Morgunblaðið - 10.06.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983
Eldur í
hraðfrysti-
húsinu
Fáskrúðsfirði, 9. júní.
U\1 HÁDEGISBILIÐ í gær kom upp
eldur í húsakynnum hraöfrystihúss
Fáskrúósfjarðar, þar sem fara fram
meöal annars viógerðir á fiskikössum.
Eldsins varð vart áður en fólk fór heim
í hádegismat og þegar slökkviliðið kom
á vettvang, var mikill reykur í húsinu
og var því erfitt um vik að átta sig á
hvar eldurinn var. Mjög greiðlega
gekk að slökkva eldinn sem var tiltölu-
lega lítill, og litlar skemmdir urðu
vegna hans.
Stutt frá þar sem eldurinn kom
upp er aðstaða fyrir rafvirkja fyrir-
tækisins. Þar munu hafa orðið ein-
hverjar skemmdir að marki. í þess-
um hluta hússins, sem er elsti hluti
frystihússins eru frystiklefar, þar
sem meðal annars er geymt kjöt frá
sláturhúsinu og leigð út matvæla-
hólf fyrir bæjarbúa.
Að sögn kaupfélagsstjórans Gísla
Jónatanssonar hafa farið fram at-
huganir á matvælum og engar
skemmdir eru taldar hafa orðið á
beim. Albert
Hafnarfjarðarkirkja:
Safnaðarferð
í Þjórsárdal
SUNNUDAGINN 12. júní verður farið
í safnaðarferð í Þjórsárdalinn á vegum
Hafnarfjarðarsóknar. Lagt verður af
stað frá Hafnarfjaróarkirkju kl. 11.00.
Þátttakendur eru þó beðnir að koma
að kirkjunni kl. 10.30. Ekið verður sem
leið liggur að Stóra-Núpskirkju þar
sem sóknarprestur, séra Gunnþór
Ingason, mun messa kl. 14.00 ásamt
staöarpresti, séra Sigfinni Þorleifssyni.
Organisti Hafnarfjarðarkirkju, Páll
Kr. Pálsson, leikur á orgelið og söng-
fólk úr kór kirkjunnar leiðir safnaðar-
söng. Síðan verður haldið í Þjórsárdal-
inn og merkisstaðir skoðaðir þar undir
leiðsögn séra Sigfinns og dvalið í daln-
um fram eftir degi og komið heim að
kvöldi.
Fargjald er kr. 200 fyrir fullorðna
en kr. 100 fyrir börn. Þátttakendur
hafi með sér nesti og tilkynni þátt-
töku sína til sóknarprests, Gunnþórs
Ingasonar, eða til varaformanns
sóknarnefndar, Guðmundar Guð-
geirsscnar. Safnaðarstjórn
Verðlaunin afhent, talið frá vinstri: Guðlaugur Bergmann, Einar Matthí-
asson, Anna Pálsdóttir og Oddrún Pétursdóttir. Morgunblaðið/KÖE.
Steingrímur Hermannsson tekur við batamerkjum af Einari Gíslasyni,
starfsmanni Karnabæjar Morgunblaðið/GB
Forsætisráðherra afhent batamerki
STEINGRÍMI Hermannssyni, forsætisráðherra, var í gær afhent bata-
merki júnímánaðar frá fyrirtækinu Karnabæ. Á sama tíma afhenti Einar
Gíslason, elsti starfsmaður Karnabæjar, Steingrími plagg sem skýrir frá
efnahagsstefnu fyrirtækisins
Einar Gíslason, sem hefur
starfað við íslenskan iðnað í yfir
fjörutíu ár, sagði við þetta tæki-
færi að íslendingar hefðu í svo
mörg ár kvartað undan oki ann-
arra, að nú væri tími til kominn
að vinna sig út úr vandanum
með samstöðu. Einar kvað þessa
efnahagsstefnu vera fulla af
baráttuhug og bjartsýni og
óskaði hann þess fyrir hönd
samstarfsmanna sinna og eig-
enda fyrirtækisins að Steingrím-
ur gerði slíkt hið sama við efna-
hagsstefnu stjórnar sinnar.
Guðlaugur Bergmann, for-
stjóri Karnabæjar, sagði að með
þessu framtaki hefði fyrirtækið
og starfsfólk þess sýnt hvert
hugur stefndi og taldi víst að
fólkið í landinu hefði sömu óskir
til handa öllum stjórnmála-
mönnum, að þeir bæru gæfu til
að standa saman gegn þeim
vanda sem við okkur blasir með
jákvæðu hugarfari. Forsætis-
ráðherra þakkaði þessa bjart-
sýnisgjöf og sagði að þjóðin
hefði stefnt í ógöngur og hún
yrði að feta hina þröngu götu út
úr þeim, en fólkið yrði að gera
sitt, því öðru vísi gengi dæmið
ekki upp. Nú hefði Karnabær
sýnt með viðleitni sinni að fólkið
vildi takast á við vandann með
stjórnvöldum.
Steingrímur var að lokum
spurður að því hvort hann myndi
taka brosandi á efnahagsmálum
þjóðarinnar og svaraði hann því
til að það væri „alltaf best að
taka hlutunum með bros á vör“.
í gær voru ennfremur afhent
verðlaun til þeirra þriggja, sem
hlutskörpust urðu i hugmynda-
keppninni um einkunnarorð
fyrir efnahagsstefnu Karnabæj-
ar.
Eins og fram hefur komið í
blaðinu fékk Einar Matthíasson
aðalverðlaunin, utanlandsferð á
vegum Úrvals og fataúttekt í
Karnabæ. Verðlaun fyrir kjör-
orð júnímánaðar, „íslenzk spjör,
betri kjör“, hlutu Anna Pálsdótt-
ir ísafirði og Oddný Pétursdóttir
frá Hafnarfirði. Þær hlutu að
launum fataúttekt í Karnabæ.
Guðlaugur Bergmann forstjóri
afhenti þeim verðlaunin í gær.
Einari Matthíassyni varð að
orði, þegar hann heyrði verð-
launakjörorðið, að óvitlaust væri
að hafa kjörorðið „Engin spjör,
svaka fjör“!
Frá ráðstefnu Fiskiðnar um gæði sjávarafurða. Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra, er í ræðustóli.
Morgunblaðið/KÖE.
TOYOTA
Bílakynning
CRESSIDA
CAMRY TERCEL 4X4
Suðurland: Laugardaginn 11. júní
á Hvolsvelli, Hellu, Selfossi
og Hveragerði.
Suðurnes: Sunnudaginn 12. júní
í Keflavík og Grindavík.
Fjölsótt
ráðstefna
Fiskiðnar
um gæði sjáv-
arafurða
í DAG verður fram haldið ráðstefn-
unni „Gæði sjávarafurða" sem hald-
in er á vegum sjávarútvegsráðuneyt-
isins og Fiskiðnar, fagfélags físk-
iðnaðarins. Henni lýkur síðdegis í
dag. Tilgangur ráðstefnunnar er að
varpa Ijósi á aðgeröir í gæðamálum,
greina frá nýjungum og ræða um-
bótamál í fískiðnaði. I gær hófst
ráðstefnan með ávarpi Sveins Guð-
mundssonar, en hann var ráðstefnu-
stjóri í gær, Jón Geirsson formaður
Fiskiðnar setti ráðstefnuna og Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra ávarpaði ráðstefnugesti.
Að því loknu hófst fyrirlestra-
flutningur og umræður. Ingjaldur
Hannibalsson frá Iðntæknistofn-
un ræddi um gæðahringi, Árni
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Stjórnunarfélags íslands flutti
ræðu sem hann nefndi Stjórnun
og skipulögð vinnubrögð, Sigurður
B. Haraldsson skólastjóri Fisk-
vinnsluskólans ræddi um náms-
leiðir fyrir starfsfólk í fiskiðnaði
og sjávarútvegi og Björn Krist-
insson frá Rafmagnstækni flutti
erindi sem hann nefndi Ferskleiki
fisks — mat eða mæling.
Um 100 manns sitja ráðstefn-
una, mestmegnis fólk úr stjórnun-
arstörfum í fiskiðnaði og sjávar-
útvegi en einnig ýmsir aðrir hags-
munaaðilar.
TOYOTA
UMBOÐIÐ
NYBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
P. SAMÚELSSON & CO. HF. SÍMI 44144
Leiðrétting
í frásögn af aðalfundi Blaða-
mannafélags íslands misritaðist
föðurnafn eins stjórnarmanns
félagsins, Ósk'ars Guðmunds-
sonar. Var hann ranglega sagð-
ur Magnússon. Mbl. biður við-
komandi velvirðingar á þessari
misritun.