Morgunblaðið - 10.04.1983, Side 28

Morgunblaðið - 10.04.1983, Side 28
72 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983 ,, Hún Ma<5vinkona. olcfcAv er -enn einu sinni c& Qa. \ vasanc\ Kans Cxvendcxr." ásí er... ... ad gefa henni fyrsta merkið um að vorið sé í nánd. TM Rao. U.S. Pat Off —all riohts reservsd «1983 Los Angeles Tlmes Syndlcate \)&// y-i ' — l»etta er ekkert, þú ættir aö koma niður í kjallarann! Með morgunkaffinu HÖGNI HREKKVÍSI „VAR.OU HelAA / " Lýsi ábyrgð á hend- ur samgönguráðherra Jóhann Guðmundsson skrifar 6. apríl: „Velvakandi. Hver skyidi trúa því að við lifum á árinu 1983? Síðastliðinn laugar- dag fyrir páska var hópur fólks staddur í Skógarskóla undir Eyja- fjöllum. Lagt var af stað til Reykja- víkur um miðjan dag í besta veðri. Ekki var útvarp í þeim bíl, sem ég var í, en allir vegir voru vel færir. A Hellu kom samferðarbíll með þau skilaboð, að Heillisheiði væri lokuð allri umferð. Við Hveragerðisaf- leggjarann leituðum við eftir upp- lýsingum um ástand vegarins fram- undan. Engar upplýsingar lágu fyrir og héldum við upp á Kamba og gekk vel. Vorum við komin niður háheiðina, þegar vegurinn lokaðist vegna annarrar umferðar. Það var mjög hvasst, mikill skafrenningur og frost og fólk í erfiðleikum. Við snerum aftur til Hveragerðis, bið- um þar til áætlunarbíll fór frá Sel- fossi, en skildum okkar bíl eftir. Áætlunarbíllinn fór Þrengslaveg- inn í bæinn og þar var töluvert af bifreiðum sem höfðu festst, aðal- lega eftir að komið var framhjá vegamótunum Hellisheiði/Þrengsli. Við Litlu kaffistofuna kom fólk veifandi á móti okkur með smábörn og fékk inni í áætlunarbílnum og far í bæinn. En það sem ég vildi sagt hafa er það, að ég lýsi ábyrgð á hendur Steingrími Hermannssyni sam- gönguráðherra vegna þeirra sem óku um Hellisheiði meðan þetta ástand ríkti. Margir fara yfir heið- ina um þessa helgi vegna ferminga og vinaheimsókna og það jafnvel með ungabörn. Það er skýlaus krafa, að hér eftir verði sett vakt við vegamótin Hveragerði- /Þrengsli, sem hafi tiltækar upp- lýsingar um færð og aðstæður, þeg- ar tvísýnt er að leggja upp. Önnur vakt verði við Lögberg og hafi tal- stöðvarsamband við hina vaktina hinum megin heiðar. Þannig ætti að vera hægt að stjórna umferð þarna um. Upplýsingar um það, hvernær búið er að opna heiðina til aksturs vantar einnig. Það fólk sem hér er aðallega rætt um, er e.t.v. ekki eins vel útbúið til ferðalaga og útigöngu og þeir sem eru í skíða- ferðalögum. Það er ekki yfirvöldum að þakka, hve allt fór vel í þetta skipti. En fólk í þessu landi krefst þess, að betri þjónusta sé veitt að þessu leyti og fyllstu upplýsingar liggi fyrir um færð og ástand vega þar sem hætta er á ferðum. Með kveðju til samgönguráð- herra." Góðir og traustir emb- ættismenn gulli betri Flugáhugamaður skrifar: „Velvakandi. Án efa hafa margir sett sér að leggja við hlustir, er þeir vissu, að í sjónvarpsþættinum Á hraðbergi, ætti að ræða við hinn nýskipaða flugmálastjóra, Pétur Einarsson. Það vildi svo til, að ég var stadd- ur í hópi manna þetta kvöld, þar sem ekki var vitað fyrirfram, hvort þar væri aðgangur að sjón- varpi. Áhugi félaga minna vár það mikill fyrir þessum þætti, að við fengum afnot af sjónvarpi á staðnum og horfðum á umræddan þátt. Það var undantekningarlaust skoðun allra þeirra sem þarna voru, að hin nýskipaði flugmála- &tjóri hefði staðið sig frábærlega vel, svarað öllum þeim aragrúa spurninga skynsamlega, sem til hans var beint og af þeirri festu og kurteisi, sem prýtt getur einn embættismann. Það er ekki á allra færi að svara Aðaiheiður Torfadóttir skrifar 30. mars: „Velvakandi. Laugardaginn 19/3 sl. hélt Þjóð- dansafélag Reykjavíkur nemenda- sýningu á Broadway. Fyrir þessa frábæru sýningu vil Pétur Einarsson spurningum frammi fyrir alþjóð þegar spyrlar eru fyrirfram ég þakka öllum þeim sem að henni stóðu. í framhaldi af því vil ég þakka Kolfinnu Sigurvinsdóttur kennara hjá félaginu fyrir hennar miklu natni og þolinmæði sem hún sýnir nemendum sínum. Megi félaginu vel farnast um ókomin ár.“ ákveðnir í að taka einhvern á beinið, eins og það er kallað. Spurningar Ómars fréttamanns voru nokkuð lævíslegar sumar, en í samræmi við tilefni viðtalsins. Við öllu þessu átti flugmála- stjóri greinargóð og umfram allt skýr svör og tafsaði ekki eins og margir þeir, er eiga að geta gefið greinargóð svör, gera svo iðulega. Spurningin um það, hvort starfi flugmálastjóra eigi að gegna verk- fræðingur, lögfræðingur eða enn annar sérfræðingur er engin spurning í sjálfu sér, og verður aldrei útkljáð. — Fyrrverandi flugmálastjóri var t.d. ekki verk- fræðingur, og er þó allra manna mál, er til þekkja, að flugmálin í landinu eigi honum mikið upp að inna. Sumir þeirra, er sóttu um þetta embætti nú fyrir skömmu, voru án efa mjög hæfir, eins og fram hefur komið, ekki kannski síst sá, er deilur spruttu út af og nokkrir Flugleiðamenn vildu fá til starf- ans. Sennilega er á engan hallað, þótt sá orðrómur hafi nú fengið byr að undanförnu, ekki síst meðal starfsmanna Flugíeiða, að þar sé þessi sami maður, sem er verk- fræðingur og einn af fjórum fram- kvæmdastjórum félagsins, litinn hýru auga sem næsti forstjóri Flugleiða. Þar myndi hann án efa geta fært ýmislegt til betri vegar. En hvað sem því líður, þá eru góðir og traustir embættismenn gulli betri, hvar sem þeir eru. Hinn nýi flugmálastjóri er einn þeirra." Frábær nemendasýning Þjóðdansafélagsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.