Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 7

Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 7 Alúðarþakkir færi ég öllum þeim sem heiðruðu mig með heimsóknum, heillaskeytum, blómum og gjöfum og á annan hátt á 70 ára afmæli mínu 5. apríl síðastliðinn. Lifið heil. Kœr kveðja. Ólafur Ingibersson, Miðtúni 1, Kefíarík. Utankjörstaðakosning UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í VALHÖLL Háaleitisbraut 1 — Símar 30866, 30734 og 30962. Upplýsingar um kjörskrá og fl. Sjálfstæöisfólk. Vinsamlega látiö skrifstofuna vita um alla kjósendur, sem veröa ekki heima á kjördegi. Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjarskólanum alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22. Sunnudaga kl. 14—18. Fisk- iðnsýning Nú er hver aö veröa síöastur aö bóka sig á fisk-iönsýninguna í Bella-Center í Kaupmannahöfn 18,—22. júní nk. Farseðlar — hótel og sýningaskrá á skrifstof- unni. Ferðashriistoían Ifaiandi Vesturgata 4, sími 17445. babybotte Frönsku smábarnaskórnir nýkomnir. Skör fyrir börn frá fæöingu til ca. 3ja ára. Vandaöir og fallegir. UOmiUINN Tilhugalífid Sídasta Alþingi cinkenndist mjög af því. að leidtogar Alþýdu- bandalags voru í leynimakki med ýmsum forustumonnum Siálf- stzdisflokksins. 1 Framsóknarflokkurinn biðlar til Sj álfstæðisflokksins _ Afturhaldsstjórn í undirbúningi? Hin pólitíska rómantfk í fyrradag var þaö helsta forsíöufrótt Þjóöviljans, aö Framsóknarflokkurinn „biðlaði“ til Sjálfstæöisflokksins og Þjóöviljinn spuröi: Afturhaldsstjórn í undirbúningi? Flestir lesenda blaösins sáu þó ekki beinlínis samhengiö á milli þessa því aö þeir líta svo á aö mesta afturhaldiö á landinu sé enn í Alþýöu- bandalaginu og lúti nú forystu Hjörleifs Guttormssonar. í gær skrifaöi svo Þór- arinn Þórarinsson sem hefur flokks- samþykkt framsóknar fyrir því aö hann sé „besti leiðarahöfundur landsins" af- brýöisfullan leiöara í Tímann um til- hugalíf Alþýöubandalagsins og Sjálf- stæöisflokksins. Má segja aö framlög málgagna ríkisstjórnarinnar til kosn- ingabaráttunnar einkennist af svo mik- illi pólitískri rómantík þessa daga aö aörir fari hjá sér viö lesturinn. Verðbólgan „stytt út“ Ragnar Arnalds, fjár- málaráðherra, skýrði áhúð- armikill frá því í sjónvarps- kynningu Alþýðubanda- lagsins, að flokkurinn væri búinn að finna einfalt ráð við verðbólgunni, svonefnda „uppgjörsleið“. Galdurinn fælist í því einu að stefna öllum hækkun- um í landinu á einn dag og síðan bara „stytta út“, sagði ráðherrann og bætti við: Svona. Hreyfði hann í þeirri andrá hægri hendina og gerði einhver tákn fyrir framan sjónvarpsvélina. Hafa Staksteinar síðar komist að því að ráðherr- ann hafi ekki verið að gefa alþýðubandalagsfólki eða kvikmyndatökumanninum leynimerki heldur verið að sýna með einfoldum hætti, hvernig ætti að „stytta út“ verðbólguna. I»að væri tala fyrir ofan strik og önnur fyrir neðan og þær væru „styttar út“. Næsta skref í þessum málflutningi Al- þýðubandalagsins verður það að flokkurinn mun leggja til að verðhólga verði „stytt út“ einmitt þegar hún kemst f 100% markið, því að þá megi ein- faldlega taka aftan af henni tvö núll og hefja slaginn aftur með 1% verð- bólgu. Talsmenn heims- kommúnismans f Kamb- ódíu breyttu tímatalinu og tóku upp árið 0 þegar þeir lögðu til atlögu við íbúa landsins og hófu að útrýma þeim í nafni kenninga Marx og Engels. Alþýðu- bandalagsmenn á íslandi ætla að sigrast á verðbólg- unni í nafni Marx og Eng- els og taka aftan af henni tvö núll með því að gera einhvers konar tákn út í loftið — ætli þetta tákn dugi einnig fyrir launþcga til að endar nái saman í heimilisrekstri þeirra? Hjörleifur við stallinn l»að vakti vonbrigði margra alþýðubandalags- manna sem horfðu á sjón- varpskynninguna á Hjör- leifi Guttormssyni, að hann skyldi ekki vera látinn standa uppi á stallinum hjá Ingólfi Arnarsyni eða í stað Ingólfs þegar hann fiutti mál sitt yfir mannauðum Arnarhóli um cigið ágæti og ástæður árangursleysis- ins í samskiptum ríkisins við Alusuisse í eigin ráð- herratíð, sem staðið hefur síðan 1978 að fjórum mán- uðum frátöldum. Hins veg- ar var Ijóst af töku mynd- arinnar af Hjörlcifi aó áróðursmenn Alþýðu- bandalagsins telja lljörleif á leið upp á stallinn með landnámsmanninum eða kannski hefur ráðherrann sjálfur valið umhverfi ræðu sinnar í þættinum að hætti annarra valdamanna í anda Marx, Engels og Len- íns sem að lokum verða persónudýrkuninni að bráð. Eitt er víst að stalhir- inn í nágrenni Hjörleifs hefði verið ónauðsynlegur ef öllum landslýð væri Ijóst að ráðherrann væri að ávinna sér virðingu þjóðar- innar með störfum sínum. Úr glugga SÍS I»að var dæmigert fyrir framsóknarmenn að láta taka mynd af Amarhóli og Ingólfi Arnarsyni úr glugg- anum á stjórnarherbergi SÍS við Sölvhólsgötu í upp- hafi kynningar á Fram- sóknarflokknum í sjón- varpinu. Forystumenn framsóknar líta á þróun þjóðfélagsins úr glugga SÍS og taka ákvarðanir sínar með hliðsjón af hagsmun- um SÍS. Halldór Ásgrímsson, varaformaður Eramsóknar- fiokksins, talaði í anda samvinnustcfnunnar þegar hann lýsti því yfir að eftir kosningar gæfist ekki tími til að eiga samvinnu við neinn um úrræði gegn verðbólgunni heldur yrði að ákveða strax að banna hana með lögum. Þessi framsóknarleið væri svo klár og sjálfsögð að hana þyrfti ekki að ræða frekar. Hún væri nú eitthvað ann- að en stefna Keagans og Thatchers sem vildu að fólkið fengi að ráða sem mestu sjálft Framsóknarmenn vinna oft kosningasigra í útlönd- um eins og dæmin sanna og hin ótrúlegustu nöfn hafa verið nefnd í tengsl- um við þessa sigra, meðal annars hefur l»órarinn Þór- arinsson, ritstjóri Tímans, dregið Jóhannes Pál páfa II í dilk með framsóknar- mönnum. Hins vegar vissu landsmcnn það ekki al- mennt fyrr en eftir að hafa hhistað á Halldór Ás- grímsson í sjónvarpinu á þriðjudagskvöldið að hann væri í slag við þau Reagan og Thatcher í kosningun- um 23. apríl næstkomandi. Halldór er í framboði í Austurlandskjördæmi (skaut Tómasi Árnasyni aftur fyrir sig í prófkosn- ingu) og á fundum þar hef- ur hann vafalaust rekist á einhverja frambjóðendur Reagans og Thatchers eða kannski hefur hann bara smitast af áróðri kommún- ista í Þjóðviljanum — ann- ars voru þeir komnir á þá skoðun að þeir væru að berjast við Pinochet her- stjóra í Chile í kosningun- um 23. aprfl. SIEMENS — vegna gæöanna Vönduö ryksuga meö slill- anlegum sogkralti. 1000 walla mótor, sjállinndreginni snúru og Irábærum lylgi- hlutum. Siemens-SUPER — öflug og fjölhæf. Metsölublad á hverjwn degi! SMITH & NORLÁND HF., NÓATÚNI 4, SÍMI 28300. jntfgmiÞiiifeft

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.