka mun hraðar og
því sláturhæfir mun fyrr. Hins
vegar valda efnin krabbameini.
Óvíst er hversu víða slík efni eru
notuð í nautgriparæktinni belg-
ísku, en dagblaðið Gazet van
Antwerpen taldi sig hafa góðan
heimildamann fyrir því að slík
hormónagjöf færi fram á 90 pró-
sentum belgískra búgarða.