Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 2

Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 Samskipti Víkinga við sovésk yfirvöld: Reikningur kom en þjálf- arinn ekki KNATTSPYRNUDEILD Víkings hefur borist reikningur vegna starfa rússn- eska knattspyrnuþjáifarans sem átti ad koma til félagsins uppúr áramótum. Reikningurinn hljóöar uppá þriggja mánaða laun til þjálfarans sem enn er ókominn og allt bendir til þess að hann komi alls ekki. Af þeim sökum munu Víkingar skrifa undir samning um helgina við þjálfara frá Belgíu. Sýnt er að reikningurinn kemur frá einhverri stofnun í Rússlandi sem virðist ekki hafa hugmynd um það, að knattspyrnuþjálfaranum sem átti að koma til starfa hjá Víkingi, var aldrei hleypt úr landi. kvæmt heimildum Mbl., að þegar rússneski þjálfarinn Zedov, sem var hjá Víkingi, hætti störfum, hefði knattspyrnudeild Víkings hug á því að fá annan rússneskan þjálfara til starfa. Fékk deildin vilyrði fyrir því að annar mjög hæfur þjálfari kæmi til landsins. Fékk deildin allar upplýsingar um Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur ræðu sína á fundinum á fsafírði í gærkvöldi. Sjá frétt frá fundinum á baksíðu blaðsins í dag. Símamynd Mbl./Kristján Ö. Ellasson. Forsaga þessa máls er sú sam- þjálfarann svo og nafn hans. Þjálfarinn var enskumælandi og átti hann að koma til landsins uppúr áramótum. En hann kom aldrei og ekki hefur enn fengist nein skýring á því af hverju hann er ekki kominn. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum Morgunblaðsins var mjög dregið úr öllu ferðafrelsi þegar Andropov komst til valda í Rúss- landi og mun þjálfaranum ekki hafa verið treyst fyrir því að fara úr landi. Sjá nánar frétt á íþróttasíðu. 110 lestir á þremur dögum SAMTALS bárust 172 lestir af físki til Fáskrúðsfjarðar í gær og fyrra- dag. I gær kom skuttogarinn Hoffell- ið með 110 lestir eftir þrjá og hálf- an dag, og í fyrradag kom Sæ- björgin með 52 lestir eftir tvo daga. Hundar í Kópavogi ábyrgðartryggðir Flugóhappið við suðurströndina: Saksóknari óskar eft- ir lögreglurannsókn RÍKISSAKSÓKNARI hefur óskað eftir því að rannsóknarlögregla ríkisins (RLR) rannsaki flugóhappið frá 15. marz sl. er lá við árekstri Arnarflugsþotu og Orion-flugvélar frá varnarliðinu við suðurströndina, samkvæmt upplýsing- um Þórðar Björnssonar ríkissaksóknara. HUNDAHALD í Kópavogi skal bannað, en allir óleyfílegir hundar, sem voru þar 11. febrúar sl., skulu fá að vera þar áfram, svo lengi sem þeir lifa, enda skal færa þá til skráningar strax. Skulu allir þessir hundar skráðir og merktir sérstaklega og eigendur þeirra skulu einnig skráðir, en einungis eigendur með fullt lögræði skulu vera skráðir eigendur hunda. Kemur þetta fram í nýrri samþykkt um hundahald í Kópavogi, sem birt hefur verið i Stjórnartíð- indum. Saksóknari ritaði RLR nú í vik- unni og bað um að atvik þetta yrði rannsakað, þ.á m. með tilliti til ætlaðs refsiverðs hátternis flug- umferðarstjórans, sem var á ratsjárvakt er lá við árekstri flugvélanna tveggja, og mögulegra brota á íslenzkum Iögum. Umrætt atvik átti sér stað þeg- ar Arnarflugsþota var að koma úr áætlunarflugi frá Amsterdam 15. marz sl. Flugmenn þotunnar urðu að grípa til aðgerða til að forðast árekstur við varnarliðsflugvél, sem hafði farið út fyrir úthlutað æfingasvæði suður af Reykjanesi. Flugvélarnar höfðu flogið beint hvor mót annarri í nokkrar mín- útur áður en flugumferðarstjóri tók eftir hvað var á seyði. Nýlokið er rannsókn rannsóknarnefndar flugmálastjórnar á atviki þessu, og niðurstöður hennar voru á þann veg, að orsök atviksins væru mistök flugumferðarstjóra og flugstjóra varnarliðsvélarinnar. Hundar, sem fólk tekur að halda í óleyfi eftirleiðis, skulu teknir, hvar sem til þeirra næst og þeir færðir í sérstaka hundageymslu, sem starfrækt verður á vegum bæjarins og geymdir þar í hálfan mánuð, á meðan eigendum er gef- inn kostur á að koma þeim fyrir utan Kópavogs. Gegni eigendurnir ekki þessum tilmælum, verða hundarnir aflífaðir. Aðeins í örfáum tilfellum er bæjarstjórn heimilt að veita und- anþágu frá banni við hundahaldi í framtíðinni og má þar nefna, ef sótt er um leyfi til búrekstrar, ef um gæzlu- eða björgunarstörf hjá lögreglu eða skátum er að ræða og fyrir blinda menn. Loks er nefnd heimild, ef fyrir liggur umsögn heilsugæzlulæknis og félagsráð- gjafa um það, að nauðsynlegt sé fyrir einstakling að halda hund vegna sérstakra læknisfræðilegra og félagslegra ástæðna. Þá segir enn í samþykktinni, að árlega skuli greitt leyfisgjald af hundum, sem undanþága er veitt fyrir. Hefur það verið ákveðið kr. 300 fyrir þá hunda, sem haldnir eru af brýnni nauðsyn samkv. framansögðu, og kr. 3.500 fyrir þá hunda, sem fá að vera áfram í Kópavogi sökum þess að þeir voru þar áður. Loks segir, að hundaeig- endum sé skylt að hafa hunda sína ábyrgðartryggða fyrir hugsanlegu tjóni á mönnum og munum hjá viðurkenndu tryggingarfélagi. Sr. Valdimar J. Eylands látinn Undirskriftasöfnun 12 ára krakka: Sjónvarpið sýni ekki myndir bannaðar börnum SJÖTTI bekkur L í Fellaskóla gekkst nýlega fyrir undirskrifta- söfnun á meóal 12 ára nemenda í skólum í Reykjavík, Mosfelissveit og Kópavogi þess eðlis, að skorað verði á Útvarpsráð að beita sér fyrir því að myndir sem sjónvarpið sýnir um helgar séu við hæfí barna. Alls söfnuðust 1004 undir- skriftir og var Vilhjálmi Hjálm- arssyni, formanni Útvarpsráðs, færður listinn sfðdegis á mánudag. Aðalhvatamaður undirskrifta- söfnunarinnar var Sigurður Einar Vilhelmsson, nemandi í sjötta L. Morgunblaðið spurði Sigurð hvað hefði ýtt honum og félögum hans út í þessa aðgerð. „Ég fékk hugmyndina að þess- ari söfnun þegar mynd í sjón- varpinu, sem sýnd var um pásk- ana, var bönnuð börnum. Mér fannst það óréttlátt að vísa þyrfti hluta fjölskyldunnar út úr stofunni af þessum sökum. Um helgar er því ekkert til fyrir- Sigurður Einar Vilhelmsson, aðal- hvatamaður söfnunarinnar. stöðu að krakkar geti vakað eitthvað frameftir, og þá viljum við eiga rétt á því að horfa á sjónvarpið eins og þeir full- orðnu." En hvernig var söfnun undir- skriftanna hagað? „Bekkurinn sem ég er í sá al- gjörlega um söfnunina. Við fór- um tvö og tvö saman í alla skóla í Reykjavík, Mosfellssveit og Kópavogi og létum lista ganga. Þetta tók þrjá daga, og ég held að undirtektir hafi verið góðar." Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður Útvarpsráðs, sagði í samtali vð Mbl. í gær, að málið yrði tekið fyrir á fundi með sjón- varpsmönnum á morgun, föstu- dag. Vilhjálmur sagði að þetta framtak krakkanna væri til fyrirmyndar, og að í rauninni hefði oft verið rætt um það í Út- varpsráði að hafa sem minnst af myndum um helgar sem ekki væru ætlaðar börnum. Eða hafa þá hinar bönnuðu myndir mjög * seint á kvöldin. SÉRA Valdimar J. Eylands prestur í Winnipeg er látinn, 82 ára að aldri. Hann lézt í fyrradag. Séra Valdimar fæddist 3. marz 1901 að Laufási í Víðidal í Vestur- Húnavatnssýslu, sonur Jóns Daní- elssonar bónda þar og konu hans Sigurlaugar Þorsteinsdóttur. Séra Valdimar var prestur í Up- ham í Norður-Dakóta 1925 til 1928, í Makoti í sama ríki 1928 til 1931, og í Blaine, Bellingham og Point Roberts í Washington-ríki frá 1931 til 1938. Hjá Fyrsta lútherska söfnuði í Winnipeg í Kanada var séra Valdi- mar prestur frá 1938 til 1968, er hann lét af störfum sakir aldurs. Hann var prestur á Útskálum í Garði 1947 til 1948 í skiptum við síra Eirík Brynjólfsson. Séra Valdimar tók mikinn þátt í félagsmálum í byggðum Vestur- íslendinga. Hann var formaður prestafélagsins í Bellingham í Washington og forseti Hins evang- elisk-lútherska kirkjufélags íslend- inga í Vesturheimi. Hann var forseti Þjóðræknisfélags íslendinga í Vest- urheimi í mörg ár, og síðar heiðurs- félagi þess. Séra Valdimar var fulltrúi lúth- erska kirkjufélagsins á Skálholts- hátíðinni 1956. Hann var kosinn prófessor í alþjóðadeild lúthersku kirkjunnar í Manitoba 1962. Hann var sæmdur stórriddarakrossi Hinn- ar íslenzku fálkaorðu 1955. Hann var ritstjóri ýmissa kirkjurita og jafn- framt liggja eftir hann mörg rit og ritgerðir. Séra Valdimar kvæntist 1925 Þór- unni Lilju Johnson Guðbjartsdóttur bónda að Mouse River í Norður- Dakóta frá Víghólsstöðum á Fellsströnd Jónssonar. Hún lézt árið 1977. Þeim varð fjögurra barna auð- ið, þriggja dætra og eins sonar, sem öll eru á lífi og búsett vestanhafs. Séra Valdimar kvæntist síðar Ingi- björgu Eylands og lifir hún mann Yfir 100.000 hafa séð „Með allt á hreinu“ YFIR hundrað þúsund manns hafa nú séð kvikmyndina „Með allt á hreinu“ þar sem Stuðmenn og Grýl- urnar fara með aðalhlutverkin. Að sögn aðstandenda myndar- innar fer sýningum nú að fækka í Reykjavík, þar sem aðsóknin er nú komin yfir 70 þúsund manns, en eftir er að sýna myndina á a.m.k. átta stöðum úti á landi. Stefnir því allt í að myndin slái íslands- met í aðsókn, en kvikmyndin „Land og synir“ hefur til þessa verið með aðsóknarmet íslenskra kvikmynda, en þá mynd sáu um 102 þúsund manns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.