Morgunblaðið - 14.04.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRlL 1983
3
Einar Benediktsson
færður til hafnar
— haffærniskírteini skipsins útrunnið, segir Siglingamálastofnun
— Ofsóknir, segir Níels Ársælsson, skipstjóri
Landhelgisgæzlan fór um borð í
fiskiskipið Einar Benediktsson BA
377 í gær, þar sem það var að veið-
um á Barðagrunni að beiðni Sigl-
ingamálastofnunar, handtók skip-
stjórann og var skipinu síðan siglt
áleiðis til hafnar í Hafnarfirði und-
ir stjórn Gæzlunnar.
Forsaga málsins er sú, að haf-
færniskírteini skipsins rann út
um síðustu mánaðamót, en skipið
hélt þó til veiða. Skipið kom síðan
til hafnar á Tálknafirði á þriðju-
dag sl. og var. það þá kyrrsett af
sýslumanni að ósk Siglingamála-
stofnunar. Skipstjóri virti það
ekki og hélt á ný til veiða. Skip-
stjórinn á Einari Benediktssyni,
Níels Ársælsson, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að hann teldi
þetta ofsóknir af hálfu Siglinga-
málastofnunar og að hún hefði
auk þess gefið undanþágu til 15.
þessa mánaðar. Dæmt verður í
málinu í Hafnarfirði, en heima-
höfn skipsins, sem gert er þaðan
út, er Tálknafjörður.
„Mér er kunnugt um það að
skeyti kom að sunnan þess efnis
að skipið mætti ekki halda úr
höfn, en mér var ekki sýnt neitt
svoleiðis. Siglingamálastofnun
hafði einnig gefið undanþágu til
15. þessa mánaðar þó haffærni-
skírteini hefði ekki verið endur-
nýjað. Þangað til voru tveir dagar
og sá ég því ekkert til fyrirstöðu,
að halda áfram veiðum. Mér
fannst ekki ástæða til að stoppa
fyrir tvo daga þegar önnur skip
komast upp með það að vera
skírteinislaus í marga mánuði.
Þetta eru bara ofsóknir af hálfu
Siglingamálastofnunar og hefnd-
araðgerðir. Það er aðeins eitt að,
það vantar sjódælu í vélarrúm.
Sú dæla hefur verið keypt og átti
að setja hana í skipið eftir tvo
daga. Ég get heldur ekki séð að
þessi dæla skipti miklu máli.
Skipið hefur verið á sjó í 10 ár án
hennar, án þess að það hafi
nokkru máii skipt," sagði Níels
Ársælsson, skipstjóri á Einari
Benediktssyni.
„31. síðastliðins mánaðar rann
haffærniskírteini skipsins út.
Vegna þess fórum við þess á leit
við Landhelgisgæzluna, að skip-
inu yrði vísað til hafnar. Þá fór-
um við fram á það við sýslumann-
inn á Patreksfirði, að hann kyrr-
setti skipið á Tálknafirði á
þriðjudag og þar yrðu haldin sjó-
próf í málinu. Þrátt fyrir að
sýslumaður gerði svo lét skipið
Einar Benediktsson úr höfn. Það
var því ekki um annað að ræða,
en færa skipið til hafnar eins og
nú hefur verið gert,“ sagði
Hjálmar R. Bárðarson, siglinga-
málastjóri, í samtali við Mbl. Að-
Morgunbkttt/Helgi Hallvarösson.
Einar Benediktsson á veiðum í gær. Skömmu eftir að myndin var tekin kom
varðskipið Ægir að togaranum. Er varðskipið á leiö með hann til Hafnar-
fjarðar.
spurður um það hvernig trygg-
ingamálum skipa, sem ekki hefðu
gilt haffærniskírteini væri hátt-
að, sagði hann, að hann teldi það
ekki hafa áhrif á tryggingu.
„Það er fjarri því, að stofnunin
sé að ofsækja þetta skip, þvert á
móti. Skipið hefur hvað eftir ann-
að fengið frest á að lagfæra ýmsa
hluti og við höfum hliðrað til svo
að það gæti haldið til veiða. Skip-
inu hafði verið veittur frestur til
síðustu mánaðamóta af slíkri til-
hliðrunarsemi. Hvað varðar
hefndarráðstafanir er það út í
hött. Við mælum aðeins vélar-
stærðir skipa, allra skipa, ekki
aðeins þessa, og okkur kemur
ekkert við hvort skipið telst tog-
ari eða ekki. Með þessum ráðstöf-
unura erum við aðeins að sinna
lögum stofnunarinnar," sagði
Hjálmar.
Giýhirnar gerðu það gott (Amerfku.
Grýlurnar á
kosningahátíð
hjá Mondale
ÍSLENSKA kvennahljómsveitin
Grýlurnar voru nýlega á ferð í
Bandaríkjunum þar sem þær komu
fram á útihátíð sem tengd var sýn-
ingunni á „Scandinavia today“ í
Kaliforníu. En þær stöllur komu víð-
ar við og m.a. léku þær á kosninga-
hátíð hja Walter Mondale, fyrrum
varaforseta Bandaríkjanna, sem
haldin var í bænum Paso Robles í
Kaliforníu.
Jakob Magnússon, fulltrúi ís-
lands í „Scandinavia today" ann-
aðist milligöngu um Bandaríkja-
för hljómsveitarinnar og léku þær
m.a. fyrir kvikmyndatökufólkið,
sem vann að gerð nýrrar kvik-
myndar Jakobs, „Nickel Moun-
tain“ í bænum Shandon. Meðal
áheyrenda þar var dóttir Mon-
dales, en hún leikur í myndinni, og
varð hún svo hrifin af Grýlunum,
að hún fékk þær til að koma fram
á kosningahátíð föður síns í Paso
Robles. Að sögn Jakobs vöktu
Grýlurnar hvarvetna mikla hrifn-
ingu hvar sem þær komu fram og
í Paso Robles var ekki um annað
talað í langan tíma, en frammi-
stöðu þeirra á kosningahátíðinni
hjá Mondale.
Málid heyrir
undir trygginga-
eftirlitið
Meginniðurstaðan í svari Verð-
lagsstofnunar við ósk Svavars
Gestssonar, tryggingaráðherra til
stofnunarinnar um umsögn vegna
95% hækkunar tryggingafélaga á
bifreiðatryggingum frá 1. marz sl., er
sú að málið heyri undir Trygginga-
eftirlitið, en ekki verðlagsyfirvöld,
að sögn Georgs Ólafssonar, verð-
lagsstjóra.
Georg ólafsson, verðlagsstjóri,
sagði ennfremur að málið hefði
ekki komið til neinnar umfjöllun-
ar í Verðlagsráði og væri því ein-
göngu svar Verðlagsstofnunar.
Beint samband við París
og Bordeaux
Umboösmaður í Bordeaux:
Alfred Balguerie S.A.
447 Bd. Alfred Daney
33075 Bordeaux Cedex
Sími: (56) 393333
Telex: 560031
Umboösmaður í París:
Alfred Balguerie S.A.
c/o Jean Faucher
Bassin N1 - Hall A8
92230 Gennevilliers
Sími: 5620343
Telex: BALAN 650461
Allar nánari upplýsingar um Frakklandsþjónustuna
eru veittar í meginlandsdeild Eimskips
Meö beinu sambandi við nýjar
þjónustuhafnir í París og
Bordeaux höfum við enn
á ný bætt nýju landi í
vikulega siglingaþjónustu
Eimskips til meginlands
Evrópu.
Alhliða flutningaþjónustan
„alla leið heim á hlað’’ er að
sjálfsögðu í fullu gildi í
Frakklandi. Við sækjum vöruna
til verksmiðjudyra eða skilum henni
beint í hendur kaupanda hvar sem er í
Frakklandi.
Hagstæðirsamningarvið þrautreynda og
örugga umboðsmenn og flutningafyrirtæki
auka afgreiðsluhraða og lækka
heildarkostnaðinn.
Einmitt þannig á góð
flutningaþjónusta að vera!
Flutningur er okkar f ag
EIMSKIP
Sími 27100
1