Morgunblaðið - 16.04.1983, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
39
fclk í
fréttum
Linda Gray að skilja
+ Eftir 20 ára hjúskap ætlar
Linda Gray, sem flestir þekkja
betur sem Sue Ellen, nú aö skilja
viö manninn sinn, Ed Tresher.
„Ed gat ekki sætt sig viö vel-
gengni mína,“ sagði Linda, sem
nú er oröinn miiljónamæringur
og heimsþekkt fyrir Dallas-
þættina. Hjónabandiö hefur veriö
dálítið stormasamt upp á síö-
kastiö og í fyrra hljóp Linda aö
heiman meö umboösmanni sín-
um, Richard Grant, og átti meö
honum nokkra daga í London.
Hún sneri þó heim aftur í þaö
sinn en nú gengur þaö víst ekki
lengur. Ed, sem er listráöunautur
hjá hljómplötufyrirtæki, líkar
ekki, aö Linda skuli vera aö
heiman öll kvöld og hann einn
meö börnunum tveimur, Jeff, 18
ára, og Kelly, 16 ára.
„Fallerasta
amman á Italíu"
+ ítalska leikkonan Claudia
Cardinale er kölluö „fallegasta
amman á Ítalíu" af löndum sín-
um en hún er nú 44 ára gömul
og hefur verið amma í fjögur ár.
Claudia var tvítug þegar hún
átti soninn Patrick, en ógift, og
þaö þótti ekki gott til afspurnar
á italíu í þá daga. Þess vegna
kom Claudia Patrick litla fyrir í
fóstur í Englandi og fókk leynt
honum í heil níu ár. Patrick gifti
sig snemma og átti dótturina
Lucille, sem nú er fjögurra ára
og jafn gömul Claudinu, dóttur
Claudiu og sambýlismanns
hennar síöustu átta árin,
Pasquale Squitieri.
Flóamarkaður ársins!
Félag einstæðra foreldra heldur flóamarkaö í Skeljanesi
6 (leiö 5 hefur endastöð viö húsiö) laugardag 16. og
sunnud. 17. april frá kl. 2—5.
Þar verður á boöstólum allt milli himins og jaröar; gam-
all tízkufatnaöur af öllu tagi og öllum stærðum og gerö-
um, húsgögn, m.a. barnarúm, sófar, kommóður, borð,
svefnbekkir, gömul saumavél (í lagi) einnig nýr fatnaöur
á unga sem aldna, bækur, skrautmunir og hvers kyns
gúrn. Allt á spottprís.
Félag einstæöra foreldra.
^llillkW
LAKK Á BÍLINN
BÍLAEIGENDUR, BÍLAMÁLARAR
PARF AÐ BLETTA EÐA SPRAUTA BÍLINN ?
Dupont lökkin LUCITE og IMLAR eru
gæðavara, margreynd og henta
íslenskum staðháttum.
Gefiö okkur upp bílategund, árgerð
og litanúmer. Við afgreiðum litinn
með stuttum fyrirvara.
I Dupont blöndunarkerfinu eru 7000
litaafbrigði möguleg.
Öll undirefni svo sem grunnar, þynn-
ar og sparsl fást einnig hjá okkur.
IMLAR
IUCITE
CsKP&SJ
Síöumúli 32. Sími 38000
SPUNNIÐ UM STALIN
eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN
heyra með hans eyrum, skilja með hans réttlæti. Hann er
lögmálið, kenningin holdi klædd. Hann er alls staðar
nálægur, því að hann lifir í hverri hugsun, hverri taug.
Rödd hans í hvers manns brjósti.
12
yntingarnar, sem marxistar nota í Lúbjanka-
fangelsinu og víðar í Sovétríkjunum um þessar
mundir, eru þær sömu og málgagn íslenskra
sósíalista, Þjóðviljinn, segir að eigi sér stað hjá marxistum
í Afganistan hálfri öld síðar, árangursríkar pyntingar:
Einn böðlanna hét Amin og hafði það sérstaka verkefni
að nauðga konum auk þess sem hann var sérfræðingur í
raflostspyntingum. Farida var í klefa með 40 konum, og
henni var misþyrmt í sérstöku hryllingsherbergi þar sem
útslitin augu, handleggir og aðrir líkamspartar lágu sem
hráviði. Einn böðlanna notaði afhogginn handlegg til þess
að slá einn kvenfangann. Auga var rifið úr fanga að henni
aðsjándi og lagt fyrir framan hana á borð og henni sagt að
sama myndi gert með hana yrði hún ekki samvinnufúsari.
Farida var þvinguð til að standa í fætuma í tvær vikur og
slegin í hvert skipti sem hún var að falli komin. Að lokum
var hún látin laus og tókst að flýja land. Hún býr nú í
París og hefur kært meðferðina til Mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna ...
Hann sagði að beitt væri raflosti á kynfæri, að hár og
skegg manna væri reitt af og föngum væri neitað um að
fara á salerni í niðurlægingarskyni. Hann sagðist hafa séð
sovéska yfirheyrslumenn sperra aftur höfuð fanga og
míga upp í þá. Þá hefði lögregluhundum verið sigað á
innilokaða fanga, fólk hengt upp á fótunum og konur
bundnar niður í rúm og þeim nauðgað. Hann sagðist m.a.
hafa séð konu, sem var vanfær á 8. mánuði, vera nauðgað
af fleiri mönnum að eiginmanni hennar viðstöddum . ..)
13
essari frásögn er nú komið þar, sem hún breytist í
draum; martröð. í martröð hverfur tími og veru-
leiki og öllu ægir saman. Það á einnig við um
réttarhöld af því tagi sem nú verður greint frá.
Réttarsalur. Vyshinsky er í hlutverki hins opinbera
ákæranda. Hann snýr sér að Kamenev og segir: Stattu
upp, þú tókst þátt í samsærinu.
Kamenev: Hvaða samsæri, það var ekkert samsæri.
Vyshinsky: Ekkert samsæri!
Hann snýr sér að Búkharin og segir:
Var ekkert samsæri?!
Búkharin: Jú, herra ríkissaksóknari.
Vyshinsky snýr sér að Krestinsky og segir:
Var ekkert samsæri?!
Krestinsky: Jú, herra ríkissaksóknari.
Vyshinsky spyr Kamenev: Játar þú að hafa verið í
slagtogi með þessum þremur?
Kamenev: Slagtogi?
Vyshinsky: Að þú hafir haft nájð samstarf við þessa
þrjá?
Kamenev: Já.
Vyshinsky: Játarðu þá, að þú hafir tekið þátt í samsæri
með þeim, Pétur?
Kamenev: Pétur?
Vyshinsky: Játarðu ekki, að þú sért Pétur?
Kamenev ruglaður: Pétur, nei?
Vyshinsky: Herra dómsforseti, Kamenev neitar að
hann sé Pétur. En ef Kamenev er ekki Pétur, þá er nafn
hans merkingarlaust. Neitun hans er því játning. Pétur
Kamenev . . . klettur!
Kamenev: Játning, klettur . . . Pétur?
Vyshinsky: Tókstu þátt í samsæri með þessum þremur
og skósveinum þeirra?
FRAMHALD