Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 3

Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 3 Stefnir í töluverða hækkun á landbún- aðarvörum í haust „ÞAÐ ER Ijóst að ýmsar rekstrar- vörur hafa hækkað tölvert, sem ekki voru inni í verðlagningunni 1. júní, og það hlýtur að þýða nokkra hækk- un á landbúnaðarvörum í haust. En á þessu stigi málsins er ekki hægt að segja til um hve hækkanirnar verða miklar, því bæði er að útreikningar Ráðherranefnd til að undir- búa fjárlög Á ríkisstjórnarfundi fyrir rúmri viku var ákveðið að skipa ráð- herranefnd til starfa með fjár- málaráðherra, Albert Guð- mundssyni, að undirbúningi fjár- laga. í nefndinni eiga sæti tveir ráðherrar frá hvorum stjórnar- flokki. Af hálfu framsóknar- manna eiga sæti í henni þeir Hall- dór Ásgrímsson, sjávarútvegs- ráðherra, og Alexander Stefáns- son, félagsmálaráðherra, og af hálfu sjálfstæðismanna á Matthí- as Bjarnason, samgönguráðherra, sæti í nefndinni auk Alberts Guð- mundssonar, fjármálaráðherra. Nefndin mun hefja störf nú þegar og vinna almennt að undirbúningi fjárlagagerðarinnar. liggja ekki fyrir og ríkisstjórnin á eftir að fjalla um rnálið," sagði Jón Helgason landbúnaðarráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær, þeg- ar hann var inntur eftir því hvort búast mætti við miklum hækkunum álandbúnaðarvörum við næstu verð- lagningu, þann 1. október. Slátur og vinnslukostnaður reiknast inn í verðgrundvöllinn þann 1. október nk. en þessir liðir koma aðeins inn einu sinni á ári. Jón sagði að bæði af þessum sök- um og eins vegna hækkana á er- lendum rekstravörum væri vissu- lega tilefni til tölverðra hækkana í haust. Aðspurður um það hvort ríkisstjórin hefði einhverjar áætl- anir á prjónunum um það að draga úr þessum fyrirsjáanlegu hækkunum sagði Jón, að reynt yrði að taka tillit til hagsmuna allra aðila, bæði neytenda og bænda, en hins vegar lægi ljóst fyrir að bændum veitti ekki af að fá eðlilega hækkun nú, eins og ástandið væri. Varðandi mögu- leikann á auknum niðurgreiðslum sagði Jón, að um það hefði ekki verið tekin ákvörðun í ríkisstjórn- inni, en a.m.k. kæmi aðstoðin til bænda vegna harðindanna í vor allt að 15 milljónir króna, til lækkunar á kjarnfóðurliðnum við næstu verðlagningu. Skokkararnir við Kkálholtskirkju. Hveravellir yfirgefnir í dag Kjalarskokkurunum gengur vel og enn sem komið er eftir áætlun. Reikna skokkararnir með að vera komnir á Blönduós síðdegis á mánudag og hafa þeir þá lokið skokkinu á rúmri viku. Á þriðjudag héldu þeir úr Haukadal og hlupu að Bláfells- hálsi og daginn eftir í Kerl- ingarfjöll og fengu gott veður báða dagana. í Kerlingarfjöllum dvöldu þeir í góðu yfirlæti og voru til dæmis á kvöldvöku hjá Skíðaskólanum þar. Á fimmtu- daginn var svo lengsti áfanginn á leiðinni, 36 kílómetrar, er hlaupið var úr Kerlingarfjöllum á Hveravelli og voru menn farn- ir að þreytast enda veður óhag- stætt. Hinsvegar leið þreytan fljótt úr lúnum limum er skokk- ararnir komust í heitu laugina þar. í gær hlupu þeir svo í 2% tíma í ágætisveðri með vindinn í bakið og komust að Helgufelli, 27 kílómetra norður fyrir Hvera- velli. Skokkararnir sögðu þetta hafa verið erfiðan áfanga þar sem þeir voru þreyttir frá degin- um áður og höfðu átt erfiða nótt á þunnum dýnum í gamla Ferða- félagsskálanum. í dag fara þeir síðan frá Hveravöllum með bækistöð sína og reikna með að hlaupa frá Helgufelli 30 kíló- metra en fá gistingu í Blöndudal, þangað sem þeir hlaupa svo á morgun. Áætlað er að ljúka hlaupinu á mánudag með um 30 kílómetra áfanga niður á Blönduós. Tekjur hækka um 50% — útgjöld um 70%: Án ráðstafana stefndi í greiðsluþrot sveitarfélaga Hollendingar efna til hjól- reiðaralls hér næsta sumar HOLLENZKA hjólreiðasambandið hefur ákveðið að gangast fyrir miklu hjólreiðaralli hér á landi á næsta ári, að sögn llalldórs Sigurðssonar, sölu- og markaðsstjóra Arnarflugs, en fé- lagið hefur verið Hollendingunum innan handar. „Nokkrir forsvarsmenn hjól- reiðasambandsins hollenzka voru hér á dögunum til að kanna að- stæður og þeir voru mjög ánægðir. Þeir hafa nú tekið ákvörðun um að efna til ralls hringinn í kringum landið, eða um 1.500 km vegalend," sagði Halldór ennfremur. Halldór sagði aðspurður, að ekki væri hægt að fullyrða neitt um fjölda þátttakenda, en þó mætti álykta, að hingað til lands kæmu fjölmargir erlendir kepp- endur, auk þess sem telja mætti víst að íslenzkir hjólreiðamenn kæmu til keppni. Breskir ferðamenn sýkjast af taugaveiki: Ráðleggjum fólki að láta bólusetja sig Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi hafa ráðlagt ferðamönnum sem hyggja á ferðalag til Miðjarðarhafs- landa að láta bólusetja sig gegn taugaveiki. Ráðleggingin kemur í kjölfar þess að 18 Bretar, sem dvalið hafa á grísku eynni Kos í sumar, hafa sýkst af taugaveiki. — segir Magnús Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenzkra sveitarfélaga „ÞAÐ ER okkar skoðun að ef þessar ráðstafanir hefðu ekki verið gerðar (bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar) þá hefði stefnt í greiðsluþrot hjá Fjórum erlend- um stórmeist- urum boðið SKÁKSAMBAND íslands og Tafl- félag Reykjavíkur vinna nú að undirbúningi ellefta Reykjavík- urskákmótsins sem fara mun fram dagana 14. til 26. febrúar 1984. Fjórum stórmeisturum verð- ur boðið á mótið, tveimur Rússum, Dananum Bent jarsen og Hol- lendingnum Tin man. Heildar- verðlaun á mótii u verða 15.600 dollarar, sem dei ast niður á 10 efstu sætin. Rétt til þátttöku á Reykjavíkurskákmótinu eiga allir skákmenn sem r áð hafa 2300 ELO-stigum og allir íslenskir skákmenn með 2200 ELO-stig eða meira. Tefldar verða ellefu um- ferðir eftir svissneska kerfinu. 90—100 félög sagt upp samningum UPPSAGNIR samninga milli 90—100 félaga höfðu borist ríkis- sáttasemjara nú um mánaðamót- in, samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér á skrifstofu ríkissáttasemjara í gær. Það þýðir að samningar þess- ara félaga eru lausir frá og með 1. september. mjög mörgum sveitarfélögum á miðju sumri, síðsumars eða hausts," sagði Magnús Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenzkra sveitarfélaga, við Morgunblaðið í gær. „Þá hefðu útgjöldin vaxið langt umfram það sem sveitarfélögin reiknuðu með í sínum fjárhagsáætl- unum, sem var yfírleitt um 60% milli ára.“ Útsvör, sem eru helzti tekju- stofn sveitarfélaga, hækkuð að meðaltali um 58,2% milli áranna 1982 og 1983, og aðstöðugjöld, sem eru veltuskattur á atvinnurekstur, um 57,8%. Þessir tveir tekjustofn- ar eru frá 60 uppí 65% af heildar- tekjum sveitarfélaga. Á heildina litið hækka tekjur sveitarfélaga um tæplega 50% milli ára en út- gjöld — vegið meðaltal — um 70%, en hefðu hækkað mun meira, ef ríkisstjórnin hefði ekki gripið inn í, sagði Magnús ennfremur efnislega. Launaútgjöld hjá sveit- arfélögum eru nálægt 70% til 75% heildarútgjalda. Lögbundin og samningsbundin útgjöld sveitarfélaga, samkvæmt fjárhagsáætlun þeirra 1983, eru að meðaltali ekki langt frá 80% af rekstrartekjum, en 20% til eigna- breytinga, framkvæmda og vel að merkja afborgana af lánum. Fjár- magnskostnaður sveitarfélaga er víða mikill, ekki sízt þar sem dýr- ar stofnanir koma við sögu, eins og hitaveitur o.fl., og algengt að fjármagnskostnaður sveitarsjóð- anna miðað við rekstrartekjur ársins séu nálægt 15%, en dæmi eru um bæði lægra hlutfall og hærra, allt uppí 30%, sagði Magn- ús efnislega. I slíkum tilfellum er framkvæmdasvigrúm ekki mikið. Morgunblaðið sneri sér í gær til embættis borgarlæknis til að grennslast fyrir um það hvort ís- lenskir ferðamenn létu bólusetja sig. Heimir Bjarnason, aðstoðar- borgarlæknir, sagði að þáð hefði verið reglan um árabil að ráð- leggja fólki að láta bólusetja sig gegn taugaveiki ef það ætti erindi til landa þar sem veikin sprettur upp annað veifið. Mun ísland hafa nokkrar sérstöðu að þessu leyti, því ferðamenn á hinum Norður- löndunum til dæmis, láta yfirleitt ekki bólusetja sig gegn taugaveiki. Eru þeir að fá 'ann •? Dapurt í Breiödalnum Mbl. fékk þær upplýsingar í Edduhótelinu að Staðarborg í Breiðdalsvík, að 5 laxar væru komnir á land úr Breiðdalsá, þeir minnstu 4 pund, en einn lang stærstur, 16 pund. Fjórir laxanna voru dregnir í Beljanda, en einn ofar í ánni, allir ginu við slímugum maðkinum. Laxveiðin hefur því verið dauf á þessum slóðum svo ekki sé meira sagt og ekkert veiddist af laxi fyrr en sá fyrsti kom á þurrt 14. júlí. Síðast veiddist þarna lax 31. júlí. Eitthvað mun vera farið að sjást af laxi á þessum slóðum og hefur því gengið betur að selja veiðileyfi að undanförnu, en áin var sjaldnast fullskipuð leyfilegum veiðistangafjölda í júlí. Silungsveiði hefur verið góð og bætt dálítið upp laxleysið, á ann- að hundrað bleikjur hafa verið skráðar í veiðibókina að Stað- arborg og búast má við því að miklu meira hafi veiðst, því margir nenna ekki að bóka sil- unga. Lakara en í fyrra í Laugardalsá „Þetta hefur ekki gengið eins vel og síðasta sumar, en það þótti slakt miðað við það sem best gerist í Laugardalsá," sagði Sigurjón Samúelsson á Hrafna- björgum við ísafjarðardjúp í samtali við Mbl. í gær. Þá voru að sögn hans komnir 123 laxar á land, sem væri um 40 löxum minna en á sama tíma í fyrra. Sigurjón sagði, að mjög mikið vatn hefði verið í ánni í allt sumar, það mætti í raun segja að enn væri leysing og at þeim sök- um hefði verið erfiðara að eiga við veiðiskapinn en ella. „Þessi afli hefur veiðst jafnt og þétt og hollin hafa komist hæst í 22 laxa. Laxinn er svipaður að stærð að meðaltali og venjulega, svona 6—7 pund að jafnaði, en engir stórlaxar hafa komið á land enn sem komið er, þeir stærstu hafa verið nokkrir 14—16 punda fiskar. Drýgstu veiðistaðirnir hafa verið Affallið og Dagmálafljótið, en minna hefur veiðst á ýmsum hefð- bundnum stöðum, sennilega vegna hins mikla vatnsmagns," sagði Sigurjón. Áreigendur við Laugardalsá tóku eigi alls fyrir löngu í notk- un laxateljara og er hann við svokallaðan Sigurjónshyl, sem er næsti veiðistaður fyrir neðan Grímhólshyl, en hann er einn af kunnari veiðistöðum árinnar. í gær höfðu um 400 laxar „skráð sig“ í teljaranum. Laugardalsá rennur úr Laugarbólsvatni, en í það rennur önnur á og vatnslítil. Þar hafa veiðst 3 laxar til þessa, en í báðum ánum talsvert af góð- um silungi í bland við laxinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.