Morgunblaðið - 16.04.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
45
Nemendur Víghólaskóla í Kópavogi:
Engin lausn að leggja
niður skólann okkar
„Kæru lesendur.
Við erum nemendur í Víghóla-
skóla í Kópavogi en hann er skóli
fyrir unglinga á aldrinum 13—16
ára. Þessi skóli hefur starfað í 20
ár og er orðinn rótgróinn í bæn-
um. I honum eru um það bil 350
nemendur. Nú í vetur hefur ýmis-
legt verið gert sem ekki hefur áður
gerst í skólanum. Meðal annars
hefur verið komið á fót mötuneyti
og í fyrsta skipti í sögu skólans
var haldin verkefnavika sem tókst
geysivel og unnu margir nemend-
ur að því að gera skólann vistlegri
með smíði og saumaskap. Einnig
var loksins hægt að stytta við-
verutíma okkar í skólanum og
gera hann samfelldan því að þetta
er fyrsti veturinn sem skólinn er
einsetinn.
Við viljum koma því á framfæri
að þessi vetur hefur verið mjög
góður; t.d. hefur skólinn sjaldan
komið eins vel út í samræmdu
prófunum og einnig öðrum próf-
um. Nú virðist okkur sem bæjar-
yfirvöldum finnist orðin einsetinn
skóli algjör bannorð hvort sem
skólanum vegnar betur þegar
hann er einsetinn eður ei. Þau eru
komin með það á heilann að ein-
setinn skóli sé skóli sem er ekki
fullnýttur og nú ganga okkar hátt-
settu yfirmenn í bæjarstjórn með
þá flugu í hausnum að það sé góð
úrlausn á húsnæðisvandamálum
skólanna hér í Kópavogi (en hús-
næðismálin eru í hinum mesta
ólestri hér í bæ vegna þess að
Menntaskólinn í Kópavogi hefur
einungis vesældarlegt þak yfir
höfuðið) að leggja niður skólann
okkar og lofa MK að fá húsnæði
Víghólaskóla. Okkur, nemendum
Víghólaskóla, yrði svo dreift á
barnaskólana hér í Kópavogi sem
yrðu þá aftur tví- og þrísetnir. Við
erum á þeirri skoðun að þetta sé
engin lausn. Hér er aðeins verið að
auka á vandamálið, ekki að leysa
það.
Einnig viljum við vekja athygli
á því að við teljum að bæjarstjór-
inn viðhafi hér mjög ólýðræðisleg
vinnubrögð því að meinið er að hér
í Kópavogi vita mjög fáir um þess-
ar fyrirhuguðu framkvæmdir. Það
er stutt síðan okkur var sagt frá
þessu og sagt að þetta væri í þann
Jóhanna Tryggvadóttir Bjarnason
skiptaráðherra að gefa Jóhönnu
Tryggvadóttur útflutningsleyfið?
Það hefði kannski leitt til betri
trúar á saltfiskinn okkar í fram-
tíðinni.
veginn að verða samþykkt. Þetta
kom því sem reiðarslag yfir okkur
og foreldra okkar sem einnig vissu
ekkert um þetta mál.
Við viljum eindregið hvetja alla,
hvort sem þeir búa í Kópavogi eða
ekki að tjá sig um málið og veita
okkur lið. Það er á hreinu að við
munum ekki yfirgefa skólann
okkar með góðu og án þess að
leyfa almenningi að vita hvað er
að gerast hér í Kópavogi.
Hér eru ýmsir kennarar sem
munu jafnvel missa stöður sínar
og einnig fjölmargir krakkar sem
munu missa vináttusambönd
vegna þess að þeim verður dreift á
hina og þessa skóla.
Við biðjum þig, sem lest þetta
nú, að veita okkur lið í baráttunni
Jónas Pétursson skrifar:
„Velvakandi.
Samkvæmt meðfylgjandi aug-
lýsingu er óskað tilboða í stórfelld
mannvirki norðan Vatnajökuls til
vatnaflutninga frá Norðurlandi til
Suðurlands. — 1 hverju landi eru
óskráð lög. í vitund íslensks al-
mennings eru óbreytt, náttúruleg
vatnasvið eitt fyrirbæri óskráðra
laga.
Þessi fyrirhuguðu umsvif
Landsvirkjunar eru réttnefnd rán!
gegn myrkraverkum bæjarstjórn-
ar Kópavogs, í baráttunni um líf
Víghólaskóla, með því að tjá þig
um málið.
Við þökkum blaðinu kærlega
fyrir birtinguna.
Virðingarfyllst,
Magnús Arni Magnússon, 8-F,
Kristján Pétur Vilhelmsson, 7-H,
Gunnar Guðmundsson, 7-N,
Flosi Þorgeirsson, 8-C,
Sváfnir Sigurðsson, 7-E,
Halldór Gunnarsson, 9-B,
Hjörleifur Finnsson, 7-C,
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, 8-D,
Jón Eyþórsson, 9-D,
Örn Árnason, 7-F,
Þórhildur Þórhallsdóttir, 8-E,
María K. Björnsdóttir, 8-C.“
t stuttu máli: Virk umsvif þéttbýl-
is Suðvesturhornsins til byggða-
eyðingar í öðrum landshlutum!
Ég notaði gamlan málshátt —
og hefi verið minntur á nýlega — í
verkstjórn á athafnaárum mínum,
þegar ég hvatti til reglusemi og
vandvirkni í starfi: Kornið fyllir
mælinn!
Norðlendingar, og allir þið, sem
skiljið, að svo skal búa sem á bæ
er títt — landið allt skal byggt!
Hví skal þetta þolað?“
GÆTUM TUNGUNNAR
Auglýst var: Sýningunni er framlengt.
Rétt væri: Sýningin er framlengd.
(Ath.: Rétt er: Vegurinn verður lengdur, en EKKI:
Veginum verður lengt.)
Útboð Landsvirkjunar
Hagsýnn velur það
besta
Opið
laugardag til kl. 4
sunnudag kl. 2—6
HÚSGA6NAHÖLLIN
BfLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410