Morgunblaðið - 16.04.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
15
grunnskólalögunum. Það er aðeins
í 3 til 4 skólum af 36 á svæðinu
sem sú aðstaða er fullnægjandi.
Þá er ljóst að erfitt verður að
koma upp myndbanda- og tölvu-
kerfum, enda hefur upplýsinga-
banki fyrir þau ekki verið unninn
enn, svo ekki sé minnzt á fjár-
hagslegu hliðina. Þá má nefna
þætti eins framhaldsmenntun,
nám fyrir fullorðna, nauðsyn á
þjóðminjaverði í kjördæminu. Þá
hafa verið stofnuð menningar-
samtök á Norðurlandi og er hlut-
verk þeirra að efla menningarmál
og listir í fjórðungunum.
Samgöngumál
Vegamálum í kjördæminu er
nokkuð vel komið, einkum hvað
varðar aðalleiðir og tengingu
stærri þéttbýlissvæða við aðal-
vegakerfi landsins. Héraðs- og
sveitavegir hafa hins vegar ekki
fylgt sömu þróun, og telja menn
það miður þar sem það heftir fé-
lagsleg samskipti og þjónustu
milli sveita.
Hvað varðar samgöngur úr lofti
er ljóst að flugvallaframkvæmdir
hafa dregizt verulega aftur úr á
síðustu árum. Aðeins er bundið
slitlag á Akureyrarflugvelli og
framkvæmdir við Húsavíkurflug-
völl eru litlar sem engar, þrátt
fyrir áform um bundið slitlag á
hann. Þá er ekki á áætlun að
lengja hann, en það er forsenda
beins millilandaflugs, leiguflugs
? (
Þórshöfn, þar eru framkvæmdir í lágmarki eins og víðast annars staðar.
eða flugs vegna ferðamannaþjón-
ustu. Víðast hvar vantar aðflugs-
ljós á flugvelli í kjördæminu og
aðstaða fyrir farþega og þjónustu
við þá víðast lítil sem engin.
Flugsamgöngur eru þó nokkuð
góðar og tengist flug innan fjórð-
ungsins við Akureyrarflugvöll í
samvinnu við Flugfélag Norður-
lands, sem heldur uppi flugi til
allra þéttbýlisstaða nema Mý-
vatnssveitar. Telja menn, að taka
beri upp aukin og gleggri verka-
skiptingu milli Flugleiða og lands-
hlutaflugfélaga í stað þess að
Flugleiðir og Arnarflug eru nú að
koma sér upp flugvélum, sem ein-
skorðaðar eru við innanlandsflug.
Nær væri að landshlutaflugfélög-
in sæu um allt flug innan síns
svæðis og á styttri flugleiðum til
Reykjavíkur.
Hafnarmálum er víðast vel
komið, en þó er úrbóta þörf á
Kópaskeri og víðar svo dæmi sé
nefnt. Þá eru samgöngur á sjó
taldar fullnægjandi.
Heilbrigðismál
Staða heilbrigðismála er nokkuð
góð og er uppbygging og stækkun
fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri stærsti þátturinn í því auk
uppbygginggar á Húsavík. Þykir
þó mörgum uppbygging á Akur-
eyri hafa gengið hægt og telja
þeir, að ríkið hafi ekki að fullu
staðið við fjárhagslegar skuld-
bindingar sínar. Þá er sérfræði-
þjónustu þar enn ábótavant og
þurfa menn því enn að leita slíkra
lækninga í nokkrum mséli til höf-
uðborgarinnar. Heiisugæzlustöðv-
ar hafa víðast verið byggðar á
smærri þéttbýlisstöðum, en enn er
víða læknislaust og fá þá viðkom-
andi staðir lækni einu sinni til
tvisvar í viku frá öðrum stöðum.
Þá hefur þjónusta við aldraða ver-
ið bætt talsvert, þó enn sé hún
ekki fullnægjandi á smærri stöð-
unum.
Ekki verður hér unnt að gera
grein fyrir öllum málaflokkum, en
ljóst er að þeir, sem fjallað hefur
verið um, munu skipa stærsta
sessinn í væntanlegum alþingis-
kosningum. Enn hefur ekki verið
fjallað um þjónustumál, orkumál
og félagsmál auk ýmislegs annars.
Þjónusta hefur þó ekki aukizt sem
skyldi og veldur þar samdráttur í
atvinnulífinu mestu. Fjárskortur
sveitarfélaga og ríkis hefur einnig
hamlað nokkuð hinni félagslegu
framþróun. Hvað varðar orkumál
horfa menn aðallega til virkjunar
Blöndu og nýtingar væntanlegrar
raforku þaðan til uppbyggingar
atvinnulífs. Þá eru hafnar jarð-
vegskannanir í Flatey með tilliti
til þess, hvort þar muni að finna
vinnanlega olíu. Flestir álíta það
mikilvægt mál, en heyrzt hafa um
það raddir, að olíuvinnsla gæti
haft afdrifarík og neikvæð áhrif á
hinar hefðbundnu atvinnugreinar
og jafnvel valdið byggðaröskun
innan kjördæmisins.
Eftir Hjört Gíslason
HEIMDALLUR — HVÖT — ÓÐINN — VÖRDUR
EIGN FYRIR ALUA
Afleiðingar vinstri
stefnu í húsnæðismálum
2060
llDlii
Lán til
nýrra íbúða
'78
'82
Stefna Sjalfstæðisflokksins
í húsnæðismálum
veröur rædd og skýrö á hádegis-
veröarfundi Sjálfstæöisfélaganna
í Reykjavík í Valhöll, Háaleitis-
braut, laugardaginn 16. apríl
kl. 12.00—14.00.
Framsögumenn:
Geir Hallgrímsson,
formaöur Sjálfstæðisflokksins.
Bessí Jóhannsdóttir, cand.mag.
Esther Guðmundsdóttir,
þjóðfélagsfræðingur.
Pétur Blöndal, tryggingafræðingur.
Fundarstjóri: Hulda Valtýsdóttir,
| 1.7. 1971 ■♦45% | borgarfulltrui. E«ther Pétur Barnagæsla og myndbönd verð-
■ ur a meoan xunaur sienuur.
| 1.7. 1983 ■♦30% | ^ Hulda
HLUTFALL F. LANA
AF BYGGINGARKOSTNAÐI
VÍSITÖLUÍBÚÐAR
Allir velkomnir.