Morgunblaðið - 06.08.1983, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983
9
íOaígíhö tnáO
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 203. þáttur
Sérhljóðakerfið í nútímaís-
lensku er ekki eins margbrotið
og var í fornu máli. Einhljóðin
teljast átta, löng eða stutt eftir
atvikum, táknuð í stafsetningu
a, e, i, í, u, ú, ö, o. Tvíhljóðin
eru vanalega talin fimm, einn-
ig löng eða stutt eftir stöðu
sinni, táknuð ýmist með
tveimur stöfum eða einum í
bókum okkar nú: au, ey, ó, æ, á.
Mér hefur verið kennt að stutt
tvíhljóð séu nú að verða harla
fágæt og muni þess skammt að
bíða t.d. að orðið haust verði
hust og sagnirnar að hækka og
lækka verði hakka og lakka. Er
sá framburður reyndar þegar
til, og er alkunn sagan af nem-
endum sem töluðu með stórum
geðshræringum um félaga sína
sem ýmist hefðu verið hakkað-
ir eða lakkaðir á prófi. Hvort
tveggja hlutskiptið er vont,
þótt menn lifi fremur af hið
síðara.
Skrýtið má það kalla að ég
skynja mörg sérhljóðin, ekki
öll, í litum. A er t.d. hvítt, ú
rautt, u brúnt, ó blátt, æ
grænt, ö dökkgrátt og o svart.
Þetta kemur í huga mér og
skynjun við lestur bréfs frá
gömlum nemanda. Skúli
Magnússon í Reykjavík skrifar
mér einkar vingjarnlegt bréf,
hrósar þættinum fyrir skyn-
samleg og hófsamleg viðhorf,
svo og kímni. Síðan segir Skúli
að sig hafi þráfaldlega langað
til að leggja orð í belg varðandi
íslenska tungu á einhverjum
vettvangi, útvarpi eða blöðum,
en hingað til hafi ekki orðið af
því. Liggja honum þó ýmis efni
á hjarta, og nú hefur hann,
sem betur fer, látið verða af
því að skrifa mér, og vonast ég
eftir fleiri bréfum.
Fram kemur í bréfi Skúla,
að hann hefur undanfarið lesið
mikið eftir Alexander Jóhann-
esson prófessor, „sem er ein-
hver fremsti málfræðingur ís-
lenskur fyrr og síðar". Skal
hér hiklaust tekið undir það og
próf. Alexander nefndur í
heiðurs skyni. Hann var ekki
aðeins frábær rannsakandi,
heldur einnig frumlegur og
djarfur nýyrðasmiður.
Skúli vitnar í eina af fyrri
bókum Alexanders, Hugur og
tunga, Rvík 1926: „Því er þann-
ig varið, að ýms hljóð, sérhljóð
og samhljóð, virðast hafa sitt
eigið eðli. o og u eru miklu
dimmari en e og i og vælir ugl-
an því ú-ú, en lóan kveður dírr-
indí, og eins er um samhljóð. r
er titringshljóð, og allir heyra
núninginn, er Hannes Haf-
stein kveður um Valagilsá:
orgar í boðum, en urgar í
grjóti og margar sagnir í ís-
lensku virðast líkja eftir svip-
uðu hljóði: arga, garga, sarga,
urra, marra. En 1, n og m eru
lin hljóð og fer mjög vel á þeim
í mjúkum og mildum sönglög-
um og þessvegna kveður Gest-
ur undir lagi Járnefelts:
Kinu sinni svanur fagur
söng af kæti við loftin blá, —
enda hefir enginn Islendingur
kunnað að samræma eins vel
ljóð og lag einsog hann. Orð
þau, er enda á k, t eða p, tákna
stundum högg eða fall, t.d.
bump og orð þau, sem byrja á f
eða þ, eru harðari í sínu eðli en
þau, er byrja á b, d eða g.“
Hér leyfir umsjónarmaður
sér að stytta langa tilvitnun í
bók Alexanders, en síðan held-
ur Skúli áfram frá eigin
brjósti: „Menn taki eftir að
þessi þekkti málfræðingur rit-
ar einsog og þessvegna í einu
orði, einsog undirritaður, en
rífur þessi orð ekki sundur á
þann afkáralega hátt sem nú
tíðkast. Skai sú fullyrðing mín
rökstudd þótt síðar verði.“
Umsjónarmaður bíður þá
eftir þeim rökstuðningi áður
en hann hættir sér út á þann
hála ís að skrifa um næst-
mesta vanda íslenskrar staf-
setningar, eitt eða tvö orð.
Þá hendir Skúli á lofti upp-
hafsorðin í hinum tilvitnaða
kafla Alexanders og segir:
„Mér var kennt að „varið" í
sambandinu „því er þannig
varið" sé einhverskonar lin-
mæli fyrir „farið". Þetta skipt-
ir raunar engu máli. En hvað
segir Gísli um það?“
Gísla finnst þetta skipta
máli. Gísli heldur að Skúli hafi
að þessu leyti notið vondrar
kennslu og vonast til að hafa
ekki kennt honum þetta sjálf-
ur. Hvort tveggja er til, varið
og farið, í þessu sambandi. Ein-
hverju er svo varið (af verja),
eins og próf. Alexander segir.
Það er ekkert linmæli og engin
afbökun. Mér eða Skúla er hins
vegar á þann eða hinn veg far-
ið. Þannig er okkar far = eðli
eða hátterni.
Gefum Skúla orðið enn:
„En málfræðingurinn, sem
gerir sér ljósustu grein fyrir
ólíkum hljóm í u og i, ritar
ævinlega „hefir“ en ekki „hef-
ur“. Á þessu er reginmunur. í
bakstöðu rís i-ið tiginborið en
u-ið lumpast máttvana niður
einsog huppmikil dyrgja. Á
nítjándu öldinni skilst mér að
„hefir" hafi verið algengara en
„hefur". Samkvæmt lögmáli
sem frændi minn Jón prófess-
or Helgason hefir bent á ber sú
málvenja er síður skyldi jafn-
an hærri hlut frá borði. 1 sam-
ræmi við þá reglu hefir „hef-
ur“ nú svotil (í einu orði) út-
rýmt „hefur". Á þessum tveim-
ur orðmyndum er ekki munur
á „réttu" og „röngu". Hvort-
tveggja er „rétt“. En þar er
annar munur á. Munur á fögru
og miður fögru. Munur á reisn
og lágkúru."
Áður en umsjónarmaður
fjallar um tvenns konar beyg-
ingu sagnarinnar að hafa í
næsta þætti og hugsanlegar
skýringar á henni, ætlar hann
að leyfa Skúla Magnússyni að
ljúka máli sínu:
„Snúum oss að öðru.
Mig rekur ekki minni til
þess að sjónarmið Alexanders
hvað stíl varðar hafi fyrr rekið
á fjörur mínar. í góðum
kveðskap taka skáldin vitandi
vits eða ósjálfrátt — mig
grunar að svo sé oftar — tillit
til þessa lögmáls um hljóman
orða er Alexander hefir svo vel
lýst. Til óbundins máls virðist
engin slík krafa gerð. Þó sting-
ur hún upp kollinum þarsem
íslenzkur stíll er rismestur.
Mig minnir að skáldið hafi
sagt að árnar hétu Berá, Bergá
og Berjá (Gísli leiðréttir mig
þá). Gísli og ýmsir fleiri eru
afar-hrifnir af upphafinu að
Fegurð himinsins. Mikið af
þeirri fegurð hygg ég að megi
þakka að þessu lögmáli Alex-
anders er þar hlýtt.
Það er með öðrum orðum
síður en svo nógsamlegt að
málið sé „rétt“, viðeigandi orði
beitt í hinu rétta samhengi, að
ekki sé stöðugt klifað á sama
orðinu (t.d. allt ,,það“-staglið),
að líkingar séu auðugar, við
hæfi og gagnsæjar. Það vantar
enn herzlumuninn. Enn er í
nokkru vant. Eigi stíllinn að
verða full-góður verður kliður
orðanna að bergmála það hug-
arástand er skapa skal, endur-
spegla þær kringumstæður
sem lýst er. Gestur velur
kliðmjúk orð er hann kveður
um hinn mjúkláta svan. Hann-
es beitir á hinn bóginn orðum
er titra og ískra er hann setur
á svið foráttu vatnavexti og
ólgandi gný Valagilsár.
Með þökk fyrir birtinguna.“
Sumarbústaður til sölu
Staðsettur á mjög fallegum staö ca. 50 km frá
Reykjavík.
Uppl. í síma 42481. Skipti möguleg á öðrum eignum.
ANPRO
Hólahverfi
4ra herb. íbúö með bílskúr viö
Súluhóla. Verö 1600—1650
þús.
Kópavogur
Sérhæð í Skólageröi meö bíl-
skúr. Verö 1350 þús.
Einbýli — Einbýlishús
130 fm einbýlishús viö Furu-
brekku í Kópavogi meö 30 fm
einstaklingsaöstööu á jaröhæö
og bílskúr ásamt stórri lóö.
Verð 2,6—2,7 millj.
Seltjarnarnes
Efri hæö í eldra húsi, 110 fm.
Þarfnast standsetningar. Verö
1200 þús.
Raðhús
Rúmlega fokhelt raöhús. 210 fm
við Myrarsel ásamt 54 fm tvö-
földum bilskúr. Húsiö er rúm-
lega fokhelt. Verð 2,3 millj.
Sérhæð
3ja herb. sérhæð meö bílskúr
Kóp. Verö 1550 þús.
Makaskipti
4ra—5 herb. íbúð í Hólahverfi
eöa Seljahverfi óskast í skiptum
fyrir rúmlega fokhelt raöhús.
Makaskipti
Falleg 4ra herb. íbúð meö góðu
útsýni á 2. hæö við verslunar-
kjarna i Hraunbæ í skiptum fyrir
góöa 3—4ra herb. íbúð á jarö-
hæð með bílskúr.
Skrifstofuhúsnæði
Gott skrifstofuhúsnæöi í lyftu-
húsi meö frábæru útsýni. Staö-
sett miðsvæðis. Til sölu strax
meö góöum kjörum og á sann-
gjörnu verði. Uppl. á skrifstofu.
FASTEIGNASALA
Bolholti 6, 5. hæð.
Símar 39424 og 38877.
Magnús Þóröarson hdl.
Snorri F. Welding.
usaval
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI 24647
Bujaroir
til sölu í Arnessyslu og viö Hrúta
fjörö. Skipti á íbúöum í Reykja-
vík æskileg.
Jörð — Útræöi
Til sölu góð bújörö á sunnan-
veröu Snæfellsnesi. Á jöröinni
er íbúðarhús, 6 herb., 150 fm.
Fjárhús fyrir 200 fjár og hlööur.
Tún 14 ha. Áhöfn og vélar geta
fylgt. Útræði frá Hellnum. Æski-
leg skipti á íbúö á Akranesi eða
bein sala.
Einbýlishús
Hef til sölu stórt, nýlegt, fallegt
einbýlishús á fögrum útsýnis-
stað í Breiöholti. Tvöfaldur bíl-
skúr. Ræktuö lóö og einbýlis-
hús í Smáíbúðahverfi. 6 herb.
Bílskúr.
Raðhús
í Breiðholti, 6 til 7 herb. Bílskýl-
isréttur. Útsýni.
Sérhæð — Bílskúr
Viö Safamyri, 6 herb. íbúð á 1.
hæð. Sér hiti, sér inngangur.
Svalir, bílskúr.
Laufásvegur
3ja til 4ra herb. ibúö í tvíbýlis-
húsi. Sér hiti, sér inngangur
ásamt 27 fm vinnurými.
3ja herb. íbúðir
við Skarphéöinsgötu, Blikahóla,
Háaleitisbraut og Barónsstíg.
íbúöin viö Barónsstig er í nýju
húsi.
2ja herb.
íbúöir viö Hraunbæ, Vesturberg
og Snorrabraut.
Einstaklingsíbúð
í kjaliara viö Mánagötu, sem er
stofa, eldhús, snyrting meö
sturtu, sér geymsla og eignar-
hlutdeild i þvottahúsi. Sér hiti.
Laus strax.
Selfoss
Hef til sölu 2 einbýlishús á Sel-
fossi, 5 herb. og 6 herb. Bílskúr
er með báöum húsunum.
Stokkseyri
Einbýlishús, 5 til 6 herb. Stór
lóð. Söluverð 650 þús.
Mosfellssveit
Raðhús, 6 herb. Bílskúr.
Helgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali.
Kvöldsími 21155.
28611
Opiö 1—3
Bollagarðar
Raðhús á tveimur hæöum
ásamt innb. bilskúr, ca. 185 fm.
Vönduð eign.
Rauðihjalli
Endaraöhús á tveimur hæðum
með innb. bílskúr, samtals um
220 fm. Fallegur garöur. Skipti
á minni eign koma til greina.
Ákv. sala.
Torfufell
Fallegt endaraöhús, ca. 140 fm.
Vandaður bílskúr. Gæti losnaö
fljótlega.
Austurberg
4ra herb. ca. 100 fm vönduö
íbúð á 4. hæö ásamt bílskúr.
Ákv. sala.
Sumarbústaður
við Meöalfellsvatn. Mjög vand-
aöur, með A-lagi. Bátaskýli og
sauna. Veiöileyfi fylgir.
Samtún
2ja herb. rúmgóð íbúð í kjallara.
Nýleg eldhúsinnrétting og nýleg
tæki á baöi. Nýtt teppi.
Auðbrekka
115 fm efri sérhæö ásamt bíl-
skúrsrétti.
Fífuhvammsvegur
Neöri sérhæö, ca. 120 fm,
ásamt tvöföldum bílskúr. Góö
lóð. Ákv. sala.
Kaplaskjólsvegur
5 herb. íbúö á tveimur hæöum i
fjölbýli. Snyrtileg eign.
Rauðarárstígur
3ja herb. ca. 70 fm íbúö á 1.
hæð. Herb. í risi fylgir.
Reynimelur
2ja herb. 65 fm vönduö íbúð á
2. hæö i fjölbýlishúsi. Ákv. sala.
Hús og Eignir,
Bankastræti 6
Lúðvík Gizurarson hrl.,
Heimatímar 78307 og 17677.
@il£
Opiö frá 1—-3
Grundarstígur
2ja herb. ca. 50 fm ibúð á 1.
hæð. Ný máluö. Ný teppi. Nýtt
baðherb.
Bræðratunga
2ja herb. ósamþykkt ibúö á
jarðhæð í tvíbýli.
Kóngsbakki
2ja herb. ca. 60 fm falleg íbúö
á 1. hæö.
Goðatún
3ja herb. ca. 56 fm á jaröhæð
með bílskúr.
Kleppsvegur
4ra til 5 herb. 117 fm á 3. hæö
efstu með einstaklingsibúö í
kjallara, góö herb., stór stofa.
Sér þvottahús innaf eldhúsi.
Álfhólsvegur
80 fm á 1. hæð ásamt 25 fm
sérherb. í kjallara.
Melgerði Kóp.
3ja—4ra herb. 86 fm ibúð á
efri hæð í tvíbýti. Nýr 37 fm
bilskúr.
Njarðargata
Hæö og ris aö gr.fl. 68 fm.
Hæöin er endurnýjuð, nýtt
eldhús og parket. Risiö er
óinnréttaö og gefur mikla
möguleika.
Arkarholt Mos.
Einbýli 143 fm + 43 fm bílskúr.
Smekklegar innréttingar, gott
útsýni.
Háagerði — Raðhús
Ca. 153 fm á tveimur hæðum.
Niöri eru 2 svefnherb., 2 stof-
ur og eldhús. Uppi er 2 rúm-
góö svefnherb., baöherb. og
þvottaherb. Sér inng. á efri
hæö.
Tjarnarbraut —
Einbýli
160 fm á tveimur hæöum.
Möguleiki á tveim íbúöum.
Góöur bilskúr. Ræktuö lóö.
MARKADSÞfONUSTAN
INGÓLFSSTRÆTI 4, SIMI 26911
Róbert Arni Hrelöarsson hdl.
Halldór Hjartarson
Anne E. Borg.
I J