Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 45

Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ny “ uí^'u n Á Húsavík Ljósm. Snorri Snorrason. Húsvíkingar — Kolfellið til- löguna um áfengisverslun Páll G. Rafnsson skrifar: „Velvakandi. Það fréttist suður, að þeir á Húsavík ættu að greiða atkvæði um áfengisútsölu nú um leið og kosið verður til Alþingis. Þetta kom mjög á óvart svona á sama tíma og safna á stórfé til að byggja spítala fyrir áfengissjúkl- inga. En það er viðurkennd stað- reynd í öllum löndum og álfum, að þeim mun fyrirhafnarminna sem það er að ná í áfengi, þeim mun meira er drukkið. Á Akranesi gerðu menn þau mistök að kjósa yfir sig áfengis- útsölu. Áfengisbúð var opnuð 15. mars. Vínbúðir eru ekki opnar á laugardögum og búðin því aðeins opin 12 daga til mánaðamóta. Á þessum 12 dögum var selt áfengi fyrir 1,5 milljónir. Engar tölur eru til samanburðar um áfengiskaup þessa fólks áður, en það fer ekki neitt á milli mála að áfengisneysla á þessu svæði hefur aukist að miklum mun. Þessar tölur frá Akranesi geta kannski verið til leiðbeiningar fyrir kjósendur á Húsavík. Engan mann þekki ég á Húsa- vík, en hef á langri ævi fengið æði- mikla þekkingu á skáldskap, menningu og mannviti Þingey- inga, og með hliðsjón af því, held ég að það fólk á Húsavík, sem vill aukinn drykkjuskap, óreglu og ómenningu hljóti að vera aðflutt. Húsvíkingar, takið rösklega á málinu og kolfellið tillöguna um áfengisverslun. Þessir hringdu .. . Þykir hart að sitja undir þess- ari fullyrðingu Sigurlaugar Sveinn Þórðarson á Barðaströnd hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg var að hlusta á lestur forystugreina landsmálablaðanna í útvarpinu, þ.á m. úr sérfram- boðsblaði Sigurlaugar Bjarnadótt- ur og félaga hennar í Vestfjarða- kjördæmi. Ég á nú að heita í kjör- dæmisráði flokksins þar og þykir hart að sitja undir þeirri fullyrð- ingu Sigurlaugar, að ólöglega hafi verið staðið að því að stilla upp á framboðslista flokksins. Þó ætti henni að vera fullkunnugt um, að það var kjarninn úr Sjálfstæðis- flokknum á Vestfjörðum, sem að uppstillingunni stóð, og gerði það með fullkomlega löglegum og lýð- ræðislegum hætti. Mig langar til að spyrja Sigurlaugu og ísfirsku skipstjórana tvo, hvort þau telji, að vænlegra hefði verið fyrir flokkinn, að í fimm efstu sætum listans hefðu verið fimm ísfirskir skipstjórar. Það er margt mætra manna, karla og kvenna, á lista sérframboðsins og vil ég þar sér- staklega nefna Kolbrúnu Frið- finnsdóttur, mæta konu, sem er virt hér um alla Barðastrandar- sýslu. Hún lenti hins vegar í fjórða sæti, af því að skoðana- könnuninni var haldið opinni, þangað til skipstjórarnir voru búnir að ná sér í örugg sæti. Hefði hún hins vegar lent í 1. eða 2. sæti, sem ég hefði talið eðlilegt, er ég viss um, að kjósendur í Barða- strandarsýslu hefðu hugsað sig um. Ég hef alltaf verið fylgjandi sem mestri dreifingu frambjóð- enda um kjördæmið og fundist það lýðræðislegasta fyrirkomulag- ið. Við erum að finna að því hér á Vestfjörðum, að Reykvíkingar vilji taka af okkur þingmennina, en svo telur þetta fólk, eins og Sig- urlaug og ísfirðingarnir, að sjálf- sagt sé, að þingmennirnir séu allir frá ísafirði. GÆTUM TUNGUNNAR Oft heyrist: Hann tefldi á tæpasta vað. Rétt væri: Hann lagði á tæpasta vað. Eda: Hann tefldi á tvær hættur. S\G6A V/öGA £ h LVt9AH Rúm Ljós og dökk mmmsmm Dolly"" Fallegt fururúm. Verð með dýnum kr. 14.360. Daisy rýj .963 er eitt besta sölurúmið okkar. Verð með dýnum kr. 17.960. Fæst einnig í Ijósri furu. Verö með dýnum kr. 14.360. ÓKEYP^ vorlistinn 1983 Hringdu eöa skrifaöu og fáöu nýjasta listann. 24 litsíöur. HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA BUSGAGNAEOLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK ® 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.