Morgunblaðið - 29.06.1983, Blaðsíða 10
Eiríkur Valsson, ritstjóri Þórhildar, Sigþrúður Karlsdóttir, Guðrún Eiríksdóttir og óttar Óttarsson, formaður
íslendingafélagsins.
Fjölþætt hátíðahöld í
Kaupmannahöfn 17. júní
Jón.shúsi, 19. júní.
ardagsins stóðu hér í 4 daga, ef svo
má að orði komast. Fyrst var dans-
leikur 16. júní í Saltlageret, salt-
geymslunni gömlu, sem nú er not-
uð fyrir dans og hljómleikahald.
Þar komu fram hljómsveitirnar
Skratsch og Objekt, ásamt nokkr-
um skemmtikröftum öðrum, þ.á m.
Bubba Morthens, Herði Torfasyni
og leikhópnum Kraka, en kynnir
var Rúnar Guðbrandsson. Sóttu
um 300 manns samkomuna, flestir
íslendingar, og gátu keypt flat-
brauð með hangikjöti og Prins
Póló að vild!
Á sjálfan þjóðhátíðardaginn
var fáni dreginn að húni á öllum
þremur fánastöngum Jónshúss.
Komu á annað hundrað manns
hingað í félagsheimilið og
drukku þjóðhátíðarkaffi með
rjómapönnukökum, og mjög
margir þeirra skoðuðu einnig
safn Jóns Sigurðssonar, sem var
mjög við hæfi þennan dag. Um
kvöldið var farið á Amager-
strönd. Var þar grillað og snætt
úti í blíðskaparveðri, sungið og
leikið í næði lengi kvölds. Sá fs-
iendingafélagið um undirbúning,
sem og næsta dag.
Aðalhátíðin var svo í garðin-
um hér á móti, Östre Anlæg, við
Listasafn ríkisins um miðja dag
laugardaginn 18. júni. Þar
ávarpaði formaður fslendingafé-
lagsins, Óttar Ottósson sam-
komugesti, sem sátu í grasinu í
steikjandi sólarhita, og Einar
Ágústsson sendiherra flutti
snjalla hátíðarræðu. Þá var
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1983
Einar Ágústsson sendiherra flytur hátíðarræóu.
sungið og farið í leiki, en margt
var þarna af yngstu kynslóðinni.
Að lokum var gengið fylktu liði í
Jónshús, þar sem aftur blöktu
fánar við hún, og var þar sam-
einast í kraftmiklum söng við
undirleik Estherar Hjartar-
dóttur.
Á sunnudag 19. júní var guðs-
þjónusta í St. Pálskirkju, þar
sem prestur fslendinga í Höfn
lagði út af stefi síra Mattíasar
um íslands þúsund ár. Eftir
messuna hittust landar enn í
Jónshúsi, hinum vinsæla sam-
fundarstað í Borginni við Sund-
ið.
G.L. Ásg.
Vfsindasjóður 1983:
103 styrkveitingar
STYRKVEITINGAR Vísindasjóðs fyrir árið
1983 urðu 103 talsins og samanlögð fjárhæð
þeirra er 10.823.000 krónur. Þetta er 26. út-
hlutun úr sjóðnum og segir í fréttatilkynn-
ingu, að eins og áður hafi heildarfjárhæð um-
sókna verið miklu hærri en það fé, sem til
ráðstöfunar var, og því hafi orðið að synja
mörgum umsækjendum og veita öðrum lægri
fjárhæðir en æskilegt hefði verið.
Kaunvísindadeild
Stjórn Raunvísindadeildar skipa þessir
menn: Eyþór Einarsson grasafræðingur
formaður, Örnólfur Thorlacius rektor
varaformaður, Bragi Árnason efnafræð-
ingur, Gunnar Ólafsson náttúrufræðingur,
Kristján Sæmundsson jarðfræðingur og
Margrét Guðnadóttir læknir.
Varamenn eru: Þorbjörn Karlsson verk-
fræðingur, Sigfús Schopka fiskifræðingur,
Svend Aage Malmberg haffræðingur og
Gunnar Sigurðsson læknir.
Ritari Raunvísindadeildar er Sveinn
Ingvarsson konrektor.
Alls veitti Raunvísindadeild að þessu
sinni 62 styrki að fjárhæð samtals kr.
7.723.000, en árið 1982 veitti deildin 54
styrki að fjárhæð samtals kr. 3.527.000.
Skrá um veitta styrki og viðfangsefni 1983
01 Aðalsteinn Sigurðsson fiskifr., Erlingur
Hauksson líffræðingur og Karl Gunn-
arsson þörungafræðingur 125.000
Þróun lífríkis á hörðum botni við Surts-
ey-
02 Ágúst Guðmundsson jarðfr. 175.000
Aflfræði kvikuhólfa. ganga og sprungna.
03 Efnafræðistofa RHI 40.000
Litrófsgreining orkuríkra sameinda.
Ábm. Ágúst Kvaran.
04 Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins 80.000
Flúor í íslenskum matvælum.
Ábm. Alda Möller.
05 Árni Hjartarson jarðfræðingur 25.000
Aldursgreiningar á skeljum.
06 Árni V. Þórsson læknir 105.000
Somatomedin og vöxtur fósturs.
07 Atli Dagbjartsson læknir 40.000
Rannsóknir á ærfóstrum.
08 Tilraunastöð Háskólans
í meinafræði, Keldum 100.000
Athugun á selenmagni og glútatíon per-
oxídasavirkni í blóði.
Ábm. Baldur Símonarson og Þorsteinn
Þorsteinss.
09 Efnafræðistofa RHÍ 150.000
Áhrif somatostatins á metyleringu
frumupróteina.
Ábm. Bjarni Ásgeirsson.
10 Bjartmar Sveinbjörnsson grasafr. 75.000
Áhrif vatnsskorts á vöxt og vaxtarferla
birkis.
11 Blóðbankinn v/ Barónsstíg 120.000
Erfðaþættir heilablæðinga.
Ábm. Ólafur Jensson.
12 Eðlisfræðifélag íslands 30.000
Orðaskrá um eðlisfræði og stjörnufræði.
Ábm. Þorsteinn Vilhjálmsson.
13 Líffræðistofnun Háskóla íslands 40.000
Rafdráttur próteina úr silungi í Þing-
vallavatni.
Ábm. Einar Árnason.
14 Eiríkur Jensson líffræðingur 50.000
Sveppir á íslensku birki.
15 Geisladeild Landspítalans 30.000
Krabbamein í barka á íslandi 1978—82.
Ábm. Þórarinn Sveinsson.
16 Augndeild Landakotsspítala 115.000
Tíðni hægfara gláku á Islandi og notkun
glákulyfja.
Ábm. Guðmundur Björnsson.
17 Tilraunastöð Háskólans
í meinafræði, Keldum 236.000
Rannsóknir á visnu og riðu. Tækjakaup.
Ábm. Guðmundur Georgsson.
18 Lyflækningadeild Landspítalans 150.000
Stjórn prostacylinframleiðsiu æðaþels.
Ábm. Guðmundur Þorgeirsson.
19 Gunnar Steinn Jónsson líffr. 150.000
Ljósaðlögun hjá botnþörungum í Þing-
vallavatni.
20 Félag um innkirtlafræði 40.000
Ofstarfsemi skjaldkirtils á íslandi.
Ábm. Gunnar Sigurðsson.
21 Göngudeild sykursjúkra 80.000
Orsakir insúlínháðrar sykursýki.
Ábm. Þórir Helgason.
22 Hafnamálastofnun ríkisins 250.000
Hreyfingar skipa í höfnum.
Ábm. Gísli Viggósson.
23 Eðlisfræðistofa RHÍ 190.000
Segulvirkni málma við lágt hitastig.
Ábm. Hans Kr. Guðmundsson.
24 Helgi Kristbjarnarson læknir 90.000
Kalíumstraumar í taugahimnu.
25 Hermann Þórisson stærðfr. 125.000
Endurnýjunarferli og dreifingartenging.
26 Iðntæknistofnun Islands 280.000
Syntetískir zeolítar. Tækjakaup.
Ábm. Guðmundur Gunnarsson og Gylfi
Einarsson.
27 Rannsóknast. HÍ í lífeðlisfræði 85.000
Áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma.
Samanburður á börnum og unglingum i
dreifbýli og þéttbýli.
Ábm. Jón G. óskarsson.
28 Krabbameinsfélag Islands 270.000
Forstigsbreytingar leghálskrabbameins.
Ábm. Gunnlaugur Geirsson.
29 Jarðfræðistofa RHÍ 100.000
K/ Ar aldursákvarðanir á íslensku
bergi.
Ábm. Kristinn J. Albertsson.
30 Kristján Kristjánsson og Snorri Bald-
ursson líffræðingar 100.000
Skordýrafrævun hjá ísl. háplöntum.
31 Líffræðistofnun HÍ 60.000
Samband stofnstærðar við fæðu og at-
ferli húsandar.
Ábm. Arnþór Garðarsson.
32 Líffræðistofnun HÍ 60.000
Útbreiðslukort íslenskra háplantna.
Ábm. Hörður Kristinsson.
33 Rannsóknastofa HÍ í lyfjafræði 130.000
Hrifspenna og samdráttur i mismun-
andi gerðum rákóttra vöðva. Tækja-
kaup.
Ábm. Magnús Jóhannsson.
34 Norræna eldfjallastöðin 100.000
Dyngjufjöll og Askja. Jarðskorpuhreyf-
ingar, jarðfræði og bergfræði.
Ábm. Guðmundur Sigvaldason.
35 Norræna eldfjallastöðin 75.000
Jarðskorpuhreyfingar við Heklu.
Ábm. Guðmundur Sigvaldason.
36 Ólafur Grímur Björnsson læknir 140.000
Áhrif somatostatins, glucagons og insúl-
íns á fituefnaskipti lifrarfruma.
37 Verkfræðistofnun HÍ 250.000
Áhrif vinds og haföldu á mannvirki.
Ábm. Ragnar Sigbjörnsson.
38 Rannsóknast. byggingariðnaðarins 100.000
Loftræsti- og hitakerfi húsa. Tækja-
kaup.
Ábm. Guðni Jóhannesson.
39 Rannsóknast. landbúnaðarins 100.000
Litningarannsóknir á sauðfé.
Ábm. Stefán Aðalsteinsson.
40 Rannsóknast. landbúnaðarins 150.000
Sveppir í jarðvegi og gróðri og hugsan-
leg áhrif þeirra á þrif sauðfjár.
Ábm. Sigurgeir Ólafsson og ólafur Guð-
mundsson.
41 Rannsóknast. fiskiðnaðarins 190.000
Fóðurgerð og geymsluþolsathuganir á
fóðurblöndum úr innlendum hráefnum.
Ábm. Sigurjón Arason.
42 Jarðfræðistofa RHf 50.000
Jarðlög frá ísaldarlokum og nútíma í
Melasveit og neðanverðum Borgarfirði.
Ábm. Þorleifur Einarsson.
43 Jarðfræðistofa RHÍ 150.000
Vetnis-, kolefnis- og heliumsamsætur í
jarðhitagasi.
Ábm. Stefán Arnórsson.
44 Reynir Tómas Geirsson læknir 120.000
Rúmmálsmælingar á burði með sónar-
tækni.
45 Ræktunarfélag Norðurlands 60.000
Útbreiðsla blaðblettasveppa á grösum
norðanlands.
Ábm. Þórarinn Lárusson.
46 Sigurbjörn Einarsson jarðvegsfr. 180.000
Jarðvegsrannsóknir á Hallormsstað.
47 Sigurður Guðmundsson læknir 140.000
Fúkalyfjaskammtar og eftirverkun lyfj-
anna.
48 Sigurður S. Snorrason líffræðingur o.fl.
200.000
Rannsóknir á bleikju í Þingvallavatni.
49 Skógrækt ríkisins 280.000
Skordýr í görðum og skóglendi og
skemmdir af þeirra völdum.
Ábm. Jón Gunnar Ottósson.
50 Rannsóknast. Hl í lífeðlisfræði 150.000
Stjórnkerfi í vöðvum æðaveggja.
Ábm. Stefán B. Sigurðsson.
51 Tilraunastöð Háskolans
í meinafræði, Keldum 140.000
Rannsóknir á æxlunarfærum íslenskra
kúa eftir burð.
Ábm. Þorsteinn ólafsson.
52 Unnsteinn Stefánsson og