Morgunblaðið - 14.04.1983, Page 17

Morgunblaðið - 14.04.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 17 Ævíntýrakastalar, frábærar verslanir, litskrúðug skotapils, sólböðuð vatnahéruð og grænar hlíðar. Skotland er óskastaður ferð amannsíns Skotland er ennþá óbreytt: óspillt náttúru- fegurð í aðlaðandi umhverfí. Hvert sem þú ferð mætir þér rómuð skosk gestrisni. Hún er alltaf jafn inníleg. Þegar þú heimsækir stórverslanimar í Glasgow og Edínborg er enginn sem ýtir á eftir þér. Þú getur gengið um og skoðað af hjartans lyst, t.d. í fataverslunum eða í listmunaverslunum. Það er enginn sem segir að þú þurfír endílega að kaupa þér skotapíls eða kasmír peysu, en Glamiskastalinn. það er ofí ansi erfítt að standast allar freístíngamar. Skotland er ekki bara sólbað og sveitasæla. Þú getur notið leikhúslífsins, farið í kvik- myndahús, skoðað söfn og listasýningar, borðað á góðum veitingastöðum eða dansað á næturklúbbum í skosku borgunum, en dvöl á skoskri sveitakrá í kyrrlátu umhverfí er samt sem áður engu Iík. Það er fatt sem jafnast á við skosku sveitasetrin og kastalana. Þeir líta ennþá út eíns og myndir úr ævintýrabókum. Tökum til dæmis kastalana í Glamís og Blair. Þú trúír þvi kannskí ekkí en hertoginn af Atholl hefúr enn þá sína eigin hermenn í Blaírkastal- Skotar eru íþróttaþjóð. Það vitum við íslendingar manna best. Hver vill ekki fara nokkrar holur á golfvellí, þar sem golfleikurínn varð til á sínum tíma? Ef þú spilar ekki golf, þá er upplagt að bregða sér í laxveíði, fara í siglingaklúbb, eða hressandi gönguferð upp á hálendi. Ekkí verður umferðin á skosku sveitavegunum neitt til þess að angra þig. Þú þarfí ekki einu sinni að keyra bíl til þess að njóta skosku hálandanna. Það er auðvelt og ódýrt að ferðast með jámbrautalest. Útsýnið er það sama. Komdu sem fyrst í heimsókn. Það er ekki lengi verið að bregða sér tíl Glasgow með Flugleiðum. FLUGLEIDÍR Þú færð allar upplýsingar hjá söluskrifstofúm þeirra og hjá. Ferdaskrifstofa KJARTANS HELCASONAR Við bjóðum sérstaklega áhugaverðar sumarleyfis- ferðir tii Skotlands í sumar. Hafið samband við skrifstofu okkar um gististaði, ferðamáta, bílaleigubíla og kynnisferðir um Skotland. Frábærar ferðir við allra hæfi. anum. .. Laxveiðar i Loch Tay Grampian hljómsveitin í Craigievarkastala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.