Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 17

Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 Palestmumenn og ísraelar verða að viðurkenna gagnkvæman tilverurétt: Fólskuverk gegn saklausum háskólastúdentum eru ekki til þess fallin að greiða fyrir málinu Spjallað við Allan Shwaiki „Ég get ekki orða bundist vegna þeirra atburða, sem gerðust í Hebron á dögunum, þegar grímuklæddir menn réðust að arabiska háskólanum þar í borg og hófu þar stjórnlausa skothríð og hand- sprengjukast með þeim afleiðingum að þrír létu lífið og yfir þrjátíu særðust. Þetta hefði nú einhvers staðar verið nefnd fjöldamorð. Og ég get ekki ímyndað mér, að íslenskir háskólastúdentar telji slíka atlögu gegn saklausum vopnlausum námsmönnum annað en forkastanlega.“ Þetta sagði Allan Shwaiki, sem er fæddur í Palestínu og uppalinn í Jerúsalem og Hebr- on, en hefur verið búsettur að mestu á íslandi síðan 1966 og er löngu orðinn íslenskur ríkis- borgari. Hann leit inn á Mbl. á dögunum og kvað aðalerindi sitt að koma á framfæri mót- mælum vegna þessa. Hann starfaði á hóteli í Jerú- súsalem, þegar hann komst í kynni við Islendinga sem voru á ferð í ísrael og úr varð að hann kom hingað í október 1966. Hann kvaðst hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum, einkum vegna veðurlagsins til að byrja með. Auk þess var málið hon- um þrándur í götu, en eftir hálfs annars árs veru hér hafði hann náð ágætum tökum á því og talar prýðisgóða íslensku. Vegna sex daga stríðsins í júni 1967 fór hann ekki heim og kynntist síðan íslenskri konu sinni og staðfestist hér. Nú orð- ið unir hann ágætlega sínum hag, lýkur lofsorði á íslendinga fyrir heiðarleika og sanngirni. Allan var að læra landafræði við háskólann í Damascus áður en hann kom hingað. Um ágreining arabalandanna innbyrðis svo og framtíðarskip- an mála Palestínumanna segir hann: „Ágreiningur milli arabalandanna er ekki síst til- kominn vegna afskipta stór- veldanna, sem kynda undir úlf- úðina og magna upp deilur. Skipting arabalandanna kemur þarna einnig inn í. Varðandi Palestínumenn og þeirra stöðu er rétt að benda á að eftir sex daga stríðið tóku þeir upp nýja stefnu: í stað þess að flýja und- an ísraelum þegar þeir voru að ná vesturbakkanum sátu þeir sem fastast. Sjálfsagt vildu gyðingar vera lausir við okkur. Og í Hebron hefur lengi verið Allan Shwaiki ókyrrt. Rekja má það til þess að gyðingar hafa gert í því að setj- ast að innan um arabana og haft í frammi ögranir af öllu tagi. í raun eru vesturbakkabú- ar, þ.e. arabarnir, eins konar fangar. ísraelar taka vatn og rafmagn af þegar þeim hentar, óbreyttir ísraelskir borgarar bera vopn en aröbum er vitan- lega ekki leyft það. ísraelar bera vopn til að verja sig gegn aröbum — en í raun og veru eru það við sem þurfum oft og ein- att að verja okkur vegna yfir- gangs þeirra. En þetta á nátt- úrulega ekki við um alla, og ís- lenska orðtakið að ekki þurfi nema einn gikk í hverri veiði- stöð á við hér, og ég er hér ekki að firra araba allri sök. Palest- ínumenn standa á erfiðum tímamótum nú, m.a. vegna ágreiningsins innan PLO. Ara- fat hefur verið mjög duglegur og hann hefur á áhrifamikinn hátt komið málstað okkar áleiðis, en hins vegar er for- kastanlegt að hann skuli síðan leiðast út í það að ætla að fara að láta Hussein Jórdaníukon- ung koma fram sem einhvers konar samningsaðila fyrir okkur. Ætti þó Arafat að vera minningur þess sem gerðist 1973, þegar Hussein réðst gegn Palestínumönnum í Jórdaníu á miskunnarlausan hátt. Nú hafa arabar óskað eftir því við Sameinuðu þjóðirnar að gæslulið eða fulltrúar Rauða krossins fylgdust með fram- vindu mála á vesturbakkanum. Hvort á það verður hlustað er óvíst enn. Gyðingar verða að viðurkenna Palestínumenn til að hægt sé að tala saman — jú — og auðvitað verðum við líka að viðurkenna tilverurétt þeirra. Það er aldrei annars sök, þegar tveir deila, en hluti sakar getur verið mismikill. Það er að minnsta kosti mín skoðuft." 17 Norræn kvikmyndahátíð: íslensk mynd hlaut- gullverðlaun Norrænu kvikmyndahátíðinni „Nordisk Smalfilm og Video" lauk fimmtudaginn 28. júlí og voru sýnd- ar 38 myndir frá öllum Norðurlönd- unum. íslenska myndin „Áfallið" hlaut gullverðlaun í kvikmynda^ samkeppninni i unglingaflokki. Önnur islensk mynd, „Morgundag- urinn“, hlaut bronsverðlaun í ungl- ingaflokki og f flokki 16 ára og yngri hlaut íslenska myndin „Di- vina Tragedia" bronsverðlaun. I elsta flokknum, 25 ára og eldri, hlaut finnska myndin „Komprom- issi“ gullverðlaun og jafnframt vann Finnland stigakeppni milli landanna. I fréttatilkynningu frá Samtök- um áhugamanna um kvikmynda- gerð segir að þetta sé í fyrsta skipti sem Island hljóti titilinn Norður- landameistari í unglingaflokki og hafi árangur íslensku myndannaa verið góður, þar sem ekki voru sýndar fleiri íslenskar myndir á há- tíðinni. l ,Apglýsinga- síminn er 2 24 80 SYNDIR VERÐA: ÍJIMISSAN n IMISSAN Ejnissan PATROL-jeppinn fullkomni — Sá ódýrasti. SUNNY 2ja dyra. Sá sprettharöasti. CHERRY 3ja og 5 dyra. Sá langódýrasti! 700 VAN HIGH ROOF 4WD sendibifreið. MINI VAN 3ja dyra sendibifreið. SUBARU4WD STATION. Vinsælasti bíllinn á íslandi Stór-bílasýning laugardag og sunnudag kl. 2—5 VERIÐ VELKOMIN. OG AUÐVITAÐ VERÐUR HEITT Á KÖNNUNNI. INGVAR HELGASON HF ■ Sími33560 SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.