Morgunblaðið - 10.06.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNl 1983
19
Vorrall Hótels Borgarness á morgun:
Ökuleið breytt vegna
mótmæla Hvítsíðinga
„ÉG REIKNA raeð að við breytura
leiðinni eitthvað vegna mótmæla
sem sýslumanni bárust úr efri
hluta Hvítársíðu," sagði Pálmi
Ingólfsson á Hálsum í Skorradal í
Borgarfirði, formaður Bifreiða-
íþróttaklúbbs Borgarfjarðar, er
Mbl. hafði samband við hann
vegna vorralls Hótels Borgarness
sem klúbburinn stendur fyrir nk.
iaugardag, 11. júní. Pálmi sagði að
m.a. hefði verið fyrirhugað að aka
Taflfélag Reykjavíkur:
Hilmar Karls-
son teflir
við unglinga
íslandsmeistarinn í skák,
Hilmar Karlsson, teflir fjöltefli
við unglinga 14 ára og yngri
næstkomandi laugardag kl.
14.00. Fjölteflið fer fram í
skákheimili Taflfélags Reykja-
víkur við Grensásveg 46.
Hilmar Karlsson
eftir þjóðveginum í gegnum efri
hluta Hvítársíðu, sem kallaður er
Hvítársíðukrókur, en sennilega
yrði þeirri leið breytt vegna til-
mælanna frá sýslumanni, þrátt
fyrir að klúbburinn hefði fengið
skriflegt leyfi hjá lögreglunni og
vegagerðinni til að fara þarna í
gegn.
Vorrallið hefst við Hótel
Borgarnes kl. 8 á laugardags-
morgun og verður ekið um Borg-
arfjörð þveran og endilangan.
Frá Borgarnesi liggur leiðin í
Bæjarsveit, þaðan á Stóra-
Kroppsflugvöll og síðan var
fyrirhugað að fara upp í Húsa-
fell. Síðan verður ekið vestur á
Mýrar og m.a. farið upp í Hít-
ardal og að lokum lýkur rallinu í
Borgarnesi. Áætlaður komutími
í Borgarnes er klukkan 17—18.
Pálmi sagði að 22 ökumenn
væru skráðir til keppni og væru
flestir helstu rallkappar lands-
ins í þeim hópi.
Torfærukeppnin
er á morgun
f frétt Mbl. í gær um torfæru-
keppni á Rangárvöllum misritað-
ist keppnisdagurinn, en hann er
11. júní, þ.e. á morgun, laugardag.
Sjóminjasafn
Islands
Sjóminjasafnið í Hafnarfirði
var nefnt Sjóminjasafn Hafnar-
fjarðar í blaðinu 1 gær. Þetta er
ekki rétt, safnið heitir Sjóminja-
safn íslands, en er í Hafnarfirði
eins og fram kom í blaðinu.
Frá söngskemmtuninni ( Bolungarvfk.
Sameiginlegt tónleikahald
karlakórsins Ægis í Bolungar-
vík og Karlakórs ísafjarðar
KARLAKÓRINN Ægir í Bolung
arvík og Karlakór fsafjarðar hafa
undanfarið æft söngprógramm
sem kórarnir munu sameinaöir
feröast meö um Vestfirði og einnig
munu kórarnir syngja um næstu
helgi á nokkrum stööum á Suö-
vesturlandi.
Að sögn Benedikts Kristjáns-
sonar formanns Karlakórsins
Ægis hafa kórarnir nú þegar
haldið söngskemmtanir hér í
Bolungarvík, fsafirði, Þingeyri,
Flateyri og Suðureyri og hafa
undirtektir og móttökur alls
staðar verið mjög góðar. Einnig
sungu kórarnir á lokahófi
Lionsmanna sem hér var haldið
um helgina, en þar voru saman-
komin um 500 manns. Benedikt
sagði að um næstu helgi myndu
kórarnir svo halda í mikið ferða-
lag suður á land. f þeirri ferð
verða haldnar þrjár söng-
skemmtanir, föstudaginn 10.
júní verður sungið í Félagsbíói i
Keflavík, laugardaginn 11. júní
verður sungið í Borgarfirði og
sunnudaginn 12. júní í sal Tón-
listarskólans á Seltjarnarnesi.
Stjórnendur á þessum söngsk-
emmtunum eru ólafur Kristj-
ánsson og Kjartan Sigurjónsson
og undirleik annast Guðbjörg
Leifsdóttir. Einsöngvarar með
kórnum eru Soffía Guðmundsd-
óttir, Björgvin Þórðarson og
Kjartan Sigurjónsson. A
söngskránni eru íslensk og erl-
end sönglög.
Samanlagt eru um 40 manns í
þessum tveim karlakórum.
Skálabremsur
Gormafjörðun m/tvívirkum dempurum
Sjálfstæð grindkúpa með högggleypum framan og
aftan til verndunar farþegarýmis.
Stillanlegir stólar
Rafmagnsrúðuþurrkurm/tlmarofa
Rafmagnsrúðusprauta
K^öftug miðstöð/loftræsting
Snúningshraðamælir
Vindlingakveikjari
o.fl.o.fl.
Afturrúðuþurrka m/rafmagnssprautu
Afturrúðuhitari
Rúmgott farþegarými fyrir 4
m/farangursrými fyrir aftan sæti
Aukið farangursrými fæst á
auðveldan hátt með því að
leggja niður sætisbak
tveir hljóðkútar
Lada 1300 fólksb. kr. 142.000
Lada 1200 Station kr. 153.000
Lada 1500 Station kr. 177.500
Lada Safir kr. 162.000
Lada Canada kr. 191.000
Aflvélin er 1600 r.:
55,8 kW (76 h.ö. DIN)
Fjórtak/drifátak á öll hjól
Sjálfstæð gormafjöðrun m/tvívirkum
dempurum og jafnvægisstöng
Diskabremsur
4 hraða aðalkassi
2ja hraða millikassi m/mismunadrifslæsingu
tvöfalt hemlakerfi m/hjálparlofti
Lágþrýstingshjólbarðar
m/alhliða mynstri, stærð 685x16"
Helstu mál:
Helstu mál í mm 1.3,720 x b. 1,680 x h. 1,640
Eigin þyngd 1,150
Heildarþyngd 1,550
Hæðundirlægstahlutaímm 220
Sporvídd: að framan í mm 1,430
að aftan í mm 1,400
Minnsti snúningshringur í m 5,5
Mesti klifurhalli í % 58
Hagstæðir greiðsluskilmálar
Fyriraðeins kr.
271.000
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
Suðurlandsbraut 14
Síminn í söludeild er 31236.