Morgunblaðið - 29.06.1983, Side 28

Morgunblaðið - 29.06.1983, Side 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1983 l’Jfc „ heyri ekkj söng Sv/eitai/eargsins. ei'ns yott cx^ þo skipí/ */ar&U&mci i* viðbragS>sstöSu." 4? a ð hjálpa henni með fjölskyldu- vandamál. TM R«o U.S. Pat Off.—all rights reserved ©1963 L®» Angeíes Times Syndicate Þetta er nú hola í lagi, kalla ég! Með morgunkaffinu Ég hef enn ekki komið auga á þessar sætu stelpur sera myndirn- ar voru af á ferðapésanum! HÖGNI HREKKVÍSI Heföi átt að vera rot- högg á marxismann Húsmóðir skrifar: „Ég vona að sem flestir hafi lesið það sem Matthias Johann- essen hefur verið að skrifa um Stalín. Ég trúi ekki öðru en óharðnaðir unglingarnir hafi það mikið af þessu, að kennar- arnir eigi erfiðara með að láta þá gleypa marxíska söguskýr- ingu þeirra. Og þá er ekki til lít- ils unnið. Furðulegust af öllu eru skrif sumra um hugleiðingar Matthí- asar. Þeir segja, að hann hafi sýnt aðdáun sína á Stalín með því að rekja sögu hans. Vilja þessir menn láta halda það um sig, að með því að segja frá glæpum Hitlers séu þeir að láta í ljós hrifningu sína á „afrekun- um“? Þegar ég var í skóla var manni kennt það sem í bókunum stóð, og kennararnir voru ekki með marxísk gleraugu, enda hefði þá lítið farið fyrir staðreyndunum. Hef ég engan heyrt halda því fram, að sagan af Caligúla, sem gerði hestinn sinn að ráðherra, hafi verið sögð til þess að láta dást að athæfinu. Hún er bara dæmisaga sem sýnir vald alræð- isherra. Stalín var framkvæmdastjóri alræðishyggju marxismans og sýndi í verkum sínum, að þetta geta allir gert sem stjórna eftir hungurhugmyndafræði Karls Marx, og hlotið í ofanálag að- „Sulín var framkvemdutjóri aÞ reðishyggju marxismans og sýndi I verkum sínum, að þetU geU allir gert, sem stjórna eftir hungurhug- myndafræði Karls Marx, og hlotið í ofanálag aðdáun allra marxisU hvar sem er í veröldinni." dáun allra marxista hvar sem er i veröldinni. Þegar svo Krúsjoff svipti helgihjúpnum af Stalín og sann- leikurinn kom í Ijós, hefði það átt að vera rothögg á marx- ismann, en það fór nú á annan veg. Þá byrjaði fyrst fyrir alvöru aðdáunin á helfræðunum. Kommúnistarnir flýttu sér að fordæma Stalín og létu aðra taka við. Og þeir vinna enn í sama anda. Það eina sem breytt- ist í Rússlandi var það, að þar sem Stalín hafði líf 60 milljóna Rússa á samviskunni, þurftu eft- irmenn hans ekki að standa í af- tökum, en þeir tóku upp geð- veikrahælin í staðinn. Og enn eru fangabúðirnar í Rússlandi yfirfullar af fólki, sem ekkert hefur til sakar unnið nema að mótmæla sultinum og kúgun- inni. Ef hinir óánægðu í Rúss- landi væru eins vopnum búnir og Víet-Cong-menn voru, væri hægt að heyra í fjölmiðlunum okkar skæruliðasögur, sem meira færi fyrir en sögunum frá E1 Salva- dor. K.G.B. heldur niðri öllum mót- mælum. Þess vegna geta marx- istarnir á Vesturlöndum haldið áfram að vinna þessari helstefnu fylgi. Og herstjórnin í Póllandi á aðdáun þeirra óskipta, af því að hún pyntar og kúgar vopnlausa menn, sem enginn hryðjuverk geta unnið. Ég veit ekkert grátbroslegra en þegar kommúnistarnir hér eru að tala um atvinnuleysi og fátækt í lýðræðisríkjunum. Hvar er meiri fátækt en þar sem ekki er hægt að kaupa lífsnauðsynj- ar? En á þeim er alltaf skortur í alþýðulýðveldunum. Þar veruðr almenningur að sofna svangur á vikukaupinu sínu, eða láta það í banka, þar sem stjórnvöld eyða því í baráttu kommúnistanna á Vesturlöndum fyrir útþenslu- stefnu heimskommúnismans." Reynir að gera sem flestum til hæfis Einn ávallt viðbúinn skrifar: Föstudaginn 17. júní síðastlið- inn sýndi sjónvarpið íslenskan skemmtiþátt sem bar nafnið „Fyrir mömmu“. Var þetta einn sá albesti þáttur sem ég hef séð hjá þeirri stofnun. En ég hugsaði með sjálfum mér að nú myndu þjóta fram á ritvöllinn allir húmors- lausir og afturhaldssinnaðir Is- lendingar sem aldrei geta þolað neitt sem unga kynslóðin í landinu er að gera, þ.e. þeir sem fæddir eru eftir aldamót. Það var eins og við manninn Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. mælt: Upp reis gamall skáti og þóttist hafa farið hjá sér er hann horfði á þáttinn. Ég var staddur í samkvæmi þegar þátturinn var sendur út og ég get fullyrt að allir sem þar voru höfðu gaman af. Bravó, Ella Þóra og Valgeir. Gerið fleiri svona þætti og látið röflið í gömlum skátum sem vind um eyru þjóta. Og þú, skáti, mundu boðorð- ið „ávallt viðbúinn“ og slökktu á Gestur skrifar: „Menn taka misjafnt til orða. Stundum hefur verið sagt, að það mætti þekkja menn á málsmeð- ferð þeirra. Satt er það, að oft „má á máli þekkja manninn hver helst hann er“, eins og stendur í hinum fræga sálmi. Það er misjöfn merking og meining manna í orðum þeirra. Oft sé ég, þegar verið er að segja frá börnum, strákar og stelpur, en ekki drengir og stúlkur, sem mér finnst miklu fegurra og alúðlegra. Það er líka öllum kunnugt, að þeim orðum eru tengd einhver feg- urstu orð tungunnar, en hinum miður góðar merkingar. Þá held ég, að nota ætti orðin gæta barna, en ekki passa börn. sjónvarpinu ef þér mislíkar það. Það geri ég, enda er það ekki ein- ungis fyrir ungu kynslóðina eða gamla skáta heldur reynir það að gera sem flestum til hæfis, með misjöfnum árangri að vísu. Þú getur hlakkað til að fá norska sjónvarpið sem líkur eru nú á að muni nást hér á landi. Það ætti að verða eitthvað fyrir þig og hina „húmoristana". Einnig ætti að nota orðið óhreinn, en ekki skítugur. Það er mjög mikið rætt um daglegt mál á voru landi nú. Er- lend áhrif eru sterk, og er von að svo sé, því að miklar eru samgöng- urnar við ýmis lönd í dag. Á síðum þínum, virðulegi Velvakandi, eru oft leiðréttingar á íslensku máli, og er það vel gert, eins og fleira hjá þér. Meðal annars þess vegna leyfi ég mér að senda þér þessar línur.“ * ♦ * Vegna þess sem Gestur segir í niðurlagi pistiis síns, af vinsemd í garð þáttarins, er rétt að taka fram, að þab er félagsskapur, sem nefnist Ahugasamtök um íslenskt mál, er á veg og vanda af athuga- semdunum „Gætum tungunnar". Misjöfn merking og meining manna í orðum þeirra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.