Morgunblaðið - 06.08.1983, Síða 12

Morgunblaðið - 06.08.1983, Síða 12
12 Tvær svítur eftir Bach Tónlist Jón Ásgeirsson Gunnar Kvaran hefur sent frí sér, að því er undirritaður veit best, sína fyrstu hljómplötu og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en leikur tvær fyrstu sólósvíturnar eftir Bach. Gunnar er mjög góður selló- leikari og er leikur hans á þess- um erfiðu verkum vandaður og samkvæmt texta höfundarins. Það er sagt að í musteri drott- ins séu mörg herbergi og það má nota þessa líkingu eins við tón- list Bachs, því hún rúmar marg- víslegar tilfinningar og enginn getur sagt um hversu rétt sé flutt, né heldur um það hvað sé rangt, jafnvel þó reynt sé að grafa upp þau lögmál, er hugs- anlega voru í gildi á tímum höf- undarins. Það sem einkennir nokkuð leik Gunnars er þrung- inn tónn, kraftmikil spila- mennska og alvarleiki, allt að því dapurleiki. Prelúdian í fyrri svítunni er t.d. mjög hæg og þungbúinn í framsetningu Gunnars. Það er léttari blær yfir seinni þáttunum, bæði Cour- ante- og Menúett-þáttunum. í seinni menúettinum er leikur Gunnars mjúkur og feikilega fallegur. í annarri svítunni er mun meiri alvöruþungi en þeirri fyrri, sem vel er hægt að deila um hvort vel eigi við, nema þá í Sarabande-þættinum, sem er áhrifamikill í túlkun Gunnars. Það má vera að gæta mætti meiri glettni í þessum svítum, því hér er um að ræða danstón- list þó gömul sé. Hvað sem því líður er leikur Gunnars Kvaran persónulegur, þungbúinn og al- varlegur og víða rísandi stór í átökum við mikilfenglega tónlist meistarans. Hljómplata þessi er gefin út af bókaútgáfu kirkjunnar, Skál- holti, til ágóða fyrir Hjálpar- stofnun kirkjunnar og eins og segir á plötuumslagi „er hér á ferðinni frábær leikur gefandi listamanns". Þetta eru orð að sönnu, því Gunnar Kvaran gefur sjálfan sig í þessu verki, ber- skjaldar sig, er heiðarlegur og óvæginn að láta hug sinn uppi og fela ekki neitt eða reyna að blekkja áheyrendur með tækni- sýningu, sem þó er sannarlega hægt í þessum verkum. Unnend- ur góðrar tónlistar eiga þarna skuld að gjalda, bæði kirkjunni og tónlistinni í landinu, sem að- eins verður greidd með því að styðja svo við, að útgáfa sem þessi skili hagnaði. Þá mættu menn eiga von á öðru efni á hljómplötum í framtíðinni en einlita skemmtiefnaframleiðslu og hugsanlega eiga eftir að vita af jafn mikilli grósku í útgáfu alvarlegrar tónlistar og nú á sér stað í hljómleikahaldi. Upptöku annaðist Sigurður Rúnar Jóns- son sem er vaxandi maður á sviði upptökutækni. Fyrir undir- ritaðan er nokkuð mikil hljómg- un (resónanss), sem líklega er nokkuð hljómsvarið í Fossvogs- kirkju. Þessi mikla hljómgun var við efri mörkin, einkum í hröðu köflunum, svo að við liggur að tónlínan renni saman í eitt. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 Froskur í hjólastól Leiklist Jóhann Hjálmarsson Kíkisútvarpið hljóðvarp: UPPGJÖRIÐ eftir Gunnar Gunnarsson. Leikstjóri: Sigmundur Örn Arn- grímsson. Leikendur: Guðmundur Magnússon og Edda Þórarinsdóttir. Tónlist: Karólína Eiríksdóttir. Klarínettuleikur: Öskar Ingólfsson. Uppgjörið eftir Gunnar Gunn- arsson var samið í tiiefni árs fatl- aðra 1981. Leikritið mun einkum hafa verið flutt í skólum og stofn- unum, en fyrstu kynni mín af því er útvarpsgerðin lítillega breytt. Uppgjörið er kennsluleikrit, á að vekja til umhugsunar og gerir það með öfgalausum hætti. Það lýsir kynnum og ástum fatlaðs manns, fyrrverandi sjómanns, og konu sem stundar nám í háskóla, er fráskilin og á barn sem býr hjá föður sínum. Spurning sem oftar en einu sinni er borin fram í leik- ritinu er: „Hvort var það Rómeó eða Júlía sem var í hjólastól?" Guðmundur Magnússon, hinn snjalli leikari, sem verið hefur fatlaður í sex ár leikur sjómann- inn Bárð, konuna Hallgerði leikur Edda Þórarinsdóttir. Það sem ger- ir þetta leikrit geðfellt áheyrnar eru ekki einungis heillavænleg efnistök höfundar heldur mjög góður samleikur þeirra Guðmund- ar og Eddu. Allt var eins og áreynslulaust og eðlilegt í flutn- ingi þeirra. Bárður segir á einum stað: „Maður á að lifa, framkvæma, ekki láta draumana úldna inní sér.“ Hann vill ferðast um landið, njóta náttúrunnar, renna fyrir sil- ung í fylgd konunnar sem hann elskar. Hallgerður dregst að Bárði, en á í erfiðleikum með að gera upp við sig hvort hún á að taka upp náið samband við „frosk í álögum", þ.e.a.s. mann sem er lamaður. Eftir langa umhugsun kemur hún á fund hans og áheyr- andinn skilur að sambúð þeirra er hafin. Ef við gleymum því alveg að Gunnar Gunnarsson er að lýsa ástum lamaðs manns og venju- legrar fráskilinnar konu erum við engu að síður sátt við það með hvaða hætti hann lýsir kynnum og samdrætti þeirra. Þetta er fyrst og fremst ástarsaga (að vísu til að læra af) og við skiljum að karl og kona eiga fleira en lítið sameigin- legt þrátt fyrir hinn ytri búnað sem aðgreinir þau í augum sam- borgaranna. Leikritið um uppgjörið er dálítil dæmisaga sem nýtur hógværðar í frásagnarmáta. Flutningur þess í útvarpi tókst. Gallerí Grjót Að Skólavörðustíg 4A hefur ver- ið opnaður sýningarsalur sem sjö listamenn standa að. Húsnæðið er lítið, en mjög vistlegt og er þetta verðugt framhald þeirrar starfsemi er áður var rekin á þcssum stað í langa tíð og flestir Reykvíkingar munu kannast við. Sjömenningarnir eru þeir Magnús Tómasson, Örn Þor- steinsson og Ragnheiður Jónsd- óttir, myndlistarmennirnir og listhönnuðirnir Hjördís Gísla- dóttir, gullsmiður, Malín Ör- lygsdóttir, fatahönnuður, Ófeig- ur Björnsson, gullsmiður og Jón- ína Guðnadóttir, leirkerasmiður. Þetta er fjölbreytt og ósamstæð blanda en verður þó í sjálfu sér samstæð fyrir vandað handverk hvers og eins. Starfsemin er svipuð og hjá Gallerí Langbrók við Lækjargötu, en munurinn er þí sá, að bæði kynin standa hér að fyrirtækinu. Það er rétt og skylt að vekja athygli á þessum nýja sýn- ingarsal því að hér er um mjög heilbrigða starfsemi að ræða, at- hyglisvert framtak og hressilega sjálfsbjargarviðleitni. Eins og ég hef margoft bent á, þá skortir hér fullkomlega sýningarsali, er hafa það að aðalmarkmiði að miðia myndlist og hafa listaverk í umboðsölu. Engin stofnun er til er sér um dreifingu myndlistar um landið svo að hver og einn hefur hingað til orðið að treysta á sjálfan sig sé hann þá ekki svo gæfusamur að hafa umboðs- mann eða velunnara, sem sér um þessa hlið málsins. Það er til- tölulega nýtt fyrirbæri hér, að listamennirnir sjálfir myndi hópa til að koma list sinni á framfæri með stofnun sölumiðl- unar. Hér er þó ekki beinlínis um sýningarhúsnæði að ræða í al- mennri merkingu heldu skipta sjömenningarnir reglulega um verk sín og fólk getur tekið verkin heim um leið og þau eru keypt. Þannig er ekki gert ráð fyrir sérsýningum utanaðkom- andi listamanna, að því að mér skilst. Það er menningarlegt yfir- bragð er blasir við er inn er kom- ið og þeim til mikils sóma, er hér eiga hlut að máli. Er það von mín að starfsemin blómstri og vaxi með árunum. Sjömenning- unum óska ég til hamingju með framtakið. Hvað segja foreldrar? Bókmenntír Jenna Jensdóttir Ása, Jón, Agnarögn texti: Grethe Fagerström Gunilla Hansson myndir: Gunilla Hansson þýðing: Helga Guðmundsdóttir Bjallan hf. Reykjavík 1982 Þetta er dæmigerð myndasaga með stuttum textum í samtals- formi er gefa skýrt til kynna hvað myndunum ber að túlka. f formála gerir þýðandi grein fyrir efni bókarinnar og leggur áherslu á mikilvægi þess að börn kynnist öllu því er snertir kynlíf og athafnir þar að lútandi sem gerst strax í bernsku. Tekið er fram að myndir auðveldi skilning — jafnvel ólæsum börnum. Undir- titill bókarinnar er „bók um að vera saman". Síðustu orð formálans eru prentuð með stórum stöfum og hljóða svo: „EN ÞAÐ VARÐAR MIKLU AÐ BÓKIN SÉ FYRST LESIN MEÐ EINHVERJUM FULLORÐNUM.“ Börnin Ása og Jón búa í blokk með foreldrum sínum. Von er á fjölgun í fjölskyldunni og nú eru öll tildrög hennar rakin nákvæm- lega fyrir börnunum. Samhliða fræðslunni eru myndir teiknaðar fyrir þau af hinum furðulegu líf- færum sem viðhalda mannkyni. Þau eru sýnd að verki — ris þeirra og fall mjög rætt og áhrifin: „— það er mjög gott“. Mikilvægt er einnig að kunna sem flest heiti á viðkomandi líf- færum. Og litlum lesendum gefið færi á að spreyta sig: „Jón og Ása segja typpi og rifa. Aðrar fjöl- skyldur nota kannske önnur orð t.d. tittlingur og píka. Hvað notar þú?“ Eigi nenni ég að ræða þessa bók frekar. Þó ýmislegt gott sé þar að finna er hún í sjálfu sér lík þess- um „kynfræðslubókum" sem hafa verið að skjóta upp kollinum í skólunum fyrir litlu krakkagreyin, í nafni kynfræðslu. Bókin minnir mig að ýmsu ieyti á matreiðslubók. Enda er í báðum tilfellum höfðað til sterkustu eðl- islægu hvata mannsins. „Matur er mannsins megin". Sá sem lætur eftir sér græðgi í mik- inn og góðan mat strax í bernsku greiðir jafnan fyrir með útliti sínu og stundum heilsu. Nú er mikil vakning uppi gagnvart mataræði og margþættum áhrifum, sem óhóf I þeim efnum leiðir af sér. Sérlega eftirtektarvert er að í þeirri fræðslu, sem nú er áberandi í þjóðfélagi okkar, felst talsverð sjálfsögun og siðfræði hins skyni gædda manns. Ekki verður séð að sama máli gegni um þessar „kynfræðslubæk- ur“ í skólunum. Þar er aldrei nefnt að sjálfsögun, kærleikur og sið- fræði eru meginþættir í samlífi fólks — ekki sízt hvað kynlíf snertir. Það er ekki út í loftið að nafn- kunnar konur biðja um kyn- fræðslu í skólum. Ástandið í þess- um málum hefur sagt til sín í þjóðlífi okkar. Það er sitthvað „kynfræðsla" og kynfræðsla. Ef rétt er að fræðslu staðið held ég að ekki þurfi að óska eftir sjálfsölum á götuhornum með getnaðarvarnir fyrir krakka á unglingsaldri. Snjáðar stuttbuxur Hljóm- plotur Sigurður Sverrisson. Ýmsir flytjendur Á stuttbuxum Steinar hf. Sumar safnplötur eru varla Jæss virði að eytt sé á þær púðri. Ef ekki væru á þessari skífu tvö ágæt íslensk lög veit ég hrein- lcga ekki hver útkoman hefði orðið. Erlendu lögin 12 er nefni- lega hvert öðru slakara og ég held ég minnist aldrei eins dap- urrar safnplötu og hef ég þó heyrt þær nokkrar. Það leikur enginn vafi á því í mínum huga, að Afi í flutningi Bjarkar Guðmundsdóttur og Björgvins Gíslasonar og Sísí fríkar út með Grýlunum eru topparnir á plötunni. Breytir þar engu um þótt samferðamennirn- ir séu á borð við Culture Club, Bad Manners, Human League o.fl. Svei mér þá ef það kom mér bara ekki í leiðindaskap að hlusta á þennan óföngulega sam- setning. Hann hefst á Church of the Poison Mind með Culture Club og það er sosum þokkalegt lag. Síðan kemur útkeyrð lumma með Bananarama, þá Tracey Ullman með Breakaway og halda mætti að það væri á vit- lausum hraða — slíkur er asinn. Á eftir Afa Bjarkar fylgir önnur lumman í flutningi Belle Stars og Bad Manners eru talsvert frá sínu besta í næsta lagi. Kissing the Pink ljúka fyrri hliðinni á þann hátt, að maður vill helst gleyma henni sem fyrst. Human League opnar síðari hliðina og Fascination þeirra er þokkalegt lag. Langt frá þeirra besta — rétt eins og Culture Club hinum megin. Blue Zoo kemur þá með langbesta fram- lag þeirra erlendu í formi lags- ins Forgive and Forget og síðan troða Grýlurnar upp. Afgangur- inn er þreyttur í víðtækasta skilningi þess orðs. Vinir mínir í Icehouse megna ekki einu sinni að lappa upp á þennan haug af 2. og 3. flokks lögum. Nei, og aftur nei. Ég vona að á vegi mínum verði ekki önnur jafn leiðinleg safnplata I bráð. Burt með þennan beiska bikar. Þetta er útsölutónlist upp til hópa og það má þó allténd segja safnplötunni til hróss að menn fá tónlistina á útsöluprís. Það er vel við hæfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.