Morgunblaðið - 16.04.1983, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
Víkingum nægir
eitt stig í dag
— gegn FH til að halda titlinum
Víkingum nægir eitt stig (
leiknum gegn FH í dag til aö
tryggja sér íslandsmeistaratitil-
inn í handknattleik fjóröa ériö I
röö. Víkingar sigruöu KR í gær (
Höllinni 26:19 eftir aö staðan í
hálfleík var 11:8 fyrir þá. Fái Vík-
ingar eitt stig í dag komast þeir í
16 stig, FH veröur meö 13, og
kemst aöeins í 15 stig. KR á held-
ur ekki möguleika nema á 15
stigum.
Víkings-sigurinn i gær var ör-
uggur. Þeir voru yfir allan tímann,
og KR-ingar náöu aldrei aö ógna
þeim verulega. Ellert Vigfússon,
markvöröur átti stórleik, varöi
hvaö eftir annaö mjög vel, og Jens
í KR-markinu varöi einnig mjög vel
mest allan tímann. En þaö nægöi
KR-ingum einfaldlega ekki. Vík-
Ellert Vigfússon lék frábærlega í
Víkings-markinu í gær.
ingar voru mun sterkari og verö-
skulduðu sigur. Þaö má eitthvaö
mikiö koma fyrir ef þeir veröa ekki
íslandsmeistarar í ár, eins vel og
þeir leika um þessar mundir.
„Þetta er auövitaö ekki búiö. Viö
þurfum eitt stig í leiknum gegn FH
á morgun (í dag) og í þaö stig ætl-
um viö okkur aö sjálfsögöu aö ná,“
sagöi Þorbergur Aðalsteinsson,
Víkingur, eftir leikinn í gær.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð
jafn — Víkingur þó alltaf yfir og
mest þrjú mörk nokkrum sinnum.
Þeir skoruöu svo tvö fyrstu mörk
seinni hálfleiks — staöan þá oröin
12:8 fyrir þá og sýnt var hvert
stefndi. Vörn Víkings var frábær
upphafskafla seinni hálfleikslns.
Þeir klipptu KR-ingana snilldarlega
vel út og viö þaö riölaðist sóknar-
leikur KR mjög.
KR-ingar nýttu heldur ekki færin
sín og aldrei var spurning hvort
liðið myndi sigra. Munurinn var
oröinn sex mörk — 17:11 — eftir
tíu mín. og höföu Víkingar þá skor-
aö tvö mörk í röö er þeir voru
tveimur leikmönnum færri. Þaö
segir ekki litla sögu um styrkleika
liðsins.
Víkingar áttu allir góöan leik.
Liöiö er mjög heilsteypt. KR-ingar
stóöu þeim nokkuð að baki. Alfreö
Gíslason var mjög góöur í seinni
hálfleiknum, og skoraöi þá mörg
falleg mörk, en í þeim fyrri var
hann lítt áberandi. Gunnar bróðir
hans var einnig góöur en í lokin
fékk hann brottvikningu er hann
ræddi viö annan dómarann. Fer
hann því sennilega í eins leiks
bann.
Mörkin. Víkingur: Sigurður
Gunnarsson 7/2, Viggó Sigurðs-
son 4, Þorbergur Aöalsteinsson 3,
Hilmar Sigurgíslason 3, Guðmund-
ur Guömundsson 3, Páll Björg-
vinsson 3, Ólafur Jónsson 2 og
Steinar Birgisson 1. KR: Alfreö
Gíslason 7, Gunnar Gislason 5/3,
Anders-Dahl 2, Stefán Halldórsson
2, Guömundur Albertsson 2 og
Haukur Ottesen 1.
—SH.
Staðan
Eftir leikina í gærkvöldi er
staðan í 1. deildinni þannig:
Víkingur 10 7 1 2 230—219 15
FH 10 5 2 3 229—223 12
KR 10 5 1 3 231—225 11
Stjarnan 10 1 0 9 204—225 2
Staðan í V-Þýzkalandi:
Tekst Hamborg að
halda forystunni?
• Mikilvægir leikir fara fram í „Bundesligunni“ í dag, leikur
Stuttgart og Bayern MUnchen veröur í sviösljósinu. Þýska-
landsmeistararnir Hamborg leika gegn Borussia Mönchenglad-
bach, á útivelli. Werder Bremen leikur á heimavelli gegn
E-Braunschweig. Liö Atia Eövaldssonar leikur gegn FC NUrn-
berg á útivelli. Dortmund mætir Leverkusen á heimavelli. Liöin
eiga nú aöeins sex leiki eftir í deildarkeppninni. Hór aö neöan
má sjá stöðuna í deildinni. Fyrst leikjafjöldann, sigra, jafntefli og
töp, þá markahlutfalliö, svo mörk í plús, þá stigin og síöast stig
sem hafa tapast. — ÞR.
i Hamburg 27 15 10 2 63:27 + 36 40:14
i Bremen 27 17 5 5 52:32 + 20 39:15
Munchen 27 15 8 4 62:22 + 40 38:16
Stuttgart 26 15 6 5 63:35 + 28 36:16
Dortmund 26 15 4 7 61:38 + 23 34:18
Köln 26 13 7 6 54:32 +22 33:19
Kaiserslautern 27 11 11 5 44:33 +11 33:21
Frankfurt 27 11 3 13 39:38 + 1 25:29
Dusseldorf 27 8 8 11 44:62 -18 24:30
Nurnberg 27 9 6 12 35:54 -19 24:30
Bielefeld 26 9 5 12 36:54 -18 23:29
Bochum 27 7 9 11 32:40 - 8 23:31
Braunschweig 27 7 9 11 32:45 -13 23:31
Gladbach 27 9 2 16 47:50 - 3 20:34
Leverkusen 26 6 7 13 28:51 -23 19:33
Berlin 27 5 8 14 34:47 -13 18:36
Karlsruhe 26 4 6 16 30:71 -41 14:38
Schalke 27 4 6 17 35:60 -25 14:40
• Björgvin Þorsteinsson er einn þeirra sem fara til Parísar.
Níu kylfingar
keppa í París
NÍU íslenskir kylfingar taka þátt í'
la Cupe Louis Maeght-keppninni
í golfi sem haldin veröur á
Chantilly-vellinum í París 16. og
17. apríl.
Golfleikaramir eru Björgvin
Þorsteinsson GA, Ragnar Ólafsson
GR, Sigurður Pétursson GR, Geir
Svansson GR, Óskar Sæmunds-
son GR, Gylfi Kristinsson GS,
Magnús Jónsson GS, Siguröur
Hafsteinsson GR og Siguröur Sig-
urösson GS.
Evrópumeistaramót karla fer
fram á þessum golfvelli í lok júní
og mun íslenska karlalandsliöiö
taka þátt í því móti. Þetta er eina
tækifæriö fyrir landsliösmennina til
að leika á ofangreindum velli þar
sem hann veröur lokaður til æfinga
þar til mótiö hefst.
FH í basli
með Stjörnuna
FH-ingar sigruöu Stjörnuna í
fyrri leiknum í Höllinni í gær-
kvöldi og héldu þar meö enn í
vonina um að ná Islandsmeistar-
atitlinum, þó sú von sé kannski
nokkuö veik. Þeir verða að sigra
Víkinga í dag til þess aö eygja
enn von. FH sigraöi í gærkvöldi
26:24, en Stjarnan var yfir í hléinu,
15:13.
Varnirnar voru heldur slakar í
fyrri hálfleiknum. Sérstaklega hjá
FH á kafla seinni hlutann en þá
skoraöi Stjarnan sjö mörk í röö.
Staðan breyttist þá úr 11:7 fyrir FH
í 14:11 Stjörnunni í hag.
Þrátt fyrir þetta náöu FH-ingar
aö hressa sig upp í seinni hálf-
leiknum og sigurinn var öruggur er
upp var staöiö. Kristján var bestur
hjá FH ásamt Pálma. Hjá Stjörn-
unni kom Guömundur Óskarsson
skemmtilega á óvart. Skoraöi
hann mörg mörk utan af velli —
nokkuð sem hann hefur ekki gert
allt of mikiö af í vetur.
Mörkin. FH: Kristján Arason
8/3, Pálmi Jónsson 8, Guðmundur
Magnússon 3, Hans Guömunds-
son 3, Sveinn Bragason 2, Finnur
Árnason 1 og Valgaröur Val-
garösson 1. Stjarnan: Guðmundur
Óskarsson 7, Eyjólfur Bragason
5/1, Magnús Teitsson 3, Guö-
mundur Þóröarson 3, Eggert ísdal
3, Björgvin Elíasson 2, Magnús
Andrósson 1. —SH.
Iþróttir helgarinnar
Tómas með
ÍBV í sumar
ÍBV HEFUR hlotnast góöur liðe-
styrkur fyrir komandi átök í 1.
deildinní, því Tómas Pálsson hef-
ur tekiö fram skóna aö nýju eftir
tveggja ára hvíld frá knattspyrn-
unni og ætlar aö leika meö liði
sínu í sumar.
Tómas var um árabil einn snjall-
asti leikmaöur ÍBV-liösins, lók í
landsliðinu fyrir nokkrum árum, og
var markakóngur íslandsmótsins
1972 — skoraöi þá 15 mörk. Eyja-
menn hafa æft mjög stíft í vetur og
um helgina hefst strangt æfinga-
leikjaprógramm hjá liöinu.
— hkj.
• Tómas Pálsson
MtKIÐ verður um aö vera á
íþróttasviðinu um helgina. Hæst
ber vitanlega síöustu umferö úr-
slitakeppní 1. deildar þar sem úr
því fæst skoriö hvaöa lið hlýtur
Islandsmeistaratítilinn í hand-
bolta. Umferöin hófst í gær, og
einnig er leikiö í dag og á morg-
un.
í dag kl. 14.00 leika Víkingur og
FH og kl. 15.15 KR og Stjarnan.
Annaö kvöld lýkur svo keppninni.
Þá mætast Víkingur og Stjarnan
kl. 20.00 og FH og KR kl. 21.15.
Allir leikirnir fara fram í Laugar-
dalshöll.
íslandsmót fatlaöra veröur á
Selfossi um helgina. 170 keppend-
ur eru skráöir til keppninnar og
veröur þar mikiö um aö vera.
Þingvallagangan á skíöum hefst
kl. 13.00 í dag í Hveradölum. Júdó-
sambandiö veröur meö firma-
keppni á morgun. Hún fer fram í
iþróttahúsi Kennaraháskólans og
hefst kl. 14.00. Þá er keppt í flokki
16—18 ára á Unglingameistara-
móti islands í Badminton í
TBR-húsinu á morgun. Hefst
keppnin kl. 13.30.
A morgun veröur svo lands-
keppni viö England í fimleikum
pilta á aldrinum 14—18 ára. Verö-
ur hún í húsi Ármanns viö Sigtún
og hefst kl. 14.15.
• Þátttakandur veröa aflaust
margir (Þingvallagöngunni.