Morgunblaðið - 16.04.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
írland:
Mikil leit að
sex ræningjum
Cork, írlandi, 15. apríl. AP.
ÍRSKA lögreglan leitaöi í dag um allt sunnanvert landið aö sex grímubúnum,
vopnuöum mönnum, sem í gær létu kúlnahríðina dynja á flutningabifreið og
stálu úr henni 100.000 írskum pundum, um 2,7 milljónum ísl. kr.
Að sögn lögreglunnar í Cork,
sem er önnur stærsta borg á ír-
landi, skutu ræningjarnir á flutn-
ingabifreiðina með þeim afleiðing-
um að bílstjórinn missti stjórn á
henni og ók á húsvegg. Þeir
neyddu síðan öryggisverðina, sem
með bílnum voru, til að leggjast á
götuna meðan þeir létu greipar
sópa um farminn, peningasend-
ingu til banka nokkurs í borginni.
Lögreglan hallast helst að því,
að hér hafi verið að verki menn úr
IRA eða marxískum klofnings-
hópi, sem kallast írski þjóðfrelsis-
herinn. Þeir eru kunnir að því að
fjármagna baráttuna gegn Bret-
um á Norður-írlandi með banka-
ránum í írska lýðveldinu. Á síð-
ustu þremur árum hefur þeim tek-
ist að ræna jafnvirði u.þ.b. 140
milljónum ísl. kr.
í búri með 250 cobraslöngum:
OLÍAN ÓGNAR — Kubber-eyja undan Kuwait-strönd sést hér umlukin olíuflekki, sem er í þann veginn að
leggjast að drifhvítum sandinum. Ráðamenn ríkjanna við Persaflóa eru skelfingu lostnir vegna olíumengunar-
innar, sem getur ekki aðeins valdið efnahagslífi þessara þjóða stórkostlegum búsifjum heldur einnig skaðað
lífríki sjávarins um langa framtíð. Olían streymir úr tveimur írönskum olíulindum en styrjöld írana og íraka
hefur komið í veg fyrir tilraunir til að loka fyrir lekann.
Víetnamskir hermenn
flýja frá Kambódíu
Hætti eftir 40
daga og tvö bit
Aranyaprathet, Thailandi, 15. aprfl. AP
SEX hermenn frá Víetnam, sem báru fyrir sig stríðsþreytu, fóru á mánudag
yfir landamæri Kambódíu og Thailands og gáfust upp fyrir hermönnum frá
Thailandi. Þetta eru fyrstu hermennirnir frá Víetnam, sem orðið hafa til þess
aö flýja til Thailands, frá því að bardagar brutust út að nýju í vesturhluta
Kambódíu.
Hermennirnir sex voru úr her-
liði frá Víetnam, sem réðist á að-
alstöðvar Norodoms Sihanouks
Veður
víða um heim
Akureyri 0 slydda
Amsterdam 12 heiósklrt
Aþena 17 skýjaó
Barcelona 16 Mttskýjaó
Bertin 8 skýjaó
Brössel 14 heióskírt
Chicapo 9 skýjaó
Dubtin 14 heióskírt
Feneyjar 14 þokumóóa
Frankfurt • rigning
Ganf 9 heióskírt
Helsínki 4 heióskírt
Hong Kong 27 skýjað
Jóhannesarborg 26 heióskírt
kairó 30 heióskfrt
Kaupmannahöfn 8 rigning
Las Palmas 22 léttskýjaó
Lissabon 24 skýjaó
London 16 heióskirt
Los Angeles 20 heióskírt
Madrid 23 heióskirt
Malaga 17 alskýjaó
Mallorca 18 léttskýjaó
Mexíkóborg 27 heiðskírt
Miami 25 skýjaó
Moskva 2 skýjað
Nýja Delhi 26 skýjaó
New York 10 rigning
Ósló 10 skýjaó
París '13 heióskírt
Perth 27 heióskirt
Reykjavik 1 skýjaó
Rio de Janeiro 19 heióskírt
Rómaborg 18 heióskirt
San Francisco 16 heióskírt
Stokkhólmur 8 skýjaó
Sydney 16 skýjaó
Tókýó 17 rigning
Vancouver 14 skýjaó
Vínarborg 8 skýjaó
Pórshöfn 6 eútd
prins fyrr í þessum mánuði. Um
25.000 Kambódíumenn flýðu und-
an þessu innrásarliði Víetnama og
fengu bráðabirgðahæli í Surin
héraði í Thailandi. Á öðrum stað
hertóku Víetnamar stöðvar Rauðu
Khmeranna svonefndu eftir mikla
bardaga, en sá atburður varð þess
líka valdandi, að fjöldi Kambó-
díumanna sá sér þann kost vænst-
an að flýja inn í Thailand.
Zhao Ziyang, forsætisráðherra
Kína, sem nú er í fimm daga
opinberri heimsókn í Nýja Sjá-
landi, sagði í dag í veizlu, sem
haldin var honum til heiðurs, að
binda yrði endi á þátttöku Víetn-
ama í hernaðarátökunum í Kam-
bódíu. Lagði hann til, að kosn-
ingar yrðu haldnar í landinu undir
umsjón Sameinuðu þjóðanna.
ERLENT
Sharjah, Sameinuðu arabiaku fursta-
dæmunum, 15. aprfl. AP.
INDVERSKI slöngutemjarinn Tayil
Abu, sem í 40 daga hefur verið inni-
lokaður í búri með 250 baneitruðum
cobraslöngum, hætti í dag við að
reyna að setja heimsmet í þessari
íþróttagrein. Var ástæðan sú, að
hann var ekki vel frískur enda
slöngurnar búnar að bíta hann tvisv-
„Slöngurnar eru vinir mínir og
þeim kæmi aldrei til hugar að
meiða mig af ásettu ráði,“ sagði
Abu eftir að hann gafst upp á
sambúðinni við slöngurnar. Síð-
astliðinn miðvikudag beit ein
slangan hann og önnur daginn eft-
ir. Abu kenndi því um í fyrra sinn-
ið, að slöngunum hefði liðið illa í
kæfandi hitanum og rakanum það
seinna stafaði af því, að blossi frá
myndavél hræddi eina slönguna
þegar hún átti leið yfir brjóstið á
Abu og beit hún hann þá í hálsinn.
Abu var að reyna að slá met dr.
Tombais, annars indversks
slöngutemjara, sem var í 100 daga
með 100 eitruðum cobraslöngum
„án þess nokkru sinni slægist upp
á vinskapinn".
Nýr yfir-
maður Banda-
ríkjahers
í V-Evrópu
Heidelberg, 15. aprfl. AP.
GLENN K. Otis hershöföingi tók í dag
við stöðu yfirmanns bandaríska hers-
ins í Evrópu.
Tók hann við af Frederick J.
Kroesen hershöfðingja, sem nú læt-
ur af störfum fyrir aldurs sakir eftir
40 ára þjónustu f þágu Banda-
ríkjahers. Kroesen lifði af morðtil-
raun Baader-Meinhof hryðjuverka-
hópsins í september 1981. Hann var
sæmdur tveimur heiðursmerkjum
nú, er hann lét af störfum.
Pólland:
Fær ekki að minnast
Gyðingauppreisnarinnar
m
Eini núlifandi foringi uppreisnar-
manna undir eftirliti lögreglunnar
Varsjá, 15. apríl. AP.
MAREK Edelmann, einn af foringjum uppreisnarinnar gegn nazistum I
Gyðingahverfinu í Varsjá 1943, skýrði svo frá í dag, að pólska lögreglan
hefði hann undir eftirliti og hefði fyrirskipað honum að vera ekki við-
staddur óopinbera athöfn, sem fram á aö fara á sunnudag til þess að
minnast þess, að 40 ár eru liðin frá uppreisninni.
Edelmann hefur gefið út opið borginni Lodz, hefur skýrt svo
bréf, þar sem hann fordæmir
sem „hræsnisfulla" þá viðhafn-
armiklu athöfn, sem.fram á að
fara á vegum hins opinbera til
þess að minnast uppreisnarinn-
ar. Þá hefur hann sagt, að hann
muni óhikað taka þátt í hinni
óopinberu athöfn, sem skýrt var
frá hér að framan.
Um 1.500 erlendir gestir eru
væntanlegir til Varsjá til þess að
minnast uppreisnarinnar þar, en
talið er, að í henni hafi 70.000
Gyðingar verið drepnir. Sex
milljón Pólverjar, þeirra á meðal
um hálf milljón Gyðinga, létu
lífið, á meðan hernám Þjóðverja
í Póllandi stóð yfir í síðari
heimsstyrjöldinni.
Edelmann, sem er læknir í
frá, að hann hafi verið handtek-
inn og yfirheyrður af óeinkenn-
isklæddum leynilögreglu-
mönnum. „Mér var tjáð það í
gær, að Kiszczak innanríkis-
ráðherra, sem er yfirmaður
pólsku lögreglunnar, hefði gefið
út fyrirmæli um, að mér væri
bannað að fara frá Lodz fyrr en
eftir 24 apríl," sagði Edelmann.
Með tilliti til þes9, hve vel væri
fylgzt með ferðum sínum af lög-
reglunni, þá “yrði hann að
bregða sér í fugislíki til þess að
framkvæma þau áform sin að
fara til Varsjá á sunnudag".
Edelmann er 62 ára að aldri og
er eini núlifandi leiðtogi upp-
reisnarinnar, sem enn er búsett-
ur i Póllandi.
rra uyðingahverfinu í Varsjá 1943. Mynd þessi sýnir hóp Gyðinga, þeirra
á meðal lítinn dreng, sem skipað er á brott af þýzkum hermönnum. Mynd
þessi fylgdi upphaflega skýrslu, sem þýzki SS-hershöfðinginn Stroop
sendi yfirmönnum sínum. Myndin var síðan notuð sem sönnunargagn í
stríðsréttarhöldunum í Nlirnberg 1945. Samkvæmt frásögn frönsku
fréttastofunnar AFP, bar kona ein í Varsjá síðan kennsl á drenginn og
sagði nafn hans vera Arthur Schmiontak, en ættingjar hans, sem nú eru
búsettir í ísrael, segja að hann hafi aldrei komið fram síðar, heldur verið
drepinn vorið 1943.