Morgunblaðið - 16.04.1983, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
85. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Niðurstaða skoðanakönnunar Hagvangs;
Sjálfelæðisílokkur 26 þingmenn
Bandalag 5 og kvennalistar 4
Upplýsingar fengust
frá 80,3% brúttóúrtaks
HAGVANGUR hf. hefur framkvæmt skoðana-
könnun á fylgi stjórnmálaflokkanna, sem unnin er
með þeim nákvæmu, vísindalegu vinnubrögðum,
sem tíðkast erlendis við slíkar kannanir og birtir
Morgunblaðið niðurstöður þessarar könnunar í
dag. Heildarúrtakiö var 1300 manns og var það
valið úr þjóðskrá að undangengnu samþykki tölvu-
nefndar og Hagstofu íslands og sá Reiknistofnun
Háskóla Islands um að velja það. Upplýsingar feng-
ust frá 1044 einstaklingum eða 80,3% af brúttóúr-
taki. Er þetta mun hærri svarprósenta en áður
hefur fengist í skoðanakönnunum á fylgi flokka
hér.
Niðurstaða skoðanakönnunar
Hagvangs hf. er sú, að í
alþingiskosningunum að viku
liðinni fengi Sjálfstæðisflokk-
urinn 44,9% greiddra atkvæða
og 26 þingmenn. Framsóknar-
flokkurinn 16,8% og 13 þing-
menn. Alþýðubandalagið 13,1%
atkvæða og 7 þingmenn, Banda-
lag jafnaðarmanna 9,9% at-
kvæða og 5 þingmenn. Alþýðu-
flokkur 7,3% atkvæða og 4 þing-
menn, Samtök um kvennalista
7,2% og 4 þingmenn og sér-
framboð Sjálfstæðismanna á
Vestfjörðum 0,8% og 1 þing-
mann.
Hagvangur hefur einungis
birt þingsætaskiptingu skv.
þessari könnun í einu kjördæmi
sérstaklega, þ.e. í Reykjavík og
tekur fram í greinargerð, sem
birt er í heild á miðopnu Morg-
unblaðsins í dag, að niðurstöður
um, hverjir nái kjöri í einstök-
um kjördæmum séu óvissar.
Samkvæmt skoðanakönnun
Hagvangs fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 6 kjördæmakosna
þingmenn í Reykjavík og 50%
atkvæða, Bandalag jafnaðar-
manna 2 kjördæmakosna þing-
menn og 15,1% atkvæða. Al-
þýðubandalagið 2 kjördæma-
kosna þingmenn og 14,4% at-
kvæða, Samtök um kvennalista
1 þingmann og 9% atkvæða.
Framsóknarflokkur 1 þingmann
og 6,1% og Alþýðuflokkur 5,4%
og engan kjördæmakosinn þing-
mann í Reykjavík.
Könnunin var framkvæmd
dagana 8.—14. apríl sl. í
Reykjavík og Reykjanesi voru
þátttakendur heimsóttir.
Hringt var í þátttakendur í öðr-
um kjördæmum og fékkst
ámóta svarhlutfall með báðum
aðferðum. í heimsóknum var
upplýsingum safnað í kassa,
sem innsiglaðir voru af borgar-
fógetaembættinu og fulltrúi
embættisins fylgdist með sím-
hringingum.
Sjá greinargerð Hagvangs
hf. í heild á miðopnu og
samtal við Ólaf Örn Har-
aldsson, framkvæmda-
stjóra Hagvangs.
Þátttakendur tóku spyrlum Hagvangs vel í skoð-
anakönnun fyrirtækisins. Á innfelldu myndinni
sést Þorkell Gíslason, borgarfótgeti, rjúfa innsigli
þeirra kassa, sem spurningaseðlar Hagvangs voru
settir í eftir að fólk hafði svarað í skoðanakönnun-
inni.
Mbl. Ól.K.M.
Yfirvofandi hrun fisk-
stofiia í Barentshafi
<>sló. 15. apríl. Erá frétUriUra Morgunblaósins, Jan Erik Lauré.
MAGNIÐ af þorski og ýsu í Barentshafi á eftir að verða með eindæmum lítið
á næstu árum. Spá fiskifræðinganna er sú, að árið 1985 og næstu ár á eftir
verði þar „dauður sjór“, það er lítill eða enginn fiskur. Kemur þetta fram í
nýrri norskri skýrslu, sem birt var á miðvikudag.
Skýrslu fiskifræðinganna er nú
gefinn meiri gaumur en nokkru
öðru í norska sjávarútvegsráðu-
neytinu. Þannig verður lagt á
helgarbann við öllum þorskveiðum
um óákveðinn tíma frá og með
næstu helgi. Sjómenn hafa mót-
mælt þessu banni, en hin áhrifam-
ikla skýrsla fiskifræðinganna hef-
ur þaggað niður mótmæli.
Afli skipa, sem gerð eru út frá
Tromsö, er nú 21.000 tonnum
minni en hann er vanur að vera í
meðalári. Afli Rússa í Barentshafi
var í fyrra alls um 40.000 tonn,
sem er margfalt minna en hann
var áður fyrr. Gunnar Sætersdal,
forstjóri norsku hafrannsóknar-
stofnunarinnar, hefur látið hafa
það eftir sér, að á því leiki enginn
vafi, að skýrslan um hina stór-
felldu minnkun fiskistofnanna sé
á rökum reist.
„Ef veiðar á þorski og ýsu leggj-
ast niður, þá á það eftir að hafa í
för með sér afar neikvæðar afleið-
ingar fyrir íbúa Norður-Noregs,
sem lifa að miklu leyti af veiðum á
þessum fisktegundum. Nú verðum
við að nota tímann vel til þess að
búa sjómenn sem bezt undir þau
sársaukafullu umskipti, sem fram
undan eru,“ var haft eftir Thor
Listau, sjávarútvegsmálaráðherra
Noregs, er framangreind skýrsla
var birt.
Líffæri
til sölu
— vegna kosningaskulda
Porto Alegre, 15. april. AP.
MAÐUR nokkur, sem bauð sig
fram til borgarstjórnarinnar í
brasilísku borginni Porto Alegre
en náði ekki kjöri, hefur nú boð-
ist til að selja úr sér annað nýrað,
annað lungað og hornhimnu úr
öðru augu til að geta staðið í skil-
um með kosningaskuldirnar.
Roque Betinelli, frambjóð-
andinn umræddi, naði ekki
endurkjöri í borgarstjórnar-
kosningunum, sem fram fóru í
nóvember sl., og í viðtali við
brasilíska sjónvarpið í fyrra-
dag skýrði hann frá þessu sér-
stæða boði sínu.