Morgunblaðið - 29.06.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1983
71
til samanburðar var hann
óhagstæður um liðlega 778,9
milljónir króna á sama tíma í
fyrra. Þar hefur því orðið um-
talsverður bati milli ára.
Ef litið er á tölur fyrir maí-
mánuð, kemur í ljós, að verð-
mæti útflutnings var liðlega
1.246,7 milljónir króna, en var
um 693,8 milljónir króna í maí
á sl. ári. Verðmætaaukningin
milli ára er því 79,7%.
Verðmæti innflutnings í
maímánuði sl. var liðlega
1.435,5 milljónir króna, en var
til samanburðar um 825,26
milljónir króna á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin
milli ára er um 73,9%. Af
þessum tölum er ennfremur
ljóst, að vöruskiptajöfnuður-
inn var óhagstæður um 188,75
milljónir króna í maímánuði,
en til samanburðar var hann
óhagstæður um 131,5 milljónir
króna á sama tíma í fyrra.
í útflutningi fyrstu fimm
mánuðina ber mest á útflutn-
ingi ÍSAL, en verðmæti hans
var liðlega 1.104 milljónir
króna, borið saman við tæp-
lega 359,2 milljónir króna á
sama tíma í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er því um
207,4%.
í innflutningi ber ennfrem-
ur mest á innflutningi til
ÍSAL, _ en verðmæti hans
fyrstu fimm mánuði ársins
var um 546,2 milljónir króna,
borið saman við 139,7 milljón-
ir króna á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukningin milli ára
er liðlega 291%.
Flugleiðir
opna vöru-
afgreiðslu í
Hafnarfirði
„ÞAÐ var mál manna, aö nauö-
synlegt væri aö auka þjónustu fé-
lagsins viö innflytjendur í umdæmi
bæjarfógetans í Hafnarfirði og því
var tekin ákvörðun ura aö opna
vöruafgreiðslu þar í bæ,“ sagði
Sæmundur (iuövinsson, frétta-
fulltrúi Flugleiða, í samtali viö
Mbl.
„Við erum fullvissir um að
þessi breyting verði til hagræðis
fyrir viðskiptavini félagsins, sem
er markmiðið," sagði Sæmundur
ennfremur.
Það kom fram hjá Sæmundi,
að fyrirtækið Dvergur hf., sem er
staðsett við Flatahraun 1 í Hafn-
arfirði, myndi annast vöruaf-
greiðsluna fyrir Flugleiðir. „Þeir
sem vilja nýta sér þessa þjónustu
eru beðnir að láta vita og verða
vörurnar þá fluttar beint til
Hafnarfjarðar til afgreiðslu þar.
Afgreiðsla farmbréfa verður
hins vegar áfram á aðalskrif-
stofu félagsins á Reykja-
víkurflugvelli," sagði Sæmundur
Guðvinsson að síðustu.
Þórarinn V. Þórarins-
son aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambandsins
I>ÓRARINN V. Þórarinsson lög-
fræöingur hefur veriö ráöinn aö-
stoöarframkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambands fslands, en
hann hefur undanfarin þrjú ár
starfað sem lögfræöingur sam-
bandsins.
Þá hefur Barði Friðriksson
tekið að sér starf lögmanns
Vinnuveitendasambandsins og
mun hann hafa yfirumsjón með
öllum málflutningi á vegum sam-
bandsins.
Framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins er Magnús
Gunnarsson viðskiptafræðingur,
en hann tók við starfi sínu í
marzmánuði síðastliðnum.
Spjall um útvarp og sjónvarp
Hann batt sig við
skorstein á leið á steftiu-
mót við unnustu sína
— eftir Ólaf
Ormsson
Sjónvarpið er með útsend-
ingar í júlímánuði í fyrsta sinn
frá því að útsendingar hófust
fyrir sautján árum. Ekki er
ósennilegt að íþróttir verði
töluvert á dagskrá þar sem
mikið er um að vera á íþrótta-
sviðinu, innanlands sem utan. í
hönd fara sumarleyfi hjá
landsmönnum og sumir eru
þegar komnir á sólbaðsstrend-
ur úti í heimi fjarri rigning-
unni hér heima á Fróni og er
þá alveg eins líklegt að ýmis-
legt fari fram hjá fólki af því
efni sem ríkisfjölmiðlarnir
bjóða uppá. Sá fjörkippur sem
komin er í dagskrá útvarpsins
og ég gat um í síðasta spjalli er
enn við lýði og þykir mér dag-
skrárdeild Ríkisútvarpsins
hafa unnið gott starf undan-
farnar vikur varðandi sumar-
dagskrána og margir fróðlegir
þættir og skemmtilegir að
hefja göngu sína þessa dagana.
Einn slíkur, „Ljóð og mann-
líf“, í umsjá Einars Arnalds,
var á dagskrá fimmtudaginn
16. iúní eftir síðari kvöldfrétt-
ir. I þættinum var fjallað um
árstíðirnar og valin ljóð til
flutnings, þar sem ort er um
fegurð vorsins, sumarsins,.
haustsins og vetrarins sem er
oft dimmur og kaldur en hefur
þó sína töfra. Útvarpshlust-
endur fengu að heyra ljóð eftir
nokkur helstu skáld okkar á
síðari árum, t.d. Tómas
Guðmundsson, Snorra
Hjartarson, Stefán frá Hvíta-
dal, Matthías Johannessen,
Stefán Hörð og Þorstein frá
Hamri. Góður þáttur, hugljúf
stund svona rétt fyrir svefninn
og bæði tónlist og ljóð valin af
smekkvísi og mér finnst
ástæða til að vekja athygli á
þessum þætti sem verður
hálfsmánaðarlega á dagskrá í
sumar.
Dagskrá sjónvarpsins þjóð-
hátíðardaginn 17. júní var
ágæt. Hún hófst með þjóð-
hátíðarávarpi forsætisráð-
herra og í beinu framhaldi af
því hófst skemmtiþáttur undir
stjórn Valgeirs Guðjónssonar
Stuðmanns sem bar nafnið
„Fyrir mömmu". Valgeir kom
þar fram í ýmsum gervum,
fyrst sem kostulegur veður-
fræðingur og síðar í hlutverki
stangarstökkvara sem kom
með Akraborginni ofan af
Akranesi, klæddur íþróttabún-
ingi með stöngina í hendi hljóp
hann upp Laugaveginn, ein-
beittur á svip að gatnamótum
Laugavegar og Höfðatúns þar
sem beið maður við gangbraut
er fékk far með á stönginni inn
í Laugardal þar sem stangar-
stökkvarinn gerði misheppn-
aða tilraun við íslandsmetið.
Valgeir var frábær í hlutverki
stangarstökkvarans og annar
maður tengdur Stuðmönnum,
Eggert Þorleifsson, var ekki
A«é«r Eir Vilhjálmadóttir
síðri í hlutverki skáta-
foringjans og sló svo sannar-
lega í gegn. Túlkun hans á
skátaforingjanum var meiri-
háttar afrek að mínu áliti. í
göngulagi og háttum var
skátaforingi Eggerts kostuleg
týpa og atvinnuleikarar hefðu
ekki gert betur.
Myndir frá þjóðhátíðum fyrr
á árum kitluðu hláturtaugarn-
ar og ég hélt lengi vel að verið
væri að sýna frá árshátíð
þroskaheftra. „Fyrir mömmu"
er einn besti íslenski skemmti-
þátturinn sem sjónvarpið hef-
ur boðið upp á frá upphafi og
vonandi að Valgeir Guðjónsson
verði fenginn til að stjórna
fleiri þáttum. hann er mikill
hæfileikamaður og ágætur
húmoristi.
Að loknum skemmtiþættin-
um kom svo ágæt heimildar-
kvikmynd um Helga Tómasson
ballettdansara sem sagði frá
sjálfum sér og list sinni. Helgi
er í röð fremstu ballettdansara
í heiminum í dag og ánægju-
legt að fá að fylgjast með hon-
um í þættinum á sviði í New
York, Reykjavík og Moskvu þar
sem hann hlaut silfurverðlaun
í alþjóðlegri listdanskeppni ár-
ið 1969. Með þrotlausum æfing-
um og heilbrigðu líferni hefur
Helgi Tómasson komist í
fremstu röð ballettdansara og
íslendingar hljóta að vera
stoltir af þessum mikla lista-
manni.
Laugardagskvöldið 18. júní
upp úr klukkan hálfátta hófst í
útvarpinu þáttur sem heitir
„Allt er ömurlegt í útvarpinu“
og mun hann verða á dagskrá
vikulega í sumar. Þetta var
þáttur númer tvö, fyrsta þátt
heyrði ég ekki. Fyrir stjórn-
anda vakir sjálfsagt að fjalla
um útvarpsdagskrána í gam-
ansömum tón en mér þykir
Loftur Bylgjan Jónsson um-
sjónarmaður þessa nýja út-
varpsþáttar lítill húmoristi. I
þættinum var ekki eitt atriði
Helgi Tómaaaon
sem ég gat brosað að og á köfl-
um geispaði ég ákaft og var
helst að hugsa um að loka fyrir
þáttinn sem var misheppnaður
frá upphafi til enda. Nú kann
að vera að einhverjum hafi lík-
að vel þessi samsetningur um
útvarpsdagskrána en þeir hafa
þá líka annan smekk en undir-
ritaður. Þátturinn er auðvitað
nýr og hugsanlega fer hann
batnandi síðar því ég heyrði
ekki betur en að ýmsir kunnir
grínleikarar kæmu þar við
sögu.
„í blíðu og stríðu", nýr
bandarískur gamanmynda-
flokkur í þréttán tuttugu og
fimm mínútna þáttum, byrjaði
í sjónvarpinu laugardaginn 18.
júní rétt eftir klukkan hálfníu
um kvöldið. Susan Harris höf-
undur hins vinsæla þáttar
„Löður" átti hugmyndina að
þessum nýja þætti. I aðalhlut-
verkum eru miðaldra hjón í
Chicago sem eru leikin af P.D.
Astin og Richard Crenna.
Hann er mikilsmetinn læknir
og hún hefur nýlokið prófi sem
lögmaður og kemur til árekstra
í heimilislífinu hjá hjónunum
sem eiga tvö börn á táninga-
aldri, Andy og Lísu. Fyrsti
þáttur þessa nýja framhalds-
myndaflokks var bráðskemm-
tilegur og ekki síðri Löðrinu.
Týpur í þessum flokki eru
skemmtilegar, t.d. tengdamóð-
irin sem er mjög sérkennileg
persóna, fyndin og svolítið
geggjuð.
„Óstaðfest ljóð“, Sigmundur
Ernir Rúnarsson skáld las eftir
sig ljóð í útvarpið í tíu mínútur
rétt fyrir klukkan átta þetta
sama laugardagskvöld, 18.
júní. Fyrst heyrði ég getið um
skáldið þegar það birti nokkur
ljóð í Lystræningjanum fyrir
um það bil tveim árum ef ég
man rétt. Sigmundur Ernir er
ungur maður, innan við þrí-
tugt, og ljóð hans einkennast
eins og ljóð yngstu skáldanna
af bölsýni og lítilli trú á fram-
tíð mannsins hér á jörðu. Það
væri mikil og góð tilbreyting
að fá að heyra í ungu skáldi
sem yrkir um fegurð lífsins og
gaman væri að fá að heyra
húmorista eins og t.d. Kristján
Hreinsmögur flytja eftir sig
nokkur ljóð í útvarp. Það er
satt að segja alveg nóg um
svartnætti í ljóðum ungu
skáldanna. Lífið er þrátt fyrir
allt fagurt og of lítið er gert af
því að draga fram í dagsljósið
það góða í tilverunni, ljótleik-
inn er allsráðandi.
Áður en Sigmundur hóf að
lesa ljóð sín var á dagskrá nýr
þáttur í útvarpi í umsjón Ás-
laugar Ragnars, „Samtal á
sunnudegi". Áslaug Ragnars
spjallaði í rúmt korter við séra
Auði Eir Vilhjálmsdóttur um
kvennaguðfræði og var það
mjög fróðlegur þáttur og at-
hyglisverður. Auður Eir er gáf-
uð kona sem ávallt er fróðlegt
að heyra frá. Þessi nýi þáttur
Áslaugar verður vikulega á
dagskrá í sumar.
„Símatími". Hlustendur hafa
orðið. Símsvari: Stefán Jón
Hafstein byrjaði mánudags-
kvöldið 20. júní skömmu fyrir
dagskrárlok. Nokkur fjöldi
manna hringdi til Stefáns og
kom á framfæri kvörtunum
varðandi ýmislegt er aflaga fer
í þjóðfélagi okkar. Spurt var
um réttindi ýmissa minni-
hlutahópa í þjóðfélaginu og
jafnréttismál. Það er ljóst að
þeir sem hafa gaman af að tjá
sig i síma fá þarna sérstakt
tækifæri til að koma skoðunum
sínum til þjóðarinnar og lík-
legt að þeir noti nú þessa
ágætu þjónustu útvarpsins við
hlustendur.
Tveir kunnir menn úr menn-
ingarlífinu, Árni óskarsson og
Friðrik Þór Friðriksson, eru
með nýjan þátt í útvarpinu
seint á þriðjudagskvöldum sem
þeir kalla „Rispur". í þætti sem
var á dagskrá þriðjudaginn 21.
júní var fjallað um forna þjóð-
hætti, listsköpun, gerning,
listform sem ýmsir listamenn
tóku upp á á síðari árum og
náði hámarki um 1980. Sögð
var saga af manni. Hann batt
sig við skorstein á leið á
stefnumót við unnustu sína, og
hefur það verið áhrifamikill
gerningur. Umsjónarmenn
þáttarins sögðu frá fornum
dönsum, hringdönsum, sagna-
dönsum og fornum leikjum og
ég hafði gaman af og vonandi
að næstu þættir verði jafn-
skemmtilegir og þessi sem var
virkilega góður.
Ný útvarpssaga byrjaði mið-
vikudaginn 22. júní og er hún
eftir Sigrúnu Schneider og
heitir „Leyndarmál lögreglum-
anns“. Ólafur Byron Guð-
mundsson les. Höfundurinn
hefur samið nokkrar smásögur
fyrir útvarp sem sumar eru
ágætar og því forvitnilegt að
fylgjast með þessari nýju út-
varpssögu sem verður á
dagskrá fram eftir sumri.