Morgunblaðið - 24.04.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.04.1983, Blaðsíða 22
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983 ,, {Éc) Vil enqa sjúkdómscy-emÍKgu- HvaSa 5júlcctómC>r kosha. undir- loo kr. hj<á TM R«o. U.S. Pat. Otf.-a« rtghts rtsarvad e1983 L» Angaias Tlmas Syndlcata HKgan, hægan vinur. Ert þaö þú Þetta er hrein háðung. Með allan sem hefur síðasta orðið eða ég? útbúnaðinn og svo kemurðu með þetta! HÖGNI HREKKVÍSI '\i ^ A • E<S S-yMG ^ SIMOSimI ENN . TiL ALLKA 'ATTA'.'..J2 Horfid var frá því að nota þessa hljómburðartækni Einar Jóhannesson og Karólína Eiríksdóttir skrifa: „Velvakandi. Vegna greinar Þ.R. í dálkum þínum 20. apríl vilja umsjónar- menn tónlistarþáttarins „Rondó“ taka eftirfarandi fram: Ekki er það rétt að viðmælend- um okkar í þættinum 13. apríl, sem teiknuðu Háskólabíó, hafi verið ókunnugt um hljómburðar- tækni þá, sem bréfritari skrifar um. í viðtali við okkur kom fram að arkitektarnir höfðu kynnt sér þessa tækni í Hollandi áður en húsið var byggt (fyrir meira en 20 árum) en horfið var frá því að nota hana. í þáttagerð sem þessari verður að velja og hafna efnisatriðum, ekki síst þegar fjallað er um svo viðamikið mál sem tónleikasalir eru. Þetta var eitt þeirra fjöl- mörgu atriða, sem sleppt var. Virðingarfyllst.” Safna fyrir íslandsferð S. Pétursdóttir, Wiltshire, Eng- landi, skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég sendi þér hér með smágrein sem birtist í héraðsblaði í Wilts- hire, en það kemur út einu sinni í viku hverri. Mér þótti mjög um að sjá greinina og ákvað að senda ykkur hana. Ekki alls fyrir löngu var sýnd mynd frá íslandi í sumarleyfis- þætti BBC I. Virðist sem mjög margir hafi séð myndina, því að bæði ég og vinkona mín höfum verið þráspurðar um landið frá því að hún var sýnd. Og öllum ber saman um, að þetta hafi verið fal- leg mynd. Ég er viss um, að land- kynningarmyndir geta haft mjög örvandi áhrif á ferðamanna- straum til íslands og finnst mér að meira ætti að gera af svona efni. Margt fólk hefur líka algjör- lega rangar hugmyndir um land og þjóð og verður yfir sig hrifið þegar það uppgötvar hið sanna. I áðurnefndri grein í héraðs- blaðinu kemur fram, að i gangi er söfnunarherferð hjá skólakrökk- um í Castledown-skólanum í Lu- dgers-hall. Þau eru nefnilega að safna sér fyrir íslandsferð, sem farin verður að loknum prófum næsta sumar. Og þau spara ekki erfiðið, þvo bíla, standa fyrir alls konar sölustarfsemi o.fl. Það er um að gera fyrir hvern og einn að láta hendur standa fram úr erm- um, því að það verða aðeins 17 þeir duglegustu og þeir sem falla best inn í hópinn sem hreppa farseðil. Er ætlunin að taka með gamla rútu til íslands og ferðast um landið. í fyrra ferðuðust þau á þennan hátt um Marokko." er í frumvarpinu! Ákvæðid Þorvarður Ornólfsson skrifar: „Hinn 1. mars sl. birti Velvak- andi heldur hvassan pistil frá „ríkisstarfsmanni" varðandi stjórnarfrumvarp um tóbaksvarn- ir sem þá var nýlega fram komið á Alþingi. Sagðist ríkisstarfsmaður hafa kynnt sér efni frumvarpsins en séð að þar væri „ekki staf um það að finna að starfsfólk hjá fyrirtækjum væri verndað gegn reykingum samstarfsfólks, ein- ungis getið um afgreiðsluvinnu- staði þar sem almenningur kemur inn á vinnustaðina". Vitnað er þarna til 9. greinar frumvarpsins en samkvæmt henni yrðu reykingar bannaðar í þeim hlutum af húsnæði stofnana, fyrirtækja o.fl. þar sem almenn- ingi er ætlaður aðgangur í sam- bandi við afgreiðslu eða þjónustu sem þessir aðilar veita. Skiljanleg eru vonbrigði ríkis- starfsmanns yfir því að finna ekki frekari skorður settar við reyking- um á vinnustöðum fyrirtækja. Ákvæði 9. greinar er vissulega fremur sett til verndar gestum en heimamönnum, tiltölulega fáir starfsmenn njóta góðs af því og einungis þar sem afgreiðsla fer fram. En honum, „bjartsýnismanni" (Velvakandi 18. mars) og „bind- indismanni" (Velvakandi 14. apríl), hlýtur að hafa sést yfir 12. grein frumvarpsins eða þeir hafa ekki áttað sig á þýðingu hennar. Þar er einmitt fjallað um reyk- ingar á þeim vinnustöðum sem ákvæði fyrrnefndrar 9. greinar og 10. greinar frumvarpsins ná ekki til, en 10. grein kveður á um bann við reykingum í grunnskólum, dagvistum barna og heilsugæslustöðvum. Samkvæmt 12. grein skal heil- brigðisráðherra setja reglur um reykingar á þessum stöðum, þ.e. vinnustöðum almennt, í samráði við Vinnueftirlit ríkisins og skal sérstaklega gæta þess að bægja óþægindum frá þeim sem reykja ekki. Verði þetta að lögum eru ls- lendingar þar með komnir í hóp örfárra þjóða sem hafa lögfest al- menn ákvæði um viðnám gegn tóbaksneyslu á vinnustöðum. Eftir væri þá að vísu að setja þær reglur sem um ræðir, en skylda til þess væri ótvíræð og það einnig hvað bæri að hafa að leið- arljósi við samningu þeirra og framkvæmd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.