Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 2
_2____________ Neskaupstaður: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 Bjartur fékk 150 tonn af ýsu á tveimur dögum TALSVERÐUR afli hefur að undanTórnu borizt til Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað oj> síðastliðinn þriðjudag landaði skuttogarinn Bjartur 150 lestum af ýsu þar eftir tveggja daga veiðiferð á Mýrargrunni. Að sögn Guðmundar Bjarnasonar hjá Síldarvinnslunni hefur afli verið yfirdrifinn, enda saltfiskvinnsla í lágmarki og skreiðarvinnsla engin. Því hefur nótaskipið Börkur að und- anförnu siglt með þann afla, sem ekki hefur verið unnt að vinna í Neskaupstað. f dag, laugardag, held- ur Börkur til Færeyja með 160 lestir af fiski. Skuttogarinn Barði landaði 105 lestum af þorski og ýsu í gær, föstudag, og skuttogarinn Birtingur mun landa á mánudag, en á fimmtu- dagskvöld var hann kominn með 85 lestir. Fjórði Neskaupstaðartogar- inn, Beitir, sem unnið hefur afla sinn í salt að undanförnu, er nú I slipp á Akureyri. Síðastliðinn hálf- an mánuð hafa handfærabátar aflað þokkalega og jöfn og góð vinna er því í frystihúsi fyrirtækisins. Þessa dagana er unnið að skreið- arpökkun, en írafoss er væntanleg- ur austur í næstu viku til að lesta skreið á vegum Skreiðarsamlagsins. Sildarvinnslan á nú á þriðja hundr- að lesta af skreið og er hluti þess allt frá árinu 1981. Fólksbifreiðin eftir áreksturinn MorgunblaAiA/Júlfns. Tveir fangar struku af Litla-Hrauni TVEIR fangar struku af vinnuhæl- inu Litla-Hrauni á Eyrarbakka í gær- kvöldi. Samkvæmt heimildum Mbl. struku fangarnir úr útivistartíma á milli klukkan 19 og 20. Farið var að leita að þeim þegar þeirra var saknað skömmu seinna, en þegar Mbl. hafði fregnir sfðast í gær- kvöldi höfðu strokufangarnir ekki náðst. Skákmótið í Gausdal: Pia Cramling efst MARGEIR Pétursson hefur peði yfir í biðskák sinni við finnska stór- meistarann Westerinen, en skákin var tefld í gær í 4. umferð skákmóts- ins í Gausdal í Noregi. Árni Á. Árna- son tapaði fyrir Svíanum Schneider. Hann átti lengi jafntefli f skákinni, en lék af sér í tímahraki. Skák Hilm- ars Karlssonar og Danans Holm endaði með jafntefli. Biðskák Mar- geirs Péturssonar við Pólverjann Bi- eczyk úr 3. umferð lyktaði með jafn- tefli. Staðan á mótinu eftir 4 umferð- ir er þannig að sænska skákkonan Pia Cramling, sem er stórmeistari, er efst með 3 'h vinning, en nokkrir skákmenn eiga möguleika á að ná henni þegar biðskákir hafa verið tefldar, en staðan á mótinu er óljós vegna fjölda biðskáka. Mar- geir Pétursson er með 1 ‘A vinning og biðskák, Hilmar Karlsson hefur 2 vinninga og Árni Á. Árnason er með 1 vinning. 5. umferð verður tefld í dag, en mótið er alls 9 umferðir. Heyfokið í Mýrdal: Bjargráðasjóði heim- ilt að bæta tjónið „HEYFOK er ekki bótaskylt, en það er heimilt að bæta það samkvæmt lögum sjóðsins. Hins vegar tók stjórn Bjargráðsjóðs þá ákvörðun í fyrra og hefur tilkynnt hana oftar en einu sinni síðan, að sjóðurinn treysti sér ekki til að veita fyrirgreiðslu vegna tjóns af völdum náttúruhamfara, sem hægt er að tryggja fyrir hjá tryggingafélögura, eins og til dæmis vegna foktjóns á húsum," sagði Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Bjargráðasjóðs, í samtali við Morgunblaðið, en eins og sagt hefur verið frá í blaðinu varð talsvert tjón af völdum heyfoks í Mýrdal og undir Eyjafjöllum á sunnudaginn var. „Hins vegar skal ég ekki fullyrða jarðskjálfta, snjóflóða, eldsum- um það í þessu tilfelli, hvort bændur hafa haft tryggingu eða hefðu getað haft hana gegn þessu tjóni, þ.e.a.s. vegna heys sem er flatt á túnum,“ sagði Magnús ennfremur. Magnús sagði að viðlagatrygging kæmi þarna heldur ekki til, því hún tæki ekki til tjóns af völdum óveðurs, hún tæki aðeins til tjóns af völdum brota, skriðufalla og vatnavaxta, á verðmætum sem hefðu verið bruna- tryggð. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðinu tókst að afla sér í gær hjá tryggingafélögunum, er ekki hægt að tryggja sig fyrir tjóni af þessu tagi. Banaslys í Garðabæ BANASLYS varð á gatnamótum Karlabrautar og Hofstaðabrautar í Garðabæ skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld. Skoda-bifreið var ekið vestur Hofstaðabraut í veg fyrir fólksflutningabifreið sem ók Karla- braut til suðurs. Áreksturinn varð gífurlega harður og dróst Skoda- bifreiðin með fólksflutningabifreið- inni talsverðan spöl, en fólksflutn- ingabifreiðin lenti á hægri hlið Skoda-bifreiðarinnar. Tveir voru í Skoda-bifreiðinni og lést farþegi hennar þegar að því er talið er. Ökumaður bifreið- arinnar slasaðist talsvert og var lagður á gjörgæsludeild Borgar- spítalans, en hann er ekki talinn í lífshættu. Háyaðamálið í New York: Úrskurður í lögbanns- málinu enn ókominn „DÓMARINN, sem hefur með mál- ið að gera hefur í raun ekkert látið frá sér fara og því er staða málsins óbreytt," sagði Sigfús Erlingsson, framkvæmdastjóri vestursvæðis Flugleiða í New York, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir því hvort dómur hefði verið felldur í lögbannsmáli bandarískra flugfé- laga við banni flugmálayfirvalda f New York við flugi á vélum yfir ákveðnum hávaðatakmörkunum eft- ir 20. júlí sl., en vélar Flugleiða fylla þennan flokk. Sigfús sagði að menn gætu í raun ekkert annað gert en beðið eftir úrskurði dómarans og því héldu Flugleiðir að sjálfsögðu sínu striki, þar til annað kæmi í ljós. Aðspurður um stöðu mála sagði Sigfús, að bókanir hefðu tekið vel við sér síðustu 2-3 vikurnar frá New York og væru góðar á næst- unni. Hvað flugið um Chicago varðar, þá hefði það gengið mjög vel síðustu mánuði. Mjög aukin samkeppni leigufélaga út úr New York hefði hins vegar gert ákveðin óskunda og ekki væri séð fyrir endann á þeirri samkeppni. Sigfús Erlingsson sagði að aðal- keppinautar Flugleiða undanfarin misseri, Capitol og Metro, væru ennþá á markaðnum, en hins veg- ar væru félögin veikari en áður. Þau gerðu sér hins vegar far um að vera með mikil undirboð, sem kæmi niður á Flugleiðum. Maður ákærður fyrir kynferðisafbrot RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á hendur manni fyrir kyn- ferðisafbrot framin gagnvart þremur stúlkubörnum öllum fæddum 1969. Afbrotin áttu sér stað haustið 1982, en ákæran er gefin út 16. maí í vor. Afbrotin eru talin varða við 200 gr. alm. hegningarlaga 1. mgr., sem seg- ir að hver sá sem eigi samræði við börn yngri en 14 ára, skuli sæta fangelsi í allt að 12 ár. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi frá 8.-22. desember í vetur að kröfu Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. Þegar gæsluvarðhaldi lauk gerði RLR kröfu um áframhald- andi gæsluvarðhald og var það byggt á 67. gr. laga um meðferð opinberra mála 1. og 5. tl., um að hætta sé á að sakborningur tor- veldi rannsókn máls annars vegar og hins vegar um að hætta sé að að sakborningur haldi brotum áfram, þá sé heimilt að halda hon- um í gæsluvarðhaldi. Sakadómur synjaði um framhaldsgæsluvarð- hald. Úrskurðurinn var ekki kærð- ur til Hæstaréttar. ítalskt herskip heimsækir Reykjavík færir hingað fihnu frá leiðangri Balbos ÍTALSKT beitiskip, Caio Duilio, kemur í heimsókn til Reykjavíkur fostudaginn 12 ágúst. 619 menn eru á skipinu, þar af rúmlega 100 sjóliðsforingjaefni. Tilheyrir skipið Miðjarðarhafsflota ftala, en þrjá mánuði á ári er það notað til æf- inga fyrir sjóliðsforingjaefni. Skip- ið hefur að undanförnu verið f heimsókn í Þýskalandi, Finnlandi og Svíþjóð. Eins og menn muna kom hér í sumar flugleiðangur liðsfor- ingjaefna ítalska flughersins, til að minnast hins mikla flugleið- angurs Balbos sem farinn var fyrir fimmtíu árum. í viðræðum sem Ragnar Borg vararæðis- maður ftalíu átti við flugleið- angursmennina kom í ljós, að líklegast væri til á Ítalíu kvik- mynd frá för Balbos. Filman er nú fundin og verður send hingað með ítalska herskipinu. Vonandi gefst landmönnum tækifæri á að sjá þessa gagnmerku mynd, sem sýnir hvernig Reykjvík var fyrir 50 árum, en fátt er um kvik- myndir frá þeim tíma. Myndin er tekin á 35 millimetra filmu. Balbo og menn hans fyrir utan Hótel Borg. ítalska herskipið Caio Duilio sem kemur hingað ( ágúst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.