Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 13 Kórsöngur Tónlist Jón Asgeirsson Kór St. Nikolai-kirkjunnar í Hamborg hefur undanfarnar vikur haldiA tónleika víða um landið og nú síðast í Reykjavík í Háteigs- kirkju. Auk kórsins kom fram strengjakvintett og flutti sérstak- lega Konsert eftir Vivaldi og And- ante eftir Reger, en var auk þess kórnum til aðstoðar við flutning á verkum eftir Bach. Kórinn í þessari ferð er ekki fjölmennur, en hver söngfélagi vel fær og kunnandi, svo að kór- inn í heild er góður, enda og auð- heyrilega vel þjálfaður undir stjórn Ekkehard Richter. Tón- leikarnir hófust á fimm radda mótettu eftir Kuhnau, sem var forveri Bachs í Leipzig, gott tónskáld og meðal þeirra fyrstu til að semja eitthvað sem kalla mætti sónötu fyrir einleikshljóð- færi. Annað verkið var sexradda mótetta eftir snillinginn Hein- rich Schutz. Jóhann Sebastian Bach var ekki fyrstur til að semja góða kirkjutónlist í Þýskalandi, því þar í landi höfðu margir náð langt í gerð góðrar kirkjutónlistar og er nú óðum að vakna áhugi fyrir tónlist þeirra er lögðu grunninn að reisn Bachs gamla. Strengjakvintett lék síð- an konsert í A-dúr eftir Vivaldi mjög þokkalega, en ekki mikið meira. Eftir Bach flutti kórinn tvö verk og lokaþáttinn úr Jesus bleibet meine freude. Fyrsta verkið var Lobet den Herrn, alle Heiden, fjórradda mótetta og seinna verkið kantatan Der Herr denket an uns fyrir sópran- og alt-einsöng, kór og strengi. Þá söng kórinn þrjár fallegar mót- ettur eftir Reger og í rauninni lauk tónleikunum með þýsku messunni eftir Johann Nepomuk David. Söngur kórsins reis sannarlega hátt í flutningi tón- listarinnar eftir Bach, Reger og David og var t.d. þýska messan mjög glæsilega flutt. Einn er sá galli við heimsókn slíkra kóra sem þessa, að þeir eru oftast á ferð að sumarlagi, svo að sól- sveltir Islendingar eru út og suð- ur og hvergi nærri er góða gesti ber að garði. Það ætti að vera minna mál að fá slika kóra i heimsókn í skammdeginu, því þá er landinn þolinn i hlustun á góða tónlist og ekki víst nema slík ferð borgaði sig í kostnaði, fyrir utan það að nýtast fólkinu í landinu betur til menntunar og gleði. Svartfótur slakar á DLia Sigurður Sverrisson BUckfoot Siogo Atco/Steinar hf. Mér varð ekki um sel er ég heyrði að Ken Hensley, fyrrum hljómborðsleikari Uriah Heep, hefði gengið til liðs við suður- ríkjasveitina Blackfoot. Ég skildi ekki þá og skil ekki enn hvaða erindi hann á í þessa sveit. Sann- ast sagna óttaðist ég mest, að fyrir áhrif hans yrði flokkurinn að gjalti sakir ofnotkunar hljómborða. Þessar efasemdir mínar hafa að vissu leyti komið á daginn. Hljómborðsleikur Hensley er ekki á neinn hátt til bóta, en á hinn bóginn má líka segja að áhrif hans eru ekki svo alger, að þau skemmi heildarsvipinn á hljómsveitinni. Einu hefur hann þó komið til leiðar og er þaö lítið fagnaðarefni. Blackfoot er smám saman að hægja ferðina og slíp- ast niður. Ég ætla bara að vona, að hann hverfi á braut áður en þessir suðurríkjakóngar verða orðnir að einhver REO Speed- wagon fyrirbrigði. Siogo hefst á laginu Send Me An Angel, sem þegar hefur orðið vinsælt, jafnt vestanhafs sem austan. Þar eru áhrif Hensley greinileg mjög. Lagið er ekki slæmt, en engan veginn það besta á plötunni. Crossfire fylgir svo á eftir og bætir um betur. Heart’s Grown Cold nefnist Rick Medlocke, söngvari Black- foot, Al Nalli, „pródúser" og nýi maðurinn, Ken Hensley. þriðja lagið og er hið eina, sem sveitin á ekki. Það er samið af Zal Cleminson og ég minnist þess að hafa heyrt það á sólóplötu Dan McCafferty, söngvara Naza- reth, sem út kom 1975 eða '76. Fantalega góð útsetning í þetta ssiptið og sannkallað rokkgítar„- sánd“ á ferð. We’re Going Down er næst og er það þokkalegt lag, en lokalag fyrri hliðparinnar, Teenage Idol. er þrælgott. Seinni hliðin er að mínu mati miklu sterkari heild og henni lýkur á sannkölluðu suðurríkja- búgíi „a la Blackfoot". Linnulaus keyrsla í laginu Drivin’ Fool, sem býður upp á allt. Annars er rétt að vekja athygli á sérdeilis nett- um trommuleik Jackson „Thund- erfoot" Spires á B-hliðinni. Þar kemur vel í ljós hversu nettur og melódískur trymbill hann er þótt kraftinn skorti hann aldrei sé hans þörf. Hann er og liðtækur í lagasmíðunum. Nú getur þú eignast einbýlishús — eftir þínum óskum — án þess að fá magasár *LG SNORRAHÚS ....jry •• heitir það Yve tvV- Nýtt 80 m2 parhús Húsin eru byggð samkvæmt nýjustu kröfum Rannsóknarstofu byggingahðnaðarins og Hiisnæðismálastofnunnar. LÍTIÐ EDNTBÝLISHÚS — fyrir unga sem aldna Gert er ráð fyrir að byggja megi garðstofu sem hægt er að nýta sem stækkun við stofu, gróðurhús með heitum potti ofL Því ekki að eignast slíkt hús 1 rólegheitum á næstu árum? Áætlað verð: 1. Uppsett, fullfrágengið að utan á þínum grunni 107 m2 kr. 490.000 2. Uppsett, fullfrágengið að utan. Tilbúið undir tréverk að innan. Með raflögn, vatnslögn hitalögn ásamt ofnum. Gróflöfnuð lóð. Staðsett á lóðum okkar við Grafarvog og er verð lóðar og grunns innifalið. 107 m2 kr.2.120.000 PARHUS Kynnið ykkur vel þá miklu möguleika sem þessi hús bjóða uppá. Kjörið hús til að aðstoða unga fólkið til að koma sér þaki yfir höfuðið. Reiknað fyrir tvær fjölskyldur en má breyta eftir efnum og ástæðum. Áætlað verð: 1. Uppsett, fullfrágengið að utan á þínum grunni. íbúð A 120 m2 kr. 581.000 íbúð B 77 m2 kr. 373.000 íbúð A 80 m2 kr. 450.000 íbúð B 80 m2 kr. 450.000 2. Uppsett, fullfrágengið að utan. Tilbúið undir tréverk að innan. Með raflögn, vatnslögn hitalögn ásamt ofnum. Grófjöfnuð lóð. Staðsett á lóðum okkar við Grafarvog og er verð lóðar og grunns innifalið. íbúð A 120 m2 kr. 1.900.000 íbúð B 77 m2 kr. 1.200.000 - íbúð A 80 m2 kr. 1.550.000 íbúð B 80 m2 kr. 1.550.000 Verð húsanna er áætlað og miðast við vísitölu byggingarkostnaðar HAGSTÆÐIR SAMNINGAR 1 m 1983 1. 10% við samning Þú velur húsagerð og ákveður hvernig og hvenær þú vilt fá húsið afhent. 2. 40% fram að afhendingu Þegar greidd hafa verið 40% af andvirði samnings færð þú húsið afhent. 3. Eftirstöðvar á 18 mánuðum. Við aðstoðum þig við að fá Húsnæðis- málastjórnarlán. =_uLL£fcj L i .T r-1. i ...jdi I NY SPARNAÐARLEIÐ 5000 KR. MANAÐARGREIÐSLA Þetta er lámarksgreiðsla og er miðuð við afhendingu eftir 1-5 ár eða þar til 40% af andvirði hússins hefur. verið greitt. Þú getur valið um upphæð mánaðrgreiðslna og einnig greitt hærri upphæðir eftir því sem þér hentar. Þú velur húsagerð og á hvaða Þetta er tækifæri sem margir hafa byggingarstigi þú vilt fá húsið afhent beðið eftir. Fjárfesting sem getur Innborgun við gerð samnings 10%. skilað umtalsverðum söluhagnaði. Allar innborganir eru að fullu verð- nú er óhætt að skipuleggja fram í tryggðar og miðaðar við vísitölu tímann þar sem Reykjavíkurborg byggingarkostnaðar sem verð húss- stefnir að nægu lóðaframboði næstu ins miðast einnig við. árin. Við höfum nú þegar fjölda lóða til ráðstöfunar. ÖRFÁUM HÚSUM ÓRÁÐSTAFAÐ í 1. ÁFANGA ^ HÚSA5MIÐJAN HF. LJ UPPLÝSINGASÍMI 43521 ATTU LOÐ? ERTU AÐ HUGSA UM AÐ BYGGJA? Við getum sparað þér stórfé og fyrirhöfn. Hjá okkur getur þú valið úr meira en 100 mismunandi teikningum. Verð kr. 35-55 þús. fyrir allar teikningar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.