Morgunblaðið - 24.04.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.04.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983 59 Útvarpsáhugamaðurinn Ib Schou majór kvnntist Carlsen skipstjóra fyrir 18 árum vegna sameiginlegs áhugamáls þeirra. Schou hefur heimsótt Carlsen í Bandaríkjunum og Carlsen Schou í Danmörku. birtingu frásagnar hans af afrek- inu. Carlsen hafnaði alls 157 slík- um tilboðum, sem hefðu getað gert hann að auðugum manni. Blaðið „Daily Herald" staðhæfði að lok- um að Carlsen neitaði að hagnast á hetjudáð sinni og þar við sat. Gjöfum, eins og úrum, útvarpsvið- tækjum og fatnaði, var hafnað, kurteislega en ákveðið. Afrekið Hetjusaga bandaríska vöru- flutningaskipsins „Flying Enter- prise" frá Isbrandtsen-útgerðarfé- laginu hófst skömmu eftir brott- siglingu þess frá Hamborg með farm og farþega. Jólanóttina 1951 gerði ofsaveður sem olli því á þriðja degi jóla að gat kom á skipið, 36 tíma siglingu undan Englandsströnd. Neyðar- kall frá skipinu heyrðist um borð í bandaríska flutningaskipinu „Southland", sem kom á slysstað daginn eftir að óhappið gerðist og bjargaði áhöfn og farþegum, að Kurt Carlsen skipstjóra undan- skildum. Hann varð eftir um borð í skipinu, en þá var kominn á það 45 gráðu halli. Carlsen skipstjóri tilkynnti í talstöðina: „Eg verð kyrr um borð þangað til skipið sekkur eða það er komið í höfn!“ Þrítugasta desember jókst hall- inn og varð 60 gráður. Bandaríska flutningaskipið „Golden Eagle" kom á vettvang og lagðist við hlið „Flying Enterprise". Tundurdufla- slæðarinn „John W. Weeks" fékk skipun frá æðri stöðum að sigla á slysstað. Föstudaginn 4. janúar hafði Carlsen skipstjóri verið einn um borð í hætt komnu skipi sínu í fimm sólarhringa, en fékk J)á fé- lagsskap annars stýrimanns dráttarþátsins „Turmoil", Kenn- eth Dancy, sem kom um borð. Til- raunin til að bjarga „Flying Ent- erprise" var endurtekin. Björgun- armönnunum tókst að koma taug í skipið, en þá brast aftur á fárviðri. Miðvikudaginn 9. janúar riðu háar öldur stöðugt yfir stýrishúsið. Margsinnis munaði minnstu að Carlsen og Dancy tæki út. Um há- degisbil sama dag var hallinn á skipinu orðinn svo mikill að þeir gátu gengið á skipshliðinni. Stukku í sjóinn Um- kvöldið var send út viðvör- un um annað fárviðri, en Carlsen sagði í talstöðinni að hann hefði trú á því að takast mætti að bjarga skipinu. Daginn eftir voru þyrlur frá bækistöð brezka flotans sendar á vettvang og hafðar til taks til þess að bjarga Carlsen og Dancy ef fárviðri brysti á aftur. Enn vildi Carlsen ekki yfirgefa skipið, en síðdegis 10. janúar, þeg- ar skipið var alveg komið á hliðina og skorsteinninn í sjóinn, stukku mennirnir í sjóinn. Kl. 16.10 sökk skipið. Kurt Carlsen sneri aftur til Bandaríkjanna, þar sem honum var fagnað sem þjóðhetju. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum fjalla enn um þennan áhrifamikla atburð fyrir 30 árum. „í ár hafa verið fjórar útsend- ingar í sjonvarpi um „Flying Ent- erprise“-slysið,“ segir Kurt Carl- sen. „Ótal kvikmyndir hafa verið gerðar um slysið og málið er greinilega ekki tæmt. I fyrradag kom dóttir min til mín með stórt tímarit með langri frásögn um dagana þarna úti á Atlants- hafi...“ (Aktuelt) Bergstaðastræti 7, sfmi 16070. Opið frá 1-6 e.h. g ORÐABÓKAITTGÁFAN Bókabúð Steinars Europa Fæst hjá flestum bóksölum. Road Atlas Hin þekkta ökuleiðabók Europa Road Atlas er komin aftur. Ein besta handbók bifreiðastjóra, sem ætla sér að aka um Evrópu, sem hægt er að fá. Europa Road Atlas hefur að geyma allar upplýsingar um hraðbrautir, þjóðvegi, leiðir og leiðakerfi allra Evrópulanda. Auk þess eru stækkaðar myndir af götum allra helstu stórborga Evrópu. 198 kort í fullum litum, stækkaðar myndir af götukortum 97 stórborga. Þetta er bók sem er bráðnauðsynleg öllum þeim, sem ætla að ferðast ( b(l ( sumarleyfinu. Við höfum einnig á boðstólum fjölmörg Hallwag sérkort af borgum og löndum um allan heim. NÚ ER KOMIÐ «»r\wiviru HORPQ SUMAR í Hörpusilki höfum við sameinað alla þá kosti sem utan- og innanhússmálning verður að hafa. Þessu höfum við náð með áratuga reynslu og stöðugum rannsókn- um á styrkleika Hörpusilkisins við hinar mismunandipðstæöur. Hörpusilkið er því sterkt enda ætlað fyrir umhleypingasama íslenska veðráttu. Hörpusilki er málning sem létt er að mála með, þekur þétt og vel og hefur fallega silkimjúka áferð sem gerir það sérlega hentugt innanhúss. -■ “7* ■ 0j- I—• r—M —3— Látið Hörpu gefa tóninn OKKAR FJÖLBREYTTU OG LJÚFFENGU RÉTTIR í HÁDEGI OG AÐ KVÖLDI. Hádegisverður Rjómalöguö spergilsúpa. Hörpuskelfiskur provencale meö rlstuöu brauöi. Pönnusteikt rauðspretta í karrý meö rækjum, ananas og hrísgrjónum. Ofnsteiktir kjúklingar meö rjómasveppasósu og nýju grænmeti. Frönsk Cream Caramel. Kvöldverður Gulrótarsúpa meö appelsínubragöi. Hákarl meö ákavíti, sorbet og rúgbrauöi. Kolkrabbi aö hætti Katalóníubúa. Dill og fenekell gufusoöin smálúöa meö rækjusósu. Piparlambalundir flamberaöar í koníaki meö rjómasósu. smjörsteiktu blómkáli og gulrótum. Djúpsteikt dalayrja með rifsberjahlaupi. Kalt kaffi Liégois. Jón Möller leikur létt lög á píanóið í hádeginu og um kvöldið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.